Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Sverrir Stein-dórsson fæddist
á Sólbakka á Sel-
fossi 1. apríl 1938.
Hann andaðist í
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands aðfara-
nótt föstudagsins 4.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Stein-
dór Sigursteinsson
bifreiðarstjóri, d.
14. febrúar 1986, og
Guðbjörg Pálsdótt-
ir, húsfreyja. Systk-
ini Sverris eru: Páll Árnason á
Selfossi, Sigursteinn Steindórsson
á Hvolsvelli, Ingibjörg Jóna Stein-
dórsdóttir á Selfossi og Gísli
Steindórsson á Selfossi.
Sverrir kvæntist Báru Stein-
dórsdóttur frá Stokkseyri. Þau
eignuðust þrjú börn: Guðbjörgu
Dóru á Selfossi, Steindór á Sel-
fossi og Ríkharð á Selfossi.
Seinni kona
Sverris er Sigríður
Þóra Yngvadóttir
frá Kollabæ í Fljóts-
hlíð.
Barnabörnin er
átta, barnabarna-
börn þrjú.
Sverrir gekk í
barna- og unglinga-
skóla á Selfossi, og
síðar Iðnskólann.
Hann lauk ungur
prófi í rafvirkjun og
fékk meistararétt-
indi í iðn sinni og
starfaði við hana allar götur síð-
an. Hann stofnaði ásamt öðrum
fyrirtækið Rafgeisla hf. og rak
það um nokkurra ára skeið.
Frá því farið var að virkja við
Búrfell starfaði Sverrir við virkj-
anir.
Útför Sverris verður gerð frá
Selfosskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Elsku pabbi. Ég á þér svo margt
að þakka. Þú kenndir mér margt og
þú varst góður kennari. Þú varst
heilsteyptur og raunsær, ráðvandur
og maður orða þinna með sterka
réttlætiskennd. Kletturinn í tilver-
unni og fyrirmynd mín. Engum hef
ég kynnst sem var jafnskipulagður
og þú, alltaf allt í röð og reglu, allir
hlutir á sínum stað.
Það var margt sem þú hafðir gam-
an af. Þú fékkst margar skemmti-
legar dellur sem áttu hug þinn allan.
Mér tókst að smita þig af einni dellu
þegar ég var unglingur, frímerkja-
söfnun. Það var skemmtilegur tími
sem við áttum saman og í því eins og
öðru gerðir þú allt vel, sparaðir ekk-
ert til og valdir fallegar frímerkja-
bækur, lést teikna á fyrsta dags um-
slög og fleira svo safnið yrði sérstakt
og hefði stíl. Ljósmyndadellan var
líka skemmtileg, þú tókst endalaust
myndir, stilltir okkur mömmu upp
og við urðum að bíða þolinmóð eftir
að þú næðir réttu myndinni. Auðvit-
að höfðum við gaman af. En mestu
ánægjuna hafðirðu af trjáræktinni,
dugnaðurinn í ykkur Siggu við að
planta trjám við bústaðinn ykkar var
ótrúlegur. Ég man þegar ég kom
þarna fyrst, það var ekki ein hrísla í
landinu, en nú er þar stór skógur og
þú talaðir um að það þyrfti að fara að
grisja hann. Þú elskaðir allt sem við-
kom gróðri og sagðir mér það eitt
sinn að þú hefðir velt fyrir þér að
læra skógrækt þegar þú varst yngri.
Þú varst náttúrubarn.
Ég átti margar góðar stundir með
ykkur Siggu í bústaðnum. Þar var
oft mikið fjör, grillað, hlegið og sung-
ið. Ættarmótin í bústaðnum voru
frábær, ein af þessum skemmtilegu
hugmyndum sem þú áttir og gáfu líf-
inu gildi. Þarna sameinaðir þú alla
fjölskylduna eina helgi á sumri sem
ég veit að okkur þótti öllum vænt
um. Þarna lékum við okkur öll sam-
an og skemmtum okkur fram á
rauða nótt við ylinn frá varðeldinum,
söngvatninu og gítarspilinu og sung-
um. Við vorum líka hjá ykkur Siggu
mörg áramótin og alltaf veittuð þið
vel og þú varst hrókur alls fagnaðar,
pabbi, alltaf hress og gerðir grín og
dansaðir við barnabörnin.
Þú hjálpaðir mér oft og margar
voru vinnustundirnar sem þið Sigga
gáfuð okkur þegar ég var í garðyrkj-
unni og aldrei var slegið af. Þú
reyndist mér vel á erfiðum stundum.
Takk fyrir það, pabbi minn. Takk
fyrir allt.
Þú lifðir góðu lífi, pabbi, og komst
þér vel fyrir, hugsaðir fyrir öllu,
ferðaðist mikið bæði utanlands og
innan. Líf þitt var bara alltof stutt og
þú fékkst ekki að njóta elliáranna
sem þú hafðir þó hlakkað til og
skipulagt.
Dugnaður og handlagni var eitt af
því sem einkenndi þig og þú vannst í
garðinum heima nánast allt fram á
þann dag þegar þú lagðist inn á spít-
alann. Þaðan sem þú áttir aldrei aft-
urkvæmt, pabbi minn. Þau verða
þung og erfið sporin mín og okkar
allra í dag en þó lítil miðað við þá
þrautagöngu sem þú gekkst í lokin.
Já, þær eru margar minningarnar
sem ég geymi í hjarta mínu um þig,
ljúfar en þó sárar í senn. Mig langar
að skrifa svo miklu meira en þú varst
ekki mikið fyrir væmni, pabbi, þoldir
ekki væmnar bíómyndir, þær voru
alltof ,,amerískar“ fyrir þig. Ég vona
þó að þú fyrirgefir mér þessi skrif í
minningu þína.
Hvíldu í friði.
Þinn
Ríkharður.
Í dag verður til grafar borinn
elskulegur tengdafaðir minn, Sverr-
ir Steindórsson, sem lést eftir
stranga baráttu við þann illvíga sjúk-
dóm sem að lokum varð honum að
falli.
Það var gríðarlegt áfall þegar þú
greindist með krabbamein skömmu
eftir að þið Sigga komuð heim frá
Kanaríeyjum í febrúar. Þá höfðu
bakverkir hrjáð þig um nokkurt
skeið en engan óraði fyrir því sem í
vændum var. Heilsu þinni hrakaði
verulega á næstu vikum en ný von
kviknaði er þú fórst í skurðaðgerð og
geislameðferð í kjölfarið. Því miður
var ekki hægt að komast fyrir meinið
en allan tímann héldum við í vonina,
þó veik væri stundum. Þú barðist
hetjulega en allt kom fyrir ekki.
Minningarnar streyma um hug-
ann og erfitt er að halda aftur af tár-
unum. Minningar úr afmælum okkar
og barnanna, brúðkaupinu okkar,
skírninni á alnafna þínum sem þú
svo stoltur hélst undir skírn. Sam-
verustundirnar með ykkur í sum-
arbústaðnum ykkar í Brekkukoti en
þær eru margar, ættarmótin þar, öll
ferðalögin um landið sem þér þótti
svo vænt um, áramótaveislurnar í
Grundartjörninni og allar heimsókn-
irnar, þessar „hversdagslegu“ sem
skipta okkur svo miklu núna.
Úr Brekkukoti á fjölskyldan
margar góðar minningar. Ófáar eru
ferðirnar sem farnar voru í bústað-
inn til ykkar Siggu, oft gistum við
hjá ykkur og skemmtum okkur með
ykkur. Þá varst þú hrókur alls fagn-
aðar, kunnir margar sögur og sagðir
skemmtilega frá. Það var alltaf
rausnarlega tekið á móti okkur og
veitt vel jafnt í mat sem drykk. Fjöl-
skyldan var þér mikilvæg og ættar-
mótin þegar börnin þín, tengdabörn-
in og barnabörnin komu saman
höfðu fest sig í sessi. Þá voru leikir
fyrir börnin, gengið á fjallið eða út í
rétt, grillað, varðeldur, gítarspil og
söngur og allir skemmtu sér vel,
ungir sem aldnir. Þér var mikið í
mun að mótið skyldi haldið sl. sumar
þrátt fyrir að þú værir fárveikur og
ættir ekki heimangengt, þú komst
samt til okkar af vilja fremur en
mætti og borðaðir með okkur og
dvaldir fram eftir kvöldi.
Áhugmál ykkar Siggu, útivist og
ræktun hvers konar, sameinuðust í
bústaðnum og ber Brekkukot þess
vel merki. Aðdáunarvert er að sjá öll
trén og blómin sem þið hafið gróð-
ursett og hlúð að á þessum yndislega
griðastað ykkar. Þar fékk náttúru-
barnið í þér svo sannarlega að njóta
sín til fulls. Snyrtimennska var þér í
blóð borin og ber heimilið ykkar og
garðurinn í Grundartjörninni þess
glögglega merki jafnt og sumarbú-
staðurinn.
Síðustu árin hafið þið Sigga haldið
okkur áramótaboð á heimili ykkar
þar sem fjölskyldan öll kom saman,
skemmti sér og fagnaði nýju ári.
Áhugi þinn á landi og þjóð var
mikill og kom það best í ljós á ferða-
lögum ykkar Siggu um landið, en þið
höfðuð skoðað nánast hvern krók og
kima landsins. Þið nutuð svo sann-
arlega þessara ferða, gistuð ýmist í
sumarbústöðum, á hótelum, gisti-
húsum, í tjaldvagninum ykkar eða
jafnvel bara í litla kúlutjaldinu. Við
Steindór, Andrea og Bára vorum svo
lánsöm að fara með ykkur í sumar
þessara ferða og eru þær ógleyman-
legar. Þú hafðir einstaklega gaman
af því að fræða okkur um þá staði
sem við heimsóttum og oft fylgdu
sögur með. Á daginn var keyrt um
og skoðað en á kvöldin grillað, spjall-
að saman og farnar gönguferðir. Síð-
asta ferðin okkar saman sem farin
var í fyrrasumar stendur mér ofar-
lega í minni, ekki síst fyrir það að þá
var litli alnafni þinn með í för aðeins
tveggja mánaða gamall. Áttum við
hjónin ánægjulega daga með ykkur
og Báru okkar í Stykkishólmi í sann-
kölluðu Mallorca-veðri, 25 stiga hita
og sól.
En lífið getur verið ósanngjarnt,
tilhugsunin um að þú fáir ekki að
njóta elliáranna með Siggu þinni er
sár, en þú hlakkaðir svo sannarlega
til þeirra. Að þú fáir ekki að njóta
samvista við börnin þín og barna-
börnin sem þér þótti svo vænt um, að
Sverrir litli fái ekki að kynnast þér
þegar hann eldist og þú að sjá hann
vaxa úr grasi. En til stóð að þið
Sigga færuð að passa hann í mars
þegar ég fór aftur að vinna eftir fæð-
ingarorlofið.
Stórt skarð er höggvið í hópinn, en
minningarnar um þig, elsku Sverrir,
lifa um ókomin ár.
Elsku Sigga, þú ert algjör hetja,
það sýndi sig best í veikindum Sverr-
is hversu yndisleg manneskja þú ert,
hversu vel þú barst hag hans fyrir
brjósti og hversu vel þú hugsaðir um
hann í veikindunum, jafnt daga sem
nætur. Missir þinn er mikill, þið vor-
uð svo samstíga, svo miklir vinir og
félagar í öllu sem þið tókuð ykkur
fyrir hendur, svo sjálfum ykkur nóg.
En okkur áttu alltaf að og við stönd-
um saman sem áður. Ömmu Guð-
björgu sendi ég hlýjar kveðjur, það
er þér þungbært að horfa á eftir syni
þínum, en hann hefur örugglega ver-
ið kallaður til æðri starfa á öðrum
stað.
Elsku Steindór, Dóra, Rikki og
fjölskyldur, missir okkar allra er
mikill en minningin um elskulegan
föður, tengdaföður og afa mun lifa í
brjóstum okkar.
Guð veri með okkur öllum á þess-
um erfiðu stundum.
Elsku Sverrir, takk fyrir sam-
fylgdina og elskulegheitin í minn
garð og fjölskyldu minnar alla tíð.
Þín tengdadóttir
Hjördís.
Elsku afi. Þú varst alltaf svo góður
við mig. Það var svo gaman í öllum
ferðalögunum sem við fórum í saman
á sumrin. Og svo var alltaf svo gam-
an að koma upp í Brekkukot til þín
og ömmu Siggu og fara upp á fjall.
Þér fannst svo gaman að labba upp á
fjallið með mér og Andreu og sýna
okkur allar plönturnar. Svo fórum
við aftur niður og fórum í pottinn
með heitt kakó og kex. Síðan löbb-
uðum við svo oft í réttirnar með
sóda-stream.
Þegar ég fer að rifja þetta upp
man ég eftir einni heimsókninni til
ykkar. Það var mikil rigning en samt
logn og ekkert kalt. Við fórum út að
labba í rigningunni og fórum í polla-
stríð. Við amma vorum saman í liði
og þú varst einn á móti okkur báð-
um. Það var ofboðslega gaman.
Síðan eru það ættarmótin, það var
alltaf svo gaman á þeim. Alltaf eitt-
hvað að gera fyrir okkur börnin. Svo
var brenna um kvöldið, það var lang-
mesta stuðið.
Það verður frekar skrítið á næsta
ættarmóti að hafa engan ættarmóts-
kóng, og engan afa.
Það var líka alltaf svo gaman hjá
okkur þegar við fórum í boccia. Við
áttum svo margar góðar stundir
saman.
Mér finnst leiðinlegt að þú getir
ekki verið með okkur um áramótin,
því það voru alltaf svo skemmtileg
kvöld hjá ykkur ömmu. Ég á eftir að
sakna þín mikið á áramótunum.
Elsku afi, þú passaðir alltaf að
engum leiddist og að enginn væri út-
undan.
Það var líka alltaf svo gaman þeg-
ar þú komst heim frá útlöndum með
gjafir handa okkur Andreu.
Elsku afi, vonandi líður þér bara
sem best þarna uppi. Þetta var bara
best fyrir þig því þú varst orðinn svo
veikur.
Þó að þú sért farinn til himna áttu
ennþá stóran stað í hjarta mínu. Ég
á eftir að hugsa mikið til þín á ára-
mótunum og á ættarmótum. Mér
fannst alltaf svo gaman að kíkja í
heimsókn til ykkar ömmu með fjöl-
skyldunni minni. Þú varst frábær
maður. Ég á eftir að sakna þín mikið.
Þín
Bára.
Elsku afi, það er svo sárt að hugsa
til þess að þú sért bara farinn og
komir aldrei aftur. Ég veit að þér líð-
ur betur núna og ég reyni eins og ég
get að sætta mig við að við hittumst
aldrei aftur. Þú varst alltaf svo glað-
ur og varst alltaf að fíflast í okkur
krökkunum. Við fjölskyldan vorum
oft með ykkur ömmu í útilegum á
sumrin og svo var haldið ættarmót á
hverju sumri þar sem öll stórfjöl-
skyldan hittist yfir helgi uppi í sum-
arbústað. Þessi ættarmót eru mér
alltaf minnisstæð og sérstaklega það
sem var haldið sumarið áður en þú
veiktist. Við fórum alltaf reglulega
upp í bústað til ykkar og það brást
ekki að við Bára fórum í pottinn og
þið amma komuð með heitt kakó og
kex til okkar. Við löbbuðum oft í
réttina eða á fjallið með soda-stream
en þið áttuð alltaf alls konar soda-
stream sem maður fékk bara hjá
ykkur. Þú varst alltaf svo góður við
mig og gafst þér alltaf tíma til að
vera með okkur krökkunum.
Fyrir það verð ég ævinlega þakk-
lát. Sofðu rótt, elsku afi minn.
Þín
Andrea.
Elsku afi. Mikið eigum við syst-
urnar eftir að sakna þín. Okkur þyk-
ir svo vænt um þig. Þú varst svo æð-
islegur og fjörugur afi. Það var alltaf
svo gaman að vera hjá þér og ömmu
Siggu á áramótum, fara á áramóta-
brennuna með þér, syngja og dansa
við þig fram á nóttina. Þú varst alltaf
svo glaður og hress. Og á sumrin
hittist öll fjölskyldan á ættarmótum í
bústaðnum þínum. Það var nokkuð
sem við hlökkuðum alltaf svo mikið
til og eitt það skemmtilegasta sem
við gerðum á sumrin.
Okkur fannst gaman að teikna
handa þér myndir, þér fannst þær
alltaf svo fínar og hrósaðir okkur
fyrir þær. Það var líka notalegt að
spjalla við þig. Þú varst alltaf svo
áhugasamur um allt sem við sögðum
þér, þú hlustaðir alltaf á okkur. Þú
varst líka svo gjafmildur, elsku afi.
Þakka þér fyrir allar þínar samveru-
stundir með okkur. Við elskum þig
og minningin um þig mun alltaf
fylgja okkur.
Erna og Lena Björg.
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson.)
Elsku afi, við sungum þetta nú
stundum á litlu Brekkukotsættar-
mótunum í bústaðnum. Þú varst svo
duglegur að safna öllu fólkinu þínu
saman og hafa gaman. Allir
skemmtu sér vel, en það voru ekki
síst barnabörnin og barnabarna-
börnin sem skemmtu sér þar, þú
varst svo mikill barnakarl. Þú hafðir
svo gaman af því að gleðja alla og við
barnabörnin nutum góðs af því. Þeg-
ar við systur vorum litlar komu
stundum tveir jólapakkar til hvorrar
okkar. Þú keyptir líka alltaf eitthvað
sniðugt handa okkur á ferðalögunum
þínum í útlöndum. Einu sinni
komstu með spánarkjóla, þá vorum
við sko fínar.
Skógurinn í kringum bústaðinn
ykkar ömmu Siggu ber þess vitni
hversu mikill garðyrkjumaður þú
varst. Það var nú alltaf gaman að
koma í bústaðinn til ykkar og okkur
leið alltaf vel þar.
Þegar þú veiktist varstu farinn að
hlakka til að eyða tímanum þínum í
bústaðnum og í ferðalög enda hætt-
SVERRIR
STEINDÓRSSON
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta