Morgunblaðið - 19.09.2005, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 21
UMRÆÐAN
fjölskyldur í Garðabæ. Kostnaður-
inn getur numið hundruðum þús-
unda og hefur sannanlega hindrað
börn til þátttöku. Það sem kemur
mér á óvart er að það þurfi könnun
til að meirihluti sjálfstæðismanna
ranki við sér. Það er margbúið að
benda þeim á þennan gríðarlega
kostnað. Nágrannar okkar í Hafn-
arfirði hafa fyrir löngu brugðist við í
þessu sambandi.
Víst skal góðu fagnað
Framlag bæjarins til þessa mála-
flokks er skref í rétta átt og ber að
þakka, þótt seint komi. „Það hefur
verið stefna að styðja við barna- og
unglingastarf og tryggja þar með
hag þeirra síðar í lífinu.“ Fagurt er
það markmið. En hafa bæjaryf-
irvöld fylgt þeirri stefnu dyggilega?
Svarið við því er því miður neitandi.
Nægir þar að nefna það ófremdar-
ástand sem ríkti hér allt fram á síð-
asta ár í íþróttamannvirkjum. Við
foreldrar erum ekki búnir að
gleyma akstrinum á milli bæj-
arfélaga og hesthúsa til að börn
okkar gætu stundað íþróttir. Þau
mannvirki sem síðan hafa risið hafa
verið lengi á leiðinni, og illa skipu-
lögð. Það er ekki gerð áætlun til
frambúðar og engin miðstöð félags-
íþróttastarfs finnst. Þá er enn
mörgum íþróttagreinum úthýst í
bænum.
Leitað langt yfir skammt
Það er vitað, að fulltrúar bæjarins
hafa farið ferðir utan til að kynna
sér byggingu íþróttamannvirkja og
sundlaugagarða og sjálfsagt til að
fræðast um skipulag þeirra mála.
Fróðlegt væri að vita kostnaðinn við
slíkar ferðir tvö síðustu kjörtímabil.
Það er samt staðreynd, að árangur
þessara fræðsluferða er vart sjáan-
legur. Fulltrúum bæjarins hefði
nægt að heimsækja nágranna okkar
í Hafnarfirði og Kópavogi, þar hafa
vinnubrögð öll verið til fyrirmyndar.
Það sama má segja um Reykja-
nesbæ og Seltjarnarnes. Á þessum
stöðum voru fundir boðaðir til um-
ræðu um þessi mál og leitað eftir
áliti og samstöðu íbúanna.
Betra seint en aldrei
Ég endurtek að það er þakk-
arefni, að bæjarstjóri okkar beitir
sér fyrir styrk til þátttöku æsk-
unnar í félags-og íþróttamálum. Það
má þó minna á að Gunnar Ein-
arsson var ráðinn íþróttafulltrúi
þegar árið 1980 og hefur verið yf-
irmaður íþrótta- og æskulýðsmála
og reyndar menntamála æ síðan.
Það hefur því gefist nægur tími til
að koma með þessa bót mála en
geyma það ekki, uns nýjar bæj-
arstjórnarkosningar blasa senn við.
Ég er þeirrar skoðunar, að íþrótt-
ir og gott æskulýðsstarf sé besta
vörnin gegn hvers konar vímu og
annarri vá. Ég vil að starfsdagur
barna okkar sé gerður heildstæður
þannig að íþróttir, tónlistarnám og
annað tómstundastarf sé unnið í
samvinnu við skólann og húsnæði
skólanna nýtt til hins ýtrasta. Ég vil
líka að allt þetta starf sé styrkt af
almannafé að mestu. Þá munu öll
börn njóta þess burtséð frá efnahag
og stöðu fjölskyldunnar.
Stefna í þessum málum þarf að
vera meiri en tuttugu þúsund króna
styrkur. Sjálfstæðismenn hafa ekki
mótað neina heildstæða framtíð-
arstefnu í þessum málaflokki. Síð-
asta afrek þeirra var að breyta
skipulagi við Ásgarð. Það vita allir
hversu mjög hefur verið þrengt að
aðalíþróttasvæði bæjarins und-
anfarin misseri með tilviljunar-
kenndum byggingum á svæðinu. Í
stað þess að auka nú við svæðið út í
Hraunsholtið hafa þeir tekið góða
sneið frá íþróttasvæðinu.
Öll stefna og allar aðgerðir til
bóta á þessum vettvangi eiga að
vinnast með þátttöku foreldra og
sérfróðra aðilja, en ekki sem dek-
urverkefni kvíðinnar flokksforystu
og vina þeirra. Ég skora á bæjarbúa
að kynna sér þessi mál vel. Við
þurfum nýja forystu í bæinn, þá er
ég sannfærður um að Garðabær
mun endurheimta stöðu sína sem
einn mesti íþróttabær landsins.
’Stefna í þessum mál-um þarf að vera meiri
en tuttugu þúsund
króna styrkur.‘
Höfundur er áfangastjóri við
Fjölbrautaskólann við Ármúla.
VETRARSTARF Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni er að
hefjast og væntum við
góðrar þátttöku í því
fjölbreytta félagsstarfi
er þar fer fram.
Við fögnum glæsilegu
félagsheimili, björtu og
rúmgóðu, að Stang-
arhyl 4 og vonum að vel
fari um fólk. Maður er
manns gaman segir hið
fornkveðna og sannleik
þess má sannreyna í
vetur. Innan félagsins
er starfsemin fram-
undan kynnt og á skrif-
stofunni liggur frammi upplýsingapési
góður og í Stað og stund Morg-
unblaðsins má svo daglega sjá hvað
fram fer hverju sinni.
Mig langar hér að tæpa á þrennu, af
því þeir þættir eru mér nokkuð skyld-
ir.
Söngvakan sæla er annan hvern
miðvikudag kl. 14.30 og hefst núna 14.
september.
Þar kemur fólk og syngur saman af
hjartans lyst, hver maður með sínu
nefi við léttan undirleik Sigurðar
Jónssonar tannlæknis og píanóleik-
ara. Þar er lagaval fjölbreytt og sér-
hver sem söngvagleði á í hjarta sínu
mun geta fundið þar kjörinn vettvang
til að yngja og hressa sálartetrið.
Smábland í poka er á
hverri söngstund og allt
vel þegið þar á bæ og
svo taka menn sér
söngvahlé og drekka
kaffi og rétt að taka
fram að verðið er 500
krónur. Ég vona að ég
sjái sem allra flesta á
þessum stundum okkar í
vetur, því fleiri, því
skemmtilegra.
Bókmenntaklúbbur
verður nú öðru sinni að
fenginni góðri reynslu á
síðasta vetri og þar koma menn saman
með annað hvort sjálfvalið efni til
kynningar eða rætt er um ákveðið efni
– ljóðakyns eða sagnaefni. Þessi hópur
kemur saman annan hvern þriðjudag
kl. 14.30 og hefst samveran nú þann
13. sept. Það er Sólveig Sörensen sem
þar heldur um stjórntauma en annars
er formið frjálslegt og allar frekari
hugmyndir vel þegnar. Skorað er á
fólk að koma og leggja sitt til mála.
Svo er áformað að efna til nokkurra
skemmtikvölda í vetur með blönduðu
en umfram allt léttu efni og áætlað að
30. sept. verði þessari nýbreytni
hleypt af stokkunum.
Svo er allt ótalið annað, bridsið,
skákin, félagsvistin, síðdegisdansinn
sem nú verður annan hvern föstudag,
danskennslan, kaffitárið, Göngu-
Hrólfarnir, stafgangan, framsögnin
og síðan eru þarna Söngfélag FEB og
Snúður og Snælda með sitt mikla og
blómlega starf og ekki má gleyma
sunnudagsdansleikjunum.
Svo ætlum við að halda menning-
arhátíð í Borgarleikhúsinu 19. okt.
Það eru yfir 8000 félagar í Félagi
eldri borgara í Reykjavík, því ætti
ekki að vanta fólk í hið margþætta fé-
lagsstarf, þar sem allir eiga að geta
fundið eitthvað við hæfi til að virkja
þann kraft sem sannarlega í okkur
býr. Ég segi því eins og krakkarnir
segja í dag: Sjáumst og heyrumst.
Eldri borgarar – virkið kraftana
Helgi Seljan vekur athygli
á öflugu félagsstarfi eldri
borgara í Reykjavík
Helgi Seljan
’… væntum við góðrarþátttöku í því fjöl-
breytta félagsstarfi er
þar fer fram.‘
Höfundur er varaformaður FEB,
Reykjavík.