Morgunblaðið - 12.11.2005, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 12.11.2005, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 59 DAGBÓK Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Traustur kaupandi óskar eftir 270-350 fm einbýlishúsi í Garðabæ. Staðgreiðsla. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. EINBÝLISHÚS Í GARÐABÆ ÓSKAST Opið hús milli kl. 12.00 og 17.00 alla helgina. Kynnum 2 ný glæsileg frístundahús til útleigu. Kaffi og veitingar í boði. Allir velkomnir. Lúxus gisting í fallegu umhverfi. Minniborgir-Grímsnesi, sími 868 3592. ÍSLENSKU tónlistarverðlaunin eru orðinfastur liður í tónlistarlífi þjóðarinnar en ísíðari hluta janúarmánaðar nk. verður há-tíðin haldin í tólfta skipti. Af því tilefni er óskað eftir tillögum að tilnefningum til verð- launanna sem faghópar tónlistarfólks, fjölmiðla- manna og tónlistaráhugamanna munu svo fara ít- arlega yfir. Fresturinn til að skila inn tillögum rennur út föstudaginn 25. nóvember og tilnefning- arnar verða svo tilkynntar í byrjun desember. Berglind María Tómasdóttir er nýráðin fram- kvæmdastjóri verðlaunanna en hún tekur við af Einari Bárðarsyni sem gegnt hefur starfinu und- anfarin fjögur ár. Berglind María, sem meðal ann- ars hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sum- artónleika í Skálholtskirkju undanfarin tvö ár, segir mikið verk að setja upp hátíð af slíkri stærð- argráðu og að mörgu þurfi að huga enda hátíðin sjálf stór í umfangi en það sé góð blanda af skemmtun og streitu. „Hátíðin hefur verið stig- vaxandi með hverju árinu og er raunar í stöðugri endurskoðun því alltaf má einhverju við bæta og finna betri leiðir til framkvæmdar,“ segir Berg- lind María og bendir á að Íslensku tónlist- arverðlaunin séu tónlistarfólki í landinu afar mik- ilvæg. „Þetta eru í raun hvatningarverðlaun fyrir tónlistarfólk þjóðarinnar og mjög mikilvægt er að þau taki ekki aðeins til einnar tegundar af tónlist. Allir tónlistargeirar taka þátt og því höfða Ís- lensku tónlistarverðlaunin til sem flestra.“ Það er Samtónn, samtök flytjenda, tónhöfunda og útgefanda, sem hafa veg og vanda af Íslensku tónlistarverðlaununum en svo er það þriggja manna stjórn sem annast framkvæmdina. Fimm flokkar eru í ár en þeir eru: Popp og rokk, dægurtónlist, ýmis tónlist, djass og sígild og samtímatónlist. Innan allra flokka er valin hljóm- plata ársins en innan fyrstu þriggja flokkanna eru sameiginlega valin flytjandi ársins, lag og texti, söngvari og söngkona ársins. Þá eru valin flytjandi og tónverk ársins í flokki djasstónlistar og jafnframt í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Á meðal annarra verðlauna eru plötuumslag ársins, tónlistarmyndband og bjartasta vonin. Verðlaunaafhendingin verður eins og áður segir í síðari hluta janúar en ekki er búið að festa niður dagsetningu. Hátíðin verður haldin í Þjóðleikhús- inu og verðu í beinni útsendingu Ríkissjónvarps- ins. Flytjendum ber að skila hugverkum sínum á skrifstofu FÍH, Rauðagerði 27, 108 Reykjavík. Hægt er að sækja umsóknareyðublöð þangað en einnig á vefsíðu Samtóns, www.samtonn.is. Tónlist | Óskað eftir tillögum að tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2005 Uppskeruhátíð tónlistarfólks  Berglind María Tóm- asdóttir fæddist 9. ágúst 1973 í Reykjavík þar sem hún ólst jafn- framt upp. Hún lagði stund á nám við Tón- listarskóla Reykjavíkur og útskrifaðist þaðan árið 1998, hélt til Dan- merkur til áframhald- andi náms við Tónlist- arháskólann í Kaup- mannahöfn en þaðan lauk hún námi árið 2001. Berglind María var ráðin framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrr á árinu en jafnhliða því hefur hún verið við störf á Rík- isútvarpinu. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Gullbrúðkaup | Í dag, 12. nóvember, eiga heiðurshjónin Guðrún María Bjarnadóttir og Hörður Guðmundsson 50 ára hjúskaparafmæli. Þau eru að heiman og verja deginum með börnum sínum og fjölskyldum þeirra. Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar úr Hafnarfirði komu færandi hendi á skrifstofu Styrktarfélags krabba- meinssjúkra barna á dögunum. Þau höfðu safnað 30.500 krónum til styrkt- ar málstaðnum. Krakkarnir héldu hlutaveltu og gengu líka í hús og söfn- uðu fé. Auk þessa afhentu þau notaða Playstation-tölvu og leiki. Aftari röð frá vinstri Viktoría Dröfn Ólafsdóttir, Jón Arnar Jónsson, Anna María Jóns- dóttir og Eva Margrét Guðnadóttir. Fyrir framan frá vinstri Þórdís Ylfa Þórsdóttir og Alma Guðrún Guðna- dóttir. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Er þetta rétt? ÉG LAS í einu af slúðurblöðum landsins að Bubbi Morthens krefðist 20 milljóna króna í miskabætur fyrir það að eitt tímaritanna hefði sýnt myndir af honum vera með sígar- ettu í bíl sínum og sagt að hann væri fallinn. Þetta mál pirrar mig svo rosalega mikið, það er að segja ef að hann kemst upp með það að fá þessar 20 millj- ónir! Hvað um fólk sem lendir í ýmsum hremm- ingum, til dæmis fórnarlömb kyn- ferðisafbrotamanna, oft fá þau ekki krónu út úr þeim málum, og/eða fólk sem er beitt ofbeldi, hvað sem er! Alltof oft fá þau ekki það sem þau biðja um. Ég held nú líka að fólk geri sér alveg grein fyrir því að þarna var verið að tala um sígarettuna, ekki fortíð hans. Þetta eru slúðurblöð og margt af því sem þar kemur fram er ekki rétt. Auðvitað er þetta leið- inlegt fyrir hann Bubba okkar, en hvaða máli skiptir það þótt hann reyki, hann er alveg sami maðurinn þrátt fyrir það. Ef fólk er í þessum bransa sem hann er í og getur ekki tekið því sem sagt er um það þá ætti það bara alls ekki að vera í honum. En eins sterkur og sjálfsöruggur karakter sem hann er getur hann það auðveldlega. En við erum samt að tala um 20 milljónir, það er auð- vitað ekki í samræmi við það sem birtist í blöðum og ef hann fær þess- ar 20 milljónir þá er endanlega úti um dómsvaldið okkar! Er ekki svo að maður veit allt best sjálfur um sjálfan sig og er það ekki nóg fyrir hann og fjölskyldu hans? Eða er þetta bara græðgi sem er því miður farin að hrjá marga menn? Hvernig eru svona mál verðmetin? Lilja Dögg Magnúsdóttir, Melabraut 23, Seltj. Gullhringur í óskilum GULLHRINGUR með rauðum steini fannst á planinu fyrir framan Hulduland 6-8. Upplýsingar í síma 581 4258. Lilja Dögg Magnúsdóttir Úrslitaleikurinn. Norður ♠K8743 ♥D V/NS ♦K6 ♣ÁKD62 Vestur Austur ♠DG10 ♠Á952 ♥762 ♥G9853 ♦DG10873 ♦5 ♣G ♣843 Suður ♠6 ♥ÁK104 ♦Á942 ♣10975 Fjögur spil eftir og Ítalir leiddu með 28 IMPum í úrslitaleiknum við Banda- ríkjamenn. Áhorfendur á Bridgebase töldu líklegt að sigur Ítala væri í höfn, en andrúmsloftið átti eftir að snar- breytast því Bandaríkjmenn unnu 16 IMPa í fjórða síðasta spilinu! Sex lauf voru spiluð í báðum sölum. Meckstroth stýrði spilinu úr norðrinu og fékk út hjarta. Hann átti slaginn á drottninguna og spilaði einfaldlega litlum spaða að heiman í öðrum slag. Vestur fékk á tíuna og skipti yfir í tíguldrottningu. Meckstroth tók með kóngi, stakk spaða, fór heim á lauf og stakk aftur spaða. Tók svo trompin af austri, spilaði tígli á ás og henti síðustu spöðunum niður í ÁK í hjarta. Vel spil- að og 1370 í NS. Á hinu borðinu varð Nunes sagnhafi í suður og Soloway kom út með tígul- drottningu. Nunes drap með ás heima og spilaði spaða á kónginn og ás Hammans í austur. Hamman trompaði út og norður átti slaginn. Nunes stakk spaða, spilaði hjarta á drottningu og tók annað hátromp áður en hann trompaði aftur spaða. Síðan henti °Nunes tveimur spöðum niður í ÁK í hjarta. Nú þurfti bara að komast inn í borð til að ná síðasta trompi austurs. Það hefði heppnast að trompa hjarta, en Hamman hafði fylgt lit í síðasta hjartað með gosanum til að láta líta út fyrir að hann hefði byrjað með þrílit. Nunes tók hann trúanlegan og spilaði tígli á kónginn og Hamman trompaði! Munurinn var nú aðeins 12 IMPar og þrjú spil eftir. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 d6 3. Rf3 g6 4. Rc3 Bg75. e4 0–0 6. Be2 e5 7. Be3 Rbd7 8. 0–0 c6 9. d5 c5 10. a3 Rg4 11. Bd2 Kh8 12. b4 De7 13. Hb1 b6 14. Dc1 Ba6 15. Dc2 Hfc8 16. b5 Bb7 17. a4 Hf8 18. g3 Rh6 19. Rh4 Rg8 20. a5 Dd8 21. Ha1 Bh6 22. Bd3 Bxd2 23. Dxd2 Bc8 24. Rd1 a6 25. Re3 axb5 26. cxb5 bxa5 27. Ha4 c4 28. Rxc4 Rc5 29. Ha3 Rf6 30. He1 Bd7 31. Bc2 Bxb5 32. Rxa5 Dc7 33. Rg2 Hfc8 34. Db4 Hab8 35. Dd2 Ha8 36. Db4 Bd7 37. Bb1 Hab8 38. Dd2 Hb5 39. f3 Ha8 40. Rc4 Hxa3 41. Rxa3 Hb3 42. He3 Db6 43. Bc2 Staðan kom upp í heimsmeist- arakeppni landsliða sem lauk fyrir skömmu í Beer-Sheva í Ísrael. Heima- maðurinn Ilya Smirin (2.673) hafði svart gegn Xue Zhao (2.478) sem tefldi fyrir kínverska kvennaliðið. 43. … Rcxe4! 44. Dc1 44. fxe4 gekk ekki upp vegna 44. … Hxa3. 44. … Hxe3 45. Dxe3 Rc5 46. Rc4 Da6 47. Dg5 Rxd5 svartur vinnur nú annað peð og þarf þá ekki að spyrja að leikslokum. 48. Rce3 Da1+ 49. Bd1 Dd4 50. Dh6 Kg8 51. Be2 Rc3 52. Bf1 Bc6 53. Rh4 Rd1 54. Rhf5 gxf5 55. Dg5+ Kf8 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Fáðu úrslitin send í símann þinn MAGNÚS V. Guðlaugsson og Örn Þorsteinsson opna myndlistarsýn- ingu í Listasafni ASÍ við Freyjugötu í dag kl. 15. Verk Magnúsar og Arnar eru um margt ólík að efni og aðferð. Ekki síst af þeim sökum þótti þeim for- vitnilegt að reyna þanþolið og stilla verkum sínum saman, að hluta í það minnsta. Magnús og Örn hafa þekkst lengi og margsinnis verið ferðafélagar á fjöllum. Því á yf- irskriftin „vinsamlegast“ vel við sýn- ingu þeirra. Magnús sýnir ljósmyndaverk, myndband og önnur verk með blandaðri tækni. Flest verkanna hafa orðið til á Íslandi, en einnig í Berlín og í Oxford. Í verkum sínum teflir hann iðulega saman því upp- hafna og því hversdagslega, því sí- gilda og því hverfula. Örn sýnir höggmyndir steyptar í brons og ál. Flest verkin urðu til í Noregi og á Grænlandi á síðustu ár- um en voru fullunnin á Íslandi. Verk Arnar eru sprottin úr sérstakri ver- öld á mótum náttúru, manns og myndlistar. Örn reynir í verkum sín- um að lýsa veruleikanum að baki náttúrunni. Listasafn ASÍ er opið frá kl. 13–17 alla daga nema mánu- daga. Aðgangur er ókeypis. Sýn- ingin stendur til 4. desember. Magnús og Örn í Lista- safni ASÍ Verk eftir Örn Þorsteinsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.