Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 29
MENNING
„DEAR Hunter – Hjartans veiðimaður“ er
yfirskrift sýningar sem Kolbrá Bragadóttir
opnar í sýningarsal Gallerís Foldar í dag.
Um er að ræða fyrstu einkasýningu Kol-
brár en hún samanstendur af sex mál-
verkum úr bátalakki, silfurþráðum og perl-
um þar sem listakonan mátar sig í hlutverk
stjarna eins og þær birtast m.a. í kvik-
myndum og á ljósmyndum. Í sýningunni
hugleiðir listakonan hvernig tilfinningar á
borð við ást og ástarsorg eru mótaðar af
birtingarmyndum ástarinnar í menning-
unni allt í kringum okkur, en titill sýning-
arinnar er útúrsnúningur af titli kvik-
myndarinnar The Deer Hunter. „Upplifun
okkar af ástinni mótast af því sem við
sjáum í bíómyndum og hvernig við setjum
sjálf okkur í þessi hlutverk. Þessar tilfinn-
ing eru ekki endilega ósannar en það getur
verið nauðsynlegt að endurskoða þær,“
segir Kolbrá en í verkunum setur hún sig í
stellingar stjarna og frægs fólks sem á það
sameiginlegt að hafa haft áhrif á hana.
Þetta eru þau Humphrey Bogart, Clark
Gable, Mae West, Judy Garland, móðir Ter-
esa og Anais Nin. „Allar þessar stjörnur
eiga sér setningar um ástina sem ég nota á
sýningunni. Ég hef m.a. unnið sönglag með
Fyrsta einkasýning Kolbrár Bragadóttur
Morgunblaðið/Ásdís
Kolbrá kannar menningarlega mótun ástar-
innar í sýningu sinni „Dear Hunter – Hjartans
veiðimaður“ í Galleríi Fold.
Í spor stjarnanna
texta sem er blanda af inntaki setning-
anna og því sem ég hef fram að færa á
móti. Ég flyt lagið síðan í gjörningi þar
sem ég er nokkurs konar samblanda af
stjörnu og sjálfri mér.“ Gjörninginn mun
Kolbrá m.a. flytja við opnun sýning-
arinnar í dag.
Kolbrá Bragadóttir stundaði nám við
Listaháskóla Íslands frá 1999–2003 og í
kynjafræði við Háskóla Íslands árið 2001.
Kolbrá hefur tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum en meðal þeira má nefna
Grasrótarsýningu Nýlistasafnsins og
Formósus á Sólon Íslandus árið 2004. Nú
í ár hefur Kolbrá m.a. tekið þátt í sýning-
unum Afstaða í Klink og Bank, TilliT í
Gallerí + á Akureyri, Gullkistunni á
Laugarvatni og í Hafnarfirði með KLF
Group. Sýningin Dear Hunter – Hjartans
veiðimaður verður sem fyrr segir opnuð
kl. 15 í dag og stendur til 27. nóvember
næstkomandi.
VAR Tsjekhov fyrsta stórskáldið til að
gera landsbyggðavandann að sínu
helsta yrkisefni? Allavega er hann
áreiðanlega mikilvægasta leikskáldið
sem hefur lífsleiða og örvæntingu út-
kjálkafólks sem lykilatriði í öllum sín-
um verkum. Hreinræktaðast er þetta
samt í Kirsuberjagarðinum, þar sem
allt hverfist um augljósa möguleika á
að snúa vörn í sókn í niðurníðslunni –
möguleika sem enginn megnar að nýta.
Það er því frábær hugmynd hjá
Sigrúnu Sól og Leikfélagi Kópavogs
að færa atburði og persónur Kirsu-
berjagarðsins inn í íslenskan nútíma.
Kirsuberjagarðurinn er orðinn að
skógræktarlundi uppi í hlíð fyrir ofan
villu kvótakóngsins sem flúði með lífs-
björg þorpsins. Og þegar hann snýr
aftur skuldum vafinn er kominn nýr
kappi, sem hefur eflst upp úr engu
með tvær trillur, vídeóleigu, essó-
sjoppu og annað smálegt.
Stóra gamanið í sýningunni felst í
að velta þessum hliðstæðum fyrir sér,
svo og að dást að kraftmiklum og ótta-
lausum leikhópnum sem kastar sér út
í iðukast spunaleiksins og heldur lang-
oftast haus. Hitt er verra að sýningin
skilur eftir þá tilfinningu að hafa ekki
verið fullunnin, að þessari snjöllu hug-
mynd hafi ekki verið gerð ýtrustu skil.
Það vantar að slíta sig betur frá frum-
verkinu og skoða ekki bara hliðstæð-
urnar heldur líka það sem á milli ber
og kasta burt þeim efnisþáttum frum-
verksins sem ekki nýtast við þessar
aðstæður. Og það vantar sterkara
handrit, spuninn verður of oft of
ómarkviss til að halda uppi spennu all-
an tímann.
En það eru auðvitað kostirnir sem
lifa í minningunni. Brynja Ægisdóttir
virðist mér til að mynda vera mikið
efni, og hún geislaði af sjálfsöryggi og
orku í hlutverki Dúnu. Sama má segja
um Sigstein Sigurbergsson sem eflist
við hverja raun þessi misserin. Arnar
Ingvarsson var hlægilegur sem skríp-
ið Símon. Þá verður að hrósa hinum
mjög svo hljómþýða trúbador Hilmari
Garðarssyni fyrir hans framlag, þótt
tónlistarnotkun þætti mér almennt
vera fremur tilviljanakennd og alla
jafna ekki þjóna sýninguni. Ég hefði
til að mynda heldur kosið að fá að sjá
Elínu Björgu Pétursdóttur og Fannar
Víði Haraldsson glíma við að trúlofast
ekki heldur en að hlusta á lokalagið
sem átti einungis bláþráðótt tengsl við
efnið þótt fallegt væri sem slíkt.
Útlistun vankanta sýningarinnar
má þó ekki skyggja á að þetta er hin
besta skemmtun. Það er mikið leik-
fjör, mikið grín og kraftur á sviðinu í
Hjáleigunni. Leikfélag Kópavogs hef-
ur gengið í gegnum hraða endurnýjun
á síðustu misserum en nýgræðingarn-
ir hafa greinilega tekið helstu kosti
þess inn með vatninu úr krönunum.
Metnaður og áræði einkenna þessa
sýningu og listræn alvara í bland við
ærslin.
Aldrei fór
ég suður
Þorgeir Tryggvason
LEIKLIST
Leikfélag Kópavogs
Spunaverk byggt á Kirsuberjagarðinum
eftir Anton Tsjekhov. Leikstjóri: Sigrún
Sól Ólafsdóttir. Hjáleigunni, Félagsheim-
ili Kópavogs, 5. nóvember.
Það grær áður en þú giftir þig