Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 46

Morgunblaðið - 19.09.2005, Page 46
KVIKMYNDIN TSOTSI eftir Gavin Hood varð hlutskörpust meðal gesta kvikmyndahátíð- arinnar í Toronto og hlaut hún „People’s choice“-verðlaunin í ár. Myndin fjallar um sex daga í ein- mana og ofbeldisfullu lífi Tsotsi (þrjóts) miskunnarlauss ungs leið- toga gengis. Almenn ánægja var meðal gesta kvikmyndahátíð- arinnar og kunnu þeir vel að meta það gríðarlega framboð kvikmynda sem hægt var að sjá á hátíðinni, en alls voru þar sýndar 335 myndir frá 52 löndum. Kvikmyndin Look both ways frá Ástralíu fékk Discovery-verðlaunin, en myndin segir sögu nokkurra persóna sem glíma við eftirköst lestarslyss um óvenjulega heita helgi. Þá hlaut Suður-kóreski leikstjórinn Kan Yi-kwan Fipresci-verðlaunin fyrir mynd sína Sa-Kwa, sem segir frá ungri konu með særða sál sem leitar að sannri ást. Engin íslensk mynd komst á verðlaunapall í Toronto en vefritið Jam! Showbiz, sem gefið er út í samvinnu við blaðið Toronto Sun, gaf mynd Baltasars Kormáks, A little trip to heaven, prýðilega dóma. Gagnrýnandinn Adam Swimmer gefur myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum og hrósar sérstaklega leikaranum Forest Whitaker, sem hann segir að dragi gríðarvel fram einmanaleika per- sónu sinnar. Engu að síður séu all- ir leikarar mjög hæfir og standi vel fyrir sínu. Það sé Whitaker sem hins vegar standi upp úr með sinni frammistöðu. Þá segir Swimmer Whitaker sýna vel þá kreppu sem maður lendir í sem dregur í efa siðferð- islega fleti starfs síns þegar hann fær samúð með manneskju sem hann er að rannsaka. Einnig hrósar Swimmer sér- staklega kvikmyndatöku Óttars Guðnasonar, sem hann segir að hafi einstaka stjórn á ljósi og myrkri og nái að draga enn betur fram tilfinninguna um kulda og einangrun. Kvikmyndir | Kvikmyndahátíðinni í Toronto lokið TSOTSI hlutskörpust meðal fólksins A little trip to heaven fær góða dóma hjá vefritinu Jam! Morgunblaðið/Árni Torfason Forest Whitaker þykir hafa staðið sig afar vel að mati gagnrýnanda Jam! 46 MÁNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ EINLÆGA aðdáendur íslenskrar sveita- ballapopptónlistar má nú fara að klæja í lóf- ana, því hljómsveitin Skítamórall er að fara að senda frá sér sína fimmtu breiðskífu og kemur hún að öllum líkindum út í lok októ- ber. Hljómsveitin, sem er búin að vera iðin við kolann undan farið, vinnur nú að lokafrá- gangi plötunnar sem inniheldur ellefu ný lög, en þrjú þeirra hafa fengið spilun á hér- lendum útvarpsstöðum síðustu misseri. Það eru lögin „Ástin dugir“, „Hvers vegna?“ og nú síðast „Má ég sjá?“ Á morgun verður síðan nýtt lag kynnt til leiks og má segja að drengirnir ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Lagið, sem heitir Hún, er eftir Þorvald Bjarna Þor- valdsson við texta Andreu Gylfadóttur. Þor- valdi til halds og trausts við útsetningu lags- ins var Gunnar Ólason, söngvari Skítamórals. Lagið verður frumflutt í þættinum Zúúber á útvarpstöðinni FM957 í fyrramálið, en myndbandið við lagið verður svo frumsýnt um kvöldið í kvöldþættinum á Sirkus. Það er PlanB, nýstofnað útgáfufyrirtæki í eigu Einars Bárðarsonar, sem gefur plötuna út. Strákarnir í Skítamóral eru alltaf hressir og til í gott grín og/eða glens. Lagið „Hún“ verður kynnt á morgun Tónlist | Allt að gerast hjá Skítamóral TALSVERT hefur farið fyrir hljóm- sveitinni Haltri hóru síðustu miss- erin, en hér er um að ræða afar kraftmikla rokksveit eins og hið krassandi nafn sveitarinnar gefur til kynna. Hún vakti verðskuldaða at- hygli í fyrra með tveimur lögum, pönkuðu gít- arrokki svolítið í anda Dead Kenne- dies, og hlutu lög- in talsverða spilun þrátt fyrir að koma aldrei út á plasti. Á skífunni sem hér um ræðir er svipað uppi á teningunum, en þó vekur athygli hve hljómsveitinni hefur vaxið ásmegin í lagasmíðum á þessum stutta tíma. Engu að síður er hráleikinn sá sami og krafturinn jafnvel enn meiri en áður. Hljóðfæraleikur er með ágæt- um, ekkert verið að gera meira en þarf, sem er vel; bara talið í og rokk- að duglega. Samspil gítaranna er á köflum mjög smekklegt, bassaleikur einfaldur en býsna þéttur og grodda- legur, en þó mjúkur söngur Atla sér- lega góður, en hér er á ferðinni harla góður rokksöngvari. Þá er ótalinn þáttur upptökustjórans sem er ekki lítill, en hljóðblöndun plötunnar er fyrirtaksgóð, en hljómurinn er hæfi- lega hrár og hæfir tónlistinni full- komlega. Platan hefst á hinu gríðaröfluga „Party through the night“ sem er sannarlega með því betra sem heyrst hefur lengi. Titillagið, sem á eftir kemur, nær ekki alveg að halda uppi trukkinu en þokkalegasta lag engu að síður. Hið dimma „Act of passion“ er frekar óaðgengilegt í fyrstu en vinnur á við hverja hlustun. „Crasy happiness/happy craziness“ og „The devil’s dilemma“ eru kraftmikil og vel útfærð, þó sérstaklega það síð- arnefnda sem tónlistarlega séð verð- ur að teljast besta lag plötunnar, samvinna gítaranna er hér einkar skemmtileg og nýtur sín vel í fram- úrskarandi hljóðblöndun. Lagið sýn- ir berlega að hljómsveitin virðist geta hrist af sér tveggja kafla krís- una. Botninn er sleginn með hinum dansvæna gleðipoppslagara „The king of the dancefloor“, afbragðs- góðu lagi með töluverðum „sítt að aftan“-keimi. Platan „Love me like you elskar mig“ inniheldur hrátt og ómengað rokk eins og það gerist best. Fyrir þá sem gera þá kröfu til tónlistarmanna að nánast hver tónn sé ný nálgun á tónstiganum, er þetta kannski ekki rétta platan. Fyrir okkur hina, sem höfum gaman af góðu rokki eins og það kemur fyrir af skepnunni, er þessi plata hin áheyrilegasta. Engin tveggja kafla krísa TÓNLIST Geisladiskur Hljómsveitin Hölt hóra sendi nýverið frá sér plötuna Love me like you elskar mig. Hljómsveitina skipa þeir Atli Fannar (söngur), Eyþór (gítar), Magnús (gítar), Sigurbjörn (bassi) og Valgeir (trommur). Lög og textar eru eftir hljómsveit- armeðlimi, um upptökustjórn og hljóð- blöndun sá Magnús Arni Øder ásamt Haltri hóru. Upptökur fóru fram í Stúdíó Nema, Stúdíó Dodgy og í Bláfjöllum. Hljómsveitin gefur út, dreifing 12 tónar. Hölt hóra – Love me like you elskar mig  Grétar M. Hreggviðsson kl. 4 og 6 Í þrívíddkl. 5.45 B.i 10 ára Sýnd kl. 3.50 ísl tal Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 ára kl. 4, 6, 8 og 10 Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sprenghlægileg gamanmynd! Sýnd kl. 6 og 8 b.i. 14 ára     Night Watch is F***ING COOL! Quentin Tarantino i t t i I ! ti r ti Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 16 ára Sími 564 0000 Miðasala opnar kl. 15.15 í i i l l. . Sýnd kl. 6, 8 og 10 Harðasta löggan í bænum er þann mund að fá stórskrýtinn félaga! FRÁBÆR GRÍN OG SPENNUMYND Harðasta löggan í bænum er þann mund að fá stórskrýtinn félaga! Sýnd kl. 10 b.i. 16 ára MEISTARI HROLLVEKJUNNAR SNÝR AFTUR TIL AÐ HRÆÐA ÚR OKKUR LÍFTÓRUNA Sýnd kl. 6, 8 og 10 FRÁBÆR GRÍN OG SPENNUMYND

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.