Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
NÝVERIÐ luku Loftmyndir ehf.
hnitsettri loftmyndatöku af öllu Ís-
landi. Er þetta í fyrsta skipti sem
landið er kortlagt af ís-
lenskum aðilum. Áður
hafði danska herfor-
ingjaráðið ásamt
bandaríska hernum
kortlagt landið með
tækni og nákvæmni
þess tíma.
Allt frá stofnun
Loftmynda ehf. 1996
hefur fyrirtækið unnið
markvisst að því að
mynda og kortleggja
Ísland með það að
markmiði að búa þjóð-
inni fullkomnari korta-
grunn sem fullnægir ýtrustu kröfum
um nákvæmni. Á hverju ári hefur
arði af starfsemi fyrirtækisins verið
varið í að mynda og kortleggja
stærri hluta landsins og er nú svo
komið að um 10 þúsund ferkílómetr-
ar eru endurnýjaðir ár hvert.
Í tilefni framangreinds áfanga
gerðu Loftmyndir ehf. umhverfis-
ráðuneytinu tilboð um yfirtöku á öll-
um rekstri og skuldbindingum
Landmælinga Íslands (LMÍ). Til-
boðið gerir ráð fyrir þjónustusamn-
ingi til 5 ára sem hefur í för með sér
500 milljóna króna sparnað fyrir
skattgreiðendur. Strax á fyrsta ári
samningsins munu Loftmyndir ehf.
afhenda fullbúinn kortagrunn sem
stenst þær nákvæmniskröfur sem
gerðar eru til LMÍ. Jafnframt munu
eiginlegir notendur fá gögnin endur-
gjaldslaust til eigin nota en til sam-
anburðar kostar hvert notendaleyfi
fyrir gögn LMÍ 2,6 milljónir. Að
auki munu Loftmyndir ehf. leggja til
opið vefaðgengi fyrir
almenning þar sem
landsmönnum mun
gefast kostur á að skrá
upplýsingar um landa-
fræði, sögu og menn-
ingu. Slíkur vefur verð-
ur kærkomin nýjung
fyrir áhugafólk um ör-
nefni og skráningu
menningararfs þjóð-
arinnar.
Vænlegra er að op-
inberir aðilar skilgreini
sínar þarfir en feli
einkaaðilum að keppast
um að mæta þörfunum. Jafnframt
ætti að forðast með öllu að skil-
greina þarfir markaðarins með fyr-
irskipunum um opinbera staðla og
verklag þar sem markaðurinn sér
um slíkt sjálfvirkt.
Breytingar sem þessar munu
ávallt kalla á vörn þeirra sem hags-
muni hafa af óbreyttu kerfi. Fullyrð-
ingar um að þessi eða hinn mála-
flokkurinn sé svo mikilvægur og
þarfir hins opinbera svo sérstakar
að engin leið sé að fela einstaklings-
framtakinu framkvæmdina. Eini
raunverulegi munurinn felst þó í rík-
isforsjá í stað markaðslögmála.
Megináhersla Landmælinga Íslands
hefur legið í að blása út stofnunina
sem enn einn póstinn í opinberum
eftirlitsiðnaði, með staðlagerð, er-
lendum ferðalögum, ráðstefnusukki,
vottun o.s.frv. Í raun flest annað en
eiginlegar landupplýsingar.
Framtíðarverkefni
Nýverið skrifuðu Loftmyndir ehf.
og Skipulagsstofnun undir samning
sem kveður á um skönnun og skrán-
ingu útlína allra skipulagssvæða.
Samningur Fasteignamats ríkisins
við Loftmyndir ehf. kveður á um
hnitsetningu allra heimilisfanga og
fasteigna á Íslandi. Að auki er nú
unnið að staðsetningu allra lands-
númera auk jarða- og lóðamarka frá
sveitarfélögum og einstaklingum
sem verða fyrstu gögn í væntanlega
Landeignaskrá Íslands.
Árið 2000 þegar Landmælingar
Íslands hugðust ráðast í gerð Land-
eignaskrár útlistaði forstjóri stofn-
unarinnar mikilvægi landeignaskrár
á þann veg að um „tímamótaverk-
efni“ á sviði landmælinga og lands-
kráningar væri að ræða. Undir fyr-
irsögninni „Kjölfesta í starfseminni“
sagði að um væri að ræða „… grund-
vallaratriði fyrir starfsemi LMÍ“.
Undir fyrirsögninni: „Undirstaðan:
Stafræn kort“ sagði „… það sem
vantað hafi til þessa séu kort … sem
geti leitt til þess að ónákvæm gögn
fari í þinglýsingu. Mikilvægi þessa
verkefnis ætti að vera augljóst og
undirstaða þess að hægt sé að leysa
það eru stafræn kort …“ Vonandi
breytist ekki skoðun forstjórans þó
svo að hans eigin stofnun muni
hvergi koma nærri þessu verkefni í
framtíðinni.
Látum verkin tala
Vafalaust spyrja margir hvernig
getur einkafyrirtæki boðið jafn-
rausnarlega, hvað búi að baki og
mun fyrirtækið geta uppfyllt lof-
orðin? Einfaldur samanburður á um-
fangi og afrakstri Loftmynda og
LMÍ gefur ágæta mynd af stöðu
mála, allt er uppi á borðinu og ekk-
ert falið.
Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur
getið sér gott orð fyrir mestu lífs-
kjarabætur í íslenskri hagsögu. Sú
hagsæld hefur öðru fremur grund-
vallast á afli einkaframtaksins. Þarf-
ir hins opinbera felast í aðgengi að
bestu gögnum og þjónustu sem í
boði eru hverju sinni en ekki í fram-
kvæmd slíkra hluta. Ríkisforsjá í
landupplýsingum gagnast engum.
Einkarekstur
Landmælinga
Íslands
Arnar Sigurðsson fjallar um
loftmyndatökur af Íslandi og
einkarekstur þar að lútandi
’Flestir eru sammálaum að farsælast sé
að hið opinbera forðist
að stunda rekstur
sem einkaaðilar geti
séð um.‘
Arnar Sigurðsson
Höfundur er markaðsstjóri
Loftmynda ehf.
Á LAUGARDAGINN gefst Kópa-
vogsbúum færi á að velja forystu
Framsóknarflokksins sem er for-
ystuafl í bæjarmálunum í Kópavogi.
Ég sækist eftir því að
leiða listann og tyggja
þannig áframhaldandi
uppbygginu í bænum.
Örugg fjár-
málastjórn er
grunnurinn
Grunnur að vel-
gengni bæjarins er
ábyrg fjármálastjórn.
Með áframhaldandi
traustri stjórn á fjár-
málum bæjarins, vax-
andi tekjum og nið-
urgreiðslu skulda
skapast möguleikar til
frekari uppbyggingar
þjónustu á öllum svið-
um.
Gríðarleg uppbygg-
ing hefur átt sér stað í
aðstöðu fyrir ungt fólk
til þess að sinna sínum
áhugamálum. Öflugar
félagsmiðstöðvar eru
nú starfræktar í öllum
skólum. Íþróttasalir og
útivistarsvæði hafa
stækkað og þeim fjölg-
að. Ég sem foreldri tel
mikilvægt að tryggð verði aðstaða
fyrir börnin til að stunda holla og
góða hreyfingu. Ég mun áfram beita
mér fyrir því að ódýrt verði að stunda
íþróttir í Kópavogi.
Börnin eru framtíðin
Með auknu sjálfstæði skólanna hef-
ur það gefið þeim tækifæri til að sinna
miklu þróunarstarfi og setja sér skýr
markmið í anda skólastefnu Kópa-
vogsbæjar. Við eigum góða gunnskóla
með frábæru starfsfólki, það þarf að
styrkja og efla enn frekar. Skóla bæj-
arins, allt frá leikskóla upp grunn-
skólann, á að reka í góðri samvinnu
við foreldra og starfsfólk, þannig að
börnunum okkar líði
sem best í leik og starfi.
Ég vil taka upp systk-
inaafslátt fyrir foreldra
sem eiga börn bæði í
leikskóla og dægradvöl.
Samhjálp
Félagsleg samhjálp
miðar að því að tryggja
jöfn tækifæri ein-
staklinga og fjölskyldna
í lífsins leik. Fé-
lagsþjónustan í Kópa-
vogi á að mæta þeim
þörfum sem fyrir hendi
eru í samfélaginu hverju
sinni. Hún á að vera það
öryggisnet sem hægt er
að leita til þegar eitthvað
bjátar á í lífshlaupinu og
vera sú stoð og stytta
sem hægt er að treysta á
þegar allt annað bregst.
Áfram verður unnið að
bættum hag aldraðra
með enn frekari upp-
byggingu á hjúkr-
unarheimilum og byggð
verði félagsaðstaða á
Vatnsenda, sambærileg
við Gullsmára og Gjábakka.
Umhverfið í kringum okkur
Vakning hefur orðið í umhverfis-
og skipulagsmálum í Kópavogi á
þessu kjörtímabili. Íbúar bæjarins
eru orðnir virkir þátttakendur í
skipulags- og umhverfismálum og
vilja láta til sín taka á því sviði. Þetta á
að efla enn frekar með fleiri opnum
fundum um umhverfis- og skipulags-
mál. Kópavogur er miðja höfuðborg-
arsvæðisins, það sýnir ásókn fólks og
fyrirtækja í bæinn. Ég mun beita mér
fyrir því að áfram verði fjölbreytt og
nægjanlegt framboð á bygging-
arlóðum í Kópavogi og þjónustan frá
sveitarfélaginu fylgi þeirri uppbygg-
ingu.
Kópavogsbær þarf á öflugum
Framsóknarflokki að halda, það sýnir
saga undanfarinna ára. Með því að
teysta mér fyrir fyrsta sætinu á lista
flokksins getið þið tryggt að Kópa-
vogur verði áfram í fremstu röð.
Kópavogsbúar
hafa valið
Eftir Ómar Stefánsson
Ómar
Stefánsson
’Félagslegsamhjálp miðar
að því að
tryggja jöfn
tækifæri ein-
staklinga og
fjölskyldna í
lífsins leik.‘
Höfundur er bæjarfulltrúi og býður
sig fram í fyrsta sæti B-listans.
Prófkjör Kópavogur
& '
( )*+ )
, ( -'+
,(
. ($(
%
/ 0 (
. ( (
.0
1 %
2 %
31
/(
/(
/(
(
2
(
!"
2* %
4
4
1 (
(
11 (
#$
! %
56( 3 0
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
mbl.is
smáauglýsingar
ÞAÐ ER löngu kominn tími til að
hinir tónelsku Vestfirðingar fái nýjan
flygil í hið glæsilega menningarhús
sitt, tónlistarsalinn
Hamra á Ísafirði. Rúm
sex ár eru liðin síðan
Hamrar voru vígðir og
hefur salurinn frá
fyrsta degi hlotið mikið
lof fyrir einstaklega fal-
legan hljómburð. Bar-
okkperlur, háklassík,
nútímatónlist, djass,
popp, rokk, kórsöngur,
kammermúsík, nem-
endatónleikar, tónlist-
arnámskeið – allt
hljómar þetta listilega í
Hamrasalnum góða.
Listamenn sækjast því
eftir að koma vestur til
tónleikahalds og Ísfirð-
ingar eru iðnir að sækja
tónleika sem og aðra
menningarviðburði í
salnum. Gamli Bösen-
dorfer-flygillinn sem nú
stendur í Hömrum hefur dyggilega
þjónað hlutverki sínu sem tónleika-
flygill Ísfirðinga í rúm 40 ár, en nú er
hann farinn að láta verulega á sjá,
bæði hvað varðar útlit og hljóm. Ljóst
er að hann er ekki lengur fær um að
uppfylla þær gæðakröfur sem nú-
tímaáheyrendur og listamenn gera til
slíkra hljóðfæra.
Tónlistarlíf á Ísafirði hefur löngum
staðið með miklum blóma og í augum
landsmanna hefur tónlistin, ásamt
fiskinum, verið eitt aðalauðkenni bæj-
arfélagsins. Tónlistarfélag Ísafjarðar
hefur starfað óslitið frá stofnun þess
árið 1948 að eflingu tónlistarlífs á Ísa-
firði, fyrst og fremst með uppbygg-
ingu tónlistarmenntunar í bænum en
einnig og ekki síður með öflugu og
metnaðarfullu tónleika-
haldi. Á þeim rúmlega
fjórum áratugum sem
liðnir eru síðan Bösen-
dorfer-flygillinn var
vígður hafa allir helstu
píanóleikarar Íslands
auk fjölmargra erlendra
snillinga komið til Ísa-
fjarðar, sumir þeirra
margsinnis, og leikið á
þetta gamla og virðu-
lega hljóðfæri, sem einu
sinni var eitt hið besta í
landinu.
Fyrir nokkrum árum
stofnaði Tónlistarfélag
Ísafjarðar sérstakan
flygilsjóð og hafa sjóðn-
um síðan borist ýmsar
stórar peningagjafir
svo að nú mun vera í
honum talsvert á aðra
milljón króna. Verð á
Steinway-flygli í Hamra er á bilinu
6,5–8,5 milljónir króna eftir því
hversu stór flygill verður fyrir valinu,
en verð á flyglum hefur lækkað veru-
lega á síðustu misserum vegna hás
gengis íslensku krónunnar.
Nú hefur Sunnukórinn á Ísafirði
átt frumkvæði að sérstöku fjáröfl-
unarátaki fyrir flygilsjóðinn sem
hefst með styrktartónleikum í Ísa-
fjarðarkirkju nk. sunnudag, 13. nóv-
ember kl. 16.00. Tónleikarnir eru há-
punktur menningarhátíðarinnar
Veturnátta sem stendur yfir í Ísa-
fjarðarbæ og er dagskráin fjölbreytt
og glæsileg. Leitað hefur verið til fjöl-
margra aðila um tónlistar- og
skemmtiatriði á tónleikana og styrkt-
arlínur í efnisskrá og hefur hvarvetna
verið tekið afar ljúfmannlega í stuðn-
ing við þetta verðuga verkefni.
Nýr og vandaður flygill í Hömrum
verður án efa mikil lyftistöng fyrir
vestfirskt tónlistar- og menningarlíf.
Það verður gífurleg hvatning fyrir
vestfirska tónlistarmenn, vestfirska
tónlistarkennara og -nemendur, að fá
slíkt hljóðfæri til afnota og með til-
komu þess verður enn eftirsókn-
arverðara en áður fyrir íslenska og
erlenda listamenn að halda hér tón-
leika, tónlistarnámskeið og gera upp-
tökur. Á síðustu árum hefur verulega
aukist skilningur á hlutverki menn-
ingar í íslensku atvinnulífi og mik-
ilvægi skapandi atvinnugreina í hag-
kerfinu, Vestfirðingar eiga ýmis
vannýtt sóknarfæri í þessum geira at-
vinnulífsins og með auknum stuðn-
ingi við menningarlífið gæti Ísafjarð-
arbær hæglega skapað sér ákveðna
sérstöðu sem forystubær á þessu
sviði. Slíkt myndi bæta mjög ímynd
Vestfjarða og laða að skapandi ein-
staklinga og fjárfestingar af ýmsu
tagi. Listir og menning skapa oft auð
þar sem menn eiga þess síst von. Í
mínum huga leikur enginn vafi á því
að nýr og vandaður flygill mun ekki
aðeins hleypa nýju lífi í vestfirskt tón-
listarlíf heldur og hafa jákvæð áhrif á
allt atvinnu- og efnahagsumhverfi á
svæðinu.
Ég leyfi mér því að skora á alla
Vestfirðinga að mæta á styrktartón-
leikana í Ísafjarðarkirkju og styrkja
þar með málefni sem snertir hags-
muni allra íbúanna á svæðinu um leið
og þeir fá notið margs hins besta sem
vestfirskt menningarlíf hefur upp á
að bjóða. Þeir Vestfirðingar og aðrir
tónlistarunnendur, sem ekki komast
á sunnudaginn en vilja gjarnan leggja
eitthvað af mörkum, geta lagt pen-
inga inn á reikning flygilsjóðsins
0156-05-62251, kt. 650269-0209.
Tónlistarbæinn
vantar nýjan
tónleikaflygil
Sigríður Ragnarsdóttir fjallar
um tónlistarlíf á Ísafirði
’Listir ogmenning skapa
oft auð þar sem
menn eiga þess
síst von.‘
Sigríður Ragnarsdóttir
Höfundur er skólastjóri Tónlistar-
skóla Ísafjarðar.