Morgunblaðið - 19.09.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 45
www.leikhusid.is
Sala á netinu allan sólarhringinn.
Afgreiðsla í húsinu frá kl. 12.30
Sími 55 11 200 - opinn frá 10:00
StórA Sviðið kl. 20.00 LitLA Sviðið kl. 20.00
KODDAMAÐURINN
Fös. 23/9 örfá sæti laus, lau.
24/9 örfá sæti laus, fös. 30/9
nokkur sæti laus, lau. 1/10.
Takmarkaður sýningafjöldi.
KLAUFAR OG KÓNGSDÆTUR
Sun. 25/9 kl. 14:00 nokkur sæti
laus, sun. 2/10 kl. 14:0, sun. 9/10
kl. 14:00
EDITH PIAF
Fim. 22/9 , fös. 23/9 örfá sæti
laus, lau. 24/9 örfá sæti laus, fim.
29/9, fös. 30/9. Sýningum lýkur í
október.
Stóra svið
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ GERAST ÁSKRIFANDI
Nýja svið
KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren
Í samstarfi við Á þakinu
Su 25/9 kl. 14
Lau 1/10 kl. 14
Su 2/10 kl. 14
Su 9/10 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 22/9 kl. 20 - UPPSELT
Fö 23/9 kl. 20 - UPPSELT
Lau 24/9 kl. 20 - UPPSELT
Má 26/9 kl. 20 - Aukasýning
Fim 29/9 kl. 20- UPPSELT
Fö 30/9 kl. 20- UPPSELT
Lau 1/10 kl. 16 - Aukasýning
Lau 1/10 kl. 20 - UPPSELT
Fi 6/10 kl. 20 - Aukasýning
Sala áskriftarkorta stendur yfir
Ef þú gerist áskrifandi fyrir 20. september færðu að
auki gjafakort á leiksýningu að eigin vali
- Það borgar sig að vera áskrifandi -
MANNTAFL
Su 25/9 kl. 20
Su 2/10 kl. 20
Fö 7/10 kl. 20
WOYZECK: Í samstarfi við Vesturport.
– 5 FORSÝNINGAR Í SEPTEMBER
Frumsýnt í London 12. okt. og á Íslandi 28. okt
Miðaverð á forsýningar aðeins kr. 2.000
Fö 23/9 kl. 20
Fi 29/9 kl. 20 - UPPSELT
Fö 30/9 kl. 20
Lau 1/10 kl. 20 (Sýning á ensku)
HÍBÝLI VINDANNA
Örfáar aukasýningar í haust
Lau 24/9 kl. 20
Su 25/9 kl. 20
Su 2/10 kl. 20
Fö 7/10 kl. 20
Pakkið á móti - Örfáar aukasýningar
fös. 23. sept. 12. kortasýning kl. 20
Belgíska kongó
- gestasýning
fös. 30. sept. 1. kortasýning kl. 20
lau. 1. okt. 2. kortasýning kl. 20
Áskriftar-
kortasala
stendur
yfir
3. SÝN FÖS 23. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. SÝN LAU 24. kl. 20.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
5. SÝN FÖS 30. kl. 20.00
6. SÝN LAU 1. OKT kl. 20.00
7. SÝN FÖS 7. OKT kl. 20.00
16. sýn. sun. 2/10 kl. 14
17. sýn. sun. 16/10 kl. 14
18. sýn. lau. 22/10 kl. 15
hugmyndalistina sem hann efast um
að tilheyra á nokkurn hátt. Eflaust
má lengi velta því fyrir sér hvar
flokka ætti Daða sem listamann, en
slíkar skilgreiningar hafa tilhneig-
ingu til þess að gera minna úr bæði
listamönnum og listaverkum en
ástæða er til, afmarka þau óþarflega
mikið. Það fer þó ekki hjá því að Daði
vinnur með hugmyndir í verkum sín-
um og að jafnvel hin skrautlegustu
verk eru hugsuð um leið og þau eru
máluð – hvernig er annað hægt?
Þessi sýning birtir vel hinar mörgu
hliðar Daða sem listamanns en list
hans getur teygt sig í margar áttir, í
henni lifa hugdettur sem birtast í
litlum teikningum við hlið stórra og
metnaðarfullra verka, en Daða er
greinilega óhætt að halda lengra á
braut slíkra málverka. Hin að mínu
mati nokkuð ímyndaða togstreita
HIN rómantíska goðsögn um svelt-
andi listamenn á hanabjálka er liðin
undir lok. Skáldin hanga minna á
kaffihúsum en áður og málarar búa
ekki lengur við vosbúð. Það er ekk-
ert smart að vera fátækur í dag, eða
fórna einhverju fyrir hugsjónir.
Nokkrir áratugir eru liðnir síðan
starf listamanna og rithöfunda varð
daglaunavinna líkt og önnur störf,
rithöfundar og listamenn sinna
vinnu og fjölskyldu líkt og annað
fólk, fylgja börnum sínum á skóla og
leikskóla og setjast síðan við vinnu
sína, enginn spyr lengur um anda-
gift. Að vissu leyti er það léttir og
ákveðin og æskileg afhelgun á list-
inni sem fylgir þessum hugs-
unarhætti, en kannski má hann ekki
ganga of langt heldur. Án þess að
ætla mér að rómantísera það um of
fylgir starfi listamanns ákveðin bar-
átta, eins manns barátta sem enginn
getur háð nema hann sjálfur. Það er
ekki alltaf einfalt að fylgja list sinni
eftir en sumum tekst það um ára-
tuga bil án þess að láta deigan síga,
Daði Guðbjörnsson er einn þeirra.
Það er þó augljóst að barátta hans
hefur í gegnum tíðina verið mikil og
ströng, þar sem togast hafa á hug-
myndir ríkjandi strauma og stefna á
hverjum tíma og innri sköpunarþörf
hans sem einstaklings. Daði sýnir nú
stórt olíumálverk ásamt minni vatns-
litamyndum og teikningum í Ný-
listasafninu. Málverkinu gefur hann
nokkur hugsanleg nöfn, m.a. Don
Kíkóti snýr aftur. /Trója/remix.in,
Riddarinn raunumstóri /Trjóa/
remix, Sendiboði dauðans o.fl. Hann
skrifar nokkuð ítarlegan texta um
þetta verk sem felur margt í sér og
segir m.a. að verkið í heild sé hugsað
sem klisjupóstmódernismi. Þetta
hugtak sé ég hér í jákvæðu ljósi þar
sem klisjan er í hlutverki skapandi
afls og hefur ekki sína hefðbundnu
neikvæðu merkingu. Þetta er flott
verk hjá Daða og sýnir vel hvað í
honum býr sem málara og hug-
myndasmið. Ég myndi jafnvel vilja
ganga svo langt að segja að hér hafi
Daði stigið yfir ákveðinn þröskuld
með glæsibrag en í málverkinu sam-
einast flest af því sem einkennt hefur
Daða sem listamann í gegnum tíðina.
Barátta málarans sem vinnur með
efnið og litina, við hugmyndasmiðinn
sem krefur hann í sífellu um merk-
ingu og dregur í efa gildi efnisins er
hér í brennidepli, en Daði var svo
óheppinn að lenda á mótunarárum
sínum á tímabili í listasögunni þegar
málverkið þótti ekki það fínasta í
listinni. Hann átti að vísu nokkra
samleið með nýja málverkinu svo-
kallaða á níunda áratug sl. aldar en
sú bylgja leið hratt undir lok og
nokkur tími leið þar til málverkið
náði fótfestu í listinni á ný. En ridd-
ari Daða hefur haldið velli, á þrauta-
göngu sinni gegnum geómetríu og
hugmyndalist hefur honum tekist að
halda penslinum á lofti, rétt eins og
Daði hefur haldið sínu striki gegnum
tíðina. Í sýningarskrá segist Daði
líta á þetta verk sem uppgjör sitt við
milli málverks og hugmyndalistar
hefur ef til vill sett meira mark á list
Daða en nokkuð annað og ef til vill
hefur hún haft neikvæð áhrif þar
sem barátta hans fyrir listinni hefur
orðið óþarflega erfið fyrir vikið.
Þessi barátta er honum greinilega
hugleikin eins og fram kemur í verk-
inu sem unnið er á bréf frá Stjórn
listamannalauna þar sem umsókn
Daða hefur verið hafnað. Það er tæp-
ast heilladrjúgt að dvelja við höfnun
sem slíka og hið brosmilda, lífsglaða
andlit sem Daði hefur málað yfir
bréfið bendir einmitt til þess að hann
hafi ekki hugsað sér það. Hann gefur
höfnuninni langt nef og heldur þess í
stað inn á meira spennandi brautir.
Heimur og umhverfi riddarans sýna
okkur bestu hliðar Daða, einstaks
málara í íslenskri listasögu.
Stigið yfir
þröskuldinn
Daði Guðbjörnsson: Riddarinn raunumstóri eða Don Kíkóti snýr aftur.
MYNDLIST
Nýlistasafnið
Til 2. október. Nýlistasafnið er opið frá
miðvikudegi til sunnudags kl. 13–17.
MÁLVERK OG TEIKNINGAR, DAÐI GUÐ-
BJÖRNSSON
Ragna Sigurðardóttir
ÞESSI blásandi Bæjari var meðal þeirra sem tóku þátt í skrúðgöngum í
München í Þýskalandi í gær í tilefni af því að þá hófst hin árlega bjórhátíð,
Oktoberfest, sem nú er haldin í 171. sinn. Í München er búist við að um sex
milljónir gesta sæki hátíðina, sem lýkur 3. október. Áður en yfir lýkur er
gert ráð fyrir að gestirnir, ásamt heimamönnum, hafi skolað niður um
fimm og hálfri milljón lítra af öli.
Reuters
Ölið kneyfað
NÁMSKEIÐ í Shibori – kim-
ono, hefðbundinni japanskri lit-
unarmeðferð á efnum, verður
haldið í Kópavogi dagana 20.
september kl. 13–17 og 21.
september kl. 13–17. Textíl-
félagið heldur námskeiðið, en
kennari verður Hisako
Tokitomo, þekktur batik-,
munstur- og jurtalitunar-
sérfræðingur frá Japan.
Hisaka Tokitomo hefur yfir
30 ára reynslu í litunarvinnu.
Með henni koma þrír aðstoð-
armenn. Þær koma allar á veg-
um japanska sendiráðsins.
Námskeiðið er haldið í
vinnustofu TEX-verksmiðj-
unnar á Hafnarbraut 11, jarð-
hæð.
Litunar-
námskeið,
Shibori –
kimono
ÁSLAUG Sigvaldadóttir opnaði
málverkasýningu á Næsta bar, Ing-
ólfsstræti, á laugardag.
Áslaug útskrifaðist frá Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1995. Hún
málar með olíu á striga og hefur
haldið nokkrar málverkasýningar
bæði í Reykjavík sem og á lands-
byggðinni.
Sýningin stendur til 14 október.
Áslaug sýn-
ir olíuverk