Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 53
björnsdóttir. Veitingar í boði sókn- arnefndar eftir messu. Sjá Vefrit Keflavík- urkirkju: keflavikurkikja.is HNÍFSDALSKAPELLA: Guðsþjónusta á Kristniboðsdaginn 13. nóv. kl. 11. Sunnu- dagaskóli kl. 13. STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA: Kristniboðs- dagurinn. Guðsþjónusta í kirkjunni kl. 14. Ragnar Gunnarsson, kristniboði, prédikar. Í lok athafnarinnar verður safnað fjár- framlögum til kristniboðsins. AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Kvöldmessa kl. 20.30. Sr. Óskar H. Óskarsson og sr. Sólveig Halla Kristjáns- dóttir. Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Ferm- ingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega boðin velkomin. GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera og messa kl. 11. Sr. Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga prédikar. Sr. Arnaldur Bárðarson þjónar. Félagar úr Kór Gler- árkirkju leiða söng. Organisti er Hjörtur Steinbergsson. KFUM og KFUK, Sunnuhlíð, Akureyri. Kristniboðsdagurinn. Kaffisala á vegum Kristniboðsfélags kvenna í Sunnuhlíð til ágóða fyrir kristniboðið í Eþíópíu og Kenýu kl. 15 til 17. Kristniboðssamkoma kl. 20 um kvöldið. Ræðumaður sr. Ragnar Gunn- arsson framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga. Tekið verður á móti gjöfum til kristniboðsins. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu- dagaskóli kl. 11. Kveðjusamkoma kl. 17 fyrir Erling Níelsson. Allir velkomnir. EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 20. 14. nóv, mánudag, kyrrðarstund kl. 18 og biblíulestur (skóli orðsins) kl. 20.30–21.30. Minni á námskeiðið Bæna- bandið í Kirkjuselinu í Fellabæ 11. nóv. kl. 20–22. VALLNESKIRKJA: Messa kl. 14. Sókn- arprestur. KIRKJUBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 13. Allir velkomnir. Sókn- arprestur. PRESTSBAKKAKIRKJA á Síðu: Guðsþjón- usta á kristniboðsdegi Þjóðkirkjunnar sunnudag kl. 14. Þá heldur sóknin hátíð í tilefni verkloka við Prestsbakkakirkju. Prestur er séra Haraldur M. Kristjánsson. Organisti er Brian R. Haroldsson. Kór Prestsbakkakirkju syngur. Að guðsþjón- ustu lokinni býður kirkjukór Prestsbakka- kirkju kirkjugestum til kaffisamsætis á Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri. Þar mun Sigurður Harðarson arkitekt m.a. lýsa kirkjunni og þeim viðhaldsframkvæmdum sem nú er að ljúka. Er það von kirkjukórs- ins og sóknarnefndar að sem flestir sjái sér fært að líta upp úr haustönnum til að gleðjast saman í kirkjunni og yfir kaffibolla í tilefni verklokanna og vetrarkomunnar. Fermingarbörn og forráðamenn þeirra sér- staklega hvött til að mæta. Sóknarnefnd Prestsbakkasóknar og séra Haraldur M. Kristjánsson. VÍKURKIRKJA í Mýrdal: Kvöldguðsþjón- usta sunnudagskvöldið kl. 20. (Athugið vel tímasetninguna.) Prestur er séra Har- aldur M. Kristjánsson. Organisti er Kristín Waage. Fjölmennum til kirkju að kvöldi kristniboðsdags íslensku Þjóðkirkjunnar. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sér- staklega hvött til að mæta. Haraldur M. Kristjánsson, sóknarprestur. ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón- usta kl. 14. Organisti Nína María Morá- vek. Kirkjuskóli barnanna er í Safn- aðarheimili Oddasóknar á Hellu kl. 11 á laugardögum. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 11. Sóknarprestur. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Guðsþjón- usta nk. sunnudag kl. 13.30. Vænst er þátttöku væntanlegra fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Söngkór Hraungerði- sprestakalls syngur undir stjórn Inga Heið- mars Jónssonar. Kristinn Á. Friðfinnsson. SELFOSSKIRKJA: Messa og altarisganga kl. 11. Foreldrar fermingarbarna aðstoða við athöfnina. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til þess að koma. Barnastund kl. 11.15. Léttur hádeg- isverður að lokinni messunni. Tíðagjörð þriðjudaga til föstudaga kl. 10. Fyrirbæn og tekið við bænarefnum. Kaffisopi á eft- ir. Kirkjuskóli í Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu þriðjudaginn 15. nóv. kl. 14. Pabba- og mömmumorgunn miðviku- dagann 16. nóv. kl. 11. Opið hús, spjall og hressing. Fáum heimsókn frá Heilbrigð- isstofnun Suðurlands. Hulda Gestsdóttir, hjúkrunarfræðingur, fjallar um áhrif ung- barnaóróa á mæður. Æskulýðsfélag Sel- fosskirkju heldur fund í safnaðarheimilinu fimmtudaginn17. nóvember kl. 19.30. Sr. Gunnar Björnsson. STOKKSEYRARKIRKJA: Messa kl. 14. Stokkseyringafélagið kemur í heimsókn. HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11. Orgelstund kl. 17. Foreldramorgnar á þriðjudagsmorgnum kl. 10–11.30 í Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju. Þriðju- daginn 15. nóv. ræðir Steina Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari, um hreyfiþroska ungbarna. Sóknarprestur. HNLFÍ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. SÓLHEIMAKIRKJA: Guðsþjónusta verður í Sólheimakirkju í Grímsnesi, sunnudag- inn 13. nóvember kl. 14. Sr. Birgir Thom- sen þjónar fyrir altari. Allir hjartanlega vel- komnir. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 53 KIRKJUSTARF Kristniboðsdagurinn á sunnudag ÁRLEGUR kristniboðsdagur þjóð- kirkjunnar verður á sunnudaginn kemur, 13. nóvember. Í tilefni dags- ins hvetur biskup presta og söfnuði til að nýta það tækifæri til að halda á lofti málefnum kristniboðsins og minna á þann mikilvæga þátt í lífi og köllun kirkjunnar sem kristni- boðið er. Samband íslenskra kristniboðs- félaga var stofnað árið 1929 og stóð í fyrstu að baki íslenskum kristni- boðum í Kína. Með valdatöku kommúnista lokaðist landið og stuttu síðar, eða árið 1954, hófu Ís- lendingar starf í Eþíópíu, meðal Konsómanna í suðurhluta landsins. Um þrátíu Íslendingar hafa verið þar að störfum í landinu á liðnum 50 árum, flestir í áratug eða lengur. Starf lúthersku kirkjunnar, Mek- ane Yesus, hefur vaxið gríð- arlegalega og er hún ein af stærstu og öflugustu lúthersku kirkjum í heimi. Tvær íslenskar fjölskyldur eru að starfi í landinu. Árið 1978 hóf Kristniboðs- sambandið starf í Keníu og þar eru þrír fulltrúar þess nú við störf. Megináherslan hefur verið á starf meðal Pókotmanna í norðvest- urhluta landsins. Útvarpsguðsþjónusta dagsins er frá Lindasókn í Kópavogi. Þar mun Bjarni Gíslason kristniboði prédika en séra Guðmundur Karl Brynj- arsson þjóna fyrir altari. Kristni- boðar og fulltrúar frá Eþíópíu taka þátt í guðsþjónsutum víðar á höf- uðborgarsvæðinu og á Akureyri. Sérstök hátíðarsamkoma verður síðan í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg kl. 17. Hirut Beyene og Kusse Kushosho frá Konsó í Eþíóp- íu segja þar frá eigin lífi og starfi og flytja hugleiðingu. Haraldur Ólafsson kristniboði flytur upphafs- orð og bæn. Allir eru velkomnir. Tekið er á móti gjöfum til starfs- ins í kirkjum landsins en þær má einnig leggja inn á eftirtalda bankareikninga: Hjá Íslandsbanka: 0515-26-2800, hjá Landsbanka: 0117-26-2800, hjá KB banka 0328- 26-2800 og hjá SPRON: 1153-26- 2800. Kennitala Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga er 550269-4149. Kvöldguðsþjónusta í Þorlákskirkju KVÖLDGUÐSÞJÓNUSTA með Þorvaldi Halldórssyni nk. sunnu- dagskvöld kl. 20. Julian Edward Isaacs spilar við upphaf og lok sam- komunnar. Létt tónlist og gleðiríkt andrúmsloft. Einstakt tækifæri fyr- ir alla aldurshópa. Vænst er þátt- töku væntanlegra fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Prestur: Kristinn Á. Friðfinnsson. Seljasöfnuður 25 ára HALDIÐ verður upp á 25 ára af- mæli seljasafnaðar sunnudaginn 13. nóvember. Dagskrá dagsins hefst á barnaguðsþjónustu kl. 11 þar sem m.a. börn úr KFUM og K starfi kirkjunnar sýna listir sínar. Hátíðarguðsþjónusta verður kl. 14. Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar. Sr. Valgeir Ástráðsson og Sr. Bolli Pétur Bollason þjóna fyrir altari. Barnakórinn og kór Selja- kirkju leiða söng. Organisti Jón Bjarnason. Hátíðarsamvera verður kl. 20 með fjölbreyttri dagskrá. Hr. Ólafur Skúlason flytur hugvekju og tónlistarflutningur verður í hönd- um kóra kirkjunnar. Guðmundur Hjálmarsson, Guðmundur Hall- varðsson og sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir flytja hátíðarávörp. Allir velkomnir. Basar Kvenfélags Grensássóknar Í DAG, laugard. 12. nóv., heldur Kvenfélag Grensássóknar árlegan basar sinn í safnaðarheimili Grens- áskirkju frá kl. 14. Auk góðra muna eru kökur á basarnum og einnig selt vöfflukaffi. Basarinn hefur um árabil verið ein helsta tekjulind Kvenfélagsins en fjármunir þess hafa allt frá stofnun safnaðarins runnið til góðra og þarfra verkefna í upp- byggingu kirkjunnar og á vett- vangi safnaðarstarfsins. Nú síðast gaf Kvenfélagið söfn- uðinum lýsingu til að lýsa upp gler- listaverkið í glugganum á kórgafli kirkjunnar en Kvenfélagið gaf einnig á sínum tíma glerlistaverkið sjálft sem er eftir Leif Breiðfjörð. Kvennakirkjan í Breiðholtskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guð- þjónustu í Breiðholtskirkju sunnu- daginn 13. nóvember kl. 20.30. El- ína Hrund Kristjánsdóttir guðfræðingur prédikar og er um- fjöllunarefni hennar reiðin – er hún góð eða vond? Kór Kvennakirkj- unnar leiðir sönginn við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur og mun syngja kröftuga söngva sem Kvennakirkjan hefur látið semja eða þýða. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20 verður bókakynning í stofum Kvennakirkjunnar að Laugavegi 59, 4. hæð, gengið inn frá Hverf- isgötu. Þar munu þær séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir og Edda Andr- ésdóttir kynna bók sína Auður Eir – Sólin kemur alltaf upp á ný. Ósýnilegi vinurinn í Bústaðakirkju Í BARNAGUÐSÞJÓNUSTU næst- komaandi sunnudag 13. nóvember kl. 11 mun STOPP leikhópurinn flytja leikritið „Ósýnilegi vin- urinn“. Leikrit þetta er fyrir alla fjölskylduna. Allir velkomnir. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Prestur: Sr Jón helgi Þórarinsson. Kór Bústaðakirkju syngur. Org- anisti: Guðmundur Sigurðsson. Kristniboðsdagurinn í Hallgrímskirkju Á KRISTNIBOÐSDEGI þjóðkirkj- unnar á sunnudag hefst dagskráin kl. 10 á fræðslumorgni. Guðlaugur Gunnarsson kristniboði fjallar um efnið: Með fjölskyldu í framandi heimi, en efni fræðslumorgnanna í haust hafa flest fjallað um málefni fjölskyldunnar. Messa og barnastarf hefst kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Pálssyni. Fermingarbörn lesa ritningarlestra og bænir. Ung- lingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti verður Hörður Áskels- son. Eftir messu er sem fyrr boðið upp á kaffisopa. Kvöldmessa, kristni- boð og konur í Laug- arneskirkju EITT helsta einkenni Jesú frá Nas- aret var það að hann iðkaði jafn- ingjasamskipti við allt fólk. Hvar- vetna sem kristni hefur náð fótfestu í heiminum hafa jafnréttismál kynjanna t.d. fengið nýjan hljóm- grunn. Samt skortir mikið á að kirkjan í landinu okkar iðki full- komið jafnrétti kynjanna. Í tilefni af kristniboðsdeginum munu konur prédika í Laugarnes- kirkju bæði í messunni kl. 11 og í kvöldmessu kl. 20.30. Í þeirri fyrri stígur Hildur Eir Bolladóttir guð- fræðingur og æskulýðsfulltrúi safn- aðarins í stólinn, en sóknarprestur mun þjóna í sunnudagaskólanum í hennar stað. Eftir þá messu verður haldinn hinn árlegi Kökubasar kvenfélagsins, þar sem ætíð er eftir ýmsu að slægjast. Við kvöldmessuna mun Ingibjörg María Gísladóttir guðfræðinemi og Bjarni Karlsson sóknarprestur flytja samtalsprédikun og Arndís G. Bernhardsdóttir guðfræðinemi og safnaðarfræðari þjóna að ritning- arlestrum og bæn ásamt hópi fé- laga úr trúfræðslu safnaðarins. All- ur talaður texti verður að þessu sinni fluttur á máli beggja kynja. Kór Laugarneskirkju syngur við báðar messurnar, en um kvöldið bætast í hópinn nokkrir djassleik- arar, með Gunnari Gunnarssyni organista og kórstjóra. Það verða þeir Sigurður Flosason, Matthías M.D. Hemstock og Tómas R. Ein- arsson. Tekið verður við samskotum til íslenska kristniboðsins við Guðs- þjónustur dagsins. Fjölskylduhátíð og kvöldmessa í Hafn- arfjarðarkirkju SUNNUDAGINN 13. nóvember er kristniboðsdagur þjóðkirkjunnar. Þá verður boðið til fjölskylduhátíð- ar sunnudagaskólanna í Hafn- arfjarðarkirkju kl. 11 og lofgjörðar og poppmessu um kvöldið kl. 20. Við fjölskylduhátíðina kl. 11 mun barnakór kirkjunnar syngja undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undir- leik Önnu Magnúsdóttur og hljóm- sveitin Gleðigjafar leika. Leiðtogar sunnudagaskólanna munu stýra há- tíðinni ásamt sr. Gunnþóri Ingasyni sóknarpresti. Eftir stundina í kirkj- unni er boðið upp á góðgæti í safn- aðarheimilinu Strandbergi. Hljómsveitin Gleðigjafar mun leika fjörleg lofgjörðarlög í lof- gjörðar- og poppmessunni kl. 20. Prestur verður sr. Gunnþór Inga- son en leiðtogar í æskulýðsstarfi kirkjunnar munu lesa ritningarorð og leiða bænir. Eftir messuna bjóða fermingarbörn kirkjunnar til veislu í Hásölum Strandbergs en þar verð- ur ljósmyndum, sem teknar voru í sumar- og haustferðum ferming- arbarnanna í Vatnaskóg, varpað upp á tjald. Þess er vænst að þessi lofgjörð- arkvöldmessa á kristniboðsdeg- inum verði vel sótt af ferming- arbörnunum og fjölskyldum þeirra og öðrum sem vilja njóta hennar og veislunnnar í Hásölum Strand- bergs. Sr. Friðrik Schram prédikar á kristni- boðsdegi í Grafar- vogskirkju Á morgun, kl. 11 mun sr. Friðrik Schram, prestur Íslensku Krists- kirkjunnar, prédika í Grafarvogs- kirkju. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Organisti verð- ur Gróa Hreinsdóttir. Barnakór og Unglingakór kirkjunnar munu syngja undir stjórn Oddnýjar J. Þorsteinsdóttur. Fermdur verður Tómas Freyr Jóhannsson Gautavík 6. Barn borið til skírnar. Oddur Thorarensen syngur einsöng. Samskot tekin fyr- ir Kristniboðssambandið. Að messu lokinni verður boðið upp á veitingar. Safnaðarfélag Dóm- kirkjunnar FUNDUR í Safnaðarheimilinu að lokinni messu sunnudaginn 13. nóv- ember nk. Fyrirlesari er dr. Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur. Safn- aðarfélagið er opið öllum bæði sóknarbörnum og öðrum velunn- urum Dómkirkjunnar. Félagsmenn hittast einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, hlýða á messu og borða saman léttan há- degisverð. Allir velkomnir. Leyndardómar ást- arinnar II KFUM og KFUK í Reykjavík býður til málfundar um leyndardóma ást- arinnar laugardaginn 12. nóv- ember, kl. 11–13, í húsi félagsins við Holtaveg. Fyrirlesari er Hafliði Kristinsson, fjölskylduráðgjafi sem mun fjalla um efnið út frá fimm tungumálum ástarinnar. Hann hefur haldið fjölda fyr- irlestra um þetta efni og hefur mikla reynslu af að hjálpa fólki í hjónabandserfiðleikum. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.