Morgunblaðið - 19.09.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.09.2005, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fimm einstæðarmæður með 2–4börn, ein amma, systir einnar móðurinnar og ung kona, alls 24 ein- staklingar. Þetta eru kól- umbísku flóttamennirnir sem eru nýkomnir til landsins eða eru væntan- legir innan skamms. Að auki er sjö manna fjöl- skylda frá Kósóvó komin til landsins. Það er engin tilviljun að svo margar einstæður mæður eru í hópnum frá Kólumbíu. Samkvæmt upplýsingum frá Flóttamanna- hjálp Sameinuðu þjóðanna eru ein- stæðar mæður sem hafa þurft að flýja heimkynni sín í Kólumbíu í sérstaklega erfiðri stöðu og af þeim sökum er lögð áhersla á að þær fái hæli í löndum þar sem bet- ur er búið að þeim. Ísland þykir raunar sérlega vel til þess fallið að taka á móti einstæðum mæðrum og fjölskyldum þeirra þar sem hér er þetta viðurkennt fjölskyldu- mynstur og velferðarkerfið tekur á ýmsan hátt tillit til þeirra. Konur í meiri hættu Einstæðar kólumbískar mæður sem hafa neyðst til að leggja á flótta eru í meiri hættu en margir aðrir í hópi flóttamanna. Lengi hefur verið ljóst að konur í hópi flóttamanna eru í meiri hættu en karlmenn. Þær eru áreittar og of- sóttar á ýmsa vegu og eru auk þess í mikilli hættu á að verða fyrir lík- amsárásum, þar á meðal kynferð- islegu ofbeldi. Þá hefur einstæðum mæðrum reynst afar erfitt að koma undir sig fótunum á nýjan leik vegna fordóma. Varla þarf að fara mörgum orðum um áhrif stríðs á börn. Hópurinn sem kemur til Íslands hefur um hríð dvalið í Ekvador og Kosta Ríka. Þar er fólkið vissulega öruggara en í Kólumbíu en engu að síður lítur Flóttamannastofnun SÞ svo á að öryggi þeirra sé ekki tryggt, að sögn Þórunnar Júl- íusdóttur, verkefnisstjóra hjá Rauða krossi Íslands, sem annast móttöku flóttamannanna ásamt velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Líkt og í Kólumbíu mæti konurnar ýmsum fordómum í Kosta Ríka og Ekvador og verða jafnvel fyrir árásum og ofsóknum af hálfu heimamanna. „Þær eru ekki metnar að verð- leikum og fá ekki tækifæri,“ segir hún. Konurnar geti ekki snúið aft- ur til Kólumbíu miðað við núver- andi ástand og í Kosta Ríka og Ekvador sé litið niður á þær, í fyrsta lagi vegna þess að þær eru flóttamenn og í öðru lagi vegna þess að þær séu einstæðar mæður. Þeim eru þó ekki allar bjargir bannaðar því margar þessara kvenna hafa menntað sig, ein er t.a.m. handverkskona og önnur lærði hárgreiðslu. Áhersla á íslenskunám Flóttamennirnir fá allir íbúð í Reykjavík og munu börnin og ung- lingarnir sækja Austurbæjarskóla og Iðnskólann og fullorðna fólkið stunda íslenskunám í vetur. Rauði krossinn útvegar þeim stuðnings- fjölskyldur og er miðað við að 4–5 íslenskar fjölskyldur verði hverri fjölskyldu flóttamanna innan handar og aðstoði þær við að að- lagast íslensku samfélagi. Þá mun Velferðarsvið Reykjavíkurborgar annast nauðsynlega þjónustu. Það var Flóttamannahjálp Sam- einuðu þjóðanna sem fór fram á það að Ísland tæki á móti flótta- mönnunum. Ingibjörg Brodda- dóttir, deildarstjóri innflytjenda- mála í félagsmálaráðuneytinu, segir að íslenskt samfélag þyki á margan hátt sérlega vel í stakk bú- ið til að taka á móti hópnum og vís- ar til þess að hér sé algengt að börn alist upp hjá einstæðum mæðrum sínum. 451 flóttamaður á 50 árum Þegar flóttamennirnir verða all- ir komnir til landsins hefur alls 451 flóttamaður komið hingað frá árinu 1956, að jafnaði um níu á ári. Frá 1996 hefur verið tekið á móti flóttamönnum á hverju ári, að ár- unum 2002 og 2004 undanskildum. Að sögn Ingibjargar hefur ríkis- valdið ekki tekið formlega ákvörð- un um hvort tekið verði á móti flóttamönnum á hverju ári, líkt og mörg vestræn ríki hafi gert og Flóttamannahjálp SÞ telur æski- legt. „Við stöndum okkur samt ágætlega. Við stöndum sómasam- lega að því að leggja fjármuni til Flóttamannahjálparinnar. Og stærð hópanna sem við tökum á móti er viðunandi,“ segir hún. Eftir því sem ástandið í hælis- landinu er betra, þeim mun auð- veldara er fyrir flóttamenn að að- lagast. Aðspurð segir Ingibjörg að ástandið á vinnumarkaði um þess- ar mundir muni að sjálfsögðu gera flóttamönnunum auðveldara að hefja nýtt líf hér á landi en hún tekur skýrt fram að íslensk stjórn- völd hafi aldrei tekið tillit til at- vinnuástands þegar ákvarðanir hafi verið teknar um að veita flóttamönnum hæli. Stærsti hópurinn kom frá Ung- verjalandi árið 1956, alls 52. Fram til ársins 1991 komu sex hópar til viðbótar og frá árinu 1996 hefur verið tekið á móti flóttafólki á hverju ári, að árunum 2002 og 2004 undanskildu. Fréttaskýring | 24 flóttamenn frá Kólumb- íu og 7 frá Kósóvó til landsins á þessu ári Mæður og börn á flótta Fimm einstæðar mæður frá Kólumbíu og börn þeirra fá hæli hér á landi í ár Þetta var áður kólumbísk lögreglustöð. Flýja borgarastyrjöld, ofsóknir og glæpagengi  Borgarastyrjöld hefur geisað linnulítið í Kólumbíu í um fjóra áratugi og á hverju ári falla þús- undir manna í valinn. Í fyrra var talið að um 1,2 milljónir af þeim 45 milljónum sem búa í Kólumbíu séu á flótta innan Kólumbíu und- an ofsóknum og stríðsátökum. Skæruliðar heyja blóðuga bar- áttu gegn stjórnvöldum og glæpahópar vaða uppi. Morð, pyntingar, nauðganir og mann- rán eru daglegt brauð í sumum hlutum landins. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is KÚLUSKÍTSHÁTÍÐIN 2005 fór fram nú um helgina og er þetta þriðja árið sem þessi tveggja daga hátíð er haldin hér. Hátíðin hófst með því að farin var skrúðganga frá Sel hóteli út með Stakhólstjörn þar sem kúluskítshöfðinginn kom að landi á báti sínum með nokkrar gull- fallegar kúlur sem hann afhenti Yngva Ragnari hótelstjóra til varð- veislu yfir hátíðina. Mannfjöldi tók þátt í skrúðgöng- unni í fögru veðri og voru þar á með- al yfir 70 japanskir ferðamenn, sem glöddust mjög við þessi hátíðahöld, enda er fyrirmyndin einmitt sótt til Japan. Þar heitir kúluskíturinn „marimo“ og er þjóðargersemi. Þriggja daga hátíð er haldin ár hvert við vatnið þar sem hann finnst í Japan, með miklu tilstandi og miklum hefðum sem tengjast kúluskít. Vatnaskúfur skal hann heita Í Mývatnssveit hafa veiðibændur lengi þekkt kúluskít, enda flækist hann í netum þeirra þegar lagt er á svæði þar sem hann lúrir á botn- inum. Gamall veiðimaður sagði fréttaritara að menn hefðu ekki kippt sér upp við að fá hann í netin því hann er auðhristur úr þeim og því meinlaus. Það var síðan 1977 sem rann- sóknamenn urðu fyrst varir við þennan sérkennilega gróður og áttu lengi í erfiðleikum með að átta sig á fyrirbrigðinu, og reyndar ekki fyrr en japanskur fræðimaður, dr. Isamu Wakana, hafði samband við Árna Einarsson um 1999 sem sú sér- kennilega staða varð mönnum ljós að fyrirbrigðið er hvergi að finna á jörðu hér nema í Mývatni og einu japönsku vatni. Jurtin finnst að vísu í fleiri vötn- um á Íslandi, en það sérkenni að hún myndi 12 cm kúlu eða bolta er ein- stakt hér. Nú hefur jurtinni verið gefið íslenskt heiti sem er „vatna- skúfur“. Árni Einarsson sagði það vera nokkurn mælikvarða á heil- brigði vatnsins hvernig kúluskít- urinn dafnar. Hann hefur verið held- ur á undanhaldi þessi ár síðan farið var að rannsaka tilvist hans í Mý- vatni. Von um góða veiði á næsta ári Margt var til skemmtunar á hátíð- inni um helgina. Dr. Árni Einarsson sagði frá kúluskítnum, samkeppni var meðal barna um bestu teikningu, fjölbreytt leiktæki voru í boði, Eist- arnir Jan og Valmar fluttu tónlist með fiðlum og píanóleik. Þjóðdansar voru stignir með söng sem danshóp- urinn Vefarinn frá Akureyri flutti á planinu við Sel hótel við hrifningu viðstaddra. Trúðurinn Skralli skemmti fólki. Boðið var uppá kaffi- hlaðborð, matarveisla var um kvöld- ið, varðeldur, flugeldasýning og dansleikur. Kynnir á dagskránni var Arnór Benónýsson. Á sunnudag var farið aftur niður á vatnsbakka og kúluskítnum skilað til síns heima og fylgir þeirri athöfn sú ósk og von að góð veiði gefist á næsta ári. 70 Japanar á kúluskítshátíð Morgunblaðið/BFH Tekið á móti kúluskítnum við Stakhólstjörn. Eftir Birki Fanndal, Mývatnssveit BLINDRAFÉLAGIÐ og foreldradeild Blindrafélags- ins afhentu á laugardaginn Sjónstöð Íslands sjónmæl- ingatæki að gjöf. Tækin voru keypt fyrir afrakstur sölu barnabókar og geisladisks undanfarna mánuði, sem foreldradeild Blindrafélagsins stóð fyrir. Tækin munu breyta möguleikum ungra barna með alvarlega augnsjúkdóma til aukins sjónþroska, minnka þörfina fyrir svæfingar og þar með auðvelda mælingar á augum. Að lokinni afhendingu stóð foreldradeildin fyrir samkomu fyrir blind og sjónskert börn og fjölskyldur þeirra. Þar komu meðal annars fram þau Benedikt búálfur (Björgvin Frans Gíslason) og Birgitta Hauk- dal. Þeim sem studdu söfnunina er þakkað fyrir. Morgunblaðið/Þorkell Helga Dögg Heimisdóttir og Unnur Þöll Benediktsdóttir afhentu Guðmundi Viggóssyni, forstöðumanni Sjón- stöðvar Íslands, gjafabréf fyrir nýju tækjunum á samkomunni á laugardaginn. Sjónstöð Íslands afhent ný sjónmælingartæki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.