Morgunblaðið - 29.10.2005, Page 30
30 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
It’s how you live
Keflavíkurflugvöllur | „Þessi viðbót
setur okkur í röð fremstu afgreiðslu-
fyrirtækja á vellinum,“ segir Davíð
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Suð-
urflugs ehf., sem gert hefur samning
við bandaríska flugherinn um rekst-
ur flugafgreiðslu varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli og afgreiðslu á
herflugvélum sem um völlinn fara.
Suðurflug ehf. sem er dótturfélag
Air Atlanta, hefur á undanförnum
árum byggt sig upp til að afgreiða
flugvélar sem fara um Keflavík-
urflugvöll og hefur hlutdeild fyr-
irtækisins vaxið jafnt og þétt. Telur
Davíð að á þessu ári nái fyrirtækið
því takmarki að þjónusta helming al-
mennrar flugumferðar. Þar er átt
við flugvélar utan hefðbundins áætl-
unarflugs til og frá landinu og her-
flugs, alls um 2.600 á síðasta ári.
Fyrirtækið var stofnað fyrir liðlega
þrjátíu árum til að annast flug-
kennslu og leiguflug, en sá þáttur
starfseminnar lagðist niður fyrir
nokkrum árum og það hefur að und-
anförnu einbeitt sér að þjónustu við
flugumferð og hefur í þeim tilgangi
byggt upp eigin flugstöð á flugþjón-
ustusvæðinu.
Mikil vinna hefur farið í að afla
þessa nýja verkefnis og hefur hún
staðið sleitulaust í rúmt ár, eða frá
því sjóherinn óskaði eftir áhugasöm-
um aðilum í forvali á síðasta ári og
bauð síðan verkefnið út. Eftir að
flugherinn tók við þessu verkefni
var afgreiðslan boðin út að nýju.
Suðurflug sendi inn tilboð, eins og
nokkur fleiri fyrirtæki, og komst í
úrslit ásamt einu eða tveimur öðr-
um. Varnarliðið gekk að þeirra til-
boði fyrir skömmu.
Verkið felst í rekstri flug-
afgreiðslu varnarliðsins í gömlu
flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og
afgreiðslu á flestum herflugvélum
sem um Keflavíkurflugvöll fara.
Starfsmenn Suðurflugs munu meðal
annars annast flugumsjón og af-
greiða farþega og varning og að-
stoða áhafnir. Þetta eru flugvélar
NATO og ýmissa annarra herja sem
fara um völlinn í ýmsum erinda-
gjörðum, til dæmis vegna flutninga
á hermönnum og hergögnum og
vegna æfinga. Um er að ræða vel á
fjórða þúsund flugvéla á ári hverju.
Hermenn varnarliðsins hafa að
mestu unnið þessi verk hingað til en
stofnanir hersins sem mannaðar eru
íslenskum starfsmönnum hafa einn-
ig komið að því, auk undirverktaka.
Verkið nær ekki til herþotna, þyrlna
eða eldsneytisvéla varnarliðsins
sjálfs.
Verðmæti samningsins er ekki
gefið upp en ljóst er að það skiptir
tugum milljóna á hverju ári. „Við
höfum reynsluna og þekkinguna á
þessum rekstri en vantar meiri
mannskap,“ segir Davíð Jóhanns-
son. Suðurflug hefur nú tíu starfs-
menn en þarf að tvö- eða þrefalda
þann fjölda vegna þessa nýja verk-
efnis og veltan eykst sem því nemur
eða jafnvel meira, að sögn fram-
kvæmdastjórans. „Þetta er mjög
gott innlegg í okkar rekstur,“ segir
Davíð.
Auðvelt að fá fólk
Johan D. Jónsson, gamalreyndur
maður úr flugþjónustunni, tók til
starfa hjá Suðurflugi um síðustu
áramót til að vinna að þessum samn-
ingum og hann verður stöðvarstjóri
Suðurflugs hjá hernum í gömlu flug-
stöðinni frá og með 1. desember þeg-
ar fyrirtækið tekur við verkefninu.
Hann vann lengi hjá Flugfélagi Ís-
lands og Flugleiðum og var meðal
annars eitt ár í gömlu flugstöðinni
fyrir nærri fjörutíu árum, eftir að
fyrsta þota Íslendinga kom til lands-
ins. „Ég var ekki lengi þarna og það
hefur margt breyst síðan. En það
vekur vissulega gamlar minningar
að fara þangað aftur,“ segir Johan.
Davíð segir að ekki verði vanda-
mál að ráða hæfan mannskap í verk-
ið. Verið sé að taka við umsóknum
og þegar sé kominn góður listi.
Verkefnið næstu daga sé að finna út
hvaða menn hæfi best tilteknum
stöðum.
„Við höfum sett okkur það mark-
mið að gera vel það sem við erum að
gera og teljum að það hafi tekist.
Þjónusta okkar hefur spurst vel út
og það hefur skilað sér í sífellt aukn-
um verkefnum. Enn eru mörg sókn-
arfæri,“ segir Davíð. Þeir Johan
hafa ekki áhyggjur af umræðum um
samdrátt í umsvifum varnarliðsins.
Segja að samningurinn sé til fimm
ára og þótt umsvif varnarliðsins
kunni að minnka hverfi hann ekki á
brott á einni nóttu og að áfram verði
þörf á þjónustu við þær herflugvélar
sem um völlinn fara.
Suðurflug ehf. tekur við rekstri flugafgreiðslu varnarliðsins og þjónustu herflugvéla á vellinum
Komnir í fremstu
röð afgreiðslu-
fyrirtækja hér
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Aukin verkefni Davíð Jóhannsson framkvæmdastjóri og Johan D. Jónsson stöðvarstjóri á flughlaðinu við flugstöð
Suðurflugs. Á bak við þá sést erlend sjúkraflugvél sem starfsmenn Suðurflugs eru að taka á móti og þjónusta.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SUÐURNES