Morgunblaðið - 12.11.2005, Síða 35

Morgunblaðið - 12.11.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 35 UMRÆÐAN VONANDI er orðabelgur ekki al- veg fullur enn um kvennadaginn mikla fyrir 30 árum og nýafstaðna ítrekun á honum. Það er til dæmis ekki úr vegi að láta nýútkomna bók sem Hildur Hákonardóttir tók sam- an vekja upp nokkrar hugleiðingar um það, hvað þær konur sem fyrir þrem áratugum sögðu hátt og skýrt „Já, ég þori, get og vil“ helst vildu og hvað um það varð. En bókin ber ein- mitt nafn ágæts söngs sem á orðum þessum hófst. Eitt af því sem hefur mjög breyst í umræðunni á 30 árum er mat á því hvað talið er pólitískt verkefni í sam- félaginu og hvað er látið heita eins- konar óbreytanlegt náttúrulögmál. Fyrir 30 árum töldu þeir sem höfðu áhyggjur af misrétti og mismunun í samfélagi að kjaramunur væri póli- tísk staðreynd og að það væri raun- hæft verkefni í stjórnmálum að vinna gegn honum með sam- stöðustefnu sem legði höfuðáherslu á að bæta kjör láglaunafólks. Aftur á móti var það ofarlega, ef ekki í hug- um manna þá í raunverulegri breytni, að munur á körlum og kon- um í samfélagi væri einskonar nátt- úrulögmál sem seint yrði við ráðið (þótt svo allir skrifuðu undir „sömu laun fyrir sömu vinnu“ eða þættust gera það). Nú finnst þeim sem leggur eyra við umræðunni sem þetta dæmi hafi snúist við. Sá munur sem er á kjör- um fólks, kaupi og tekjum, er talinn einskonar náttúrulögmál. Ríkjandi tekjuskipting er því eitthvað sem telst sjálfsagt og eðlilegt – og mun- urinn ætti helst að vera enn meiri til að markaðsöflin njóti sín betur. Aft- ur á móti er sá munur sem enn er á körlum og konum innan hvers tekju- og valdahóps í samfélaginu talinn verkefni sem unnt sé að leysa með pólitískum aðgerðum og innrætingu. Þessi þróun á sér fleiri rætur en eina en hún er m.a. tengd því hverju sú hreyfing fékk áorkað, sem rudd- ist fram á kvennadaginn mikla – og hverju hún fékk ekki breytt. Eins og glöggt kemur fram í bók Hildar Há- konardóttur, sem byggist mest á textum þess tíma, réðust konur fyrir 30 árum af miklum krafti og hugviti gegn ríkjandi hugmyndum um „náttúrulega“ skiptingu hlutverka milli kynja. Og konum hefur síðan um margt tekist að breyta bæði við- horfum og praxís í samfélaginu, styrkja áræði og sjálfstraust kvenna og bæta stöðu þeirra í raun, þótt enn sé margt ógert eins og oft hefur ver- ið tíundað á síðastliðnum vikum. En konur sem gerðu garðinn frægan fyrir 30 árum, fóru um leið af stað með víðtækari og viðfelldnari hug- myndir um jafnrétti en felast í áherslum okkar tíma á að sjá verði til þess að ríkar konur séu jafn- margar og ríkir karlar, jafnmargir stórforstjórar af báðum kynjum – og svo áfram niður allan tekjustigann. Á þetta minnir bókin „Já, ég þori, get og vil“ ágætlega. Þar er m.a. vitnað til orða Vilborgar Harð- ardóttur, sem vel og mikið kom við sögu kvennadagsins, en hún sagði á afmælisfundi um kvennaárið 25 ár- um síðar: „Við vildum að konur kæmust í áhrifastöður í þjóðfélaginu til að færa með sér breytingu en ekki bara til að komast við hlið karla, breyt- ingu sem þýddi ekki einungis að yf- irstéttarkonur fengju sömu stöðu og karlar og verkakonur sömu laun og verkakarlar.“ „Ekki bara til að komast við hlið karla“ – þetta er afstaða sem flest- um virðist gleymd. Fyrir 30 árum fylgdu konur henni eftir með því að leggja höfuðáherslu á að ræða um og við láglaunafólk og hvetja konur af þeim vettvangi til orða og dáða. Nú eru breyttir tímar. Sú umræða sem heyrist tekur mestöll mið af því að það sé kauðalegt, hallærislegt og úr- elt að fjasa mikið um þá og þær sem neðst standa í kjarastiganum. Gott ef það er ekki bara hugsað heldur sagt upphátt að „það er eitthvað að hjá þessu fólki“ – og þar með er fundin réttlæting fyrir því að þau sem eru á sinni prívatuppleið, hvort heldur karlar eða konur, tefji ekki fyrir sér með því að tengja sig við óspennandi og nafnlausa lúsera. Síð- an er haldið áfram þindarlausu fjöl- miðlasmjaðri um ofurkonur og of- urstráka í rekstri og frægð – kannski með nokkrum harmatölum stundum um að því miður séu það enn bara strákar sem hafa aðstöðu til að taka sér nokkur hundruð milj- ónir í kaupréttarsvartagaldri í bönk- um. Gáum að þessu. Hvers konar jafnrétti og réttlæti? Árni Bergmann skrifar um kjara- og jafnréttismál ’Sú umræða sem heyr-ist tekur mestöll mið af því að það sé kauðalegt, hallærislegt og úrelt að fjasa mikið um þá og þær sem neðst standa í kjarastiganum.‘ Árni Bergmann Höfundur er rithöfundur. ER NEFIÐ STÍFLAÐ? Fæst í apótekum og lyfjaverslunum STERIMAR Skemmir ekki slímhimnu er náttúrulegur nefúði sem losar stíflur og léttir öndun. Fyrir 0-99 ára. Voces Thules: Eggert Pálsson, Einar Jóhannesson, Eiríkur Hreinn Helgason, Guðlaugur Viktorsson, Sigurður Halldórsson og Sverrir Guðjónsson Miðnæturtónleikar í Hallgrímskirkju, laugardaginn 12.nóvember kl. 22:30, í tilefni af hátíðarútgáfu Þorlákstíða. 12 ára vinnuferli er nú lokið og fylla Þorlákstíðir 3 geisladiska auk eins dvd-disks í 1200 tölusettum viðhafnarumbúðum. Á tónleikunum verður flutt úrval söngva í tilefni af heildarhljóðritun Þorlákstíða. Aðeins þessir einu tónleikar, vegna ferðar Voces Thules um 15 borgir í Japan, þar sem hópurinn tekur þátt í sýningunni "Goðsagnir í íslenskri tónlist" Útgáfudagur er: Þorláksmessa, 23.desember 2005. Þeir sem vilja tryggja sér eintak vinsamlega hafið samband við 12 Tóna Voces Thules vilja nota tækifærið og þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóginn í þessari umfangsmiklu tónlistarferð í gegnum aldirnar. Þorlákstíðir Officium Sancti Thorlaci Voces Thules

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.