Morgunblaðið - 19.09.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.09.2005, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Í UMRÆÐU um flutning innan- landsflugs til Suðurnesja hefur ýms- um sjónarmiðum verið haldið á lofti svo sem vænta má í jafn viðkvæmu og mikilvægu máli. Í há- degisfréttum RÚV föstudaginn 16. sept- ember sl. brá hins veg- ar svo við að talsmaður Flugmálastjórnar blandaði sér inn í um- ræðuna með fáheyrðum hætti og reyndi að slá Keflavíkurvöll út af kortinu. Þetta er at- hyglisvert fyrir margt. Í bakið á samgöngu- ráðherra Í fyrsta lagi kemur embættismaðurinn þarna beinlínis í bakið á fagráðherra flugmála en kvöldið áður hafði Sturla Böðvarsson lýst því yfir á fjölmennum fundi að ef innanlandsflugið færi frá Reykjavík væri eðlilegast að það lenti á Suð- urnesjum. Auðvitað má Heimir Már hafa sína prívatskoðun á staðsetn- ingu innanlandsflugs en í umræddum fréttatíma var hann kynntur sem talsmaður Flugmálastjórnar. Sem sagt opinber stofnun sem heyrir und- ir æðsta yfirmann flugmála, sam- gönguráðherra, setur opinberlega of- an í við ráðherrann með einkennilegri röksemdafærslu. Eldgos og ekki eldgos Í öðru lagi beitir Flugmálastjórn fyrir sig þeim rökum að vegna hættu á eldgosi á Reykjanesi sé Keflavík- urflugvöllur ekki inni í myndinni fyrir innanlandsflug. Heyr og endemi. Sannarlega búum við á eldfjallaeyju og höfum lagað okkur að þeirri stað- reynd. Yrði alvöru gos á Reykjanesi (sem reyndar hefur ekki orðið í 7–800 ár) er víst að gjóska þess legðist jafnt yfir réttláta sem rangláta – nefnilega Faxaflóasvæðið allt – þ.m.t. Reykja- víkurflugvöll. Þá bendi ég talsmanni Flugmálastjórnar á ungt hraun á Álftanesi, við Hafnarfjörð og í Heiðmörk. Með rök- semdarfærslu Flug- málastjórnar ætti í raun að leggja niður allt flug á sv-horninu og beina allri flugumferð á bas- altsvæðin á Vest- fjörðum eða Aust- fjörðum. Skaðar markað Ég átel Flug- málastjórn fyrir að stunda „hræðsluáróður“ með yfirlýs- ingum sínum á grundvelli eldgosa- hættu. Vinnubrögð af þessum toga eru vítaverð. Benda má á að mikill uppgangur er á Suðurnesjum. Fjöl- margir hafa kosið að flytja þangað á síðustu árum – sveitarfélögin öll kappkosta að bjóða lóðir til húsbygg- inga. Yfirlýsing Flugmálastjórnar getur skaðað þá uppbyggingu með því að gefa í skyn að þar sé yfirvof- andi meiri hætta á eldgosi en annars staðar. Stofnunin á að kalla til baka hina einkennilegu yfirlýsingu sína. Dularfullar herþotur í Reykjavík Í ljósi þessara vinnubragða fyllist maður einnig tortryggni vegna hinna einkennilegu lendinga fjögurra Harriet-þotna á Reykjavík- urflugvelli. Sami talsmaður Flug- málastjórnar segir í fjölmiðlum (sama dag og hann reynir að slá Keflavíkurflugvöll út af borðinu) að herþoturnar hafi lent í Reykjavík sem varaflugvelli vegna slæmra lend- ingarskilyrða í Keflavík. Samtímis lenda allar farþegaþotur suður frá. Harriet-vélarnar eiga að vera sérlega vel útbúnar og þola margt. Ég dreg mjög í efa að lendingarskilyrði á Suð- urnesjum hafi verið þennan dag þannig að fullkomnustu herþotur hafi þurft frá að hverfa meðan farþega- vélar lentu sem ekkert væri. Ég krefst þess að Flugmálastjórn geri opinberlega grein fyrir því hvernig og hver hafi tekið ákvörðun um hina einkennilegu lendingu umræddan dag. Fagleg vinnubrögð eiga að ráða Hlutverk Flugmálastjórnar er að gæta alls öryggis í flugi. Hefur hún að mörgu leyti staðið sig vel í því. Hlut- verk hennar er ekki að blanda sér inn í pólitískar umræður og beita fyrir sig vafasömum rökum. Stofnunin glatar við það trúverðugleika sínum og þá er illt í efni. Flugmálastjórn ætti fremur að bjóða áhuga- samtökum aðstoð við að fara faglega yfir rök með og á móti því hvar innan- landsflugi er best fyrir komið. Flugmálastjórn ræðst á Suðurnes Hjálmar Árnason svarar Flugmálastjórn ’Ég krefst þess aðFlugmálastjórn geri op- inberlega grein fyrir því hvernig og hver hafi tekið ákvörðun um hina einkennilegu lendingu umræddan dag.‘ Hjálmar Árnason Höfundur er alþingismaður. REYJAVÍK er varla borg fyrir fólk. Reykjavík er borg fyrir bíla. Yfir 40% hennar eru undirlögð steypu- og malbiksskúlptúrum hönnuðum sérstaklega fyrir bíla. Ekkert er til sparað, sem von er – inni í bílunum þarf fólk að eyða ómældum tíma í þessum glæsilegu skúlptúrum, aðeins með ráðleggingar frá Umferðarráði á Rás 2 til að stytta sér stundir eða að gefa duglega inn í þeirri von að einhver heyri hve feykilega kraft- mikil dósin, sem það situr inni í, er. Í öðrum borgum, þar sem ástandið er jafnslæmt eða jafnvel verra, eru yfirvöld – og innilokaða fólkið ekki síður – farin að gera sér grein fyrir að breikk- un og „bæting“ skúlptúranna leys- ir engan vanda, vegna þess að þeir eru í raun og veru sjálfur vandinn. Svo er því ekki háttað í henni Reykjavík. Í Reykjavík spretta upp slaufur, lykkjur og flækjur upp á og niður af mislægum gatnamótum til þess að bílarnir komist tvö hundruð metrum lengra áður en þeir verða að stoppa á umferðarljósum. Þar sem „framkvæmdir í samgöngu- málum spara fé“ er það líklega hið besta mál. Hins vegar vill oft gleymast að til „samgöngumála“ telst fleira en milljóna og milljarða króna „mann“-virki á mörgum hæðum, hönnuð undir bíla. Samgöngur sem byggja á slíkum virkjum eru heldur ekki þær skilvirkustu eða afkastamestu sem völ er á, a.m.k. ekki í borgum. Almennings- samgöngur, þ.e. strætó, eru… ættu að vera mun hagkvæmari og fljótlegri kostur til að komast milli staða. Ættu að vera! En eru það ekki, því strætó verður að notast við sömu, glæstu „mann“-virkin sem þegar eru yfirfull af eins manns fjölskyldubíl- um. Undir „samgöngu- mál“ ætti líka að flokka hjólreiðar. Ætti að flokka! En það er ekki gert. Af einhverjum sökum er litið á hjólreiðar sem heilsusamlegt tóm- stundagaman, sem ber að stunda á úti- vistar- og göngustíg- um borgarinnar – sem flestir liggja, óupp- lýstir með 50-70 cm hjólaræmum, meðfram strand- lengjunni. Þó hjólastígana vanti er þó búið að prenta kort; göngu- og hjóla- stígakort. Prentun þessi er lofs- verð og er almenn ánægja meðal hjólreiðamanna með hana, þó margt megi þar betur fara. Eitt af því er hve margir stígar eru bara á kortinu; þ.e. þeir eru hvergi sjá- anlegir í borginni sjálfri, aðeins á kortinu. Einnig hve oft mjóar gangstéttir, oftar en ekki með gráum stálgrindum eða ljósastaur- um á þeim miðjum, eru hiklaust merktar sem „hjóla“-stígar og að tröppur þykja sjálfsagðar á hjóla- stígum. Hins vegar er fínt að vita að Hringbrautin, vestan Suð- urgötu, sé orðin hjólastígur. Og ef hjólað er eftir „bus“-akreininni á Miklubraut (sem hjólreiðamenn ættu að hafa fullan rétt á, þó ekki væri nema sem „verðlaun“ fyrir að hafa komist óskaddaðir gegnum gatnamótavölundarhúsin sem liggja á víð og dreif eftir Miklu- braut og Kringlumýrarbraut) er nú þegar komin nokkuð greið leið vestur að hringtorginu við Ána- naust – leiðin austur er enn nokk- uð flókin og krefst töluverðar dirfsku af hálfu hjólreiðamannsins. Kort þetta er frábært framtak ef allt sem þar er merkt mun koma – ef allt sem kortið sýnir mun verða að veruleika innan allt of margra ára. Ef svo er verða hjólreiðar sérlega hagkvæmur, og þ.a.l. eftirsóknarverður, kostur í samgöngum í borginni. Þá munu hjólreiðar teljast til „samgöngu- mála“. Þetta eru þó nokkuð stór, og þess vegna skáletruð, ef. Er ekki sniðugra að byggja fyrst og þá teikna kort af því sem er til stað- ar? Hvað liggur á? Vissulega er hugsanlegt að sam- gönguvikan (16.–22. september) eigi einhvern þátt þar í. Að kortið skuli vera komið í prentun fyrir þá viku; engu er líkara en að ekki sé gert ráð fyrir að nokkur muni hjóla eða ganga að þeirri viku lok- inni. Minnir slíkur asi ekki eilítið á mann sem er að mála skorstein á húsi sem verið er að taka grunn- inn að? Asi eða enginn asi, rétt kort eða ábótavant; öll þau er unnu að þessu korti eiga þakkir skildar, og fá þær hér með frá mér – og enn meiri og fleiri ef þegar borgin fer að líkjast kortinu frekar. Reykjavík – borg bílanna? Heimir Viðarsson fjallar um gildi hjólreiða ’Er ekki sniðugra aðbyggja fyrst og þá teikna kort af því sem er til staðar?‘ Heimir Viðarsson Höfundur situr í stjórn Lands- samtaka hjólreiðamanna. MORGUNBLAÐIÐ birti á dög- unum brosglaða mynd bæjarstjórans í Garða- bæ, Gunnars Ein- arssonar, og þá fyr- irsögn, að nú muni bæjarsjóður leggja fram tuttugu þúsund krónur á ári með hverju barni til að greiða þátttökugjöld barna á aldrinum sex til sextán ára vegna þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfsemi. Í greininni segir bæj- arstjóri að í nýlegri könnun komi fram að bæjarbúar séu ánægðir með flest er lýtur að íþrótta- og æskulýðsmálum, en aft- ur á móti þyki fólki kostnaður við þátttöku barna í íþróttum og öðru félagslegu tómstundastarfi vera of mikill. Gjöld í einstökum þáttum eru rakin í greininni. Kostnaður við að hafa barn í fimleikum getur numið áttatíu þúsund krónum, bolta- greinarnar eru um kr. þrjátíu þúsund, er þá ótalinn ýmis kostn- aður sem fylgir þátt- tökunni. Fyrir utan þetta eru síðan sum- arnámskeið sem rukk- að er fyrir sér- staklega. Mörg börn stunda nám við Tón- listarskóla Garða- bæjar og hleypur kostnaðurinn á tugum þúsunda króna. Á þessu má sjá hversu gríð- arlegur kostnaður þetta er fyrir Garðabær – hristir af sér slenið? Eyjólfur Bragason fjallar um kostnað við íþróttaástundun barna Eyjólfur Bragason STUNDUM verður mönnum á að meta aðstæður rangt. Þegar borg- arstjóri segir að loksins sé að verða einhugur um að losa okkur við Reykjavík- urflugvöll leyfi ég mér að efast um að það sé rétt og eins að rétt sé að færa miðstöð innan- landsflugs úr höf- uðborginni. Hluti af rökum fyrir þessu felst í að skoða „hugmynda- fræðina“ að baki flug- inu og hluti í að gerast nútímalegur og „hugsa grænt“. Af hverju svona innanlandsflug? Auðvitað réðu herðnaðarhagsmunir því að Reykjavík- urflugvöllur var byggð- ur. En við vorum líka heppin um leið því hann auðveldaði upp- byggingu öflugra sam- gangna sem hafa skipt byggð í landinu afar miklu í um 70 ár. Flug- ið kom að hluta í stað hraðra járnbraut- arsamgangna – frá borg til bæjar og öfugt. Síðan hefur bíllinn náð langt með bættu vegakerfi þannig að ekki er grundvöllur (enn) fyrir styttri flug- leiðum en u.þ.b. 250 km. Sú þróun, bílferð í stað flugferðar, nær ekki miklu lengra meðan vetnis/rafbílar eru enn fjarri og eldsneytislítrinn stefnir í 120–150 krónur. Gleymum því ekki að ekinn kílómetri kostar 40– 80 krónur eftir bílgerð og slíka 400 ekna kílómetra skal bera saman við verð flugferða. Í ljósi þessa er „hug- myndafræðin“ að baki virku innan- landsflugi sem hér segir: Flug með 20–50 manna hljóðlátum og sparneyt- num vélum sparar fé sem ella færi til aksturs. Flugið sparar tíma og því meiri sem flugvellir eru nær þéttbýli. Ferð frá „miðju til miðju“ tekur innan við tvo klukkutíma og menn erindast á tíma sem nemur allt niður í hálfs- dagsferð. Flugið þjónar aðallega fólki í brýnum erindagjörðum, stjórnsýsl- unni, starfsfólki fyrirtækja og stofn- ana, sjúklingum og námsmönnum en ferðamenn eru í verulegum minni- hluta (nema landsbyggðarfólk í ut- anferðum). Þeir kjósa oftast hægari ferðamáta. Græn hugsun Í umræðunni um Reykjavíkur- flugvöll sést lítið til umhverfismála. Menn láta jafnan eins og 70–90 km akstur til og frá Keflavík sé „ekkert mál“ og svo er „tíminn svo stuttur“. Íslend- ingar eru nauðbeygðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda og það gerist ekki með því að beina 300.000 manns eða fleirum á bíl- um til Keflavíkur og lengja flugtíma um 2 x 5 til 7 mínútur. Auk þess eykst kostnaður af sí- fellt fleiri eknum kíló- metrum og verðmæta- sóun af auknu bílasliti sömuleiðis. Til eru að- ferðir eins og vistfer- ilsgreining til að sýna fram á umhverfisáhrif ólíkra kosta í sam- göngum, þar sem flestir þættir eru dregnir að matinu, ekki bara valdir þættir, eins og tími eða rými. Lausnir En hvað með bygg- ingarland í Vatnsmýr- inni, bágt atvinnuástand í Reykjanesbæ og fleira? Reykjavík- urflugvöllur varðar alla landsmenn og getur ekki nýst til að leysa vanda- mál stakra byggða. Og hvað mýrina góðu varðar þá felst ágæt lausn í að hanna minnsta mögulega innanlands- völl upp úr þeim gamla (tvær 1.000– 1.200 m brautir lengdar í sjó fram, undir nýjar vélar) og nýta land sem þar með losnar (er það 60% núver- andi vallarlands?) undir byggingar. Háskólabyggingar, þekkingarþorp, breiðgatan Hringbraut, spítali og fleiri mannvirku eru ekki beinlínis hluti af heildrænni hugsun í skipu- lagsmálum, svo miklir tækifær- issinnar erum við Reykvíkingar og höfum alltaf verið. Kannski er að verða of seint að hanna fyrrnefnda lausn með litlum, sjálfsögðum, „grænum“ og „hugmyndafræðilega“ bærilegum Reykjavíkurflugvelli. Vel gæti farið svo að innanlandsflug héldi að einhverju leyti reisn á Keflavík- urflugvelli en það væri ekki lausn sem sæmir vakandi nútímamönnum. Vatn sótt yfir lækinn Ari Trausti Guðmundsson fjallar um Reykjavíkurflugvöll Ari Trausti Guðmundsson ’Og hvað mýr-ina góðu varðar þá felst ágæt lausn í að hanna minnsta mögu- lega innanlands- völl upp úr þeim gamla …‘ Höfundur er jarðeðlisfræðingur og áhugamaður um umhverfismál og ferðalög.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.