Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 36

Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 36
36 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björn Björns-son fæddist á Akureyri 24. ágúst 1949. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 11. september síðast- liðinn. Hann var sonur Björns Jóns- sonar forseta ASÍ, alþingismanns og ráðherra, f. 3. sept. 1916, d. 26. apríl 1985, og Þórgunn- ar Kristbjargar Sveinsdóttur hús- freyju, f. 1. apríl 1922, d. 13. nóv. 1990. Systur Björns eru Rannveig, f. 1942, maki hennar er Guðmundur Karl Jónsson; Hildur, f. 1946, maki hennar er Pálmar Guðjónsson; og Svava, f. 1957, maki Emil Gautur Emils- son. Eftirlifandi eiginkona Björns er Guðný Aðalsteinsdóttir, f. 1. sept. 1949. Foreldrar hennar eru Aðalsteinn Sigurðsson, f. 1916, og Carla Marie Albertsson, f. 1927. Seinni kona Aðalsteins er Ástrún Valdimarsdóttir, f. 1920. Dætur Björns og Guðnýjar eru: 1) Bryndís, f. 29. mars 1978, maki hennar er Magni S. Sigmars- son, f. 1975. 2) Ás- dís, f. 8. ágúst 1980, maki hennar er Guðni Már Harðarson, f. 1980. Björn varð stúd- ent frá MA 1969 og lauk BS-prófi í við- skiptafræði frá HÍ 1973. Að námi loknu hóf hann störf hjá kjara- rannsóknanefnd en gerðist síðan hag- fræðingur Alþýðusambands Ís- lands og gegndi því starfi frá 1981–87. Þá var hann um tíma aðstoðarmaður fjármálaráð- herra. Hann var bankastjóri Al- þýðubankans 1988–89, banka- stjóri hjá Íslandsbanka 1990–93 og eftir það framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, þar til hann varð aðstoðarforstjóri í ársbyrj- un 2003. Hann lét af störfum í bankanum fyrr á þessu ári. Björn gegndi þar að auki fjöl- mörgum trúnaðarstörfum. Útför Björns verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Ég minnist Björns Björnssonar tengdaföður míns með djúpu þakk- læti. Björn var einstakur maður, góður tengdapabbi og ríkur per- sónuleiki sem alla sína daga hlúði að lífinu. Ég fékk að kynnast honum vel þau fjögur ár sem ég bjó á heimili hans og er ríkari fyrir vikið. Björn hafði sérstakt lag á að láta fólki líða vel í nærveru sinni, hann var alltaf með á hreinu hvaða verkefnum ég var að sinna og spurði af einlægni og áhuga um guðfræðinámið. Þannig hlúði hann að mér. Björn var afar gestrisinn maður og sá til þess að allir fyndu sig velkomna. Björn var ekki maður margra orða, hann náði langt í starfi sínu og sinnti ýmsum trúnaðarstörfum af hógværð. Aldrei heyrði ég hann last- mæla nokkrum manni enda bar hann virðingu fyrir manneskjum og mál- efnum. Hann kaus að láta verkin tala fremur en hástemmd orð um fyrir- ætlanir sínar, hann gekk hratt og skipulega í þau verk sem hann valdi sér hvort sem það var að hjálpa við klósettviðgerðir, útbúa kartöflugarð í sumarbústaðnum eða skipuleggja sumarfríið sitt. Björn kom hlutunum beint í verk en gramdist stundum ef aðrir fylgdu ekki með. Minningarnar um Björn eru margar og verður aldrei nóg sagt. Hann hafði góða kímnigáfu og stríddi sínum nánustu óspart. Auð- velt er að sjá hann fyrir sér við mat- arborðið í faðmi fjölskyldunnar með hnyttnu tilsvörin á vörunum eða sposkan á svip með stríðnisglampa í augum. Minning sem kallar í senn fram bros á vörum og tár á vanga. Ég sé hann fyrir mér fyrir rúmum tveimur vikum á heimili sínu, orðinn þollítill með súrefnisgleraugu en engu að síður að vökva blómin. Þannig var hann, sama á hverju gekk – alltaf að hlúa að lífinu. Heilræðin hans tvö úr brúðkaups- ræðunni til okkar hjóna hafa verið ofarlega í huga síðustu daga: „Megi börnin ykkar verða ykkur jafnmikil gleði og þið hafið verið foreldrum ykkar.“ Með litla ófædda barnabarn- ið hlýjar þessi ósk hans okkur. En jafnframt orðin sem hann endaði ræðuna sína á: „Gætið hvert að öðru.“ Við það mun öll fjölskyldan standa. Megi Guð sem nú geymir Björn Björnsson einnig varðveita minn- ingu hans. Guðni Már Harðarson. Ég læt mig engin binda bönd – þú bregst mér ei mín styrka hönd. Ég sé í fjarska sól á strönd og sigli burt að nema lönd. (Árni frá Múla.) Kær bróðir, sem í dag er borinn til hinstu hvílu, var mikill lífskúnstner í besta skilningi þess orðs. Hann var hafsjór af fróðleik og kannaði stöð- ugt ný svið á lífsleiðinni. Uppistaðan í lífi hans var traust og sterk og hann þræddi ívafið þráð eftir þráð af list. Hann hlaut í vöggugjöf góðar gáfur sem hann nýtti bæði sjálfum sér og öðrum til gagns og ánægju. Hann gaf af sjálfum sér eins og þeir einir geta sem mikið er gefið. Hann hafði einstakt lag á að krydda tilveruna með skemmtilegum tilvitnunum, kímni og græskulausu gamni, okkur öllum sem þykir vænt um hann til gagns og gleði. Ótal sinnum höfum við systurnar notið leiðsagnar hans og hjálpsemi. Börnum okkar var hann góður og gjöfull frændi og vinur og fylgdist alltaf með því sem þau voru að starfa og fyrir það allt minnumst við hans í mikilli þökk. Foreldrum okkar var hann ein- staklega góður sonur. Þau bjuggu í skjóli hans og Guðnýjar um alllangt skeið og var það þeim afar mikill styrkur og uppspretta gleði og ánægju að fylgjast með dætrum þeirra vaxa úr grasi. Þar endurgalt hann þeim þann kærleik sem hann var umvafinn í æsku en hann var augasteinn foreldra okkar. Þrátt fyrir rólegt yfirbragð var Björn hamhleypa til vinnu, vel skipulagður, frekar vanafastur og alltaf traustur og áreiðanlegur. Björn var hamingjumaður í einka- lífinu. Á unglingsárum bast hann Guðnýju sinni ástarböndum. Saman hafa þau fetað veginn í kærleik og djúpri vináttu í 39 ár. Sólargeislarnir í lífi þeirra eru dæturnar tvær, Bryndís og Ásdís. Sterkir og skemmtilegir þræðir voru milli Björns og Cörlu tengda- móður hans þar sem góð kímnigáfa þeirra beggja fékk notið sín. Við sem elskuðum Björn erum öll harmi slegin. Við vildum öll hafa hann svo miklu lengur hjá okkur. En ekki dugar að deila við dómarann. Við skulum hafa viðhorf hans til lífsins að leiðarljósi. Hann horfði alltaf ótrauður fram á veginn til nýrra verkefna. Síðasta verkefnið tókst hann á við af æðruleysi og reisn. Við kveðjum bróður okkar með ást, virðingu og þakklæti. Rannveig, Hildur og Svava. Mikið óskaplega er lífið hverfult. Það er allt í lukkunnar velstandi en svo hringir góður vinur og segist hafa greinst með krabbamein. Eftir það verður ekkert eins og áður. Bjössi tók veikindum sínum af miklu æðruleysi og bjartsýni. Sam- vistirnar í vinahópnum urðu á ein- hvern hátt innilegri og þrátt fyrir veikindin eru þessir síðustu mánuðir fagrar perlur á langri perlufesti minninganna. Við Bjössi kynntumst fyrst þegar við innrituðumst báðir í viðskipta- deild Háskóla Íslands haustið 1969. Hann var rólegur og yfirvegaður, skarpgreindur, áreiðanlegur og bauð af sér góðan þokka. Góðir mannkostir sem einkennt hafa hann alla ævina. Góð vinátta tókst með okkur þegar við sáum saman um ráðstefnu viðskiptafræðinema í Vestmannaeyjum um íslenskan sjáv- arútveg og hefur aldrei borið skugga á síðan. Þegar við vorum að ljúka náminu kynntust konur okkar, þær Inga og Guðný, og við fjögur fórum í ógleym- anlega þriggja vikna Evrópuferð eft- ir útskriftina. Á þessum tíma þróað- ist náið vinasamband okkar Ingu við Þórarin Klemensson (Tóta) skóla- bróður minn úr MR, konu hans Ás- dísi Sigurgestsdóttur og Bjössa og Guðnýju. Við vorum öll að stofna heimili, kaupa okkar fyrstu fasteign og eignast börn. Á þeim árum sem liðin eru höfum við fylgst með börn- unum vaxa úr grasi og verða full- orðið fólk. Sjálf höfum við örlítið elst en ekki mikið og þeim mun undar- legra er að einn skuli nú vera horfinn úr hópnum. Við Tóti og fleiri bekkjarbræður úr MR vorum með óformlegan bridgeklúbb sem tók nokkrum breytingum á fyrstu árunum, eink- um vegna námsferða meðlima til út- landa. Bjössi kom fljótlega til liðs við okkur og síðar Gylfi Sveinsson og hefur hópurinn verið óbreyttur í rúm 30 ár. Fyrst í stað spiluðum við hálfsmánaðarlega en seinni árin vikulega, alltaf á þriðjudögum, stundvíslega frá kl. 20 til 24 en gerð- um þó hlé á spilamennskunni yfir blá sumarið. Spilakvöldin fluttust á milli okkar í stafrófsröð og þær eru ekki litlar kræsingarnar sem við höfum þegið hjá eiginkonunum þessi rúmu 30 ár! Við fórum meira að segja í húsbændaorlof í Brekkuskóg að spila bridge í nokkur ár. Yfirleitt var lítið vín haft um hönd á bridgekvöld- um en þó skal játað að Brekkuskóg- arferðirnar voru nokkur undantekn- ing. Við vinirnir brölluðum reyndar ýmislegt fleira, fórum t.d. tíu ár í röð í veiðiferðir upp á Arnarvatnsheiði með mörgum fleiri góðum félögum. Í sumar gerðum við ekki hlé á spilamennskunni heldur byrjuðum fyrr og borðuðum saman góðan mat og spiluðum svolítið. Þrátt fyrir veikindi Bjössa héldum við áfram að spila og njóta þess að vera saman í lengstu lög; síðasta spilakvöldið var 30. ágúst sl. Nú verða þriðjudags- kvöldin ekki þau sömu framvegis. Það er sagt að gott sé að eiga góðs að minnast. Það geta vinir Björns vissulega huggað sig við. Betri dreng og vin er vart hægt að hugsa sér. Að okkur vinum hans er kveðinn mikill harmur en sýnu meiri þó að Guðnýju og fjölskyldunni. Með þess- um orðum vil ég tjá þeim samúð mína og okkar Ingu um leið og við þökkum fyrir þau forréttindi að hafa átt Björn að vini. Daníel Þórarinsson. Björn Björnsson er einn af fáum nánum vinum sem ég hef eignast um ævina. Þótt stundum hafi liðið nokk- uð á milli þess að við hittumst var hver fundur eins og framhald af samtali sama morgun. Strengirnir voru stilltir saman, sama lífsviðhorf- ið og sama matið á umhverfinu. Við hittumst fyrst nýkomnir úr námi, báðir sæmilega sjálfsöruggir og tilbúnir í slaginn fyrir betra sam- félagi. Ég óþolinmóður og ýtinn, Björn með báðar fætur á jörðinni en hugmyndaríkur og fylginn sér þegar á reyndi. Við höfum verið samferða síðan nánast alltaf á sama vinnustað. Fyrst í vinnu fyrir ASÍ og síðar í Ís- landsbanka. Í bankakerfinu nýttust kostir Björns einstaklega vel. Traust minni og fullkomin yfirsýn yfir þau verk- efni sem hann var að fást við ásamt útsjónarsemi varðandi lausnir mála gerðu að verkum að við sem unnum með honum fundum oft til vanmeta- kenndar. Þekking og hæfni gáfu honum sterka yfirburði. Samt held ég að í verkum sínum fyrir ASÍ hafi Björn notið sín enn betur. Þar unnum við saman úr hug- myndum sem hvorugur vissi hvor átti þegar upp var staðið, fremur en hvor hefði fundið farveginn til að gera þær að raunveruleika. Við skiptum með okkur málflutningi gagnvart þeim hópum sem þurfti að sannfæra. Hægð Björns og rósemi, notaleg nálægð og kímni gerði sam- vistirnar að góðum stundum, jafnvel þótt tilefnið væri þras og leiðindi. Við þær aðstæður reynir á hæfni í mannlegum samskiptum. Það er ekki auðvelt að koma inn í hóp til að skýra og afla fylgis við hugmyndir sem hópurinn telur ómögulegar, út í hött og óframkvæmanlegar og skilja við hópinn sáttan og reiðubúinn til að beita sér fyrir framgangi niður- stöðunnar. Þar reynir ekki bara á þekkingu á málefninu heldur ekki síður á dómgreind og skilning á for- sendum og bakgrunni þeirra sem talað er við. Björn var aldrei bara starfsmaður. Hann var hluti af for- ustu samtakanna og axlaði pólitíska ábyrgð á því sem gert var til jafns við aðra forustumenn. Út á við var hann trúverðugur og öflugur tals- maður. Hugmyndaauðgi, fagmennska, sannfæringarkraftur og þrautseigja eru forsenda þess að axla forustu- hlutverk og skila árangri. Innihald skiptir meira máli en orðafjöldinn, skipuleg verkstjórn meira máli en skipurit. Björn gekk inn í alla hópa, hvort sem var í bankanum eða verkalýðshreyfingunni, eins og hann ætti þar heima. Hann var sjálfur mikill vinnumaður og var í öllum verkum fyrirmynd án fyrirgangs eða hávaða. Það fólk sem vann fyrir Björn fann styrk hans og stuðning. Hann kenndi og leiðbeindi og árang- ur þeirra sem unnu fyrir hann virtist koma af sjálfu sér. Til að ná árangri í lífinu nægir ekki hafa framtak, dugnað og færni í starfi. Hamingja er aldrei sótt í ytra umhverfi. Innri ró finnur fólk í sjálfu sér og í samvistum við sína nánustu. Kjölfestan í lífi Björns var gott fjöl- skyldulíf og náið samband hans við Guðnýju og dæturnar. Við Guðrún sendum Guðnýju, Bryndísi og Ásdísi innilegustu sam- úðarkveðjur. Ásmundur Stefánsson. Vesturhiminninn skartaði sínu fegursta sunnudagskvöldið 11. sept- ember. Þvílík litadýrð. Ég hef trú á að almættið hafi haldið þessa sýn- ingu til heiðurs Birni Björnssyni vini mínum, sem kvaddi okkur þennan dag. Kynni okkar Bjössa og Guðnýjar konu hans hófust fyrir tæpum þrem- ur áratugum. Eins og gengur voru samskipti okkar mismikil gegnum árin, en ávallt góð og gefandi. Björn Björnsson var einstakur maður. Hann var traustur, orðvar, réttlátur og æðrulaus, eins og best kom fram í veikindum hans. Björn var afburðagreindur maður og skyn- samur, svo hæfileikar hans nýttust til hins ýtrasta í viðskiptalífinu, þar sem hans starfsvettvangur var. Bjössi hélt í gömlu gildin í við- skiptum. Í hans huga var handsal manna á milli jafngilt undirskrifuð- um samningi. Ég var svo lánsamur að umgang- ast Bjössa mikið síðustu mánuðina í lífi hans. Við tókum upp á því karl- arnir að hressa okkur við með göngutúrum eftir Ægisíðunni. Mikið var rætt og rabbað, spáð og spek- úlerað. Og hlegið. Bjössi var nefni- lega einn af þessum skemmtilega lúmsku húmoristum. Gönguferðirn- ar enduðu á kaffihúsi í Nauthólsvík- inni. Björn og Guðný voru góð heim að sækja. Mér fannst alltaf svo fallegt að sjá hvað þau umgengust hvort annað af mikilli virðingu. Síðustu dagana véku Guðný, dæt- urnar og tengdasynirnir ekki frá sjúkrabeði Björns. Guðný kúrði meira að segja hjá honum síðustu nóttina, hélt utan um manninn sinn og gætti hans. Það er sorglegt til þess að vita að Bjössi fær aldrei að sjá fyrsta barnabarn þeirra Guðnýj- ar sem er væntanlegt síðar á þessu ári. Það barn fær örugglega að heyra mikið um Bjössa afa sem er hjá Guði á himninum. Gönguferðirnar okkar voru góður vettvangur fyrir sameiginlegt áhugamál okkar Bjössa, fuglalíf. Við áttum okkur báðir þann draum að fá að sjá farfuglana aftur í vor. Sú verð- ur ekki raunin hjá honum Bjössa mínum. Ég þakka Birni fyrir samfylgdina. Guðnýju og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð, og þakka fyrir að hafa fengið að eiga þau öll að vinum. Þorkell Stefánsson. Við fráfall Björns Björnssonar er horfinn af sjónarsviðinu sá maður sem átti einna stærstan hlut í stofn- un og farsælli uppbyggingu Íslands- banka. Hann var allt í senn ljúf- mennið sem allir vildu starfa með og kletturinn sem stóð fastur fyrir í um- róti og ólgusjó bankamála. Á útmánuðum 1989 ákváðu banka- ráð Alþýðubankans, Iðnaðarbank- ans og Verslunarbankans að hefja samninga við ríkisstjórnina um kaup á eignarhlut ríkisins í Útvegsbank- anum. Björn Björnsson var einn þriggja manna sem falið var að und- irbúa samningsgerðina og síðan í kjölfarið að leiða starfið við stofnun hins nýja banka. Rúmlega 6 mán- uðum síðar tók Íslandsbanki til starfa. Þannig hófst daglegt samstarf okkar Björns Björnssonar. Það varði síðan í fjórtán ár. Sameining fjögurra banka var risavaxið verkefni sem okkur var fal- ið að leysa á afar skömmum tíma. Björn átti stóran þátt í hversu vel tókst til. Honum var lagið að fá til liðs við okkur fjölda starfsmanna sem unnu hratt og örugglega að því að koma nýjum banka á laggirnar. Og eftir að bankinn tók til starfa komu hæfileikar Björns enn betur í ljós. Hann var skarpgreindur og setti sig vel inn í öll mál. En hann var jafnframt hógværari en flestir menn. Öll viðfangsefni nálgaðist hann með yfirvegun, raunsæi og hóf- semi. Hann gat verið skoðanafastur en hann var ávallt einlægur og hreinskiptinn, grandvar og gaum- gæfinn. Vegna þessara eðliskosta naut hann trúnaðar allra og sam- starfsmenn hans í bankanum virtu skoðanir hans og tillögur umfram aðra. Það gerði ég. En mest um vert var þó að eiga vináttu hans og félagsskap. Björn var einstakur drengskaparmaður. Betri samstarfsmann og félaga er ekki hægt að kjósa sér. Það eru for- réttindi að hafa notið vinskapar þessa öðlings. Fyrir það verð ég æv- inlega þakklátur. Við Lilja sendum Guðnýju og fjöl- skyldunni hjartanlegar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að gefa þeim öllum styrk á erfiðum tíma. Valur Valsson. Með Birni Björnssyni er genginn góður drengur sem við kveðjum með söknuði. Birni kynntist ég fyrst í viðskipta- deild Háskóla Íslands. Minnisstætt er þegar árgangar okkar tókust á hendur að semja skýrslu um sam- vinnuhreyfinguna sem kynnt var á ráðstefnu á Akureyri. Björn vandaði vel til verka og stóð fyrir sínu. Ég átti eftir að kynnast því betur hversu traustur og öflugur Björn var. Gaman var að vinna með honum þegar við undirbjuggum ásamt Vali Valssyni kaup á hlut ríkisins í Út- vegsbanka Íslands og sameiningu fjögurra banka í Íslandsbanka. Við áttum síðan eftir að vinna saman í rúman áratug í þeim banka með góðu samstarfsfólki. Engum leynd- ust mannkostir Björns þótt hann sjálfur væri lítt fýsandi að trana sér fram. Björn átti stóran þátt í að skapa þá öguðu lánamenningu sem hefur reynst Íslandsbanka svo vel. Hann var skarpgáfaður, stálminnug- ur og talnaglöggur. Við Björn vorum ekki alltaf sammála en segja má að ef tveir menn í stjórn eru alltaf sam- mála þá sé annar þeirra óþarfur. Samstarfið í yfirstjórn bankans var skapandi og samskiptin einkenndust af gagnkvæmri virðingu og trausti. BJÖRN BJÖRNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.