Morgunblaðið - 12.11.2005, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
( Afgr.gjöld á flugvöllum. )
Höfum allar stærðir bíla, 5 - 7 manna
og minibus 9 manna og rútur
með/án bílstjóra
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum - frá 2ja manna og
uppí 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni. Pantið núna fyrir
árið 2006 og greiðið staðfestingar-
gjald eftir áramót.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Fylkir.is ferðaskrifstofa
sími 456-3745
Eina ferðaskrifstofan á Vestfjörðum
sem ekki nýtur styrkja frá
opinberum aðilum.
Bílaleigubílar.
Sumarhús í
DANMÖRKU
NETÞJÓNUSTAN Google er nú
komin inn á ferðaþjónustumark-
aðinn og hjálpar fólki að finna
ódýrustu flugmiðana meðal net-
ferðaskrifstofa eins og Expedia,
Travelocity og Priceline, að því er
m.a. kemur fram á vef Aftenposten.
Notandinn skrifar einfaldlega
nöfn tveggja borga í leitarreitinn á
www.google.com og fær ferða-
tilboð innan nokkurra sekúndna
efst á niðurstöðusíðunni. Í fyrstu er
þjónustan þó miðuð við Bandaríkin
og hugsanlega aðeins hægt að
borga með bandarísku greiðslu-
korti.
Google-ferðaskrifstofan
FÓLK í giftingarhugleiðingum sem
vill öðruvísi brúðkaup ætti e.t.v. að
láta gefa sig saman í kafi í Ocean Park
í Hong Kong. Brúðkaup í hafdjúp-
unum er meðal þess sem skemmti-
garðurinn ætlar að leggja áherslu á í
nýrri markaðssókn, að því er m.a.
kemur fram á vef Berlingske Tidende.
Ocean Park er skemmtigarður sem
hefur orðið undir í samkeppninni við
Disneyland í Hong Kong. Ríkis-
stjórnin hefur nú samþykkt að Ocean
Park verði alþjóðlegur skemmtigarð-
ur með áherslu á hafið og leyndar-
dóma þess og hyggst veita aukið fé til
þess. M.a. verða reist þrjú ný hótel og
áætlað er að markmiðinu verði náð
2010.
HONG KONG | Laðar þetta að fleiri ferðamenn?
Brúðkaup í bólakafi
ReutersTvær fyrirsætur sýna hvernig athöfnin fer fram í vatni. Hægt er að kaupa
brúðkaupspakka í skemmtigarðinum Ocean-park.
Fyrsta brúðkaupið verður haldið 12. febrúar á næsta ári.
Eftir athöfnina er síðan veisla á
glæsihóteli í garðinum.
Besti tíminn til að heimsækja París erá haustin og vorin,“ segir LaufeyHelgadóttir, leiðsögumaður í París.„Þá er veðrið gott og á haustin eru
Parísarbúar afslappaðir eftir sumarfrí.“ Hún
ætti að þekkja borgina vel þar sem hún hefur
búið í henni í meira en 30 ár. Laufey kom fyrst
til Frakklands um 1970 og heillaðist þá svo af
París að hún hefur búið þar síðan. Hún stund-
aði listasögunám og hefur frá árinu 1995 boðið
Íslendingum upp á einstaka fararstjórn í sam-
vinnu við Flugleiðir um borgina.
„Það er mjög gaman að fara með Íslendinga
um París, þeir eru opnir og fróðleiksfúsir,“
segir Laufey en hún hefur einnig reynslu af
öðrum hópum þar sem hún er leiðsögumaður á
Íslandi yfir sumartímann. „Í rauninni er ekki
hægt að bera þessi tvö störf saman, leiðsögn
um París og um Ísland. Parísarferðirnar eru
stuttar og menningarlegar en ferðirnar á Ís-
landi eru lengri og snúast meira um að njóta
náttúrunnar þótt þær séu vissulega líka menn-
ingarlegar.“ Það er ekki á hvers manns færi að
geta leitt fólk um París og Laufey er eini lög-
gilti íslenski leiðsögumaðurinn í borginni.
Ferlið að leiðsögumannsprófinu var langt og
strangt enda saga borgarinnar rík og spenn-
andi. „Það er hlutverk leiðsögumannsins að að-
stoða, upplýsa, skyggnast undir yfirborðið og
reyna þannig að opna augu ferðamannsins fyr-
ir nýjum stöðum eða jafnvel sýna honum áður
þekkta hluti í öðru ljósi. Staðir eins og „Place
des Voges“ í Mýrinni vekja ekki mikil viðbrögð
Íslendinga í fyrstu en þegar þeir heyra að
þetta sé konungstorg frá 17. öld þar sem sögu-
frægir listamenn, stjórnmálamenn og rithöf-
undar komu saman og að þarna hafi ýmsir
ánægjulegir svo og voveiflegir atburðir átt sér
stað horfir það öðruvísi við. Þannig er saga
Frakklands samofin borginni hvert sem litið
er og hún er meira spennandi fyrir vikið,“ seg-
ir Laufey.
Nýr og gamall stíll í bland
Skipulag Parísar er einnig áhugavert að
mati Laufeyjar. „Mér finnst París vera eins og
„millefeuille“-kakan. Hún er samsett úr mörg-
um lögum, öldum, stílum eða andstæðum, en
er samt í fullkomnu samræmi. Hún er eina
borgin í heiminum sem er samsett úr 20 ólík-
um hverfum, þar sem hvert hverfi er sjálfstæð
heild með eigin borgarstjóra. París er í raun
margar borgir í einni borg.
Ég er t.d. mjög hrifin af þessum gömlu
klassísku veitingahúsum eða „brasseríum“
eins og t.d. Julien og Flo í 10. hverfi, Bofinger
og Le Train Bleu í 11. hverfi eða La Coupole í
14. hverfi, þar sem maður finnur greinilega
þennan sérstaka Parísarklið, þar sem allt er á
fleygiferð og þjónarnir kunna sitt fag.
En ég er líka mjög hrifin af mörgum af nýju
hönnunarstöðunum sem eru sumir hverjir
hannaðir af fremstu hönnuðum heims eins og
t.d. Kong í 1. hverfi og Bon í 15. hverfi sem
Philip Starck hannaði eða Pershing Hall (einn-
ig hótel) eftir Andrée Putman.
Það eru þessar stórkostlegu andstæður sem
eru svo heillandi, hvort sem það er á milli
gamla og nýja tímans, austur- og vesturhluta
borgarinnar eða vinstri og hægri bakkans.
Sjálf hef ég alltaf verið mjög veik fyrir þeirri
París sem ég gæti kallað hina „svart-hvítu“,
þ.e.a.s. þeirri borg sem endurspeglast t.d. í
gegnum ljósmyndir Roberts Doisneaus og
Henris Cartier-Bressons, og í gegnum tónlist
Edith Piaf og Georges Brassins. Það er þessi
París sem var en lifir enn og verður að lifa í
sátt og samlyndi við þennan nýja tíma sem
birtist okkur m.a. í nýju byggingunum eins og
t.d. Centre Pompidou, L’Arche de la Défense,
La Bibliotheque Nationale, La Pyramide eða
öllum „design“ kaffi- og veitingahúsunum.“
Hvaðan kemur græna sósan?
Sérstaða Íslendinga er að þeir frétta fljótt af
áhugaverðum stöðum sem aðrir hafa heimsótt
og því er ekki óalgengt að Laufey fái sömu
spurningarnar og hún er farin að þekkja hvað
vekur áhuga Íslendinga.
„Ég var einhvern tímann spurð hvort ég
vissi hvaða veitingastaður byði upp á „grænu
sósuna“, en það er ein skítnasta spurningin
sem ég hef fengið. Ég komst svo síðar að því að
það er veitingastaður sem heitir „Le relais de
l’entrecôte“ þar sem allir gestirnir fá það sama
– nautakjöt með mjög góðri grænni sósu. Þetta
er dæmigerður staður fyrir franskar fjöl-
skyldur á sunnudögum. Svo er auðvitað mikið
spurt um vinsæla skemmtistaði, eins og Barrio
Latino í Bastilluhverfinu, Buddha bar sem er
nálægt Concorde-torgi eða Barfly,“ segir
Laufey.
Spurð um verðlag í París segir hún að til séu
dýrir staðir í París en úrvalið sé það mikið að
auðvelt sé að borða mjög góðan mat fyrir gott
verð. „Ég held að það sé óhætt að segja að í
París séu ódýrustu og bestu veitingastaðir í
heimi, maður verður bara að vita hvert á að
fara og hafa fyrir því.“
FRAKKLAND | Laufey Helgadóttir býr í París
Veit um bestu
og ódýrustu
veitingastaðina
Laufey er hrifin af gömlum klassískum veit-
ingahúsum eða „brasseríum“ þar sem boðið
er upp á góðan mat á sanngjörnu verði.
Morgunblaðið/Sara M. Kolka
Best er að komast leiðar sinnar með neðanjarðarlestunum eða öflugu strætisvagnakerfi Parísar.
Laufey Helgadóttir lifir og starfar í París og
hefur tekið á móti Íslendingum í fjölda ára.
Eftir Söru M. Kolka
sara@mbl.is
Góð leitarsíða fyir veitingastaði
www.lefooding.com