Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 72
Morgunblaðið/Brynjar Gauti HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær að ef það kæmi í ljós að Bandaríkjamenn vildu ekki sinna nauðsynlegum vörnum Íslands þá yrðu Íslendingar að endurmeta stöðu sína og grípa til annarra ráða. „Og það liggur alveg ljóst fyrir, í mínum huga, að ef samskiptin við Banda- ríkin veikjast með einhverjum hætti, þá verðum við að treysta enn betur okkar samband og sam- skipti við Evrópuríki,“ sagði hann. Halldór sagði að skýringin á því hversu hægt hefði miðað í varnarviðræðunum væri sá skoð- anamunur í öryggis- og varnarmálum sem væri á milli íslenskra stjórnvalda og áhrifamikilla afla í Bandaríkjunum. Hann kvaðst mjög ósáttur við hversu hægt þessum málum hefði miðað. „Við Ís- lendingar getum ekki verið sáttir við það, að þessi mál séu með þessum hætti mikið lengur. Og við verðum að gera þá kröfu til Bandaríkjamanna að þeir tali skýrar í þessu máli,“ sagði Halldór. Væru Bandaríkjamenn þeirrar skoðunar að hér þyrftu ekki að vera sýnilegar varnir og vildu ekki halda þeim uppi á Íslandi, þá yrðu þeir að segja það. „Við munum aldrei neyða þá til að vera hér, ef þeir vilja ekki vera hér. Við munum heldur ekki biðja þá um að vera hér, ef þeir vilja ekki vera hér,“ sagði hann. Halldór sagði að af þessum sökum væri mik- ilvægt að varnarmálin yrðu til lykta leidd sem allra fyrst, þó hann hefði raunar ekki trú á því að það tækist á næstu mánuðum. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundinum hvatti Halldór framsóknarmenn til dáða og sagði að þeir gætu verið stoltir af þeim verkum sem flokk- ur þeirra hefði unnið. Þeir yrðu að kynna verk sín betur og ekki vera of hógværir. | 6 Ef það kæmi á daginn að Bandaríkjamenn vildu ekki sinna nauðsynlegum vörnum Íslands þá yrðu Íslendingar að grípa til annarra ráða og endurmeta stöðu sína. Framsóknarmenn hefðu lagt áherslu á að styrkja sambandið við jafnt Bandaríkin og Evrópu. Ef samskiptin við Banda- ríkin myndu veikjast með einhverjum hætti, þá yrðu Íslendingar að treysta sambandið við Evr- ópuríki. Halldór Ásgrímsson er ósáttur við hversu hægt miðar í varnarviðræðunum Yrðum að treysta betur sambandið við Evrópu Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Halldór Ásgrímsson sagði nauðsynlegt að Bandaríkjamenn töluðu skýrar um varnir Íslands. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. GUÐRÚN Bjarney Bjarnadóttir hefur ver- ið virk á hliðarlínunni því mennirnir fjórir í lífi hennar eru sannkallaðir tuðrusparkarar. Viðar Halldórsson eiginmaður hennar lék með FH upp alla flokka og með ís- lenska landsliðinu. Synir þeirra Arnar Þór, Davíð Þór og Bjarni Þór eru allir komnir í atvinnumennsku. Guðrún hefur verið heimavinnandi og getað fylgt sonunum eftir í fótboltanum. Hún segist hafa gefið karlmönnunum sín- um kjarngóðan íslenskan mat og eigi grjónagrautur, íslensk kjötsúpa og fiskur upp á pallborðið hjá þeim. Hún segir þá alltaf hafa fengið lýsi og þeir fara vopn- aðir hákarlalýsi í atvinnumennskuna. | 30 Allir synirnir atvinnumenn í fótbolta TUNDURDUFL sem að líkindum var lagt af Þjóðverjum í seinni heimsstyrjöldinni kom upp úr djúpinu með veiðarfærum Þórunn- ar Sveinsdóttur VE þegar skipið var á togveiðum á Skrúðsgrunni út af Austfjörðum í gær. Hvellhettan var virk og þótti ekki annað fært en senda sprengjusérfræðinga með þyrlu austur. Viðar Sigurjónsson, skipstjóri á Þórunni, sagði í samtali við Morg- unblaðið að ekki hefði verið hætta á að allt tundurduflið spryngi í loft upp á dekkinu þar sem hvellhettan hefði losnað frá því og dottið úr. Við hvellhettuna hefði á hinn bóg- inn verið um eitt kíló af sprengiefni sem hefði hæglega getað grandað manni. Fluttir með þyrlu Varðskipið Týr var skammt frá skipinu þegar duflið kom upp og óskuðu skipverjar því eftir leið- beiningum þaðan. Tveir varðskips- menn komu um borð og eftir skoð- un þeirra var ákveðið að kalla til sprengjusérfræðingana. Á meðan þyrlan var á leiðinni sigldu skipin inn á Reyðarfjörð. Þar sigu sprengjusérfræðingar Landhelgis- gæslunnar um borð í Tý og þaðan voru þeir fluttir um borð í Þórunni. Hinu aldna tundurdufli var síðan grandað. Drógu þýskt tundurdufl LEIKSTJÓRINN kunni, Quentin Tarantino, er staddur hér á landi til að vera viðstaddur heimsfrumsýningu myndarinnar Hostel, sem hann framleiðir en Eli Roth leikstýrir. Tarantino, sem er hvað þekktastur fyrir að leikstýra myndunum Kill Bill, Pulp Fiction og Reservoir Dogs, sagði á blaðamannafundi á Hótel Nordica í gær að vinkona sín Heba Þórarinsdóttir, sem sá um förðun í Kill Bill, hefði hvatt hann til að koma hingað. „Mig hefur langað að koma hingað í 10 ár,“ sagði Taran- tino meðal annars á fundinum og bætti því að áhuginn á landinu hefði ekki minnkað þegar hann frétti að hér ynnu fegurðardrottningar á McDonald’s! Hostel verður frumsýnd í kvöld og fer þá fram lokahóf Októberbíó- fest, sem hefur staðið yfir undanfarna daga. | 65 Morgunblaðið/Kristinn „Mig hefur langað að koma hingað í 10 ár“ HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness felldi í gær úr gildi fjárnám sem Ríkisútvarpið hafði látið gera hjá manni sem ekki borgaði af- notagjöld á þriggja ára tímabili, frá 1999– 2001. Lykilatriði í málinu var að söluskýrsla um að maðurinn hefði keypt sjónvarp árið 1991 var hvorki undirrituð af kaupanda né seljanda. Maðurinn neitaði að hafa átt sjón- varp eða útvarp á fyrrnefndu tímabili og RÚV gat ekki rennt frekari stoðum undir þá fullyrðingu að svo hefði verið. RÚV fór fram á fjárnámið vegna ógreiddra afnotagjalda að fjárhæð tæplega 97.000 krónur en þegar vextir og kostnaður höfðu bæst við hafði hún hækkaði í 219.000. Krafist var fjárnáms vegna þeirrar upp- hæðar í júlí í sumar og féllst sýslumaðurinn í Keflavík á að fjárnám yrði gert hjá mann- inum. Þessu mótmælti maðurinn þar sem hann hefði ekki átt viðtæki og sagði að krafa RÚV væri því úr lausu lofti gripin. Hann lýsti í kjölfarið yfir eignaleysi og því tókst ekki að ljúka fjárnáminu. Maðurinn höfðaði síðan mál og krafðist þess að fjárnámið yrði fellt úr gildi. Hann krafðist auk þess miskabóta þar sem þetta hefði orðið til þess að hann lenti á vanskila- skrá hjá Lánstrausti en þeirri kröfu var vís- að frá dómi. Í niðurstöðu dómsins er bent á að þegar sýslumaður tók fjárnámsbeiðnina fyrir hefði maðurinn mótmælt því að hafa átt við- tæki. Þrátt fyrir það hefði RÚV ekki verið gert að leiða líkur að því að þær varnir ættu ekki við rök að styðjast. Þar sem dómurinn taldi að RÚV hefði ekki getað fært rök fyrir því að líklegra væri að maðurinn ætti viðtæki en ekki hefði RÚV ekki haft heimild til að krefjast fjár- náms. Það var því fellt úr gildi og RÚV gert að greiða manninum 120.000 í málskostnað. Fjárnám vegna afnota- gjalda RÚV fellt úr gildi ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.