Morgunblaðið - 12.11.2005, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 49
MINNINGAR
ur að vinna. Við munum sakna þín
ólýsanlega mikið.
Takk fyrir allt elsku afi
Steinunn Elfa og Bára María.
Elskulegur bróðir hefur yfirgefið
þetta líf. Þú barðist af ótrúlegu
æðruleysi og dugnaði. En þú barðist
ekki einn. Sigga var eins og klettur
með þér allan tímann og börnin og
tengdabörnin. Það hlýtur að vera
dýrmætt í svo miklum veikindum að
hafa alltaf ástvin við rúmið sitt. Ég
er sannfærð um að sá sem nýtur
slíkrar ástar og umhyggju eins og
þú, fær mikinn styrk og er ómetan-
legt.
Í huganum þyrlast upp bernsku-
minningar. Systkini, frændfólk og
ótalmargir aðrir sem voru á Sól-
bakka, í minningunni var alltaf fullt
af fólki heima. Hlýtur oft að hafa
verið strembið hjá mömmu, vinnu-
dagar pabba voru þá oft langir. Líf
og fjör, ærsl og læti, þið strákarnir
tókust á, oft var kallað til okkar að
hætta áður en loftið kæmi niður. Þú
varst nú alltaf dálítið stríðinn og
ærslafullur. Palli aðeins eldri og ráð-
settari, Steini alltaf svo rólegur, Gísli
svo lítill fannst okkur þá, en ég streð-
aði við að halda í við ykkur stóru
strákana. Ótrúlegt hvað þið þolduð
mig.
Um tvítugt fannst mér við öll
verða eiginlega jafngömul. Þá fékk
ég oft að skottast með ykkur á böll
og annað. Sagt var að við tvö værum
svo lík, bæði í okkur og á, það fannst
mér ekki leiðinlegt, þú varst svo
flottur og mikill „gæi“. Það var gott
að vera nálægt þér, þú varst hjálp-
samur, skemmtilegur, blíður, en
ákveðinn. Þú „skammaðir“ mig
áfram í mínum erfiðleikum, takk fyr-
ir það. Þú reyndir ýmislegt í lífinu,
en ég held að þú hafir átt hamingu-
ríka ævi. Þið Bára áttuð mörg góð ár
saman, en slituð samvistum. Þannig
eru bara forlögin stundum, eigið
þrjú myndarleg börn, tengda-,
barna- og barnabarnabörn. Seinna
kynntust þið Sigga, áttuð ykkar un-
aðsreit í sumarbústaðnum, ræktuð-
uð þar af natni og alúð, ferðuðust
mikið innanlands og utan og nýttuð
tímann vel sem þið áttuð saman.
Það er erfitt að sætta sig við að þú
sért farinn, ekki síst fyrir elsku
mömmu. Það var sárt en þó ljúft að
fá að vera hjá þér þegar þú leiðst í
burtu frá okkur, svo létt og þrauta-
laust að því er virtist, laus við allar
þjáningar, umvafinn kærleika og
ástúð þeirra sem þú elskaðir.
Ég sakna þín, kæri bróðir. Guð
geymi þig.
Ingibjörg J. Steindórsdóttir.
Mig langar til að minnast í örfáum
orðum Sverris Steindórssonar sem
ég var svo lánsamur að kynnast fyrst
er við unnum saman við rafla Sig-
öldustöðvar. Það kom sér vel fyrir
mig og Úlfar Vilhjálms, nýútskrifaða
rafvirkjana, hvað Sverrir var þolin-
móður að útskýra og hjálpa okkur af
stað í þessum nýju verkum sem við
höfðum ekki unnið við áður, en
Sverrir hafði unnið við rafla Lands-
virkjunar bæði við Búrfells- og Sogs-
virkjanir.
Sverrir var handlaginn og góður
verkmaður og átti gott með að miðla
af þekkingu sinni og taldi það ekki
eftir. Hann hafði gaman af snarpri
umræðu, hvort sem verið var að
ræða landsmálin, pólitík, verkalýðs-
mál eða bara allt milli himins og
jarðar og var ávallt líf og fjör í kring-
um hann í matar- og kaffitímum.
Ég vann svo seinna með Sverri við
Írafoss og komst þá enn betur að því
hvern mann hann hafði að geyma,
bæði traustur og ráðagóður.
Alltaf var jafn gaman að koma við
í Hrauneyjum, hitta Sverri og heyra
hans skoðanir á því sem helst var í
umræðunni hverju sinni.
Í vetur hittum við Agnes Sverri og
Siggu á Kanaríeyjum og áttum þar
góðar stundir með þeim, þótt Sverrir
væri orðinn veikur af þeim erfiða
sjúkdómi sem hafði svo betur eftir
harða baráttu.
Við Agnes biðjum góðan guð að
styrkja Siggu og fjölskyldu Sverris
gegnum þessa erfiðu tíma og vottum
þeim okkar dýpstu samúð.
Leifur.
Mamma er farin frá
okkur. Ein af mínum
fyrstu minningum um mömmu er
frá 1969. Jólin voru að nálgast og
mamma var á fullu við að undirbúa
jólin og ljúka við kjóla sem hún var
að sauma, hún var kjólameistari sem
vann heima. Ég aftur á móti var
mjög upptekinn af því að reikna út
hversu margir klukkutímar væru til
jólanna og mömmu í sínu annríki var
ekki skemmt yfir því. Í mörgum af
mínum fyrstu minningum liggur
mamma yfir saumaskap langt fram
eftir nóttu til að ljúka verki.
Eitt af því einkenndi mömmu sem
persónu var fróðleiksfýsn. Hún
fylgdist mikið með fréttum og mátti
aldrei missa af fréttatíma og þegar
kom að því að um var að ræða tvo
fréttatíma í sjónvarpinu þá vildi hún
sjá þá báða. Henni fannst gaman að
ræða um málefni líðandi stundar og
hafði ætíð fasta og sterka skoðun.
Til marks um hvað mamma var fróð-
leiksfús og viljug til að læra meira
þá skellti hún sér í Námsflokka
Reykjavíkur eftir fimmtugt og lauk
þaðan grunnskólaprófi og stundaði
um nokkurra ára skeið nám í öld-
ODDNÝ
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Oddný Ólafs-dóttir kjóla-
meistari fæddist á
Látrum í Aðalvík í
N-Ísafjarðarsýslu
26. júní 1921. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eiri 27.
október síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Hallgríms-
kirkju 10. nóvem-
ber.
ungadeild Mennta-
skólans við Hamra-
hlíð.
Hún hafði mikinn
áhuga á því að ferðast
og gerði það oft með-
an heilsan leyfði. Hún
ferðaðist um Banda-
ríkin til að heimsækja
elstu systur mína og
einnig heimsótti hún
æskuslóðir sínar í
Washington fylki þar
sem hún bjó sem barn.
Hún ferðaðist víða um
Evrópu og hafði gam-
an af.
Þegar ég útskrifaðist með guð-
fræðipróf í Englandi þá kom hún og
var viðstödd útskriftina. Við keyrð-
um mikið um Suður-England. Einn-
ig tókum við dagsferð til York til að
skoða gamla víkingabyggð og hafði
hún mjög gaman af og talaði mikið
um þá ferð seinna meir. Þegar ég út-
skrifaðist með tölvufræðiprófið í
Bandríkjunum lét hún sig ekki vanta
og eftir útskrift skelltum við okkur í
frí til Flórída. Flugferðin lagðist
ekki vel í mömmu þar sem henni
þótti flugvélin frekar óörugg og ótt-
aðist hún um líf sitt. Þegar á áfanga-
stað var náð féll allt í ljúfa löð og við
skemmtum okkur bæði konunglega.
Eftir að ég flutti heim aftur var
mamma alltaf sú sem hægt var að
leita til. Hún var viljug til að hjálpa
eins og hún gat ef eitthvað bjátaði á.
Núna seinni ár hefur heilsu hennar
hrakað og því er komið að því að hún
sefur svefninum langa en í lokin vil
ég segja að ég vona að henni líði sem
best hvar sem hún er.
Arinbjörn Björnsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
EINAR JÓHANNESSON
bóndi,
Jarðlangsstöðum
í Borgarbyggð,
lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn
3. nóvember.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 14.00.
Sigríður Bárðardóttir,
Sigríður Bára Einarsdóttir,
Þuríður Einarsdóttir, Friðrik Alexandersson,
Kristín Einarsdóttir, Lárus Þ. Sigurðsson,
Fanney Einarsdóttir, Brynjólfur Brynjólfsson,
Jóhannes Guðmundur Einarsson, Kristína H. M. Elizondo,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR JÓSEFSDÓTTIR,
Hringbraut 50,
áður Tómasarhaga 44,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund miðviku-
daginn 9. nóvember.
Útför hennar verður gerð frá Eyvindarhólakirkju,
Austur-Eyjafjöllum, og verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur,
BIRGIR DAVÍÐ KORNELÍUSSON,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 10. nóvember.
Sigríður Pétursdóttir, Kornelíus Jónsson,
Haraldur Kornelíusson, Íris Ægisdóttir,
Kornelía Kornelíusdóttir, Gísli Árni Atlason,
Pétur Kornelíusson, Gunnhildur Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNA GUÐMUNDA JAKOBSDÓTTIR,
Skálagerði 3,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 9. nóvember.
María Rögnvaldsdóttir, Grétar Guðmundsson,
Elínbet Rögnvaldsdóttir,
Steinunn Magnúsdóttir,
Rögnvaldur Magnússon,
Jónmundur Grétarsson,
Ragnhildur Grétarsdóttir,
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður okkar, fóstur-
föður, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS EINARSSONAR,
Grænugötu 12,
Akureyri.
Kristbjörg Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson,
Guðfinna Kristjánsdóttir, Kristján Magnússon,
Árvök Kristjánsdóttir,
Einar Kristjánsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Ársæll Kristjánsson, Dóra Kristjánsdóttir,
Heiðrún Kristjánsdóttir,
Ásta Sigurðardóttir, Vilhjálmur Þ. Snædal,
Haukur Arnar Árnason, Sveinbjörg Harðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og dóttur,
GUÐRÚNAR FANNEYJAR ÓSKARSDÓTTUR
kennara,
Rauðagerði 65,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við englunum á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi, fyrir ómetanlega umönnun og hlýju á
erfiðum stundum.
Þráinn Sigurbjörnsson,
Karl Óskar Þráinsson, Íris Ingvarsdóttir,
Gunnar Már Þráinsson, Jóhanna Hauksdóttir,
Sigríður Ólafsdóttir.
Upp, upp, mín sál og allt
mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur
með,
hugur og tunga hjálpi til.
Herrans pínu ég minnast vil.
(Hallgrímur Pétursson.)
ÁRNI
BJARNASON
✝ Árni Bjarnasonfæddist í Hafn-
arfirði 13. septem-
ber 1927. Hann lést
á St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði 15.
október síðastliðinn
og var jarðsunginn
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 25. október.
Elsku afi minn, ég
samgleðst þér fyrir að
hafa staðið pligt þína
hér á jörðinni með
sæmd.
Ég er stoltur af arf-
leið þinni og vill þakka
þér fyrir að vera mér
alltaf góður og sönn
fyrirmynd.
Börnum afa, barna-
börnum, barnabarna-
börnum og fjölskyld-
um þeirra sendi ég
samúðarkveðjur og
svo öllum þeim sem
syrgja Árna afa.
Bjarni Hrafnkelsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Minningargreinar