Morgunblaðið - 05.10.2005, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
KOSIÐ UM SAMEININGU
Á laugardag
greiða íbúar
Mjóafjarðar-
hrepps, Fjarða-
byggðar, Austur-
byggðar og
Fáskrúðsfjarðar-
hrepps atkvæði
um sameiningu
sveitarfélaganna í
eitt. Smári Geirs-
son er formaður
samstarfsnefndar um sameiningu
þessara sveitarfélaga. Hann segir
kynningarfundi alls ekki hafa verið
vel sótta. „Það var þó góð aðsókn í
Mjóafirði og viðunandi á Búðum, en
aðrir fundir hafa verið fámennir. Mér
finnst þetta vera vísbending um að
það er ekki mikill áhugi fyrir málefn-
inu og fólk finni ekki hjá sér þörf til
að afla ítarlegra upplýsinga eða koma
á framfæri sjónarmiðum sínum.“
Um það hvað hvetji eða letji til
sameiningar segir Smári að ef horft
sé til kynningarfundanna fari það
mjög eftir því hvar menn eru búsettir
á svæðinu. „Það er ljóst að þeir sem
hafa tjáð sig úr Fáskrúðsfjarðar-
hreppi og Mjóafirði horfa talsvert til
þess að þetta eru mjög fámenn sveit-
arfélög og eiga erfitt með að rækja
skyldur sínar í nútímasamfélagi. Því
sé kannski ekki um marga kosti að
ræða. Þetta er auðvitað ekki uppi á
teningnum hjá íbúum t.d. í Austur-
byggð og Fjarðabyggð. Bæði á
Stöðvarfirði og í Mjóafirði veltir fólk
fyrir sér stærð byggðarlaganna inni í
nýju sveitarfélagi og einnig land-
fræðilegri stöðu þeirra, þ.e.a.s. að
Stöðvarfjörður og Mjóifjörður verði á
jöðrum sveitarfélagsins. Menn hafa
áhyggjur af þessu og einnig af þróun
skólamála. Ekkert af þessu á að
koma á óvart og er mjög eðlileg um-
ræða. Í Austurbyggð finnst mér al-
mennt vera jákvætt viðhorf og fólk
leggur áherslu t.d. á þær samgöngu-
bætur sem við erum að upplifa með
Fáskrúðsfjarðargöngum og að það sé
eðlilegt að mynda nýtt samfélag á
þessu svæði. Líka er bent á að
Fjarðabyggð sé og verði mjög sterk
efnahagseining í framtíðinni og því
hagstætt að tengjast henni. Í Fjarða-
byggð hafa menn efasemdir um tíma-
setningu sameiningar. Fyrst og
fremst vegna þess að mjög mikið er
um að vera í okkar samfélagi, mikil
þensla og álag, t.d. á sveitarfélögin og
því skynsamlegra að draga samein-
inguna uns uppbyggingartíma lýkur
Kosið um sameiningu fjögur þúsund íbúa í fjórum sveitarfélögum á Mið-Austurlandi
Mismunandi hugur er til
sameiningar eftir búsetu
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
Smári
Geirsson
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Margt að gerast á miðjunni Fjarðabyggð undirbýr um þessar mundir
byggingu veglegrar íþróttahallar á Reyðarfirði.
Þorsteinn Hjart-
arson, formaður
samstarfsnefndar
um sameiningu í
Ölfusi og Flóa, tel-
ur helstu kosti
varðandi samein-
ingu snúa að
stórum hags-
munamálum
svæðisins, t.d.
hvað varðar
skipulags-, samgöngu- og skólamál.
Lagt er til að íbúar Hveragerðisbæj-
ar, Sveitarfélagsins Ölfuss, Sveitarfé-
lagsins Árborgar, Gaulverjabæjar-
hrepps, Villingaholtshrepps og
Hraungerðishrepps greiði atkvæði
um sameiningu sveitarfélaganna sex í
eitt sveitarfélag.
Þorsteinn telur að stórt sameinað
sveitarfélag sé líklegt til þess að laða
að sér fyrirtæki en hann bendir á að
slagkraftur svæðisins í atvinnumálum
sé mjög mikill um þessar mundir og
atvinnulífið fjölbreytt. Einnig segir
hann sameininguna snúast um þjón-
ustu við íbúana enda gríðarleg íbúa-
fjölgun á svæðinu. „Íbúarnir gera
heilmikla kröfu um faglega og góða
þjónustu sem sveitarfélagið á að sinna
á ýmsum sviðum, eins og í skólamál-
um, félagsþjónustu o.fl.,“ segir hann
og bætir því við að það sé margt sem
ýti undir þá skoðun að stór sveitar-
félög geti staðið enn betur að slíku.
Þorsteinn bendir á að þetta sé gríð-
arlega mikið tilfinningamál og ekki
allir á eitt sáttir varðandi sameiningu.
Sumir líti á sveitarfélagamörkin sem
eitthvað heilagt og séu hræddir við að
eitthvað muni glatast með sameining-
unni. Sumir tali um að allt sogist á
Selfoss og þeir sem búi á jöðrunum
séu hræddir um að þjónusta og fleira
verði ópersónulegri. Hann segir þetta
hafa komið fram á þeim sex kynning-
arfundum sem haldnir hafa verið.
„Ég held að það geti orðið heilmikið
jafnvægi. Þetta er ekki þannig að Sel-
foss gleypi svæðið því það er heilmikil
uppbygging á öllu svæðinu, t.d. eins
og í Hveragerði,“ segir Þorsteinn og
bætir því við að svona komi eðlilega
upp þegar rætt eru um breytingar.
Aðspurður segir Þorsteinn funda-
sókn varðandi sameiningu hafa verið
góða og menn skipst á skoðunum um
ágæti sameiningar. Hann segir vinnu
við að kynna sameiningartillöguna
hafa hafist í vor og gengið vel. „Við er-
um bæði búin að gefa út ítarlega
skýrslu um þetta þar sem við drögum
bæði saman kosti og galla og drögum
upp ákveðna framtíðarsýn.“
Hann segir að skiptar skoðanir hafi
komið upp í samstarfsnefndinni hvort
menn ættu að sameinast eða ekki, en
menn hafi tekið virkan þátt í vinnunni
og af heilindum. Hann telur að ef
sameiningin verði ekki samþykkt þá
geti sú vinna sem hafi þegar verið
unnin nýst síðar. Hann segir um-
ræðuna meðal íbúanna í sveitarfélög-
unum ekki hafa verið mikla en hafi þó
verið að aukast að undanförnu. Hann
vonast eftir góðri kjörsókn og hvetur
íbúa til þess að mæta á kjörstað.
Lagt til að fimm sveitarfélög í Árnessýslu sameinist Árborgarsvæðinu
Gríðarlega mikið
tilfinningamál
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Þorsteinn
Hjartarson
Á svonefndu Árborgarsvæði býr um helmingur allra íbúa Suðurlands, eða
tæplega 11 þúsund manns. Á svæðinu eru fimm þéttbýliskjarnar auk um-
talsverðs dreifbýlis en um 10% íbúa svæðisins búa í dreifbýli. Selfoss er
miðstöð þjónustu fyrir allt svæðið, en í Hveragerði og Þorlákshöfn er tölu-
verð þjónusta auk þess sem íbúar sækja þjónustu og atvinnu á höfuðborg-
arsvæðið.
+
,+ !+ -$ ./
+/ ,+
-/ ,
! $
0+/
+ '
!""#
$
1"
% 2"
)
' 3145
&
14"
6172"
'
6158"
(
$ 6185"
Árnessýsla, Árborgarsvæði
„Á Vopnafirði
virðist fólk ekki
hafa ákveðnar
skoðanir á þess-
um sameiningar-
kosti,“ segir Aðal-
björn Björnsson,
formaður sam-
starfsnefndar um
sameiningu
Vopnafjarðar- og
Skeggjastaða-
hrepps. „Vopnfirðingar vita ekki
hvað þeir fá út úr þessu, hugsanlega
lítið og velta slíku fyrir sér. Margir
eru hvekktir á því að búið er að kjósa
um þetta tvisvar áður og þá sam-
þykktu Vopnfirðingar en íbúar
Skeggjastaðahrepps felldu. Hagur
af sameiningu liggur sjálfsagt að
mestu leyti hjá Skeggjastaðahreppi,
þar sem ýmislegt gæti breyst hvað
þjónustu varðar. Hrepparnir tveir
eru þó vissulega með ýmislegt sam-
eiginlegt nú þegar, svo sem heil-
brigðisþjónustu og slökkvilið, auk
samstarfs í skólamálum.“
Aðalbjörn segir ljóst að meiri
þjónusta sé í stærri sveitarfélögum
en þeim minni. „Vegalengdin hér á
milli er 35 km og heilsdagsleikskóli
dæmi um þjónustu sem Bakkfirðing-
ar gætu nýtt. Líklega yrði boðið upp
á sams konar þjónustu á báðum þétt-
býlisstöðum og það á við um fleiri
þjónustuþætti.“
Ýmsar skoðanir eru uppi í
Skeggjastaðahreppi um sameiningu
við Vopnafjörð. Fólk hefur m.a.
áhyggjur af því að sá stóri gleypi
þann litla, m.a. að eitthvað af atvinn-
unni fari yfir til Vopnafjarðar og að
það hafi ekki nógu sterka rödd fyrir
sitt svæði. Skólamál eru og við-
kvæmur punktur. Kostir virðast aft-
ur á móti í margra hugum vera að
þjónustustigið verði hærra og betra
sé að heimamenn vinni að samein-
ingunni sjálfir, í stað þess að bíða eft-
ir skipun frá ráðuneytinu þar um.
Bakkfirðingar telja sumir að samein-
ingin nú sé of lítil og hefðu viljað sjá
Þórshöfn, Bakkafjörð og Vopna-
fjörð. Erfitt sé að vera endasveitar-
félag og slíkt svæði hefði verið skil-
virkara, sterkari eining til að þrýsta
á um úrbætur í vegamálum og fjar-
skiptum. Bakkfirðingar telja sumir
hverjir að ágætlega gangi eins og
stendur og vilja heldur leita sam-
vinnu en sameiningar. Vopnfirðingar
hafa á hinn bóginn leitað sameining-
ar við Fljótsdalshérað og telja marg-
ir sameiningu við Bakkfirðinga
fyrsta skrefið á þeirri leið.
Lagt til að Skeggjastaðahreppur og Vopnafjarðarhreppur sameinist í um 900 manna byggð
Hræðsla við að stórt
gleypi smátt
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
austurland@mbl.is
Aðalbjörn
Björnsson
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Spáð í málin Skiptar skoðanir eru um kosti við sameiningu Vopnafjarðar-
og Skeggjastaðahrepps.
Á norðursvæði Austurlands eru sex sveitarfélög með tæplega 5.300 íbúa.
Það fjölmennasta er hið nýsameinaða sveitarfélag Fljótsdalshérað en þau
fámennustu eru Skeggjastaðahreppur og Borgarfjarðarhreppur. Norðan
Hellisheiðar eru tvö sveitarfélög sem á laugardag greiða atkvæði um sam-
einingu, Vopnafjarðarhreppur og Skeggjastaðahreppur, með tæplega 900
íbúa í tveimur byggðakjörnum og töluverðu dreifbýli. Á Bakkafirði búa
rúmlega 100 manns en tæplega 600 í þéttbýlinu á Vopnafirði.
9
+**
- :
;*
:!
!""#
)
' 3527
' 48"
184"
Norðursvæði Austurlands