Morgunblaðið - 12.11.2005, Side 4
4 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
steinunn ólína
áritar bók sína
kl. 14 laugardag
í bókabúð máls
og menningar,
laugavegi 18
aðeins þetta eina sinn
„Blússandi húmor … fín saga …
langt síðan ég hef lesið jafn fallega frásögn
af samskiptum mæðgna.“
Sigríður Albertsdóttir / DV
„Sterkur rithöfundur með tæran texta
og einstaklega skemmtilegan frásagnarmáta,
húmor og gáfur. Ég er stórhrifin.“
Sirrý Arnardóttir / FÓLK
„Það er kraftur í þessari frásögn, sterk
löngun til að segja frá sem smitar lesandann
og heldur honum við efnið,
dirfska til að takast á við erfiða hluti.“
Halldór Guðmundsson / FRÉTTABLAÐIÐ
[
[ [
[
www.jpv.is
FJÁRFRAMLÖG til hafrannsókna
verða aukin verulega strax á næsta
ári, eða um 50 milljónir. Er það um
10% aukning miðað við fjárlög þessa
árs. Jafnframt verða lagðar til 25
milljónir króna til að greiða leið vís-
indamanna utan Hafrannsóknastofn-
unarinnar til að stunda hafrannsóknir
við Ísland.
Einar Kristinn Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra kynnti á blaðamanna-
fundi í gær ráðstöfun fjár úr Verk-
efnasjóði sjávarútvegsins. Í fjár-
lögum næsta árs er lagt til að framlög
til Hafrannsóknastofnunar verði auk-
in um 50 milljónir króna og síðan um
100 milljónir króna frá og með fjár-
lögum ársins 2007. Jafnframt er út-
hlutunarreglum Verkefnasjóðs sjáv-
arútvegsins breytt þannig að á næsta
ári fari að minnsta kosti 25 milljónir
króna, af því fé sem sjóðurinn hefur til
úthlutunar, til hafrannsókna á sam-
keppnisgrundvelli. Auglýst verður
eftir umsóknum og mun faghópur
meta þær út frá vísindalegu gildi
verkefnanna.
Sjávarútvegsráðherra segir að með
þessu vinnist tvennt; hafrannsóknir á
vegum Hafrannsóknastofnunarinnar
verða auknar í kjölfar hærri fjárveit-
inga og þeim sem starfa utan stofn-
unarinnar og hafa haft takmarkaðan
aðgang að styrkjum gefst færi á að
sækja um til Verkefnasjóðs til að
stunda hafrannsóknir.
Gert er ráð fyrir að ýmsir aðilar
komi til greina við þessar styrkveit-
ingar, svo sem háskólar landsins, fyr-
irtæki í sjávarútvegi og tengd fyrir-
tæki, vísindamenn og stofnanir.
Jóhann Sigurjónsson forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar segir ánægju-
legt að verið sé að styrkja fjárramma
stofnunarinnar í framtíðinni. Haf-
rannsóknastofnunin hyggist á næsta
ári efla rannsóknir á vistkerfi Íslands-
hafs, frá Grænlandssundi norður og
austur um land og leggja sérstaka
áherslu á loðnurannsóknir. Þetta séu
brýnar rannsóknir meðal annars í
ljósi breytinga á umhverfi sjávar und-
anfarin ár. Þá geri aukið fé kleift að
nýta betur rannsóknarskip stofnun-
arinnar, þó reyndar þurfi meira fé til
að fullnýta möguleika þeirra.
Þessari ráðstöfun fjár til hafrann-
sókna til frambúðar fylgir að Verk-
efnasjóður sjávarútvegsins leggur
660 milljónir króna, sem upprunnar
voru í Þróunarsjóði, í ríkissjóð. Unnið
er að uppgjöri sjóðsins en eignir hans
í lok starfstíma hans byggðust á
greiðslu sjávarútvegsfyrirtækja til
sjóðsins.
Framlög til hafrannsókna
aukin um 50 milljónir
25 milljónir að auki
lagðar til rannsókna
aðila utan Hafrann-
sóknastofnunarinnar
Morgunblaðið/Ásdís
Sjávarútvegsráðherra kynnir auknar fjárveitingar til hafrannsókna. Á myndinni eru Guðrún Eyjólfsdóttir, sérfræð-
ingur í sjávarútvegsráðuneytinu, Arndís Steinþórsdóttir deildarstjóri, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra,
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, og Vignir Thoroddsen, fjármálastjóri stofnunarinnar.
ADRENALÍN.IS hlaut í gær nýsköp-
unarverðlaun Samtaka ferðaþjón-
ustunnar fyrir adrenalíngarðinn á
Nesjavöllum en garðurinn var tek-
inn í notkun í júlí síðastliðnum.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra afhenti verðlaunin á
Grand Hótel í gær og tók Karl Ing-
ólfsson, eigandi ferðaskrifstofunnar
Ultima Thule, sem á garðinn, við
verðlaununum en þau hljóðuðu upp
á 250 þúsund krónur auk þess sem
Karli var afhentur skjöldur í verð-
laun.
Fjord Fishing og VEG Guesthouse
á Suðureyri hlutu einnig sérstakar
viðurkenningar SAF. Verkefnið
Fjord Fishing gengur út á sjóstang-
veiði á Vestfjörðum og þrátt fyrir að
verkefnið sé enn á byrjunarreit hafa
hátt á þriðja hundrað Þjóðverjar
bókað sig vestur á firði næsta sum-
ar. Verkefnið er unnið í samstarfi
við Island ProTravel, GmbH og
Vögler’s Angel Reisen, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Samtökum ferðaþjónustunnar. Ólaf-
ur Jóhannesson framkvæmdastjóri
tók við viðurkenningu fyrir hönd
Fjord Fishing.
Gistihúsið VEG Guesthouse hlaut
einnig viðurkenningu en eigendur
þess hafa kortlagt gönguferðir og í
samstarfi við útgerðina á Suðureyri
boðið ferðamönnum í veiðiferðir. Þá
hefur verið staðið fyrir kynning-
arferðum fyrir ferðamenn í frysti-
hús á svæðinu. Jóhanna Þorvarð-
ardóttir og Elías Guðmundsson reka
gistihúsið og tóku þau hjónin við við-
urkenningunni í gær.
Nýsköpunarverðlaun SAF voru
veitt í fyrsta sinn í fyrra og fékk Mý-
vatn ehf. þá verðlaunin fyrir marg-
víslegar nýjungar á sviði ferðaþjón-
ustu.
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti nýsköpunarverðlaunin.
Adrenalín.is hlaut
nýsköpunarverðlaun SAF
STÖÐUGILDUM í grunnskólum
fjölgaði um 45% á árunum 1997–
2004, að því er fram kemur í skýrslu
hag- og upplýsingasviðs Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Stöðugildum
kennara fjölgaði um 835 eða 34% á
árunum og öðrum stöðugildum fjölg-
aði um 1.123 eða 65%. Á sama tíma
fjölgaði nemendum einungis um 5%.
Þetta ásamt launahækkunum hef-
ur leitt til aukins rekstrarkostnaðar
grunnskólans, enda eru stærstu
kostnaðarliðir vegna hans laun og
launatengd gjöld.
Þannig kemur fram að útgjöld
vegna grunnskóla jukust um rúma
sjö milljarða króna eða 48% á árun-
um 1997–2001. Hlutfallsleg aukning
er misjöfn eftir landshlutum, mest er
hún á höfuðborgarsvæðinu utan
Reykjavíkur eða 71% og á Suður-
nesjum er hún 60%. Minnst er hlut-
fallsleg hækkun rekstrargjalda á
Vestfjörðum, 22%, og á Norðurlandi
vestra, 29%.
Vegna breyttra reikningsskilaað-
ferða frá og með rekstrarárinu 2002
er tímabilinu 1997–2004 skipt í
tvennt þegar útgjöld vegna grunn-
skólans eru skoðuð.
Á tímabilinu 2002–2004 hækkuðu
útgjöld sveitarfélaganna um 4% eða
um 1,3 milljarða króna. Hlutfallslega
var hækkunin mest á Austurlandi,
eða 8%, og á höfuðborgarsvæðinu ut-
an Reykjavíkur var hún 7%.
Einn landshluti sker sig þó úr, því
á Vestfjörðum lækkuðu útgjöld til
grunnskóla á tímabilinu 2002–2004
um 5%.
Stöðugildum í grunnskólum fjölgaði um 45%
HÆSTIRÉTTUR hefur vísað
tveimur dómum aftur heim í hérað,
annars vegar eins árs óskilorðs-
bundnum fangelsisdómi yfir manni
sem sakfelldur hafði verið fyrir inn-
brot, vopnalagabrot o.fl., hins vegar
dómi vegna vinnuslyss um borð í tog-
ara.
Annar dómurinn var kveðinn upp
af fjölskipuðum dómi Héraðsdóms
Norðurlands eystra. Karlmaður sem
á alllangan brotaferil að baki var
ákærður fyrir ýmis brot samkvæmt
tveimur ákærum. Þegar málið var
tekið fyrir í héraði játaði hann brot
samkvæmt einum lið annarrar ákær-
unnar en neitaði sakargiftum að
öðru leyti án þess að honum gæfist
færi á að ráðfæra sig við verjanda
sinn. Við aðalmeðferð málsins mætti
verjandi hans en ekki hann sjálfur.
Hann var síðan sakfelldur fyrir brot
samkvæmt annarri ákærunni en
sýknaður að öðru leyti. Hæstiréttur
taldi að við fyrirtöku málsins hefði
dómari átt að vekja athygli mannsins
á því að hann þyrfti ekki að tjá sig
um sakarefnin í því þinghaldi þar
sem verjandi hans var ekki viðstadd-
ur. Þá hefði dómurum borið að fresta
aðalmeðferð og hlutast til um að
ákærði yrði færður fyrir dóminn til
skýrslugjafar enda hafði hann ekki
átt þess áður kost að tjá sig um sak-
arefnin fyrir dómi. Dómurinn var
þess vegna ómerktur að því er varð-
aði umrædda ákæru.
Hinn dómurinn var kveðinn upp af
Héraðsdómi Reykjavíkur og varðaði
vinnuslys sem varð um borð í togara
í eigu Granda hf. Sjómaðurinn sem
varð fyrir slysinu höfðaði mál og
krafði útgerðarfélagið um rúmlega
61 milljón í skaða- og miskabætur
vegna þess líkamstjóns sem hann
varð fyrir. Héraðsdómur Reykjavík-
ur dæmdi félagið til að greiða rúm-
lega eina milljón króna en þeim dómi
áfrýjaði sjómaðurinn. Í dómi Hæsta-
réttar í gær segir að ekki verði séð
að héraðsdómari hafi tekið rök-
studda afstöðu til allra málsástæðna
sjómannsins. Dómurinn var því
ómerktur og vísað aftur heim í hér-
að.
Tveir dómar
ómerktir
og vísað
heim í hérað