Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 10
Forsætisráðherra í fríi og
tjáir sig ekki við fjölmiðla
10 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræðan
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
KVENNAHREYFING innan Sam-
fylkingarinnar var stofnuð í Hvera-
gerði á laugardaginn og mættu yfir
120 konur af öllu landinu á stofn-
fundinn. Fjögurra manna stjórn var
kjörin og hefur hún skipt með sér
verkum. Bryndís Friðgeirsdóttir,
bæjarfulltrúi á Ísafirði, er formaður
hinnar nýstofnuðu hreyfingar.
Með Bryndísi í stjórn sitja Ragn-
hildur Helgadóttir úr Reykjavík,
Sigrún Stefánsdóttir frá Akureyri og
Drífa Kristjánsdóttir af Suðurlandi.
Þá mun þingflokkurinn skipa eina
konu til viðbótar. Stjórnin mun und-
irbúa framlagningu samþykkta um
form hreyfingarinnar og helstu
verkefni hennar á grundvelli vinnu
stofnfundarins. Framhaldsstofn-
fundur verður haldinn innan þriggja
mánaða.
Formaður kannast
ekki við átök
Í frétt frá RÚV á laugardaginn
kom fram að átök hefðu skapast á
fundinum en Bryndís kannast ekki
við að svo hafi verið.
„Ég hringdi í aðra úr stjórninni og
spurði hvort hún kannaðist við þetta
en svo var ekki,“ segir Bryndís.
„Hún hafði hins
vegar verið beðin
að bjóða sig fram
til formanns. Það
var líka óljóst
þegar fundurinn
hófst hvort for-
maðurinn yrði
kjörinn sérstak-
lega eða hvort
stjórnin yrði kos-
in í heild sinni
eins og gert var.“
Bryndís segir að ákveðið hafi verið
að halda framhaldsaðalfund innan
þriggja mánaða og þar verði tekin
fyrir mál sem varði lög hreyfingar-
innar.
„Það var búið að leggja fram drög
að lögum en það höfðu ekki allir
fundarmenn náð að lesa þau gaum-
gæfilega svo það var ákveðið að
fresta þessu,“ segir Bryndís.
Hún segir að ekki sé komið alveg á
hreint hvernig hreyfingin muni
starfa, enda hafi mikil vinna farið í
undirbúning stofnfundarins. Þannig
séu til dæmis skiptar skoðanir um
hvort aðeins skráðir meðlimir Sam-
fylkingarinnar megi ganga í hreyf-
inguna eða hvort hún verði opin öll-
um. Einnig þurfi að ákveða hvort
hreyfingin verði aðildarfélag flokks-
ins eða hvort hún standi utan hans.
Eðlilegt að stofna
karlahreyfingu
Bryndís segir að henni lítist vel á
framhaldið.
„Mér finnst nauðsynlegt að hafa
svona kvennahreyfingar innan
flokka yfirleitt,“ segir hún. „Þetta er
samt ekki til höfuðs körlunum. Það
er bara svo oft þannig að ef konur
langar að hasla sér völl vantar þær
tengslanet sem karlarnir virðast
hafa ómeðvitað.“
Aðspurð um hvort hún teldi eðli-
legt að stofna karlahreyfingu innan
flokksins segir hún að telji karlarnir
þörf á slíku félagi eigi þeir tvímæla-
laust að stofna það.
„Því fleiri öfl innan flokksins, því
betra,“ segir hún. „Meðal brýnustu
verkefna kvennahreyfingarinnar
núna er að styðja við bakið á konum
sem vilja gefa kost á sér í komandi
sveitarstjórnarkosningum og stuðla
að því að þær konur sem fyrir eru
haldi áfram.“
Í fréttatilkynningu frá hinni ný-
stofnuðu hreyfingu er meðal annars
lögð áhersla á að auka áhrif kvenna
jafnt innan Samfylkingarinnar og í
samfélaginu öllu og á að beita þurfi
tiltækum tækjum til að leiðrétta
ójafnrétti kynjanna sem enn sé til
staðar.
Kvennahreyfing stofnuð innan Samfylkingarinnar
„Ekki til höfuðs körlunum“
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Bryndís
Friðgeirsdóttir
ÁRBÆINGAR héldu sína árlegu
hausthátíð á laugardag. Mikið var
um að vera á hátíðinni sem hófst
með helgistund í Árbæjarkirkju.
Eftir það var nýtt Árbæjartorg
vígt, en torgið er á milli kirkjunnar,
skólans og félagsmiðstöðvarinnar
Ársels. Þaðan var haldið í skrúð-
göngu í fylgd lúðrasveitarinnar
Svans. Göngunni lauk í húsi Orku-
veitunnar þar sem heilmikil
skemmtidagskrá tók við. Þar var
fjölskylduhátíð í tilefni opnunar
Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og
Grafarholts í húsakynnunum.
Að sögn Hafsteins Snælands, frí-
stundarráðgjafa Þjónustu-
miðstöðvar Árbæjar, gekk dag-
urinn í alla staði vel. Hann segir að
u.þ.b. 800 manns hafi komið í Orku-
veituhúsið. Þar ávarpaði Steinunn
Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri
samkomuna ásamt því að félagar úr
Spaugstofunni voru með grín og
glens, skólabörn tóku lagið, sýnt
var atriði úr söngleiknum Annie,
ýmsir tónlistarmenn léku fyrir
gesti sem auk þess stóð til boða 500
manna hátíðarkaka.
Hátíðinni lauk svo á Fylkisvelli
þar sem Fylkir lék sinn síðasta
heimaleik í sumar á móti ÍBV.
Hausthátíð í Árbæ
Morgunblaðið/Þorkell
Ungmenni á vegum Árbæjarkirkju tóku lagið við vígslu Árbæjartorgsins.
BJÖRN Bjarna-
son dóms-
málaráðherra
segir á vefsíðu
sinni um helgina
að afstaða sín
gagnvart Örygg-
isráði Sameinuðu
þjóðanna hafi um
árabil verið sú að
Ísland eigi að halda fast við framboð
sitt. Meiri áhætta geti falist í að
hverfa frá ákvörðun um framboð en
að halda fast í hana.
Í dagbókarfærslu sinni á föstudag
rifjar Björn upp að það hafi verið
fyrir 20 árum, að Geir Hall-
grímsson, þáverandi utanríkis-
ráðherra, hafi tilkynnt starfs-
bræðrum sínum á Norðurlöndunum,
að Íslendingar vildu komast inn í
norrænu framboðsröðina til örygg-
isráðsins. Árið 1998 hafi ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar, með Halldór Ás-
grímsson sem utanríkisráðherra,
ákveðið að til framboðsins skyldi
gengið. Björn Bjarnason segir að
spurningar í málinu, sem þurfi að
svara, lúti að því hvort skynsamlegt
sé að verja fé og kröftum í baráttu
fyrir setu í öryggisráðinu.
Davíð ekki tekið af skarið
„Davíð Oddsson hefur dregið at-
hygli að kostnaðinum, sem þessu
fylgir og réttilega sagt hann mikinn.
Hann hefur hins vegar ekki tekið af
skarið í málinu. Það gerði Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra hins
vegar í ræðu sinni á leiðtoga-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 15.
september,“ segir Björn.
Daginn eftir, á laugardeginum,
segist Björn á vef sínum sjá að
fréttir fjölmiðla snúist enn um yf-
irlýsingu forsætisráðherra um fram-
boð Íslands til setu í öryggisráðinu.
„Nú ganga forystumenn Fram-
sóknarflokksins fram fyrir skjöldu
og telja óvissu ríkja um málið,“ seg-
ir Björn og rifjar upp að árið 1998,
þegar framboðið var ákveðið, hafi
verið ljóst að það yrði kostn-
aðarsamt. Síðan hafi efnahagur
þjóðarinnar batnað og enn traustari
grunnur verið lagður að hagvexti en
þá hafi verið í vændum.
„Þegar ég íhuga þetta mál, finnst
mér í raun meiri áhætta felast í því,
að hverfa frá ákvörðuninni frá 1998
en halda fast í hana. Með því að
snúa við blaðinu væri gefin yfirlýs-
ing um, að Ísland treysti sér ekki til
annars en standa á hliðarlínunni í
alþjóðastjórnmálasamstarfi. Væri
skynsamlegt fyrir stjórnvöld að gefa
slíka yfirlýsingu á sama tíma og
lögð er áhersla á útrás á öllum svið-
um?“ spyr Björn og segist ekki sjá
að forsætisráðherra hafi getað sagt
annað um framboðið á 60 ára af-
mælisfundi Sameinuðu þjóðanna en
Halldór hafi gert sl. fimmtudag,
bæði í ljósi ákvörðunar ríkisstjórn-
arinnar árið 1998 og ræðu Geirs H.
Haarde sem starfandi utanrík-
isráðherra á allsherjarþingi SÞ á
síðasta ári.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í dagbókarfærslu um Öryggisráðið
Meiri áhætta að hætta við
Bætir engu
við ræðuna
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra er
í fríi erlendis og mun á meðan ekki tjá sig
við fjölmiðla, sagði Björn Ingi Hrafnsson,
aðstoðarmaður hans, þegar Morgunblaðið
leitaði eftir viðbrögðum frá Halldóri við um-
mælum forystumanna Framsóknarflokksins
í blaðinu á laugardag um framboð Íslands til
setu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Guðni Ágústsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, sagði framboðið vera í upp-
námi og Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður framsóknarmanna, sagði málið
ekki hafa verið afgreitt í þingflokknum.
Björn Ingi sagði Halldór hafa flutt sér þau
skilaboð að hann hefði engu við ræðu sína á
leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna sl.
fimmtudag að bæta. Þar ítrekaði Halldór í
lok ræðunnar að Ísland væri í framboði til
setu í Öryggisráðinu tímabilið 2009 til 2010.
Að sögn Björns Inga var þar eingöngu verið
að upplýsa leiðtogafundinn um stefnu Ís-
lands varðandi Öryggisráðið. Um þá stefnu
hefði hann haft fullt samráð við vænt-
anlegan utanríkisráðherra, Geir H. Haarde,
fyrir leiðtogafundinn.