Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 321. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Manndóms-
raunir Potters
Heiða Jóhannsdóttir skrifar um
nýjustu mynd galdrastráksins | 81
Lesbók, Börn og Íþróttir í dag
Lesbók | Með sjóðheitt hjarta og ískaldan haus Margbrotnar Íslandsmyndir
Börn | Umsögn um Kjúlla litla Verðlaunasaga Arndísar Lóu Íþróttir | Bogi
Ágústsson heldur með Tottenham Íslendingar skelltu Norðmönnum 32:23
ÞYKKT mengunarský lá yfir höfuðborginni í
gær en útblástur frá bílum og laust ryk sem
þyrlaðist upp af götum olli því að skýið
myndaðist, að sögn Einars Sveinbjörnssonar,
veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Hann
segir að í gær hafi verið hægur vindur í
borginni, en klukkan 9 í gærmorgun hafi
mælir Veðurstofunnar aðeins sýnt um eins
metra vind á sekúndu. Þá var kalt í lofti í
gær. Einar segir að kalda loftið sé þungt og
blandist ekki við efri lög lofts meðan vindur
sé hægur. „Til þess að koma blönduninni af
stað þarf dálítinn vind,“ segir hann.
Sigurður Finnsson, sérfræðingur hjá Um-
hverfisstofnun, segir að magn svifryks í lofti
sé nokkuð hátt þessa dagana og hafi farið
yfir sett umhverfismörk. Stofnunin mælir
reglulega magn svifryks á nokkrum stöðum
í borginni í samvinnu við Umhverfissvið
Reykjavíkurborgar. Sigurður segir að al-
gengt sé að magnið aukist á þessum árstíma.
„Á veturna ekur fólk um á nagladekkjum og
þá geta veðuraðstæður valdið að mengun
safnast fyrir í borginni,“ segir Sigurður.
Óvenju hár loftþrýstingur
Að sögn Einars Sveinbjörnssonar hefur
verið óvenju hár loftþrýstingur á landinu
síðasta sólarhringinn eða svo.
Loftþrýstingur mældist 1.048 millibör í
Bolungarvík í gærkvöldi. Þetta er hæsta
staða loftvogar hérlendis frá því í apríl
1991, en þá sýndu loftvogir allt að 1.050
millibör.
Einar segir að allajafna sé loftþrýstingur
ekki fjarri 1.000 millibörum. „Flesta daga er
hann á milli 990 og 1.020 millibör. Sjaldan
nær hann því að fara yfir 1.040 og sárasjald-
an yfir 1.045,“ segir Einar. „Þegar djúpar
lægðir fara hjá á hann til að fara undir 950
millbör.“
Einar segir að það sem valdi háum loft-
þrýstingi nú sé víðáttumikið og öflugt há-
þrýstisvæði sem verið hafi fyrir vestan og
suðvestan landið síðustu daga.
„Angi þess náði inn á landið í gærkvöldi,“
segir hann. Hár loftþrýstingur myndist
vegna svonefndrar fyrirstöðuhæðar sem í sé
hlýtt loft af suðlægum uppruna ofan til en
kalt loft sé í neðstu loftslögunum. Að sögn
Einars er háþrýstisvæðið farið að gefa sig
og eftir helgi er því spáð að öllu hefðbundn-
ari lægðir verði búnar að leysa það af hólmi.
Daglegar loftþrýstingsmælingar hafa ver-
ið hér á landi frá 1820 og þar af nær sam-
fellt og daglega í Stykkishólmi frá 1845.
Loftvægið hefur sárasjaldan farið yfir 1.050
millibör á þeim 185 árum sem mælingarnar
ná til. Hæsta gildið er 1.058,4 millibör en
það mældist árið 1841 í Stykkishólmi.
Morgunblaðið/RAX
Mengunarský yfir borginni
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Yfirheyrslur
verða í Vín
Damaskus. AP. | Stjórnvöld í Sýrlandi hafa
samþykkt, að nefnd á vegum Sameinuðu
þjóðanna, sem rannsakar morðið á Rafik
Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líb-
anons, fái að yfirheyra nokkra sýrlenska
embættismenn í Vín.
Walid Moallem, aðstoðarutanríkisráð-
herra Sýrlands, sagði, að þetta hefði verið
ákveðið eftir að „réttindi viðkomandi ein-
staklinga hefðu verið tryggð“ og einnig
ábyrgst, að fullveldi Sýrlands yrði virt.
Hariri var ráðinn af dögum ásamt 20 öðr-
um mönnum í sprengjutilræði í Beirút 14.
febrúar síðastliðinn. Í bráðabirgðaskýrslu
rannsóknarnefndarinnar eru leyniþjón-
ustustarfsmenn í Líbanon og Sýrlandi
bendlaðir við morðið. Sýrlandsstjórn þver-
tekur fyrir aðild að málinu.
Sagt er, að formaður nefndarinnar, Þjóð-
verjinn Detlev Mehlis, fái að yfirheyra
fimm sýrlenska embættismenn, þar á með-
al yfirmann sýrlensku leyniþjónustunnar,
Assef Shawkat, en hann er mágur Bashar
Assads, forseta Sýrlands.
Héldu
föngum
án ákæru
París. AFP. | Bandaríski
herinn var með fangelsi,
sem minnti mest á
Guantanamo, í Kosovo
fyrir þremur árum. Kom
það í gær fram hjá
mannréttindafulltrúa
Evrópuráðsins en rann-
sókn á meintu fangaflugi
á vegum CIA, banda-
rísku leyniþjónustunn-
ar, og leynilegum fangelsum fer nú fram í
mörgum Evrópulandanna.
Alvaro Gil-Robles sagði í viðtali við
franska dagblaðið Le Monde, að hann hefði
skoðað fangelsi í bandarísku herstöðinni
Camp Bondsteel í Kosovo 2002 vegna frétta
um, að friðargæsluliðar á vegum NATO
hefðu handtekið menn án þess, að þeim
væri birt ákæra. Segir hann, að honum hafi
brugðið í brún er hann sá aðbúnað fang-
anna, sem voru 15 til 20 saman í litlum skúr-
um, umkringdum hárri gaddavírsgirðingu.
Voru þeir í rauðgulum samfestingum eins
og fangarnir í Guantanamo og sumir þeirra
með kóraninn.
Gil-Robles kvaðst ekki vita hvort Camp
Bondsteel hefði tengst svokölluðum „svört-
um stöðum“, þeim leynilegu fangelsum,
sem CIA er sögð reka víða um heim, en
hann krafðist þess, að fangelsinu yrði lokað.
Segir hann, að hann hafi verið fullvissaður
um, að það hafi verið gert.
Viðurkenna
mikinn þrýsting
Evrópuráðið hefur hafið rannsókn á
meintu fangaflugi CIA og hefur gefið aðild-
arríkjunum ákveðinn frest til að skýra frá
vitneskju sinni um málið. Dan Fried, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í
málefnum Evrópu, viðurkenndi á miðviku-
dag, að Bandaríkjastjórn væri undir mikl-
um þrýstingi frá Evrópusambandinu vegna
þessa máls. Vildi hann ekki meira um það
segja en lagði áherslu á rétt Bandaríkjanna
til að berjast gegn hryðjuverkum.
Alvaro Gil-Robles
TVÆR flugvélar sem New York
Times segir að tilheyri leppfyrir-
tækjum CIA hafa lent á Keflavík-
urflugvelli í þessum mánuði, sú fyrri
kom hinn 17. nóvember en sú seinni
18. nóvember. Eins og rækilega hef-
ur verið fjallað um í fjölmiðlum lenti
meint CIA-flugvél í Reykjavík 6.
nóvember.
Mikið hefur verið fjallað um
fangaflug bandarísku leyniþjónust-
unnar CIA í fjölmiðlum austan hafs
og vestan undanfarnar vikur og víða
í Evrópu hafa stjórnvöld ákveðið að
rannsaka ferðir meintra CIA-flug-
véla. Fjöldi flugvéla hefur verið
nefndur til sögunnar, t.d. bað danski
þingmaðurinn Frank Aaen um upp-
lýsingar um flugvélar með 44 mis-
munandi kallnúmer sem eru taldar í
þjónustu CIA, en grunur hefur
beinst að fleiri flugvélum.
Morgunblaðið fékk í gær upplýs-
ingar frá íslenskum flugmálayfir-
völdum um ferðir 16 af þessum flug-
vélum sem eiga það sameiginlegt að
tiltölulega miklar upplýsingar liggja
fyrir um tengsl þeirra við CIA.
Í ljós kom að 14 þessara flugvéla
hafa lent hér í 41 skipti frá ársbyrjun
2001, þar af 10 sinnum á þessu ári.
Tvær til viðbótar hafa farið samtals
11 sinnum um flugstjórnarsvæðið.
Þrjár hafa lent
hér í nóvember
Ferðir meintra CIA-flugvéla
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Lentu | 4
KALT var í Evrópu í gær og snjóaði víða, allt frá Bretlandseyjum í
vestri austur til Rúmeníu. Kom víða til vandræða á vegum og í Wales
varð að loka 250 skólum vegna ófærðar. Spáð er meiri snjókomu þar og
á meginlandinu, allt suður á Spán þar sem þessir ferðalangar ösluðu
fönnina í bænum Alto Campo í norðurhluta landsins.
AP
Kuldi og snjóar í Evrópu
♦♦♦