Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 1
Íþróttir, Enska knattspyrnan,
Lesbók, Börn og Vetur
Morgunblaðið í dag er í sex hlutum, samtals 152 síður
STOFNAÐ 1913 293. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
STARFSMENN Náttúrufræðistofu Vestfjarða
björguðu síðdegis í gær illa slösuðum haferni úr
sjónum við Hafnartanga undir Súðavíkurhlíð og var
hann fluttur í húsnæði Náttúrufræðistofunnar í Bol-
ungarvík til aðhlynningar.
Vegfarandi kom auga á örninn þar sem hann
barðist um í sjónum
við klettadranga.
Segir Þorleifur Ei-
ríksson, forstöðu-
maður stofunnar, að
líklega sé örninn
vængbrotinn og hann
hafi verið aðfram-
kominn þegar starfs-
menn komu að hon-
um. Þó hafi hann
ekki verið til í að láta
handsama sig og bar-
ist kröftuglega.
„Hann sýndi mikinn
mótþróa og barðist
hart,“ segir Þorleifur
og bætir við að meðal
annars hafi hann tætt
sig gegnum þykka
hlífðarhanska og skorið starfsmann á hendi.
„Þessi dýr eru með ofboðslega beittar og sterkar
klær og hann ætlaði ekki að láta taka sig þótt hann
væri þreyttur.“ Það tók starfsmenn Náttúru-
fræðistofunnar og tvo lögregluþjóna rúman klukku-
tíma að ná fuglinum og verður hann látinn róast enn
um stund áður en meiðsli hans verða könnuð nánar.
Örninn dvelur nú í búri á Náttúrufræðistofunni,
„allur sjóblautur og ræfilslegur“, sagði Þorleifur.
Þegar hann hefur róast verður hugað að sárum
hans, en Þorleifur segir mjög tvísýnt um ástandið,
því örninn sé mjög þrekaður og virðist í losti. „Ef
hann er illilega brotinn er ekkert hægt að gera, en
annars verður honum hjúkrað til heilsu.“
Við athugun á merkingu á erninum kom í ljós að
hann var merktur sem ungfugl á Mýrum árið 1987
og segir Þorleifur hann því um átján ára gamlan. Sé
þetta með elstu örnum sem náðst hafi. „Þetta er
stórmerkilegur fugl,“ sagði Þorleifur.
Illa slasaður
haförn í
aðhlynningu
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
I. LEWIS Libby, skrifstofustjóri
varaforseta Bandaríkjanna, sagði af
sér í gær eftir að hann var ákærður
fyrir meinsæri og
fleiri lögbrot í
tengslum við
rannsókn á upp-
lýsingaleka úr
Hvíta húsinu.
Verði Libby fund-
inn sekur á hann
yfir höfði sér allt
að 30 ára fangelsi
og sekt að and-
virði 1,25 milljónir dollara, 75 millj-
ónir króna.
Dick Cheney varaforseti kvaðst
hafa fallist á afsagnarbeiðni Libbys
„með mikilli eftirsjá“ og lýsti honum
sem einum af „hæfustu og hæfileika-
ríkustu mönnum“ sem hann hefði
kynnst. George W. Bush Banda-
ríkjaforseti lauk einnig lofsorði á
Libby og lagði áherslu á að allir teld-
ust saklausir nema annað sannaðist
fyrir rétti.
„Smánarblettur“
Ákærurnar á hendur Libby eru
mikið pólitískt áfall fyrir Bush sem
hefur átt mjög undir högg að sækja
að undanförnu. Forystumenn demó-
krata sögðu í gærkvöldi að ákærurn-
ar á hendur Libby væru aðeins topp-
urinn á ísjakanum. Harry Reid,
leiðtogi demókrata í öldungadeild
þingsins, sagði að málið snerist um
miklu meira en upplýsingaleka. „Það
snýst um hvernig Bush og menn
hans í Hvíta húsinu bjuggu til gögn
og hagræddu upplýsingum til að
rökstyðja stríðið og koma óorði á þá
sem voguðu sér að andmæla forset-
anum.“
Libby var ákærður eftir tveggja
ára rannsókn á því hvort embætt-
ismenn í Hvíta húsinu hefðu greint
fjölmiðlum frá því að Valerie Plame
væri starfsmaður leyniþjónustunnar
CIA. Eiginmaður Plame, Joseph
Wilson, fyrrverandi sendiherra, hef-
ur sakað embættismennina um að
hafa gert þetta vegna andstöðu hans
við innrásina í Írak eftir að hann vé-
fengdi þá fullyrðingu stjórnarinnar
að Írakar hefðu reynt að verða sér
úti um efni í kjarnavopn.
„Þetta er sorglegur dagur fyrir
Bandaríkin,“ sagði Wilson í gær.
„Þegar ákæra er afhent við aðaldyr
Hvíta hússins er það smánarblettur
á forsetaembættinu. Enginn Banda-
ríkjamaður getur glaðst yfir því.“
Libby á allt að 30 ára fang-
elsisdóm yfir höfði sér
Skrifstofustjóri varaforseta Banda-
ríkjanna segir af sér vegna ákæru
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Lekamálið | 22
I. Lewis Libby
Teheran. AP, AFP. | Rúm milljón manna tók
þátt í mótmælum gegn Ísrael á götum Teher-
an og fleiri borga í Íran í gær og fólkið lét í
ljósi stuðning við þau ummæli forseta lands-
ins að þurrka bæri Ísrael út.
Mahmoud Ahmadinejad forseti tók þátt í
mótmælunum í Teheran og kvaðst standa við
ummælin þrátt fyrir hörð viðbrögð ráða-
manna á Vesturlöndum.
„Þeir reiðast þegar þeir heyra rödd sann-
leikans. Þeir telja sig hafa alræðisvald í
heiminum. Þeir tortíma palestínskum fjöl-
skyldum og búast svo við því að enginn and-
mæli þeim,“ sagði forsetinn á árlegum mót-
mælafundi gegn Ísrael í tilefni af
„Jerúsalem-deginum“ sem var í gær. Mót-
mælin í gær voru óvenju fjölmenn.
Öryggisráð SÞ fordæmir ummælin
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti í gærkvöldi ályktun þar sem ummæli
íranska forsetans eru fordæmd.
Ráðið lýsti einnig yfir stuðningi við yfirlýs-
ingu Kofis Annans, framkvæmdastjóra sam-
takanna, um að Íran bæri að virða ákvæði
stofnskrár Sameinuðu þjóðanna um að ekk-
ert aðildarríkjanna mætti hóta árásum á
annað land.
Sendiherra Ísraels fagnaði ályktuninni
sem var samþykkt einróma eftir að Alsír féll
frá andstöðu sinni við hana. Stjórn Ísraels
hefur krafist þess að Íran verði vikið úr Sam-
einuðu þjóðunum eftir að íranski forsetinn
lýsti því yfir að múslímaríkjum bæri að
„þurrka Ísrael út af landakortinu“. Önnur
ríki hafa ekki tekið undir þá kröfu Ísraela.
Reuters
Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad (fyrir miðju), á fjölmennum mótmælafundi í Teheran í gær. Hann var í fylgd fimm lífvarða.
Milljón Írana efnir til
mótmæla gegn Ísrael