Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 66
66 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ný Íslensk heimildarmynd sem hefur farið sigurför um heiminn Sýnd kl. 5.30 B.i. 12 ára Africa United  S.V. Mbl.  TOPP5.is  Ó.H.T. Rás 2  S.k. Dv Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 10.40 B.i. 16 Sá beSti í branSanum er mættur aftur! hörku spennumynd frá leikstjóra 2 fast 2 furious og boyz´n the hood Þeir voru leiddir í gildru... nú þarf einhver að gjalda! Sýnd kl. 5.45 og 10.30 bi. 16 ára Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og handritshöfundi Erin Brockovich Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára  MBL TOPP5.IS  TOPP myndin á Íslandi Í 2 ViKUR TOPP myndin á Íslandi Í 2 ViKUR  MMJ Kvikmyndir.com  MBL TOPP5.IS  Sýnd kl. 3, 8 og 10.15 B.i. 14 ára kl. 3, 5.40, 8 og 10.20  „Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið“ MMJ Kvikmyndir.com Hún er besti vinur þinn og versti óvinur þinn. Hún er eina persónan sem þú getur ekki verið án Sýnd kl. 3, 5.30 og 8 Frá leikstjóra 8 Mile & LA Confidential og handritshöfundi Erin Brockovich Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára Sýnd kl. 3 og 8 TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR. ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2 og 4 Ísl. tal Sjóðheit spennumynd með ofurtöffaranum PaulWalker og hinni stórglæsilegu Jessicu Alba. Þetta var hið fullkomna frí þangað til þau fundu fjársjóðinn! Þetta var hið fullkomna frí þangað til þau fundu fjársjóðinn! Miða­sa­la­ opn­a­r kl. 13.30 Sími 564 0000 Sjóðheit spennumynd með ofurtöffaranum Paul Walker og hinni stórglæsilegu Jessicu Alba. SÖNGKONAN Regína Ósk er að góðu kunn, hún hefur komið víða við síðustu árin. Platan sem hér um ræðir, sem ber nafn söngkonunnar, er þó hennar fyrsta sólóplata. Plat- an inniheldur þrettán lög, þar af tíu gömul (misgömul þó) sem öll ku vera í miklu uppáhaldi Regínu. Hin þrjú eru hins vegar ný; „I saw you“ eftir Ragnheiði Gröndal, „The sun- light of my eyes“ eftir Þóru Gísla- dóttur og „Mother“ eftir Regínu og félaga. Hér er valinn maður í hverju rúmi, öll vinnubrögð eru fyrsta flokks, hvort sem varðar flutning, hljóðfæraleik eða hljóðritun, og er hljómburður plötunnar sérlega góð- ur. Hins vegar vantar hér einhvern neista til að kveikja almennilega í, að platan rífi sig upp úr flatneskj- unni sem óneitanlega er ríkjandi á köflum. Hér er um að kenna útsetn- ingum sumra laganna, þar sem al- gjörlega er reynt að sigla milli skers og báru og litlu bætt við það sem áður hefur verið gert. Að gefa út plötu með lögum ann- ara er hið besta mál ef tónlist- armaðurinn bætir einhverju við frá eigin brjósti, gefur eitthvað af sjálf- um sér í lagið, túlkar það á sinn hátt. Ef þetta er ekki fyrir hendi verður útkoman aldrei annað en karaoke-plata sem í besta falli getur talist boðleg dinnertónlist. Því mið- ur er svolítill karaoke-þefur af nokkrum laganna á þessari plötu. „Alamaz“ eftir Randy Crawford er t.d. hér í nán- ast óbreyttri mynd, sem og „Ástarsorg“ Jó- hanns Helgason- ar, sem er frábærlega flutt en í mjög hefðbundnum búningi. Svo eru það þessar R&B-skotnu útsetn- ingar á t.d. Yazoo-laginu „Only you“, sem „The Flying Pickets“ gerðu ódauðlegt, og Air-laginu „All I Need“ sem eru ekki alveg að gera sig, lögin hljóma ágætlega í byrjun en verða frekar leiðigjörn þegar á líður. Sönghæfileikar Regínu eru óum- deilanlegir, hún er sannarlega glæsileg söngkona hvernig sem á það er litið. Það sem hana hins veg- ar skortir áþreifanlega er meiri kar- akter. Söngur hennar er nánast full- kominn en þrátt fyrir það gæti þetta verið nánast hver sem er. Þetta á þó ekki við í lögunum „I saw you“, „Mother“ og „Ástarsorg“ þar sem glittir í áðurnefndan karakter, sem vonandi á eftir að koma meira fram síðar. Tvö af fyrrnefndum lög- um eru reyndar, ásamt „The sun- light of my eyes“, frumsömdu (þ.e. ekki tökulög) lögin á plötunni, og eru það lögin sem skilja mest eftir sig, og reyndar er lagið „Mother“ án nokkurs vafa besta lag plöt- unnar. Regína ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með laginu „Ástarsorg“, því sennilega er eðl- isfræðilega útilokað að syngja það betur en Ragnhildur Gísladóttur gerði á sínum tíma, en Regína skilar því með sönnum glæsibrag. Það há- ir því hins vegar hve svipuð útsetn- ingin er þeirri upprunalegu svo að samanburður er óhjákvæmilegur og getur aldrei orðið hagstæður því enginn fer í skó yfirgrýlunnar. Í heild er þetta hin ágætasta plata, hugljúf og einlæg. Þetta eru óskalögin hennar Regínu framreidd af natni og virðingu. Óskalög Regínu TÓNLIST Geisladiskur Söngkonan Regína Ósk hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu. Með Regínu leika þeir Jón Ólafsson (píanó/orgel), Róbert Þórhallsson (bassi), Guðmundur Pét- ursson (gítar), Jóhann Hjörleifsson (trommur/slagverk) og Sigurður Flosa- son (þverflauta). Einnig koma fyrir margir fleiri, s.s. Ragnheiður Gröndal (píanó), Samúel J. Samúelsson (trompet), Strengjasveit Íslands og fleiri. Útsetn- ingar voru í höndum Jóns Ólafssonar, Regínu og hljómsveitar og upptökustjóri var Jón Ólafsson. Útgefandi: Sena. Regína Ósk – Regína Ósk  Grétar M. Hreggviðsson NÝVERIÐ lauk upptökum á nýjum bandarískum sjónvarpsþætti sem ber heitið Svartskeggur sjóræningi (Blackbeard the Pirate) sem áætlað er að sýndir verði þar vestra næsta sumar. Hugi nokkur Ingibjartsson hefur verið við tökur á þáttunum undanfarnar vikur og brugðið sér í hin ýmsu hlutverk auk þess að að- stoða við tökur. Það liggur beinast við að leita til Huga um nánari útskýringar á sjónvarpsþættinum. „Þetta er þáttaröð í fjórum þátt- um til sýninga í sjónvarpi. Sagan segir frá ævintýrum Svartskeggs sjóræningja, baráttu hans við yf- irvöld og Blástakka, sem voru eins- konar sjólögregla síns tíma. Inn í þennan söguþráð blandast svo spill- ing æðstu manna og rómantík, allt eins og það á að vera,“ segir Hugi en Svartskeggur þessi var frægur breskur sjóræningi sem hrelldi sjó- farendur í Karabíahafinu á 18. öld. „Tökur á þáttunum stóðu yfir í um þrá mánuði og lauk 8. október síðastliðinn. Það var byggður helj- arinnar bær fyrir utan borgina Sur- tatani sunnarlega hér á Taílandi. Auk þess voru byggð feikilega stór skip og aðrar sviðsmyndir sem áttu að færa okkur í Karabíahafið snemma á 18. öld,“ segir Hugi. Lít kvikmyndir öðrum augum Með helstu hlutverk í þáttunum fara meðal annars gamla brýnið Richard Chamberlain, Stacy Keach, Angus Mayfaden, Rachel Ward og fleiri. Huga bregður einnig fyrir á nokkrum stöðum í þáttunum en hann bregður sér meðal annars í hlutverk Blástakks í bardaga, líks manns á þilfari og hefðarmanns á dansleik svo fátt eitt sé nefnt. En hvernig skyldi hafa staðið á því að Hugi komst í þessa stöðu? „Ég rek gistiheimili á eyjunni Koh Samui rétt fyrir utan Taíland. Dag einn var ég að spila golf hér á eyjunni og kynntist þar þýskum manni sem sagði mér frá upptök- unum og því að það vantaði fólk í aukahlutverk. Ég hafði því sam- band við manninn sem sá um tök- urnar og hann gaf grænt ljós,“ seg- ir Hugi og bætir við að sér hafi fundist vinnan mjög spennandi. „Ég er orðinn margs fróðari um hvernig þessi vinna við kvikmynda- iðnaðinn virkar og ég horfi á bíó- myndir með allt öðrum augum nú.“ Sjónvarp | Íslendingur við tökur á bandarískum þætti í Taílandi Blástakkur, hefðarmaður og lík Frá tökustað í Taílandi. Hugi á sjóræningjaslóðum. Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.