Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 18
HAGNAÐUR Landsbanka Íslands
hf. fyrstu níu mánuði ársins 2005 nam
rúmum 16,2 milljörðum króna eftir
skatta. Á sama tímabili í fyrra hagn-
aðist bankinn um 11,8 milljarða
króna, og segir í tilkynningu að af-
koma bankans það sem af er árinu sé
sú besta í sögu hans. Hagnaður á
þriðja ársfjórðungi nam 5,1 milljarði
en var 5,8 milljarðar á þriðja ársfjórð-
ungi í fyrra.
Hagnaður bankans á þriðja árs-
fjórðungi var vel yfir væntingum
greiningardeilda hinna bankanna, en
Íslandsbankin hafði spáð 3,6 milljarða
hagnaði á tímabilinu.
Hreinar vaxtatekjur voru 15,7
milljarðar króna á fyrstu níu mánuð-
um 2005, en voru 10,1 milljarður á
sama tíma í fyrra. Hreinar rekstrar-
tekjur námu 41,6 milljörðum króna á
tímabilinu, samanborið við 28,3 millj-
arða á sama tíma í fyrra.
Heildareignir samstæðunnar námu
1.142 milljörðum króna 30. september
2005 og höfðu þá aukist um 55% frá
áramótum eða um 405 milljarða.
Eigið fé nam 98,8 milljörðum króna
í lok september, sem er aukning upp á
162% frá því í ársbyrjun. Er það sam-
eining bankans við hluta af Burðarási
hf. sem skýrir það. Eiginfjárhlutfall á
CAD grunni var 14,3%, þar af A-hluti
12,9%. Arðsemi eigin fjár eftir skatta
var 48,3% á fyrstu 9 mánuðum ársins
2005, en var 65,6% á sama tímabili í
fyrra.
Góð afkoma hjá
Landsbanka
Uppgjör
Landsbankinn
bjarni@mbl.is
- !
.
!
"
/
0
%) 1
&!
23452
267'8
+363'
+567'
2'95
28(4
6(69
#
1
2856387
7(457
282'5
2'857
+5724
+6'9'
42
8
'9'4
977569
64483
#
!* ) :;. <
.
!*
/-
25=6>
5(=6>
'='>
22=4>
93=9>
'=9>
!"#$%&!
"'()*)&!
$+,
18 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
0 + 1
23
4
4
56
7/8
4
4
9/9 :;8
4
4
<8
0 &&#
4
4
=968 7>?#
4
4
/5. @A# %
*&( $"'
!"
#
"
/B , C
(D
E && ,*
C
(D
$ C
(D
FC
(D
.EC
+
$ +" &
?
'"
< (DG E &
<*(
F +" & $ +
;
#$
((
E(
'
H)H
" &
I(
$ !% & '(
/
& C
(D
&
& '(
$ +
. D ')
=B#$ + BC
(D
; B
0 #
)
:)
& D
3J/$ B3#
$#(
5
% '*'
A $(*'
) ( ( *+
&#$+ 6%) )
'
$H(
K$ ('(
$ +,
5!& !
*,
( =96L
-'
, '&,#
'
E
#%
H
%
, '&,#
'
M4N
M 4N
M4N
M 4N
M4N
M 4N
M4N
M
4N
M4N
M 4N
M4N
M 4N
.# $+
, '& D
+
5 $"'-$&+ @
< (D $
A '& D -G&
/5.O/ ((
$ )*$+
, '& D
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands í
gær nam tæplega 26,1 milljarði
króna, þar af var velta með hlutabréf
fyrir um 5 milljarða.
Mest hækkun varð á bréfum
Flögu, 9,7%, en mest lækkun varð á
bréfum Kögunar, 1,3%. Hlutabréf
Mosaic hækkuðu um 3,8% og hækk-
uðu þau alls um 14% í vikunni.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,61% og er hún nú 4.705 stig.
Flaga hækkaði mest
● JARÐBORANIR voru reknar með
510 milljóna króna hagnaði eftir
skatta á fyrstu níu mánuðum árs-
ins og jókst hagnaðurinn um 189
milljónir miðað við sama tímabil í
fyrra. Tekið skal fram að hagnaður
af sölu dótturfélags Jarðborana,
Einingaverksmiðjunnar, á tíma-
bilinu skilaði félaginu 99 milljónum
króna. Arðsemi eigin fjár var nær
30% á móti 19,6% arðsemi í fyrra
og hagnaður á hvern hlut var 1,30
krónur á móti 0,81 krónu í fyrra.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBIDTA) var 871
milljón eða 24,4% af tekjum á móti
699 milljónum og 26,1% í fyrra.
Rekstrartekjur félagsins jukust
verulega á milli ára eða um 30%,
námu rúmum 3,5 milljörðum á
móti tæpum 2,7 milljörðum á
sama tímabili í fyrra en fram-
kvæmdakostnað ur jókst úr 1,9
milljörðum í 2,6 milljarða eða um
tæp 37%.
Eigið fé Jarðborana nam 2,85
milljörðum í lok september og var
eiginfjárhlutfallið tæp 33%.
Tekjur Jarðborana
aukast um 30%
● Í KYNNINGU FL Group á kaup-
unum á Sterling er samanburður á
verðkennitölum félagsins og annarra
lágfargjaldaflugfélaga. Greining-
ardeild Íslandsbanka hefur end-
urreiknað svokallað heildar-
kaupverð, eða EV, og segir að gangi
spár um hagnað fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði Sterling eftir, þ.e. EBITDA,
sé ljóst að kaupin á félaginu megi
teljast hagfelld. „Áætluð EBITDA hjá
Sterling á árinu 2006 er 345 millj-
ónir danskra króna (DKK). Gefið er
upp að kaupverðið sé 1,5 m. DKK en
geti legið á bilinu 1-2 m. DKK allt eft-
ir því hvort EBITDA framlegðin verður
lægri eða hærri en stefnt er að. Út-
reikningur Greiningar gefur að verði
framlegðin við neðri mörk verðbils þá
gefi það EV/EBITDA 6,2 en efri mörk-
in gefi EV/EBITDA 5,5. Gangi þetta
eftir er ljóst að kaupin mega teljast
hagfelld. Þó verður að líta á að verð-
mæti fyrirtækja ræðst af því hvers
vænta má í frramtíðinni en ekki bara
á næsta ári,“ segir í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
Hagstæðar kennitölur
í kaupum á Sterling
VERÐTRYGGÐIR útlánsvextir
Íbúðalánasjóðs (ÍLS) til 20 ára eru nú
lægri en vextir á útgefnum skuldbréf-
um sjóðsins til um það bil sama tíma,
að því er fram kemur í hálf fimm
fréttum grein-
ingardeildar
KB banka. Þar
segir að ávöxt-
unarkrafa
Íbúðabréfa til
um það bil 20
ára standi nú í
4,19% en út-
lánsvextir til
sama tíma séu 4,15%. Vextir á Íbúða-
bréfum til um það bil 10 ára standi
enn hærra, eða í 4,33%, en útboð í
meðal annars þeim flokki hafi legið til
grundvallar vaxtaákvörðunar Íbúða-
lánasjóðs þegar vöxtum var haldið
óbreyttum þann 11. júlí síðastliðinn.
Greiningardeild KB banka segir að
enn á ný hafi vextir á skuldabréfa-
markaði hækkað og liggi ávöxtunar-
krafa verðtryggðra bréfa á milli
3,96% og 4,33%. Að meðaltali liggi
ávöxtunarkrafa skuldabréfaflokka
Íbúðalánasjóðs nú í 4,13%.
„Þetta þýðir því að hægt er að taka
lán hjá Íbúðalánasjóði og fjárfesta
aftur á hærri vöxtum á skuldabréfa-
markaði í bréfum útgefnum af Íbúða-
lánasjóði,“ segir deildin. „Hér er því
um áhættulausan hagnað að ræða eða
svokallað högnunartækifæri, þ.e.
hægt er að hagnast án áhættu en slík
tækifæri gefa til kynna að markaður-
inn sé óskilvirkur. Fjárfestir þarf því
ekki að leggja út fjármagn til þess að
hagnast á vaxtamuninum.“
Bitlaus efnahagsstefna
Greiningardeildin segir að þar sem
Íbúðalánasjóður og bankarnir fjár-
magni sig á skuldabréfamarkaði fáist
ekki betur séð en ríkið sé að greiða
niður útlánsvexti til almennings. „Slík
aðgerð er þensluhvetjandi og gengur
þvert á öll lögmál hagstjórnar við nú-
verandi aðstæður. Á sama tíma reynir
Seðlabanki Íslands til hins ýtrasta að
slá á þensluna með því að hækka
vexti. Seðlabankanum hefur tekist
ætlunarverk sitt að hluta en raun-
vextir á markaði hafa farið úr um
3,5% í vor upp í 4,13% nú og af þeim
sökum ættu útlánsvextir til almenn-
ings að vera komnir úr 4,15% upp í
4,75%. Slík hækkun fjármagnskostn-
aðar mundi virka til lækkunar á fast-
eignaverði og þar með til lækkunar á
vísitölu neysluverðs. Hins vegar hef-
ur Íbúðalánasjóður ekki kosið að
fylgja markaðsvöxtum eftir, þrátt fyr-
ir að slík aðgerð myndi að miklu leyti
leysa fjárhagsvanda sjóðsins. Efna-
hagsstefnan er því nær bitlaus á með-
an ríki og Seðlabanki eru í reiptogi.“
Ríkið nið-
urgreiðir
útláns-
vexti ÍLS
METHALLI var á vöruviðskiptum
við útlönd á fyrstu níu mánuðum
þessa árs. Hallinn nam 71,7 millj-
örðum króna og jókst um 47,3
milljarða króna miðað við sama
tímabil í fyrra en þá var hann 24,4
milljarðar. Þetta kemur fram í nýj-
um tölum frá Hagstofu Íslands,
sem birtar voru í gær.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu níu mánuði ársins var 52,6
milljarðar eða 32,8% meira á föstu
gengi en árið áður og varð aukning
í flestum liðum hans. Mest varð
aukning í innflutningi á flutn-
ingatækjum, sérstaklega fólks-
bílum, fjárfestingarvöru, hrá- og
rekstrarvöru. Þá hefur verðmæti
olíuinnflutnings aukist mjög mikið,
ekki síst vegna verðhækkunar er-
lendis.
Vöruskiptin í septembermánuði
voru óhagstæð um 12,5 milljarða á
móti 0,2 milljörðum í september í
fyrra á föstu gengi. Verðmæti
vöruútflutnings fyrstu níu mánuði
ársins var 5,3 milljörðum eða 3,9%
meira á föstu gengi en á sama tíma
í fyrra. Greining Íslandsbanka seg-
ir lítið lát vera á neyslugleði lands-
manna á innfluttum varningi, enda
kaupmáttur almennings mikill og
gengi hagstætt. Árferðið sé hins
vegar óhagstætt útflutnings-
greinum og ljóst að ýmsar þeirra
þoli illa jafnhátt gengi krónu og
raunin er nú.
Leiðrétting á tveimur árum
„Þetta ójafnvægi á viðskiptum við
útlönd, sem einnig sér stað í tölum
um neyslu Íslendinga erlendis og
ferðalög útlendinga hingað til
lands, endurspeglar þjóðarútgjöld
umfram þjóðartekjur, sem á end-
anum kallar á leiðréttingu á gengi
krónunnar, en Greining spáir því
að slík leiðrétting feli í sér um
fjórðungslækkun frá núverandi
gengi og eigi sér stað á næstu
tveimur árum,“ segir í Morg-
unkorni Íslandsbanka.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikil aukning Nærri 70% aukning varð milli ára í innflutningi einkabifreiða, samkvæmt mælingu Hagstofunnar.
Methalli á vöruskiptum við útlönd
● ANZA hefur keypt rekstur netafrit-
.is sem hefur boðið þjónustu sína á
samnefndri vefsíðu og séð um afrit-
un tölvugagna. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá ANZA en þar
segir jafnframt að með kaupunum
hyggist fyrirtækið auka hlut sinn á
markaði fyrir afritunarþjónustu fyrir
fyrirtæki.
Þjónusta netafrit.is verður eft-
irleiðis kynnt undir nafninu „netafrit-
un ANZA“ en hún verður eftir sem áð-
ur í boði á vefnum í gegnum
vefsíðuna netafrit.is.
ANZA kaupir
netafrit.is
HAGNAÐUR KB banka á fyrstu
níu mánuðum þessa árs nam 35,6
milljörðum króna. Þetta er ríflega
22 milljarða aukning miðað við
sama tímabili á síðasta ári.
Afkoma KB banka á fyrstu níu
mánuðum þessa árs er besta af-
koma í sögu bankans þó svo miðað
sé við heilt ár, en á öllu síðasta ári
var hagnaður bankans um 15,8
milljarðarkróna.
Mestu munar um liðinn aðrar
rekstrartekjur sem hækkaði um
21,8 milljarða frá síðasta ári en
hreinar vaxtatekjur jukust um 11,4
milljarða á milli ára. Rekstrar-
kostnaður jókst um 7,4 milljarða.
Eignir bankans eru nú orðnar 2.310
milljarðar króna, 2,3 billjónir, og
hafa þær aukist um 48,6% frá ára-
mótum og munar þar mestu um
kaupin á breska bankanum Singer
& Friedlander.
Til gamans má geta að eignir Ís-
landsbanka og Landsbanka eru
samanlagt 2.461 milljarður króna
og því vantar ekki mikið upp á að
KB banki sé stærri en hinir bank-
arnir samanlagt í eignum talið.
Í heild verður uppgjörið að telj-
ast mjög gott þar sem tekjuflæði
eykst verulega en kostnaður eykst
ekki eins mikið.
Eigið fé bankans eykst um nær
25 milljónir króna og eiginfjárhlut-
fall samkvæmt CAD-reglum er
12,2%. Arðsemi eiginfjár er 32,3%.
Mjög gott upp-
gjör KB banka
#-
-
- !
.
!
"
/
0
%) 1
'62(8
53699
'69(5
'982
(4'
+662
+4'28
#
1
'87'(46
2(6(93
22457
'6334
29'4(
'(85
2(3
5
+'753
2673355
23(787
#
!* ) :;. <
.
!*
2'='>
6'=6>
25='>
69=4>
!"#$%&!
"'()*)&!
#
Uppgjör
Kaupþing banki hf.
sverrirth@mbl.is