Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 31
DAGLEGT LÍF
PRESTAR, FYNDNASTA
STÉTT LANDSINS
Efast þú? Lestu þá um Vigfús Þór,
Agnesi M. Sigurðardóttur, Sigurð
Ægisson og sjáðu hvernig Hjálmar
Jónsson baunar á Pálma Matt.
Keyrði Þór Hauksson á nunnu?
Hvað var með Cecil K.
Haraldsson?
Hver er mannsins versti limur?
Ómissandi bók öllum er vilja
komast til hárrar elli því hláturinn
lengir lífið.
KÓPAVOGSSKÁLDIÐ
Jón úr Vör var öreigaskáld
og brautryðjandi.
Magnús Bjarnfreðsson
hefur fært sögu skáldsins
í letur í þessari einstaklega
hreinskilnu og á köflum sáru
viðtalsbók.
Þorpsskáldið, áhrifamikil
bók um efasemdarskáld.
Frábær aldarspegill.
SÉRA BIRGIR
Séra Birgir Snæbjörnsson
lítur til baka á langa ævi
og rifjar upp farinn veg.
Hann er sögumaður fram
í fingurgóma og einstaklega
næmur á spaugilegar hliðar
tilverunnar.
Því ekki að brosa, er einstök
bók, sveipuð hlýju,
glaðværð og
mannkærleika.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Fróðlegar og skemmtilegar – og alltaf svolítið meira
ÖRLAGARÍKUSTU ORUSTUR
SÖGUNNAR
Konungurinn sem flengdi hafið.
Orustan sem breytti Islam í
heimstrúarbrögð.
Þórhallur Heimisson fer á kostum
og gæðir söguna lífi eins og
honum er einum lagið.
Blóðbaðið í Jerúsalem.
Stalíngrad, leyniskytturnar dýrkaðar sem
knattspyrnuhetjur.
Hvað gerðist á ströndinni í Normandí?
Bók mannlegra hamfara.
„STÓRKOSTLEGUR STÍLL,
FRÁBÆR BÓK“
– Björn Eiríksson í Skjaldborg
,,Einu skiptin sem gat slitið mig frá lestrinum,
var þegar ég var kominn með svo mikinn
hláturkrampa að ég varð að standa upp."
– Magnús Kjartansson
,,Stórkostlegur stíll, frábær bók. Ekki var
hægt að finna betri mann en Kristján
Hreinsson til að skrifa bók um Pétur
Kristjáns."
– Björn Eiríksson í Skjaldborg
,,Fyndnasta bók aldarinnar."
– Lárus Jóhannesson í 12 tónum
Örfáar dulur hanga enn á sérmerktumherðatrjám á sérmerktum fataslám íverslun H&M við Kungsgatan í Gauta-borg kl. 14 fimmtudaginn 10. nóvember.
Frekar flottir toppar bara eftir í large, nokkrir
jakkar, buxur og bikini. En þarna hangir einn kjóll
í mínu númeri og hann er að sjálfsögðu mátaður,
þetta er nú einu sinni eftir hana Stellu McCartney.
Sænski fatarisinn Hennes & Mauritz á nú í ann-
að skipti samstarf við hátískufatahönnuð en í fyrra
var það Karl Lagerfeld sem hannaði föt fyrir
fjöldaframleiðslu á vegum H&M. Í ár er það Stella
McCartney sem gerir hið sama og línan inniheldur
allt frá sundfötum til yfirhafna þótt lítið hafi verið
eftir til að þreifa á fyrst maður mætti ekki við opn-
un fyrsta söludaginn.
Línan er til sölu í 400 völdum verslunum H&M í
22 löndum í Evrópu og N-Ameríku. Hluti af línunni
verður til sölu á vef H&M, www.hm.com, frá og
með miðnætti aðfaranætur 14. nóvember. Í sænsk-
um fjölmiðlum var greint frá örtröð í verslun H&M
við Hamngatan í Stokkhólmi þar sem nokkur
hundruð söfnuðust saman fyrir utan verslunina áð-
ur en hún var opnuð. Nú hefur komið í ljós að nú
þegar eru föt úr línunni komin í sölu á eBay-
uppboðsvefnum og talið að einhverjir hafi keypt
sem mest þeir máttu í H&M til þess að hagnast á
netsölu.
Það kom í ljós í mátunarklefanum að kjóllinn var
eins og náttsloppur úr satíni og þar að auki með
járnhlunkum hangandi í keðjum niður af erm-
unum. Fjárfesti í járnarmbandi í staðinn.
Satínkjóll-
inn hennar
Stellu
mátaður
TÍSKA
Ljósmynd/Andreas Larsson fyrir H&M
Það er ekki bara flótta-legt augnaráð semkemur upp um lygara.
Bandarískir vísindamenn hafa
komist að því að maginn getur
verið ágætis lygamælir. Þetta
kemur m.a. fram í Svenska
Dagbladet.
Hefðbundinn lygamælir
mælir breytingar á púlsi og
svitamyndun en er ekki alltaf
áreiðanlegur þar sem mann-
eskja sem segir sannleikann
getur samt sem áður verið
stressuð.
Niðurstöður rannsókna við
Texasháskóla benda nú til
þess að breytingar í maganum
gefa áreiðanlegri niðurstöður
við lygamælingar en fyrri
mælingar. Þátttakendur í
rannsókninni voru látnir
gangast undir hjartalínurit
annars vegar og hins vegar
svokallað EGG, þ.e. raf-
eindamælingu á starfsemi í
maganum. Í ljós kom að hið
síðarnefnda gaf áreiðanlegri
niðurstöður.
Rannsóknin tók þó aðeins
til sextán sjálfboðaliða og mun
stærri rannsóknar þörf til að
fá marktækar niðurstöður.
Maginn
kemur
upp um
lygara
RANNSÓKN
Þið ráðið hvort þið trúið því eða ekki ensamkvæmt frétt www.forskning.no þásyngja ástfangnar karlkyns mýs ást-
arsöngva. Þær syngja að vísu á hátíðni sem
mannlegt eyra getur ekki numið en nýjustu
rannsóknir hafa leitt í ljós að þær syngja. Með
sérstökum búnaði hefur vísindamönnum tekist
að breyta hátíðnihljóðum músanna þannig að
heyra má laglínu. Haft er eftir Timothy Holy
hjá Washington School of Medicine í St. Louis
að söngurinn hafi komið honum verulega á
óvart í fyrsta sinn sem hann heyrði hann.
Söngurinn líkist einna helst fuglasöng en mýs
eru reyndar ekki eins músíkalskar og fuglar.
Rannsóknin leiddi í ljós að karlmúsin kallar
til kvenmúsarinnar þegar hún er ástfangin og
endurtekur sömu tónana í sífellu.
Næsta skref er að rannsaka hvort mýs í
náttúrunni syngja og þá hvort það séu sömu
tónar og mýs á tilraunastofum gefa frá sér.
Þá væri gaman að vita hvort sönghæfileik-
arnir séu meðfæddir eða hvort mýsnar læri af
eldri músum. Sé svo eru mýs komnar í hóp
með fuglum, hvölum og mönnum hvað söng
varðar.
Ástfangnar
mýs syngja
NÁTTÚRAN