Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Ítarlegri leit | Panta auglýsingu | Vinsælustu leitirnar | Spurt og svarað
Ný íslensk leitarvél
Á mbl.is hefur verið opnaður nýr íslenskur leitarvefur sem markar tímamót í sögu gagnasöfnunar á Íslandi. Vefurinn, sem ber
nafnið Embla, er umfangsmesta íslenska leitarvélin og jafnast í leitargetu á við það sem best þekkist hjá erlendum leitarvélum.
Embla kann skil á beygingum íslenskra orða. Sé slegið inn orðið „hestur“ skilar hún einnig niðurstöðum úr texta sem inniheldur
beygingarmyndirnar „hest“, „hesti“ og „hests“. Embla leiðréttir einnig innsláttarvillur í íslenskum orðum sem slegin eru inn
þegar leit er framkvæmd og býður upp á ítarlegri leit til að ná fram enn betri niðurstöðum.
Emblaðu á nýju íslensku leitarvélinni á mbl.is.
H
ví
ta
h
ús
ið
S
ÍA
/
45
52
ÞEGAR kínverska karlalandsliðið í
skák hafði teflt 6 viðureignir í heims-
meistarakeppni landsliða í skák, sem
lauk nýverið í Beer-Sheva í Ísrael,
hafði liðið 19½ vinning á meðan helstu
keppinautar þeirra um gullið, lið
Rússlands hafði 15½ vinning. Bæði lið
áttu eingöngu eftir að taka þátt í
tveim viðureignum í mótinu þegar
hér var komið við sögu og því aðeins
átta vinningar í pottinum. Í næstsíð-
ustu viðureigninni lögðu Rússar
kvennalið Kína 3-1 en kínverski karl-
peningurinn tapaði fyrir Armenum
2½-1½. Þessi fyrsti ósigur Kínverj-
anna á mótinu leiddi til þess að þeir
höfðu tveggja og hálfs vinnings for-
skot á lið Rússa fyrir lokaumferðina
en liðin mættust þá í úrslitaviðureign
þar sem Kínverjum dugði einn vinn-
ingur til að tryggja sér heimsmeist-
aratitilinn. Meðalaldur kínverska liðs-
ins í lokaumferðinni var 23 ár á meðan
Rússarnir höfðu á að skipa marg-
reyndum ofurstórmeisturum. Á
fyrsta borði gerði Xiangzhi Bu (2637)
stutt jafntefli með hvítu gegn Peter
Svidler (2740) en á öðru og fjórða
borði tefldu Pengxiang Zhang (2613)
og Zhang Zhong (2608) illa með
svörtu gegn Alexander Grischuk
(2720) og Evgeny Bareev (2675).
Rússarnir nýttu sér þetta til fullnustu
sem gerði að verkum að þeir voru
komnir með tveggja vinninga forskot
í viðureigninni. Þeir þurftu hinsvegar
á einum sigri í viðbót að halda til að
tryggja sér titilinn og má segja að úr-
slit mótsins hafi ráðist í viðureign
Hua Ni (2603) og Alexander Moroze-
vich (2707).
Hvítt: Hua Ni (2603)
Svart: Alexander Morozevich
(2707)
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. c3 Rf6 4. e5
Rd5 5. d4 cxd4 6. cxd4 d6 7. Bc4 Rb6
8. Bb5 Bd7 9. exd6 e6 10. O-O Bxd6
11. Rc3 Re7 12. Bd3 Bc6 13. De2
Rbd5 14. Hd1 O-O 15. Re5 Bxe5 16.
Dxe5 Db6 17. Dh5 Rg6 18. Bxg6
hxg6 19. Dh4
Hvítur hefur ekki teflt í anda byrj-
unarinnar heldur stefnt að því leynt
og ljóst að einfalda taflið eins mikið og
hann mögulega gat. Slíkt er sjaldan
farsælt ef nauðsynlegt er að gera
jafntefli því að eins og Kasparov benti
á fyrir tveim áratugum er ákjósanleg-
ast að tefla hvasst til sigurs þegar
maður þarf á jafntefli að halda.
19... Rxc3 20. bxc3 Db5!
Svartur stendur betur þar sem
hann hefur góð tök á löngu skálínunni
a8-h1 og hann hefur mun betri mögu-
leika til að bæta stöðu sína en hvítur.
21. He1 Hac8 22. Dg3 Hfd8 23. h4
Df5 24. Bf4 f6 25. a4 Bd5 26. Bd6
Bxg2 27. Be7 Hd7 28. Bxf6 Bd5 29.
Be5 Hf7 30. He3 a5 31. Hc1?
Nauðsynlegt var að leika 31. f4 til
að drottning hvíts tæki virkari þátt í
vörninni.
31...Hc4!
32. f4
Hvítur varð að láta af hendi peðið
þar sem eftir 32. Ha1 Hxa4! yrði hann
mát eftir 33. Hxa4 Db1+.
32... Hxa4 33. Dg5 b5 34. Dxf5
gxf5 35. Kf2 Ha2+ 36. He2 Ha3 37.
Hb2 Hb3 38. Hxb3 Bxb3
Hvítum hefur tekist að létta á stöð-
unni og óvíst er að taflið sé tapað með
bestu taflmennsku.
39. Ke3 Hd7 40. Ha1 a4 41. Kd2
Ha7 42. Bd6 Ha6 43. Ba3 Kf7 44. Ke3
Ha8 45. Kf2 Hh8 46. Hh1 Bd5 47.
Hh3 Be4 48. Ke3 Hh6 49. h5 Ke8 50.
Hg3 Hxh5 51. d5 g5!
Snjall leikur sem kemur peðastöð-
unni á hreyfingu á kóngsvæng.
52. dxe6 g4 53. Kd4 Hh3
54. Hg1?
Tapleikurinn þar sem nú kemst
g-peð svarts á g2. 54. He3 var eini
leikurinn og er þá óvíst að svartur
geti unnið taflið.
54...g3 55. Ke5 g2 56. Hd1 Hh1 57.
Hd7 g1=D 58. Bd6 Bc6 og hvítur
gafst upp og um leið urðu Rússar
heimsmeistarar landsliða í skák.
Það vakti athygli að keppnin skyldi
snúast upp í einvígi Rússa og Kín-
verja um gullið þar sem Ólympíu-
meistarar Úkraínu höfðu yfir að ráða
firnasterku liði. Þeir enduðu hinsveg-
ar í fjórða sæti en Armenía nældi sér í
bronsið. Lokastaða varð þessi:
1. Rússland 22 vinningar af 32
mögulegum.
2. Karlalið Kína 21½ v.
3. Armenía 18½ v.
4. Úkraína 17½ v.
5. Bandaríkin 16½ v.
6. Ísrael 14½ v.
7. Georgía 13½ v.
8. Kúba 13 v.
9. Kvennalið Kína 7 v.
Í hnotskurn má segja að þessi
keppni hafi heppnast vel og skákir
mótsins hafi verið áhugaverðar og
spennandi. Það verður fróðlegt að
fylgjast með kínverskum skákmönn-
um í framtíðinni og ekki ólíklegt að
einhver þeirra komist í allra fremstu
röð. Nánari upplýsingar um HM
landsliða er að finna á heimasíðu
mótshaldara, sbr. http://www.wcc-
israel.com.
Mót fyrir grunnskóla-
nemendur í Grafarvogi
Skákdeild Fjölnis heldur veglegt
skákmót fyrir alla grunnskólanem-
endur í dag, laugardaginn 12. nóvem-
ber. Teflt verður á Torginu, verslun-
ar- og þjónustumiðstöð í Hverafold og
hefst mótið kl. 11. Um fimm umferða
mót verður að ræða þar sem hver
keppandi fær sjö mínútna umhugsun-
artíma. Engin þátttökugjöld eru fyrir
keppendur en verslunareigendur við
Torgið í Grafarvogi eru velunnarar
skáklistarinnar og veita vinninga til
mótsins. Alþingismaðurinn og for-
maður Fjölnis, Guðlaugur Þór Þórð-
arson, verður gestur mótsins og leik-
ur fyrsta leik þess.
Unglingameistaramót Hellis
Mánudaginn 14. nóvember nk. kl.
16.30. hefst Unglingameistaramót
Hellis í húsakynnum félagsins, Álfa-
bakka 14a. Tefldar verða sjö umferðir
eftir Monrad-kerfi og lýkur keppn-
inni þriðjudaginn 15. nóvember. Mót-
ið er opið öllum 15 ára og yngri en
þátttaka er ókeypis fyrir félagsmenn
Hellis en aðrir þurfa að greiða hóflegt
þátttökugjald. Verðlaunagripir verða
veittir fyrir þrjú efstu sætin og bóka-
verðlaun fyrir þau fimm efstu. Fyrir
utan þetta verða einnig aukavinning-
ar dregnir út.
Rússneski
björninn
er seigur
SKÁK
Beer-Sheva í Ísrael
HM LANDSLIÐA
31. október–11. nóvember 2005
Sergey Dolmatov, liðsstjóri Rússa, fagnar sigri á HM með liði sínu.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is