Morgunblaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Selfoss | „Þetta er áramótaheit hjá mér frá
síðustu áramótum en þá hét ég sjálfum mér því
að halda sýningu á myndunum sem ég hef tek-
ið á Suðurlandi á síðustu 14 árum sem blaða-
maður hjá Dagskránni á Selfossi. Ég veit að
það er eins með mig og svo ótal marga að
myndirnar eru inni í tölvunni þar sem enginn
sér þær nema maður sjálfur og kannski kon-
an,“ segir Magnús Hlynur Hreiðarsson á Sel-
fossi. Afkastamikill fréttaritari og blaðamaður
landsbyggðarinnar.
Á sýningunni eru 25 myndir sem eru teknar
2004 og á þessu ári. Þær sýna mannlífsbrot af
Suðurlandi, náttúru og búfé þar sem sauðkind-
in er áberandi, að sögn Magnúsar.
Hann starfar sem verkefnisstjóri Grænna
skóga hjá Landbúnaðarstofnun Íslands á
Reykjum í Ölfusi en það eru 120 íslenskir
bændur sem stunda þar nám í skógrækt.
Blaðamennskan og fréttaskrifin eru frí-
stundavinna hjá Magnúsi enda má sjá hann á
fullri ferð síðdegis alla daga og á laugardögum.
Bíll hans er áberandi vegna bílnúmerisins sem
á stendur PABBI enda er hann mikill fjöl-
skyldumaður sem gefur fjölskyldunni sunnu-
dagana alfarið með því að slökkva á far-
símanum.
Er forvitinn að eðlisfari
Magnús Hlynur er fæddur Suðurnesjamaður,
frá Vogum á Vatnsleysuströnd og spilaði körfu-
bolta í Njarðvík. Hann er stúdent af fjölmiðla-
braut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, búfræð-
ingur frá Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri og garðyrkjufræðingur frá Garð-
yrkjuskóla ríkisins.
„Jú, jú, ég á frístundir, þá spila ég körfu-
bolta og svo syndi ég alltaf í hádeginu í sund-
lauginni í Hveragerði. Ég hef mikla ánægju af
fjölmiðlavinnunni sem helgast af því að ég hef
áhuga á öllu því sem ég er að fást við og svo er
ég forvitinn að eðlisfari. Það gefur manni ein-
hverja lífsfyllingu að geta tekið myndir og fest
góð augnablik á mynd,“ segir Magnús Hlynur
og tekur fram að það séu auðvitað ekki alltaf
skemmtileg atvik sem mæti honum sem frétta-
ritara. Hinar alvarlegri fréttir þar sem mikil
áföll hafa orðið grópast inn í hugann og festast
þar eins og hann segir.
„Og svo eru það augnablikin sem maður
missir af eins og þegar ég sá í baksýnispegli
bílsins allsberan mann hlaupa í kringum hring-
torgið við Ölfusárbrú en varð of seinn að
munda vélina. Ég legg mig fram um að vera
jákvæður í fréttaflutningi og finna frétta-
punkta sem eru á þeim nótunum. Eftir-
minnilegasta fréttin er kannski af hænunum á
Stokkseyri sem eru fóðraðar á pitsum. Mesti
heiðurinn var þó að komast í áramótaskaupið
sem mér fannst sýna að það væru einhverjir
sem fylgdust með fréttunum mínum. Þetta
byggist auðvitað allt á því að fréttastofa sjón-
varps er mjög jákvæð í garð landsbyggð-
arinnar og birtir fréttir þaðan. Svo er bara
mikið að gerast á Suðurlandi,“ segir Magnús.
Vil að menn láti vaða
„Mér finnst mest einkennandi að það er
mikill kraftur í Sunnlendingum en hér á svæð-
inu í kringum Selfoss finnst mér Flóa-
mennskan ráða of miklu. Ég vil að menn rífi
sig upp og láti vaða á hlutina. Við megum al-
veg vera öfgafyllri á stundum og setja kraft í
hlutina, það skaðar ekki og hleypir málum á
skrið ef það er gert,“ segir Magnús Hlynur
Hreiðarsson, verkefnisstjóri og blaðamaður, og
tekur fram að það sé gott að búa á Selfossi.
Fjöldi fólks var viðstaddur opnun sýning-
arinnar á fimmtudagskvöld þar sem hljómaði
kröftugur söngur Karlakórs Selfoss og Guðni
Ágústsson einn orðheppnasti ræðumaður
landsins flutti hnyttin og skarpleg orð til heið-
urs ljósmyndaranum og fréttamanninum af
Suðurlandi.
Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttaritari með ljósmyndasýningu í Nóatúni
Man alltaf augnablikin sem ekki náðust
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fréttaritari Magnús Hlynur Hreiðarsson heldur
hér á mynd af Dorrit forsetafrú í gróðurhúsi.
Eftir Sigurð Jónsson
SUÐURNES
Reykjanesbær | „Það er mjög gam-
an að syngja fyrir fólk,“ voru um-
mæli ungs nemanda í Akurskóla í
Reykjanesbæ sem hóf, ásamt öðr-
um nemendum skólans, vígsluat-
höfnina sl. miðvikudag. Kennsla
hefur þó verið í skólanum frá því í
haust og er kórsöngur meðal þess
sem nemendum gefst kostur á að
velja sér.
Í vígsluathöfninni kom fram að
bygging skóla í Innri-Njarðvíkur-
hverfi hefði lengi verið baráttumál
íbúa í hverfinu og því væri þetta
stór dagur. Skólabyggingin varð
ekki síður mikil lyftistöng fyrir
hverfið, því í kjölfarið hófst þar mik-
il uppbygging sem hefur dregið til
sín fjölda fólks.
Einkunnarorð skólans eru: „Börn
eru gleðigjafar, skapandi og fróð-
leiksfús“, en að sögn Jónínu Ágústs-
dóttur skólastjóra vill það oft
gleymast að börn eru í raun rann-
sakendur. „Það er hlutverk okkar
að búa til umgjörð sem gerir þeim
kleift að vinna sjálfstætt og vera
skapandi. Í Akurskóla leggjum við
áherslu á að læra í gegnum leikinn
og tengja viðfangsefnin við raun-
veruleika barnanna,“ sagði Jónína,
en starfsemi skólans er einstak-
lingsmiðuð.
Gestum vígsluathafnarinnar
gafst kostur á að kynnast nokkrum
rannsóknarefnum nemendanna,
m.a. úrlausn verkefnis í legókeppni
sem nú stendur yfir í grunnskólum
um allt land. Það er aldrei að vita
nema nemendur Akurskóla leysi
þrautina best af hendi, en úrslit
verða kunngjörð í dag, laugardag.
Akurskóli, grunnskóli í Innri-Njarðvík, formlega tekinn í notkun
Viljum gera börnunum
kleift að vera skapandi
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Legó Nemendur í Akurskóla vinna nú baki
brotnu við að leysa verkefni í Legókeppni
sem nú stendur yfir víða um land. Auk Ak-
urskóla taka Njarðvíkurskóli og Myllubakka-
skóli í Reykjanesbæ þátt.
Skólfan Ellen Hilda Sigurðardóttir afhenti á
vígsluathöfninni Jónínu Ágústsdóttur skóla-
stjóra skófluna sem hún tók fyrstu skóflu-
stungu Akurskóla með, ásamt Óðni Hrafni
Þrastarsyni 20. mars 2004. Henni verður
komið fyrir á góðum stað innan skólans.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Blásið verður til norrænnar
bókasafnaviku á Bókasafni Reykjanesbæjar
mánudaginn 14. nóvember kl. 18. Lesið verður
við kertaljós úr bók Selmu Lagerlöf, „Nilli
Hólmgeirsson og ævintýraför hans um Sví-
þjóð“, hlýtt á norræna söngva og fræðst um
heima víkinga í Reykjanesbæ.
Norræna bókasafnavikan er nú haldin í 10.
sinn en markmið hennar er að vekja athygli á
sameiginlegum arfi Norðurlandanna og þeirr-
ar fornu menningarhefðar að lesa við kertaljós
í baðstofum. Þemað í ár er „Á ferð í norðri“ og
verður því sjónunum beint að ferðalögum í
tíma og rúmi.
Dagskráin hefst með því að slökkt verður á
rafmagnsljósum, kertaljós tendruð og Fjóla
Oddgeirsdóttir, nemi í Njarðvíkurskóla, les
kaflann „Borgin á hafsbotni“. Sönghópurinn
„The Engels“ úr Njarðvíkurskóla mun flytja
nokkra norræna söngva og Árni Sigfússon
bæjarstjóri kynnir bæjarbúum hugmyndina að
Víkingaheimum á Fitjum.
Á ferð í norðri
Reykjanesbær | Bæjarsjóður Reykjanesbæjar
verður rekinn með hagnaði á móti tapi á síðasta
ári og hagnaður samstæðunnar verður tvöfalt
betri en á síðasta ári. Kemur þetta fram í til-
kynningu frá Reykjanesbæ um staðfesta endur-
skoðun á fjárhagsáætlun bæjarins.
Áætluð niðurstaða samstæðu er jákvæð um
tæplega 160 milljónir kr. en var í fyrri áætlun 71
milljón. Gert er ráð fyrir umskiptum í rekstr-
arniðurstöðu bæjarsjóðs úr rúmlega 30 milljóna
kr. halla í 10 milljóna kr. hagnað.
„Þetta er ánægjuleg niðurstaða, sérstaklega
með tilliti til þeirrar miklu uppbyggingar sem
nú á sér stað í bæjarfélaginu og kostnaðar sem
af henni hlýst, s.s. búnaðarkaupa vegna nýrra
og stærri grunn- og leikskóla, fjölgunar nem-
enda í grunnskólum, launahækkana vegna
kjarasamninga og hærri greiðslna vegna lífeyr-
isskuldbindinga,“ segir í tilkynningu bæjarins.
Meðal annars vegna mikillar fjölgunar íbúa
aukast tekjur umfram kostnað en útsvars-
prósentan er 12,7%, sem er undir meðaltali
sveitarfélaga.
Skatttekjur hækka um 179 milljónir kr. og
framlög Jöfnunarsjóðs um 50 milljónir kr. Útlit
er fyrir að fjármunatekjur verði einnig hærri en
áætlað var, þ.e. arður af eignarhlutum, verð-
bótatekjur og gengismunur.
Jákvæð niðurstaða
af rekstri bæjarins
Stokkseyri | Bókasafnið á
Stokkseyri fær á morgun,
sunnudag, afhent til varðveislu
og útlána ljósritaða útgáfa af
Syrpunni, ljóðum Stokkseyr-
inga sem Björgvin Jónsteins-
son frá Hausthúsum skráði á
árunum 1995 til 2003.
Syrpan er handskrifuð og
algjör dýrgripur, að því er
fram kemur í frétt frá Stokks-
eyringafélaginu á vefsíðu
Sveitarfélagsins Árborgar.
Bókin hefur verið í umsjá fé-
lagsins í nokkur ár. „Það er
samdóma álit allra sem séð
hafa þessa bók að hún eigi
heima á Stokkseyri og í fram-
haldi af því hefur verið gengið
í að ljósrita Syrpuna í tveimur
eintökum.“
Afhendingin fer fram á
Bókasafni Stokkseyrar klukk-
an 15 á morgun. Í tengslum
við athöfnina verður guðsþjón-
usta í Stokkseyrarkirkju,
klukkan 14.
Syrpan afhent
bókasafninu
Selfoss | Trévinnustofan átti
lægsta tilboð í undirbúning gervi-
grasvallar á Selfossi, lagnir, stoð-
veggi og fleira. Býðst fyrirtækið til
að vinna verkið fyrir 39,5 milljónir
kr. en kostnaðaráætlun hönnuða
hljóðaði upp á 50 milljónir.
Lægsta tilboðið er því liðlega 10
milljónum kr. undir áætlun. Tveir
aðrir verktakar buðu í verkið og
voru báðir yfir áætlun.
Lægsta tilboð
í undirbúning