Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Nýir frúarkjólar
Full búð af
öðruvísi vörum
Lomonosov postulín, rússneska
keisarasettið, í matar- og
kaffistellum. Handmálað og með 22
karata gyllingu. Frábærar gjafavörur.
Opið virka kl. 11-18, lau. 11-15. Sigurstjarnan, bláu
húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is
Alltaf besta verðið
VEGGFÓÐ
UR OG SKRAUTLISTAR
Er ekki kominn
tími til að gera
heimilið hlýlegt
fyrir veturinn?
Mikið úrval af
veggfóðri og
veggborðum fyrir
börn og fullorðna
Skrautlistar og
rósettur gera
heimilið hlýlegt
og glæsilegt
TEPPABÚÐIN - LITAVER
Grensásvegi 18 • símar 568 1950 og 581 2444.
„við eru sérfræðingar í veggfóðri“
Opnum eftir sumarlokun
Full búð af nýjum vörum
Pelsar stuttir og síðir • Leðurjakkar - kápur
• Mokkajakkar - kápur
ÚTBREIÐSLUSTEFNA Knatt-
spyrnusambands Evrópu, UEFA,
og Alþjóðaknatt-
spyrnusam-
bandsins, FIFA,
gerir Knatt-
spyrnusambandi
Íslands kleift að
ráðast í uppbygg-
ingu og endur-
bætur á Laugar-
dalsvelli í vetur.
Áætlaður kostn-
aður nemur rúm-
lega milljarði króna og þar af leggur
KSÍ til 440 milljónir króna en
stærsti hluti þess fjár kemur frá
UEFA og FIFA.
Hluti hagnaðar af heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu og Evrópu-
keppni landsliða rennur til út-
breiðslustarfs aðildarsambanda
FIFA og UEFA. Samband getur
meðal annars sótt um styrki vegna
byggingar kennslu- og fræðslumið-
stöðvar í tengslum við skrifstofu-
húsnæði viðkomandi sambands og
það er einmitt það sem KSÍ hefur
gert.
Fyrir um fjórum árum fékk KSÍ
vilyrði frá FIFA um 400.000 dollara
styrk til að hefja framkvæmdir og
vilyrði fyrir áframhaldandi styrk-
veitingum að ákveðnum skilyrðum
uppfylltum. Með samningi við
Reykjavíkurborg í liðinni viku var
þessum skilyrðum fullnægt, en
borgin leggur til 398 milljónir króna
í framkvæmdirnar og ríkisvaldið
hafði áður skuldbundið sig til að
reiða fram 200 milljónir.
Auk styrkja erlendis frá leggur
KSÍ fram fjármuni sem sambandið
hefur ávaxtað í kjölfar sölu á fyrra
húsnæði sambandsins sem var selt
þegar KSÍ flutti og tók við rekstri
Laugardalsvallar 1997. „Við notum
ekki rekstur Knattspyrnusam-
bandsins til þess að standa undir
þessari byggingu,“ segir Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, um fyr-
irhugaðar framkvæmdir, og áréttar
að þær komi ekki niður á framlögum
til aðildarfélaga KSÍ.
Eggert Magnússon segir að
FIFA og UEFA hafi ákveðið að
veita ákveðnum upphæðum til
mannvirkjagerðar knattspyrnusam-
banda og KSÍ væri að njóta góðs af
þeirri stefnu. Ekkert væri samt
sjálfgefið í þessu efni og það hefði
tekið langan tíma að fá nauðsynlega
fjárhæð frá FIFA og UEFA. Sem
stjórnarmaður í UEFA hefði hann
getað fylgt málinu vel eftir og nú
væri ekkert til fyrirstöðu, en áætluð
verklok eru 13. maí á næsta ári.
Sparkvellir um allt land
Fyrir um tveimur árum tilkynnti
Knattspyrnusamband Evrópu að í
tengslum við 50 ára afmæli UEFA
hefði verið ákveðið að styrkja hvert
aðildarsamband um eina milljón
svissneskra franka (um 50 millj. kr.)
til að byggja sparkvelli. Þá sagði
Eggert Magnússon að hann vonaði
að með aðstoð ríkisvaldsins, fyrir-
tækja og bæjaryfirvalda yrði hægt
að auka fjárhæðina í 150 til 200
milljónir.
„Þetta hefur gengið eftir og þegar
höfum við byggt 60 velli um allt
land, en sennilega þurfum við um 80
til 100 velli til að fullnægja þörf-
inni,“ segir hann.
KSÍ fær nokk-
ur hundruð
milljónir frá
UEFA og FIFA
Morgunblaðið/Golli
Uppbygging Laugardalsvallar miðar meðal annars að því að bæta aðstöðu áhorfenda enn frekar.
Eggert Magnússon
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steg@mbl.is
VAKNAÐ hafa upp spurn-
ingar, í kjölfar endurbótanna
á Laugardalsvelli, um hvort
hlaupabrautin fái að halda sér
en knattspyrnuunnendum
finnst mörgum hverjum það
tímaskekkja að hafa frjáls-
íþróttasvæði og knatt-
spyrnuvöll samtengd. Áhorf-
endur vilji fá stúkurnar nær
vellinum svo ná megi upp
meiri stemmningu á lands-
leikjum og telja einhverjir
slíkt geta haft áhrif á gengi
landsliðsins hverju sinni.
Eggert Magnússon, formað-
ur KSÍ, segir engar hug-
myndir vera uppi um flutning
á frjálsíþróttasvæðinu á þess-
um tíma og þyrfti að finna
nýja lausn fyrir frjáls-
íþróttafólk ef slíkt ætti að
verða að veruleika. Hann seg-
ist jafnframt einblína á þann
áfanga framkvæmda sem eru
að hefjast í lok mánaðarins og
skoða megi málin síðar, s.s. að
loka vellinum alveg og flutn-
ing hlaupabrautarinnar. Hann
segir KSÍ hafa verið í sátt og
samlyndi við frjálsíþrótta-
menn og vonist til að það góða
samstarf haldi áfram.
Ekki hreyft
við hlaupa-
brautinni
Fréttasíminn
904 1100