Morgunblaðið - 19.09.2005, Side 34
34 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Baldur Gunnars-son fæddist í
Hafnarfirði 13. nóv-
ember 1930. Hann
lést á St. Jósefsspít-
ala 10. september
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðný Sæmunds-
dóttir, húsfreyja, f.
15. október 1893, d.
21. júní 1982, og
Gunnar Jónsson, sjó-
maður, f. 15. júní
1897, d. 17. nóvem-
ber 1954. Systkini
Baldurs eru: Sigríður, f. 1923; Jón
Hjörtur, f. 1925, d. 1998; Steinunn,
f. 1926; Sæmundur, f. 1929, d. 1995;
Sæunn, f. 1931; og Guðný Gunnur,
f. 1933.
Árið 1954 kvæntist Baldur Öldu
Traustadóttur, f. 14. apríl 1935.
Foreldrar hennar voru Trausti
Jónsson, f. 1907, d. 1994, og Dag-
björg Jónsdóttir, f. 1906, d. 1949.
Baldur var áður trúlofaður Huldu
Elsu Gestsdóttur, f. 19. apríl 1930,
d. 20. febrúar 1994, þau slitu sam-
vistir. Börn Baldurs og Huldu Elsu
eru: a) Kristín Marja Baldursdóttir
f. 1949, eiginmaður Björgvin
Björgvinsson, þeirra börn eru
eru Friðrik Páll, f. 1988, og Alex-
ander, f. 1989, barn Öldu og Þor-
steins er Tinna Sól, f. 1995.
Barnabarnabörn Baldurs eru 12.
Baldur Gunnarsson var fæddur
og uppalinn í Hafnarfirði og átti
þar heima allt sitt líf. Hann fór ung-
ur til sjós og var sjómaður frá 16
ára aldri til rúmlega fertugs. Hann
hóf sjómannsferilinn með föður
sínum sem þá var kokkur á togur-
um. Baldur lauk gagnfræðaprófi
frá Flensborg og seinna hlaut hann
vélstjóraréttindi. Baldur var á ýms-
um fiskiskipum framan af ævi, svo
sem Faxaborginni, en var í mörg ár
vélstjóri á aflaskipinu Eldborgu
GK 13 frá Hafnarfirði og voru það
án efa hans bestu ár til sjós. Baldur
teiknaði m.a. merki skipsins sem
síðast þegar vitað var prýddi enn
Hólmaborgina, áður Eldborg, frá
Eskifirði. Hann lauk sjómannsferli
sínum hjá Eimskip á skipinu
Skógafossi. Eftir að í land kom
starfaði Baldur lengst af sem lag-
erstjóri hjá Almenna bókafélaginu
eða vel yfir áratug. Einnig starfaði
hann þó nokkur ár hjá Nóa Hreini
og Síríus.
Helstu áhugamál Baldurs voru
málaralist og bækur og notaði
hann hverja stund sem gafst frá
amstri dagsins til að sinna áhuga-
málum sínum og málaði m.a. tölu-
vert.
Útför Baldurs verður gerð frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Soffía Eydís f. 1970,
Hildur Erla, f. 1973,
og Hulda Elsa, f.
1973, og b) Þórdís
Jóna Kristjánsdóttir
(ættleidd), f. 1950,
eiginmaður Magnús
Jónsson. Börn Þórdís-
ar og fyrri eigin-
manns, Þórðar Gunn-
ars Valdimarssonar,
eru Hildur Björk, f.
1967, María, f. 1969,
Gunnar Þór f. 1974 og
Tinna Karen, f. 1980.
Börn Öldu og Bald-
urs eru: 1) Dagbjörg Baldursdóttir,
f. 1953, eiginmaður Tómas Frosti
Sæmundsson, þeirra börn eru
Hrafnhildur Elísabet, f. 1969, Fjóla
Fabíóla, f. 1973, d. 1975, Sigurveig
Sara, f. 1977, og Katrín Kine, f.
1985. 2) Trausti Baldursson, f.
1956, sambýliskona Gunnhildur
Pálsdóttir, þeirra börn eru Smyrill,
f. 1975, og Vífill, f. 1982. 3) Gunnur
Baldursdóttir, f. 1959, eiginmaður
Svavar Ellertsson, þeirra börn eru
Alda Karen, f. 1978, Hilda Guðný, f.
1982, og Ellert Þór, f. 1988. 4) Alda
Baldursdóttir, f. 1967, eiginmaður
Þorsteinn Jónsson. Börn Öldu,
barnsfaðir Friðrik Páll Ágústsson,
Það haustaði of snemma í lífi föður
míns, hann var þó maðurinn sem
hefði getað málað haustið í litum sem
aðrir sjá ekki. Hefði hann fengið tíma.
En sem ungur maður gaf hann sér
tíma til að kenna börnum sínum að
mála og meta listina. Fyrstu sex árin í
lífi barns geta verið þau mikilvæg-
ustu, þá er grunnurinn að uppeldi
þess lagður, og kannski að lífi líka.
Hvort hann hefur verið sér meðvit-
andi um þá staðreynd veit ég ekki, en
oft hef síðar undrast frábærar upp-
eldisaðferðir hans, einkum þegar haft
er í huga að hann var ekki orðinn tví-
tugur þegar hann eignaðist mig. Ég
var frumburðurinn, og átti athygli
hans óskipta fyrstu árin enda þótt ég
væri alin upp hjá foreldrum hans.
Hann opnaði heim bókmenntanna
með því að lesa fyrir mig á kvöldin
ævintýri og sögur, og leiddi mig inn í
myndlistina með því að lofa mér að
fylgjast með þegar hann málaði. Sem
hann gerði í frístundum. Þá lét hann
mig skoða listaverkabækurnar sínar,
sagði mér frá myndunum og málur-
unum, svo skilmerkilega að ég þekkti
alla frönsku impressionistana með
nafni fimm ára. Til að auka þekkingu
mína í myndlistinni tók hann mig oft
með þegar hann sótti sýningar í
Listamannaskálanum og víðar. Hann
átti það líka til að bregða á leik, hann
var ungur, með strákinn í sér, og þá
kenndi hann mér erlend dægurlög,
lét mig standa uppi á stól og syngja
hástöfum á tungumáli sem ég skildi
ekki orð í. Og hann hafði ekki síður
áhuga á íþróttum en músík, ég man
eftir ágætri tilsögn í skylmingum.
Hann samdi ljóð og safnaði bókum
af ástríðu eins og faðir hans hafði
gert. Það voru þó ekki ritgerðirnar
sem hann aðstoðaði mig við þegar ég
var komin í framhaldsskóla, heldur
stærðfræðin. Hann var sá eini sem
gat fengið mig til að skilja tölur. Þeg-
ar ég fór ung að kenna notaði ég að-
ferðir hans. Ég notaði einnig uppeld-
isaðferðir hans, hafði þá reglu í huga
að tala ætíð við börn með virðingu
eins og væru þau fullorðið fólk.
Vegna hæfileika sinna á svo mörg-
um sviðum varð faðir minn aldrei
gamall þótt hann eltist og þótt hann
væri orðinn þroskaðri þegar systkin
mín komu til sögunnar veit ég að þau
fengu líka að njóta hugmyndaríkis
hans. En eins og oft er títt um andríkt
fólk, var hann hlédrægur maður.
Leiddist allt umstang, sagði fátt þeg-
ar margir voru viðstaddir en fór á flug
í listinni þegar fáir hlýddu á. Hann
var bæði góður og fallegur, öllum
þótti vænt um hann. En mistilteinn-
inn hæfði hann. Og ásunum var af-
taka mikil og missa í fráfalli Baldurs.
Kristín Marja Baldursdóttir.
Með þessum örfáu orðum langar
mig til að minnast tengdaföður míns,
Baldurs Gunnarssonar, sem lést hinn
10. september síðastliðinn á 75. ald-
ursári. Leiðir okkar lágu fyrst saman
á haustdögum árið 1968 og áttum við
því samleið um langt skeið. Á fyrstu
hjúskaparárum okkar Kristínar
Marju var oft leitað til Baldurs, eink-
um þegar þurfti að gera við þvotta-
vélar og ýmsar rafmagnsvörur. Það
var alveg sama hvaða tæki eða vél það
var sem bilaði, allt gat Baldur gert
við. Það var ósjaldan þannig að hann
tók verkfærin með þegar hann kom í
heimsókn til að yfirfara og gera við
það sem hann vissi að tengdasonur
hans hafði trassað eða hafði ekki
kunnáttu til. Baldur var vélstjóri að
mennt og sjómennskan kallaði á hann
eins og marga aðra unga menn á
þessum árum. Á síldarárunum var
hann vélstjóri á aflabátnum Eldborg-
inni, hann var stoltur af því að hafa
verið þátttakandi í síldarævintýrinu
og minntist á þá tíma þegar tækifæri
gafst. Baldur var stórhuga á síldarár-
unum og réðst í að byggja sér og fjöl-
skyldu sinni tveggja hæða hús með
risi og kjallara að Móabarði 10 í Hafn-
arfirði. Hann var ekki einungis hand-
laginn, hann var einstaklega drátt-
hagur og ekki vafðist það fyrir honum
að yrkja og setja saman vísur án þess
að hafa mikið fyrir því, þótt hann
sjálfur segði alltaf að hann ætti ekki
auðvelt með það. Listhneigð var hon-
um sannarlega í blóð borin og má sjá
hvernig börn hans og barnabörn hafa
erft gáfu hans og hæfileika.
Þegar Baldur var í siglingum á
millilandaskipum notaði hann hvert
tækifæri sem gafst til að fara á söfn í
evrópskum stórborgum, þar sem
hann kynnti sér það sem gömlu
meistararnir höfðu málað og einnig
það sem nútímalistin hafði fram að
færa. Hann talaði oft um hve honum
þótti þetta vera skemmtilegur og lær-
dómsríkur tími. Þegar litið er til
þeirra fjölmörgu málverka og vatns-
litamynda sem Baldur gerði um æv-
ina má sjá að hann hafði gaman af að
mála myndir tengdar sjónum og sjó-
mennsku. Hann hafði einnig mjög
næmt auga fyrir landslagi og margar
myndir hans af uppstillingum eru af-
ar listrænar og vel málaðar.
Baldur var ekki síður andans mað-
ur enda las hann mikið fyrr á árum og
bókasafn hans var orðið mjög stórt. Á
síðustu árum kom Baldur stundum í
heimsókn upp í Gerðhamra. Þá sátum
við yfir kaffibolla og mauluðum kex
og töluðum um skáld og skáldverk.
Ekki vorum við alltaf sammála um til-
gang og gæði bókmennta en við átt-
um það sameiginlegt að fara saman í
ferð um lendur skáldskaparins og
nutum þess að geta gleymt okkur frá
amstri dagsins. Þessi tími var ein-
stakur fyrir mig og minninguna um
tengdaföður og góðan dreng er gott
að hafa.
Að lokum bið ég þann sem öllu
stýrir að styðja og styrkja Öldu og
fjölskylduna í sorg þeirra við fráfall
Baldurs Gunnarssonar.
Björgvin Björgvinsson.
Þegar afi vann hjá Almenna bóka-
félaginu kom hann oft fótgangandi
heim til okkar í hádeginu þótt um
nokkurn spöl væri að fara. Þetta voru
góðar stundir því afi hafði góða nær-
veru og ekki skemmdi fyrir að oft tók
hann alls konar góðgæti með sér. Afi
var háttvís og hávaðalaus maður,
hlustaði á okkur stelpurnar mala út í
eitt með aðdáunarverðri þolinmæði
en sagði þó skemmtilega frá svona
þegar hann fékk að komast að. Allt
hans fas og hátterni endurspeglaði
rólegan mann sem fór í alla staði eftir
hinni gullvægu reglu að flýta sér
hægt. Við hin ýmsu tækifæri vakti
það ávallt undrun okkar og þó nokkra
kátínu hversu hægt afi borðaði og
aldrei þreyttumst við á að óska skýr-
inga á þessu háttalagi enda fengum
við alltaf sama svarið sagt með yf-
irvegaðri röddu: Það er gott fyrir
meltinguna að borða rólega.
Hvort sem það var því að þakka
eða gönguferðum hans um Hafnar-
fjörð og nágrenni, þá var afi hraustur
maður. Einn var sá veikleiki sem
hann þó hafði, og virðist sá veikleiki
reyndar vera ættgengur, en afi var
sólginn í súkkulaði. Við stelpurnar
nutum þó góðs af því og oftar en ekki
er við komum í heimsókn á Móabarð-
ið fengum við Nóakonfekt eða annað
súkkulaði, sem oftast nær var vand-
lega geymt í afakompu. Afakompa
var lengst af í risinu og hvíldi yfir
henni mikil dulúð enda var aðgangur
að henni stranglega bannaður. Stund-
um fengum við þó að kíkja inn í helgi-
dóminn og bar þar margt undarlegt
og spennandi fyrir augu. Í kompunni
málaði afi myndirnar sínar þegar tími
gafst til og erum við systur stoltar að
eiga málverk eftir afa sem prýða
heimili okkar. Afi var hógvær maður
og það sýndi sig í því að hann undr-
aðist að við skyldum sýna myndum
hans áhuga og þykja þær fallegar.
En afi átti fleiri áhugamál, hann las
mikið og átti ógrynni bóka. Vart varð
þverfótað fyrir bókum innan um mál-
verkin í afakompu. Það gladdi hann
mikið að fá nýja bók að gjöf og á
yngri árum gat hann oft lesið fram á
nætur með kaffibrúsann sinn. Afi
kenndi okkur að umgangast bækur af
virðingu og fyrir það erum við þakk-
látar. Á þessari kveðjustund finnum
við glöggt að afi skipar stóran sess í
æskuminningum okkar og verður
hans sárt saknað. Blessuð sé minning
hans.
Hildur Erla, Hulda Elsa og
Soffía Eydís Björgvinsdætur.
Í fjögurra ára afmælinu mínu
komst ég að dálitlu merkilegu um
hann afa minn, hann hafði sko alger-
lega sömu skoðun og ég á því hvernig
átti að borða kökur og aðrar kræs-
ingar. Ég sat við hliðina á honum og
við vorum bæði að gæða okkur á
hinni víðfrægu tyggjóköku. Allt í einu
bendir hann mér á að ég sé nú ekki að
borða hana rétt, því maður á sko að
borða verri hlutann fyrst og geyma
þann góða þar til síðast. Mér leið
næstum eins og Edison þegar hann
fann upp ljósaperuna. Það er senni-
lega þessi minning sem lætur mig
alltaf hugsa um afa minn sem algeran
sælkera. Hann afi minn gerði nú líka
margt annað en að kenna litlum
stelpuskjátum að borða kökur rétt.
Frábær listamaður er sennilega sá
titill sem ég myndi setja á hann í
símaskrána. Ég man ekki eftir afa
öðruvísi en að hann hafi verið að
dunda sér við að mála eða teikna eitt-
hvað. Þegar ég lít á myndirnar sem
hann hefur gert þá líður mér eins og
hann sé hreinlega ekki farinn neitt,
heldur vaki hérna yfir okkur og sé
bara að halda áfram að teikna okkur
öll. Á milli þess sem hann teiknar
okkur er hann samt sennilegast að
lesa góða bók. Hann afi minn átti
nefnilega fleiri bækur en ég get
ímyndað mér að nokkur gæti komist
yfir að lesa á heilli ævi. Ég hef alltaf
verið voðalega stolt af honum afa
mínum, ég held nefnilega að duglegri
mann sé erfitt að finna. Alltaf þegar
ég bendi fólki á hvar afi minn og
amma eiga heima þá hef ég alltaf
bætt við „og hann afi minn byggði sko
þetta hús“. Ég verð líka ævinlega
þakklát fyrir þann tíma er ég bjó í
kjallaranum hjá honum og ömmu,
mikið var nú hugsað vel um mann.
Elsku afi minn, það er svo óraun-
verulegt að ég eigi aldrei eftir að sjá
þig aftur, en ég hugga mig við það að
þar sem þú ert núna líður þér svo
miklu betur. Ég kveð þig því í bili, vit-
andi það að einn daginn munum við
hittast aftur.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft-
ur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum.)
Þín dótturdóttir,
Alda Karen.
Elsku afi. Við systurnar fengum
ekki að kynnast þér eins vel og við
vildum, þar sem við bjuggum lengi í
útlöndum, en þú skilur samt eftir
mikið tómarúm í hjörtum okkar.
Við vorum mjög heppnar að við
fengum allar að kynnast þér á
ákveðnum stigum í lífum okkar.
Við höfum mjög mismunandi
minningar um þig, elsku afi, þar sem
mikill aldursmunur er á okkur, en all-
ar þær minningar munum við geyma
á sérstökum stað. En minning stend-
ur þó upp úr hjá okkur öllum og það
er hversu mikill sælkeri þú varst.
Hann afi átti alltaf nammi til að
lauma að okkur. Einnig var alltaf
gaman að fara með þér í veislur þar
sem við vorum alltaf fyrst að borðinu
til að ná okkur í kökur og gúmmulaði.
Við lofum þér því, elsku afi, að borða
alltaf eina sneið fyrir þig.
Kær kveðja.
Hrafnhildur Elísabet, Sigurveig
Sara og Katrín Kine.
BALDUR
GUNNARSSON
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINÞÓR GESTSSON,
fyrrv. alþingismaður og bóndi
á Hæli í Hreppum,
verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju þriðju-
daginn 20. september kl. 13.30.
Jarðsett verður á Stóra-Núpi.
Jóhanna Steinþórsdóttir,
Gestur Steinþórsson, Drífa Pálsdóttir,
Aðalsteinn Steinþórsson,
Margrét Steinþórsdóttir,
Sigurður Steinþórsson, Bolette Höeg Koch,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÓLAFUR HELGASON
framkvæmdastjóri,
Njörvasundi 36,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju mánu-
daginn 19. september kl. 13.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Guðrún Ólafsdóttir, Benedikt Aðalsteinsson,
Sigríður Herdís Ásgeirsdóttir, Sigurður Ingi Ljótsson,
Ólafur Pétur Ásgeirsson, Edda Jónsdóttir,
Eiríkur Sturla Ólafsson,
Ísabella, Natalía og Máni Freyr.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
SIGURÐUR KRISTJÁNSSON,
húsasmíðameistari,
Hrannarbyggð 19,
Ólafsfirði,
lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði
föstudaginn 16. september.
Útför hans fer fram í Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 23. september kl.
14.00.
Lilja Ólafsdóttir,
Tómas Sigurðarsson, Rut Friðfinnsdóttir,
Kristján Sigurðarsson,
Lilja Ólöf Sigurðardóttir, Agnar Helgi Arnarson,
Randver Sigurðsson, Helga Sveinbjörnsson,
Ólafur Sigurðsson,
Jón Hjörtur Sigurðsson, Sigríður Ingimundardóttir
og barnabörn.