Morgunblaðið - 12.11.2005, Page 41

Morgunblaðið - 12.11.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 41 UMRÆÐAN h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 FOCUS sófasett 3+1+1 199.800.- 3+2 188.000.- Sjónvarpsskenkur með ljósi (200cm) Verð: 85.000.- Vegghilla (240cm) Verð: 19.800.- Hillubox með spegli (90cm) Verð: 13.900.- Sjónvarpsskenkur Fáanlegur í tveimur stærðum 240cm Verð: 29.500.- 69.000.- 183cm Verð: 65.000.- Hilla með ljósi Verð: Sjónvarpsskenkur 200cm Verð: 67.000.- -20% ROCCO sófasett 3+1+1 Verð áður: 232.000.- Verð nú: 185.600.- SEM betur fer geta flestir svarað spurningunni hér að ofan játandi, að þeir viti hverjir þeir séu og að þeir muni eftir fortíð sinni. En fólk getur lent í því að þurfa að stað- festa eða sanna atriði í lífi sínu, svo sem hvar og hvenær það er fætt, nöfn barna sinna, menntun og eign- ir. Í mörgum löndum er þetta alls ekki einfalt, þar sem skjalasöfn op- inberra aðila hafa tapast. Stundum vantar kunnáttu í skjalavörslu í löndunum, í öðrum tilfellum hafa þau eyðst í eldsvoðum, flóðum eða náttúruhamförum, en oft eru það stríðsaðilar sem hafa eyðilagt skjalasöfn. Í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu var það hluti af þjóðern- ishreinsunum að eyðileggja skjala- söfnin; sögu þjóðarinnar og minn- ingar og í Írak er sagt að Bandaríkjamenn hafi ekkert að- hafst meðan hluta Þjóðskjalasafns Íraks var stolið eða eytt. Afleið- ingar þess að skjalasöfnin hafa tap- ast geta verið svo víðtækar að við hér á Íslandi getum varla gert okk- ur þær í hugarlund. Fólk getur lent í því að geta ekki sannað eignarrétt sinn, t.d. á íbúðarhúsum, að hafa ekki sönnun um háskólapróf eða starfsréttindi, að geta ekki sýnt fram á þjóðerni sitt og segja má að skráð fortíð þess sé horfin. Hér á Íslandi búum við við ör- yggi og langar hefðir í skjalavörslu og skjalasöfnin hafa að geyma ýt- arlegar upplýsingar um líf hvers einstaklings frá vöggu til grafar. Ég veit ekki hvort fólk getur almennt gert sér í hugarlund hvaða upplýs- ingar um venjulegan einstakling er að finna í opinberu skjalasöfnunum, sem eru Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn um land allt. Sé stiklað á stóru má nefna skjöl frá mæðraskoðun, skjöl um fæðinguna og fæðingartíma, ungbarnaeftirlit og bólusetningar, hverjir voru á sömu deild á leikskólanum, skjöl um skólagöngu hvers einstaklings, einkunnir, skrár yfir bekkjarfélaga og um kennslustefnu skólayfirvalda. Ef fjallað var um viðkomandi ein- stakling hjá barnaverndarnefnd eða félagsmálayfirvöldum, má búast við að þau skjöl hafi verið varðveitt. Skjalasöfn framhaldsskóla og há- skóla varðveita upplýsingar um skólagöngu einstaklinga, próf og einkunnir og gegnum skattframtöl er hægt að rekja vinnustaði, eignir, eignabreytingar og fleira. Skjala- söfn byggingarfulltrúa rekja sögu allra húsa, allt frá því sótt var um byggingarleyfi og brunabótavirð- ingar hafa oft að geyma ýtarlegar lýsingar á byggingarefni húsa og útliti. Íbúaskrár rekja hverjir bjuggu í hverju húsi á hvaða tíma og símaskrár varðveita meiri upp- lýsingar en mann grunar. Mann- talsspjöld rekja hvar einstakling- urinn átti lögheimili á hvaða tíma, maka, börn og fleira. Skjöl sýslu- manna eru fjölbreytt og rekja m.a. eignaréttindi og eignabreytingar, skipti á búi við andlát eða skilnað og dómsmál. Í skjölum dómstóla má finna skjöl einstaklinga sem hafa komist í kast við lögin eða þurft að leita réttar síns. Kirkjubækur presta og prófasta segja frá gleði og sorgum í lífi fólks, svo sem skírnum, fermingum, giftingum og útförum. Skjalasöfn félagsmið- stöðva unglinga lýsa félagsstarfi þeirra og oft hvaða unglinga- hljómsveitir voru heitastar á hvaða tíma og skjöl félagsstarfs aldraðra lýsa því starfi sem þar var unnið. Í skjölum má rekja breytingar á þjónustu við eldri borgara og þeim stofnunum sem sjá um hana. Hag- stofan heldur utan um upplýsingar um búsetu allra landsmanna, hjú- skaparstöðu þeirra, trúfélag og fleira allt frá fæðingu til andláts. Í raun er ótrúlegt hvað finnst af skjölum um einstaklinga í opinber- um skjalasöfnun. Ástæðan fyrir varðveislu þeirra er að þau hafa oft að geyma upplýsingar um réttindi fólks eða fjalla um líf fólks. Það get- ur skipt fólk miklu máli að geta flett upp bekkjarfélögum sínum, hvar það hafi búið eða þegar barna- verndarnefnd fjallaði um mál þess fyrir mörgum áratugum. Skatt- framtöl þarf oft að nota vegna líf- eyrisréttinda og skipshafnarskrár sömuleiðis. Aðgangur að slíkum skjölum er oftast takmarkaður og vel skilgreindur í lögum. Þegar um viðkvæm mál er að ræða, fær ein- göngu viðkomandi einstaklingur að skoða sín mál. Skjalasöfnin varðveita líka mikið af skjölum sem fjalla um ákvarðanir stjórnvalda og aðdraganda þeirra, allt frá minni til stærri mála. Má þar til dæmis nefna skipulagsmál og byggingu opinberra bygginga. Til dæmis varðveitir Borgar- skjalasafnið skjöl um flugvöllinn í Vatnsmýri sem oft er spurt um. Flest skjöl um ákvarðanir stjórn- valda eru öllum opin. Opinberu skjalasöfnin varðveita ekki eingöngu eldri skjölin, heldur hafa líka eftirlit með skjalastjórn opinberra aðila og gæta þess að ekki sé eytt skjölum sem ástæða er að varðveita til frambúðar. Þau eru í senn stjórnsýslu- og menning- arstofnanir. Skjalasöfnin eru öllum opin án endurgjalds. Í dag, laugardaginn 12. nóvember taka skjalasöfn á Íslandi þátt í nor- rænum skjaladegi, til að minna á mikilvægi skjalasafna fyrir þjóðfé- lagið. Þema dagsins er „identitet“ og er sjónum beint að stöðu ein- staklingsins í samfélaginu. Yf- irskriftin á Íslandi er „Við“ og velt upp spurningunum um einstak- linginn eða okkur í umhverfinu í víðasta skilningi. Skjalasöfn um land allt minnast dagsins með margvíslegu móti. Á sérstökum vef www.skjaladagur.is er að finna margvíslegar upplýsingar um starf- semi safnanna og skjölin sem þau varðveita. Þar er einnig getraun og ýmislegt annað efni til skemmtunar og fróðleiks. Veist þú hver þú ert? Svanhildur Bogadóttir fjallar um skjalasöfn í tilefni af nor- rænum skjaladegi ’Hér á Íslandi búum viðvið öryggi og langar hefðir í skjalavörslu …‘ Höfundur er borgarskjalavörður í Reykjavík. Svanhildur Bogadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.