Morgunblaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 37
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Hundaföt og fleira.
www.dekurdyr.com,
Dugguvogi 17.
Heilsa
Nýtt líf með ShapeWorks!
Kynntu þér málið og fáðu fríar
prufur.
Áslaug Fjóla, sjálfstæður dreif-
ingaraðili Herbalife, s. 698 0118,
e-mail. 6980118@internet.is.
Sendi um land allt, Visa/Euro.
Húsnæði í boði
3ja herb. til leigu í R 109 frá 1.
nóv. Hlý og notaleg kj.íbúð í ein-
býli í fallegu og rólegu hverfi.
Leigutími 1. nóv.-15. maí '06. Að-
eins fyrir reyklausa og reglu-
sama. Leiguverð 81 þús. á mán.
Rafm.+hiti innif. Vinsamlegast
sendið fyrirspurnir og helstu upp-
lýsingar á rvk109@yahoo.com.
Eva, 695 1790.
3ja herb. til leigu í R 109 frá 1.
nóv. Hlý og notaleg kj.íbúð í ein-
býli í fallegu og rólegu hverfi.
Leigutími 1. nóv.-15. maí '06.
Rafm.+hiti í leiguverði. Aðeins
fyrir reyklausa og reglusama.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir
og helstu upplýsingar á
rvk109@yahoo.com Eva, sími
695 1790.
Húsnæði óskast
Stór íbúð í Reykjavík óskast
Stór íbúð óskast í Reykjavík með
eða án húsgagna í 1 ár eða leng-
ur. Uppl í síma: 699 7294.
Atvinnuhúsnæði
Óska eftir atvinnuhúsnæði, 100
- 200 fm, á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Þarf að vera snyrtilegt
og hreinlegt. Staðgreiðsla.
Upplýsingar í síma 897 7798.
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Ertu að hugsa um sumarhús
næsta vor? Sænsku húsin eru
sérlega vönduð og verðið er hag-
stætt. Stærðir 27-105 fm. Afgr.fr.
allt að 4 mán.
Elgur bjálkabústaðir,
Ármúla 36, sími 581 4070.
www.bjalkabustadir.is
Sjá einnig á www.stevert.se
Iðnaðarmenn
Eðalmálun GE
getur bætt við sig verkefnum nú
og fyrir veturinn. Fagleg og snyrt-
ileg þjónusta. Uppl. í síma
697 6284. Guðjón Eðal.
Listmunir
Tékkneskar og slóvanskar
kristalsljósakrónur. Handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
sími 544 4331.
Námskeið
Sjálfstyrking - reykstopp - frelsi
frá streitu og kvíða.
Notuð er m.a. EFT (Emotional
Freedom Techniques) og
dáleiðsla (Hypnotherapy).
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur, sími 694 5494,
www.EFTiceland.com .
Bókhald
Bókhald Get bætt við mig bók-
haldsverkefnum fyrir einstaklinga
og smærri félög. Vsk uppgjör,
laun og skattframtöl.
Uppl. í s. 587 5210, 898 5434,
netfang: svbjarna@simnet.is .
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir, viðgerðir, töfluskipti,
endurnýjun á raflögnum.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025 • lögg. rafverktaki
Parketlagnir. Húsasmiður getur
bætt við sig parketlögnum.
Vönduð vinna, áratuga reynsla.
Uppl. í síma 896 1528.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
Þessir vinsælu dömuskór eru
komnir aftur, þægilegir úr mjúku
leðri og skinnfóðraðir.
Litir: brúnt og svart, stærðir 36-42
verð kr. 5.885.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
TILBOÐ:
Herraskór léttir og þægilegir úr
mjúku leðri, verð kr. 2.800.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Frímerki - Mynt - Seðlar
Uppboðsaðili Avnumismatics &
Philately kaupir: Frímerki, um-
slög, mynt, seðla, póstkort, minn-
ispeninga, orður, gömul skjöl
o.m.fl. Staðgreiðsla strax.
Austurströnd 8, 170 Seltjnes,
s. 694 5871, 561 5871,
tashak@mmedia.is.
Vélar & tæki
Patrónur fyrir margar gerðir
rennibekkja. Vandaðar hand-
verksvörur.
Hjá Gylfa,
Hólshrauni 7, 220 Hfj.,
sími 555 1212.
Bensínrafstöðvar
2.5kW, 230V AC og 12V DC.
Þyngd 39 kg. Verð 59.000 m. vsk.
Loft og raftæki,
sími 564 3000. www.loft.is
Bílar
Toyota Land Cruiser 100 2001
38", sjálfsk., dísel, toppl., leður
o.fl. Ekinn 85 þús. km. Ath. skipti
á ódýrari. Verð 5,9 millj.
Upplýsingar í síma 690 2577.
Subaru Legacy 2,0 árg. '97, ek.
168 þús. 5 gíra, rafdr. rúður og
samlæsing. Einn eigandi. Þjón-
ustubók, gott eintak. Nýleg vetr-
ardekk. Bílalán 200 þús. Verð 590
þús. Sími 690 2577.
Hreingerningar
Fyrirtæki, stofnanir og heimili
Við hreinsum allar tegundir af
gardínum. Gerum tilboð.
Upplýsingar í síma 897 3634.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Í KECSKEMÉT í Ungverjalandi
hefur vinalegur skákáhugamaður,
dr. Tamas Erdelyi, séð um alþjóð-
legt mótahald um langa hríð sem
nefnast Caissa mótin. Erdelyi þessi
er alþjóðlegur meistari og hefur
2.268 alþjóðleg skákstig. Fyrir utan
að halda þessi mót er Erdelyi
óþreytandi við að fara á milli alþjóð-
legra skákmóta og selja skákbækur
sem forlagið hans Caissa gefur út.
Saga íslenskra þátttakenda á
skákmótum í Kesckemét er þó nokk-
uð löng þar sem árið 1991 náði Héð-
inn Steingrímsson þar áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli. Síðan þá
hafa nokkrir íslenskir skákmenn
heimsótt þessa litlu borg fyrir suð-
austan Búdapest og á stundum náð
dágóðum árangri. Fyrir nokkrum
árum náði Ágúst Sindri Karlsson
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli
á móti sem dr. Erdelyi stóð fyrir og
síðastliðið sumar náði Guðmundur
Kjartansson sama árangri. Nú síðast
innbyrti Róbert Harðarson (2.361)
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli
á móti sem haldið var þar 17.–23.
september sl. en Róbert varð efstur
á mótinu ásamt alþjóðlega meistar-
anum Attila Jakob (2.451). Bæði Ró-
bert og Attila unnu og gerðu jafntefli
við sömu andstæðingana svo að ekki
gátu stig skorið úr um það hvor hafi
orðið hlutskarpari á mótinu en loka-
staðan varð þessi:
1.–2. Róbert Harðarson (2.361) og Attila Ja-
kab (2451) 7 vinninga af 9 mögulegum.
3. Zoltan Sarosi (2.336) 5½ v.
4.–6. Tibor Farkas (2.349), Igor Kragelj
(2.230) og Zsofia Domany (2.101) 5 v.
7. Tamas Vasvari (2.203) 4 v.
8. David Bennett 2½ v.
9.–10. Richard Keresztes (2.232) og Matyas
Donko (2.040) 2 v.
Róbert tefldi af öryggi á mótinu og
hagnýtti sér vel þegar andstæðing-
unum urðu á mistök. Það má segja
að sigur hans í næstsíðustu umferð
hafi ráðið úrslitum um það hvort
honum tækist ætlunarverk sitt en í
þeirri skák mætti hann skákkonunni
Zsofiu Domany (2101) sem náði á
mótinu áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli kvenna.
Hvítt: Zsofia Domany (2101)
Svart: Róbert Harðarson (2361)
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Rf6 4. d4
exd4 5. Rxd4 Bb4 6. Rxc6 bxc6 7.
Bd3 d5 8. exd5 cxd5 9. O–O O–O 10.
Bg5 c6 11. Df3 Bd6
Róbert hefur alltaf haldið tryggð
við byrjanir sínar og þá sérstaklega
með svörtu. Þannig hefur hann alltaf
svarað 1. e4 með 1...e5 og skiptir
engu hvort hann þurfi á sigri að
halda eður ei. Sú ungverska hefur
sjálfsagt verið sátt við að fá rólega
stöðu upp þar eð án efa var hún sátt
við að ná jafntefli gegn mun stiga-
hærri andstæðingi.
12. Hae1 Hb8 13. Rd1 Be6 14. b3
h6 15. Bxf6 Dxf6 16. Dxf6 gxf6 17.
Re3 Bb4 18. Hd1 Hfe8 19. Rf5
Upp er komin staða sem er í jafn-
vægi þó að hagnýtir möguleikar
svarts til sigurs séu örlítið skárri.
Næsti leikur svarts tryggir að svart-
ur hafi enn biskuparið um stund.
19. ... Bf8 20. Hfe1 Bd7 21. Hxe8
Hxe8 22. Kf1 c5 23. Rg3 Be6 24. He1
Hb8 25. Bf5 Hb6! 26. He3 Ha6 27. a4
c4!
Svörtum hefur tekist að halda lífi í
stöðunni þrátt fyrir aðgerðir hvíts til
að einfalda taflið. Þessi leikur setur
hvítan í eilítinn bobba en þó ekki
mjög alvarlegan ef rétt væri haldið á
spöðunum.
28. Hf3 d4 29. Bxe6 fxe6 30. Re4
d3!? 31. Rxf6+?!
Ónákvæmni þar sem eftir 31. bxc4
dxc2 32. Hc3 er allsendis óvíst að
hvítur standi lakar.
31. ...Kh8 32. Ke1 dxc2 33. Kd2
cxb3 34. Hxb3 Hc6 35. Kc1 Hc4 36.
h3?!
36. f3 hefði verið rökréttara til að
fá riddaranum fótfestu á e4.
36. ...Bb4 37. Rg4??
37. Hd3 var nauðsynlegur leikur
og er þá óljóst hvort svartur standi
til vinnings.
37... Bd2+! og hvítur gafst upp
enda vekur svartur upp drottningu í
næsta leik. Þessi mikilvægi sigur
Róberts er um margt dæmigerður
þegar stríðsgæfan er með þeim sem
vill vinna og að sama skapi harðdræg
þeim sem teflir upp á jafntefli. Í
lokaumferðinni gerði Róbert stutt
jafntefli með hvítu sem tryggði hon-
um áfangann góða.
Hjörvar sigrar á móti Fjölnis
fyrir grunnskólakrakka
Laugardaginn 22. október sl. hélt
skákdeild Fjölnis opið mót fyrir
grunnskólakrakka. Teflt var í Rima-
skóla og tóku alls 24 þátt í móti þar
sem tefldar voru 5 umferðir með 7
mínútna umhugsunartíma. Hjörvar
Steinn Grétarsson sigraði á mótinu
með fullu húsi vinninga en hann sigr-
aði Ingvar Ásbjörnsson í úrslitaskák
síðustu umferðar en lokastaða efstu
manna varð þessi:.
1. Hjörvar Steinn Grétarsson 5
vinninga af 5 mögulegum.
2.–4. Sigríður Björg Helgadóttir,
Ingvar Ásbjörnsson og Dagur Andri
Friðgeirsson 4 v.
5.–12. Sverrir Ásbjörnsson,
Hrund Hauksdóttir, Júlía Rós Haf-
þórsdóttir, Haukur Óskarsson, Jök-
ull Jóhannsson, Júlía Guðmunds-
dóttir, Hörður Aron Hauksson og
Brynja Vignisdóttir.
Hjörvar fékk að sigurlaunum
Playstation 2 leikjatölvu frá BT í
Grafarvogi en aðrir verðlaunahafar
fengu verðmæti frá Bónus Videó BT
og Subway Spönginni.
Íslendingar sigursælir í Kecskemét
SKÁK
Kecskemét í Ungverjalandi
CAISSA MÓTIN
25. september – 19. október 2005
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Róbert Harðarson náði áfanga að
AM titli í Kecskemét.
OPINN málfundur verður í andyri
Borgarleikhúsins í dag, þriðjudaginn
25. október milli kl. 16 og 19. Yfir-
skrift fundarins er Ungt fólk og lýð-
ræði og verður leitast við að svara
spurningum um það hvort ungt fólk
hafi völd og hvort það geti haft áhrif í
samfélaginu.
Að fundinum standa Ungmenna-
ráð í Austurbæ Reykjavíkur og
Hverfisráð Háaleitis auk þess sem
fulltrúar Ungmennaþingsins í Narva
í Eistlandi verða sérstakir gestir
fundarins.
Að framsögum loknum verða pall-
borðsumræður og opið fyrir spurn-
ingar. Fundurinn er jafnframt liður í
ungmennaskiptum Ungmennaráða í
austurborginni og ungmennaþings-
ins í Narva og verða niðurstöður
vinnu, sem fram fór í Eistlandi í
sumar, kynntar á fundinum, segir í
fréttatilkynningu.
Málþing um
ungt fólk
og lýðræði
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
Böðvars Gunnarssonar, í viðtali við
hann í blaðinu sl. laugardag, á bls.
26. Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
♦♦♦
smáauglýsingar
mbl.is