Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 71
Sjáið Wallace & Gromit í sinni fyrstu bíómynd.
ENGINN SLEPPUR LIFANDI
FARÐU TIL HELVÍTIS!
Hörku hasarmynd byggð á einum vinsælasta
og hrottalegast tölvuleik allra tíma!
Viggo Mortensen, Maria Bello, Ed Harris
og William Hurt fara á kostum í þessari frábæru spennumynd.
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 2, 4 og 6
Africa United
Þeir eru hér til að spila fótbolta,
ekki til að gera mistök
Ný Íslensk
heimildarmynd
sem hefur farið
sigurför um
heiminn
S.V. Mbl.
It´s all Gone Pete Tong • Sýnd kl. 2
Enskt tal/Ótextuð
Inkasso • Sýnd kl. 2 Danskt tal/Ótextuð
Solkongen • Sýnd kl. 4 Danskt tal/Ótextuð
The King • Sýnd kl. 4 Enskt tal/Ótextuð
Ringers: Lord of the Fans • Sýnd kl. 6
Enskt tal/Ótextuð
My Summer of Love • Sýnd kl. 6
Enskt tal/Ótextuð
Lords of Dogtown • Sýnd kl. 8
Enskt tal/Íslenskur texti
Adams Æbler • Sýnd kl. 8 Danskt tal/Ótextuð
Pusher lll • Sýnd kl. 10 Danskt tal/Ótextuð
Kung Fu Hustle • Sýnd kl. 10
Enskur texti
októberbÍófest | 26. október - 14. nóvember
Miðasala opnar kl. 17.30
Sími 551 9000
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
"FLOTTASTA HROLLVEKJA ÁRSINS"
KÓNGURINN OG FÍFLIÐ / X-FM
"“hörku spennandi barátta upp
á líf og dauða þar sem öll tiltæk
meðöl eru notuð...”"
S.V. MBL
EMPIRE MAGAZINE. UK
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 1.45, 3, 5.30, 8 og 10.30-POWER
VJV Topp5.is
Kóngurinn og Fíflið, XFM
Tom Stall lifði
fullkomnu lífi...
þangað til hann
varð að hetju.
Frá leikstjóranum David Cronenberg
kemur ein athyglisverðasta mynd ársins.
Sýnd kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40
TOPP5.is
„Meistarastykki“
H.E. Málið
ó.H.T. Rás 2
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU400 KR. 400 KR.
H.J. Mbl.
ATH! Á undan myndinn er stuttmyndin “Madagascar
Mörgæsirnar halda í jólaleiðagur sýnd.
Sýnd kl. 2, 4 og 6 Ísl. tal
(besti leik-
stjóri, besta
heimildarmynd,
besta handrit)
Tilnefnd til þriggja
Edduverðlauna
POWER
SÝNIN
G
KL. 10
.30 á s
tærst
a
thx tj
aldi l
andsi
ns
Bráðfyndin og kolsvort kómedía sem
virðir pólítíska réttsýni að vettugi.
Á dönsku. Engin texti.
Vinsælasta myndin í Asíu.
Magnað sjónarspil og
slagsmálasenur!
Upplifðu upphafið af
töffaraskap hjólabrettana.
400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu
Þriðja myndin í hinum
ofbeldisfullu og blóðugu
Pusher myndaflokki.
Pusher III
Sýnd kl. 2 Ísl. tal
553 2075bara lúxus ☎
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 71
RAGNHEIÐUR Gröndal hefur á
stuttum tíma náð að syngja sig inn í
hug og hjarta margra Íslendinga. Í
næstu viku kemur í verslanir ný
plata með söngkonunni þar sem
hún reynir jafnframt fyrir sér sem
texta- og lagasmiður. Platan inni-
heldur frumsamin lög og texta eftir
Ragnheiði sjálfa, utan eins texta
sem er eftir vinkonu hennar.
„Hún samdi textann þegar við
vorum 14 ára og ég er búin að
geyma hann í öll þessi ár,“ segir
Ragnheiður. „Lagið við textann
hennar er jafnframt það fyrsta sem
ég samdi.“
Ragnheiður segir lögin hafa orð-
ið til á unglingsárum sínum og end-
urspegli textarnir að miklu leyti
það tímabil í lífi hennar.
„Það gerist mikið á þessum aldri
þegar maður er að ná persónu-
legum þroska og oft er mikið um
dramatík. Platan er einskonar upp-
gjör við þetta tímabil,“ segir hún.
„Textarnir eru margir hverjir
mjög dramatískir, þeir eru per-
sónulegir og blátt áfram. Það er
ekki mikið um myndlíkingar. Bestu
lögin verða til þegar maður er rosa-
lega glaður eða sorgmæddur.“
Fékk að ráða mestu sjálf
Ragnheiður segir það skemmti-
lega tilbreytingu að flytja lög eftir
sjálfa sig og segir tónlistina verða
persónulegri fyrir vikið. Auk þess
að semja fyrir sjálfa sig hefur hún
einnig látið öðrum kollegum sínum
lögin sín í té.
„Regína Ósk hafði samband við
mig og spurði hvort ég ætti einhver
lög fyrir sig. Hún flytur eitt lag eft-
ir mig á nýju plötunni sinni. Upp-
haflega ætlaði ég að hafa lagið á
plötunni minni en svo fannst mér
það ekki henta stemmingunni nógu
vel svo ég lét hana fá það,“ segir
Ragnheiður og bætir við að það hafi
glatt hana mikið að Regína vildi
nota lagið á plötunni sinni.
Væntanleg plata Ragnheiðar ber
heitið After the Rain en með henni
leika Guðmundur Pétursson, gít-
arleikari, Róbert Þórhallsson
bassaleikari, Einar Scheving á
trommur og Kjartan Valdimarsson
á hljóðgervil auk Hauks Gröndal
sem leikur á klarinett auk þess að
stjórna upptökum í samvinnu við
Ragnheiði.
„Ég fékk þó að ráða mestu sjálf
en Haukur gaf mér góð ráð varð-
andi útsetningar á lögunum,“ segir
Ragnheiður. „Ég held að útkoman
hafi verið fín, ég er allavega mjög
sátt.“
Lögin eru öll á ensku og segist
Ragnheiður eiga auðveldara með
að semja texta uppá enska tungu.
„Mér finnst textinn flæða betur
þannig. Það er svo erfitt að semja
flotta texta á íslensku, það eru ekki
nema örfáir sem geta gert það vel,“
segir hún.
Er platan þá jafnvel hugsuð fyrir
erlendan markað?
„Það er aldrei að vita. Ég veit að
12 Tónar ætla að senda hana til
Skandinavíu og reyna að kynna
hana eitthvað. Ég er að vonast til
að henni verði dreift þar og að ég
geti farið að spila þar í kjölfarið. En
það verður bara að koma í ljós,“
segir Ragnheiður.
Útgáfutónleikar af tilefni After
the Rain eru áætlaðir 16. nóvember
næstkomandi í Íslensku óperunni.
„Svo förum við kannski eitthvað
út á land í kjölfarið,“ segir Ragn-
heiður og bætir við að lokum. „Ég
vonast auðvitað til að platan fái
góðar viðtökur en þetta gæti þó
komið einhverjum á óvart. Þetta er
ólíkt því sem ég hef verið að gera
áður.“
Tónlist | Ný plata frá Ragnheiði Gröndal
Persónuleg og blátt áfram
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnheiður Gröndal gefur frá sér nýja plötu með frumsömdu efni í
næstu viku.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
ÞAÐ BÍÐA eflaust margir
Íslendingar í ofvæni eftir að
fá að lesa nýjustu bók Arn-
aldar Indriðasonar, Vetr-
arborgina. Biðin er senn á
enda en á miðnætti mánu-
daginn 1. nóvember geta
áhugasamir mætt í verslun
Pennans í Austurstræti og
tryggt sér eintak af bók-
inni.
Arnaldur er ókrýndur
metsöluhöfundur Íslands en bækur
hans hafa selst í yfir milljón eintök-
um víða um heim. Hann er jafnframt
sá núlifandi íslenski rithöfundur sem
gefinn er út hvað víðast í heiminum.
Eins og greint hefur verið frá
hyggst nú leikstjórinn Baltasar Kor-
mákur gera mynd eftir sögu Arn-
aldar, Mýrinni, og er áætlað
að tökur hefjist síðar í vetur.
Á miðnætti á mánudaginn
er það svo ekki einungis
bókin góða sem stendur
miðnæturgestum Pennans
til boða heldur geta við-
staddir skráð sig sem auka-
leikara í kvikmyndinni Mýr-
inni.
Í Vetrarborginni fá góð-
kunningjarnir Erlendur,
Sigurður Óli og Elínborg til rann-
sóknar óhugnanlegan glæp þegar
drengur finnst látinn á víðavangi.
Hægt er að nálgast fyrsta kafla
bókarinnar í upplestri Ingvars E.
Sigurðssonar á vef útgefandans,
edda.is, og hafa hátt í 2000 manns
nýtt sér þann möguleika.
Bækur | Vetrarborgin eftir Arnald
Indriðason kemur út
Aukahlutverk í boði
Arnaldur
Indriðason