Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 71 DAGBÓK Árnaðheilla dagbók@mbl.is 50 ÁRA afmæli. Í dag, 26. nóv-ember, er fimmtugur Björgvin Björgvinsson, myndlistarkennari. Björgvin býr og starfar í Finnlandi, og kennir myndlist á efri stigum grunn- skólans í finnsku pappírsiðnaðarborg- inni Kuusankoski. Auk myndlist- arinnar hefur Björgvin kynnt Ísland fyrir Finnum og farið með nokkra finnska hópa til Íslands. Björgvin býr ásamt eiginkonu sinni Pirjo Aaltonen í verslunarborginni Kouvola sem er skammt frá Kuusankoski. Hlandhausagangur í málefnum þroska- heftra í Kópavogi ÉG Á bróður sem er þroskaheftur og ólst alla ævi upp hjá móður sinni í Kópavogi, hinum mikla fé- lagsmálabæ að eigin áliti. Árið 1997 lést móðir mín, sem er kannski ekki í frásögur færandi, en þá kom líka í ljós hversu frá- bær þessi félagsmálabær var í málefnum bróður míns. Ekkert var hægt að gera þó svo að hann hefði alið allan sinn aldur í Kópa- vogi, meira að segja daufheyrðist hinn ágæti maður Sigurður Geir- dal heitinn við málefnum bróður míns. Það sem bjargaði bróður mínum var það að móðurbróðir hans skaut yfir hann skjólshúsi í því ágæta sveitarfélagi sem nú heitir Árborg. Þar var ekkert verið með neinn mélkisugang og und- irlægjuhátt, heldur tekið á vanda- málunum og þau leyst. Vildi bara koma þessu á framfæri svo Kópa- vogsbúar vaði ekki í villu og svíma varðandi málefni þroskaheftra í félagsmálabænum Kópavogi. Daníel Guðmundsson, fyrrverandi Kópavogsbúi. Aldurstakmörk í ljósabekki? ÉG er að velta því fyrir mér hvort ekki séu til neinar reglugerðir - eða aldurstakmörk - um ljósa- bekkjanotkun. Ég er móðir ung- lingsstúlku sem fer mikið í ljósa- bekki og hef ég áhyggjur af því. Ég hef hringt á nokkrar sólbaðs- stofur til að afla mér upplýsinga um þetta en þar virðist enginn geta svarað þessu - eða vita hvort einhverjar reglugerðir séu til um þetta. Því langar mig að vita hvort til séu reglur eða aldurstakmörk við notkun ljósabekkja og hvort ein- hver getur svarað þessu. Áhyggjufull móðir. Krúsa týndist í Setberginu KRÚSA, sem er með hvíta/rauða hálsól, týndist í Setberginu í Hafn- arfirði þar sem hún var í pössun en hún á heima í Hlíðarhjalla í Kópavogi. Krúsa er mjög stygg og hrædd og það getur ekki hver sem er náð henni og skiptir því máli að fá upplýsingar sem allra fyrst. Þeir sem gætu gefið upplýsingar vinsamlega hafi samband í síma 865 5178 eða 564 5178. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þjóðleikhúsið fékk í haust til afnotagamla Hæstaréttarhúsið við Lind-argötu, en þar er nú fræðsludeild leik-hússins með aðstöðu. Í vetur verður þar ýmiss konar dagskrá, meðal annars svo- nefnd Réttarhöld, en þau eru vettvangur um- ræðu um samfélag og listir. Réttarhöldin verða haldin einu sinni í mánuði og fjalla um þau efni sem eru tengslum við sýningar Þjóðleikhússins hverju sinni. Réttarhöldin eru haldin í samstarfi við Ritið – tímarit Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Tvenn réttarhöld verða haldin fyrir áramót. Þau fyrri voru strax í byrjun nóvember og var þar lýðræði tekið til umfjöllunar í tengslum við sýn- inguna Frelsi eftir Hrund Ólafsdóttur. Leitast var svara við því hvað lýðræði væri, hvað væru mótmæli og hvað væru hryðjuverk. Hvar liggja mörkin? Seinni réttarhöldin fyrir jól verða haldin á þriðjudaginn kemur, 29. nóvember, í tengslum við sýninguna Halldór í Hollywood, en hún var fyrsta frumsýning Þjóðleikhússins á þessu leik- ári og hefur notið mikilla vinsælda. Í janúar fjalla réttarhöldin um málefni sem tengjast jólaleikriti Þjóðleikhússins, Túskild- ingsóperuna. Þá verður fjallað um virkjunar- áráttu mannsins í réttarhöldum sem ganga und- ir nafninu Að virkja eða ekki virkja. Í febrúar verður einmitt frumsýnt leikritið Virkjunin eftir Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjáns- dóttur. Í mars er síðan áætluð umræða um Pét- ur Gaut eftir Ibsen. Hvenær er maðurinn hann sjálfur? Að síðustu verða svo réttarhöld í tengslum við sýningu þýska leikstjórans Chri- stofs Schlingensiefs á Ragnarökum 2010, en sú sýning er í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík. Á Réttarhöldunum nú á þriðjudaginn munu þeir Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur og Sumarliði Kristjánsson sagnfræðingur hjá Reykjavíkurakademíunni fjalla um sína sýn á Halldór Laxness. Ingibjörg Þórisdóttir, verk- efnisstjóri hjá fræðsludeild Þjóðleikhússins, seg- ir að á Réttarhöldunum sameinist fræði og listir, þar sem leikhúsið nýtur liðsauka fræðaheimsins. „Það koma ný og spennandi sjónarhorn fram á viðfangsefni leikhússins,“ segir Ingibjörg. „Það var húsfyllir síðast og afskaplega mikil ánægja með þetta. Fólk var mjög hrifið, bæði listafólk og fræðimenn, sem og almenningur sem þarna kom til að sækja sér fróðleik.“ Ingibjörg segir salinn henta mjög vel fyrir svona umræðufundi. „Það eru áætlaðar breyt- ingar á þessu gamla húsi svo við getum tekið á móti stærri hópi fólks, en nú er aðgangur tak- markaður og aðeins komast að um 50 manns.“ Leiklist | Þjóðleikhúsið heldur mánaðarleg „Réttarhöld“ í gamla húsi Hæstaréttar Halldór í Hæstarétti  Ingibjörg Þórisdóttir, verkefnastjóri við fræðsludeild Þjóðleik- hússins, er fædd árið 1969. Hún lauk stúd- entsprófi frá MH árið 1990 og hlaut BA- gráðu í leiklist frá Fylk- isháskóla Kaliforníu í Fresno. Þá stundaði hún cand.mag.-nám í dramatúrgíu við Ár- ósaháskóla og stundar nú einnig meistaranám í menningar- og menntastjórnun við Við- skiptaháskólann í Bifröst. Ingibjörg var framkvæmdastjóri Hafnarfjarð- arleikhússins og hefur starfað sem aðstoð- arleikstjóri í Þjóðleikhúsinu. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Höfum trausta kaupendur að atvinnuhúsnæði, allt frá 200 fm til 10.000 fm. Sérstök eftirspurn er eftir atvinnuhúsnæði sem er í útleigu. Nánari uppl. veita Sverrir Kristinsson og Óskar Rúnar Harðarson. EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ - STAÐGREIÐSLA Útsala Útsala Haust - vetur 2005 30-80% afsláttur á vönduðum dömufatnaði í Rauðagerði 26 í dag, laugardag, kl. 10-18 Verið velkomin Rauðagerði 26, sími 588 1259 50 ÁRA afmæli. Í dag, 26. nóv-ember, er fimmtugur Guð- mundur Guðmundsson, Vesturbergi 4, Reykjavík. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 26. nóv-ember, er sextug Monika Páls- dóttir, Torfufelli 27, Reykjavík. Hún er að heiman í dag. SÝNING á verkum Bjargar Þor- steinsdóttur myndlistarmanns hef- ur verið opnuð á 1. hæð Grófarhúss, Tryggvagötu 15. Sýningin er sjötta í röð sýninga á verkum listamanna sem eiga listaverk í Artóteki – list- hlöðu í Borgarbókasafni. Björg Þorsteinsdóttir hefur á myndlistarferli sínum fengist við grafík, málverk, teikningu, vatnsliti og collage-verk. Hún sækir sér end- urnýjun og tilbreytingu með því að breyta um tækni. Undanfarið hefur hún einbeitt sér að vatnslitum þar sem yrkisefnið er oft leikur vatns og ljóss; endurteknar hreyfingar, sjónrænar heildir þar sem gagnsæ- ir litir og birta eru í öndvegi. Mynd- irnar eru málaðar beint á pappírinn án nokkurra frumdraga. Á sýning- unni eru 10 vatnslitamyndir. Í Artótekinu er íslensk samtíma- myndlist til leigu eða sölu til ein- staklinga og fyrirtækja. Sýningin stendur til áramóta. Opið er mánudaga kl. 10–21, þriðjudaga–fimmtudaga kl. 10–19, föstudaga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Björg sýnir í Grófarhúsi Gallerí 100° Í dag, laugardag, lýkur sýn- ingu á glerverkum og ljós- myndum eftir Bryndísi Jóns- dóttur myndlistarmann í Gallerí 100°, sýningarsal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Á sýningunni, sem nefnist Blástur, sýnir Bryndís blásin glerverk sem hún hefur unnið í Tékklandi á síðustu tveimur árum. Einnig sýnir hún ljósmyndir af gler- verkum sínum, þar sem hún teflir þeim fram í samhengi við íslenska náttúru. Sýningin er opin í dag frá klukkan 13- 17. Gallerí Fold Sýningu Kolbrár Bragadótt- ur í Baksalnum í Galleríi Fold við Rauðarárstíg lýkur sunnu- daginn 27. nóvember. Sýn- inguna nefnir listakonan Dear Hunter - hjartans veiðimaður. Gallerí Fold er opið laugardag 11-16 og sunnudag 14-16. Sýningum lýkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.