Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 49 UMRÆÐAN Viðskiptavinur hefur falið okkur að útvega sér húsnæði við Smiðjuveg eða í nágrenni hans. Allt að 1.000 m2 húsnæði kemur til greina. Innkeyrsluhurð og góð lofthæð skilyrði. Staðgreiðsla fyrir réttu eignina. Upplýsingar veitir Hákon Jónsson. ATVINNUHÚSNÆÐI VIÐ SMIÐJUVEG OG NÁGRENNI Kíktu í heimsókn til okkar á Drekavöllum 26 í dag, laugardaginn 26. nóvember, frá kl. 13 til 17. Komdu og skoðaðu fallegar og fullbúnar sýningaríbúðir í glæsilegu 9 hæða lyftuhúsi. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri. Sjón er sögu ríkari. Sölumenn Hraunhamars verða á staðnum og veita upplýsingar. Söluaðili: Sími: 520 7500 UMRÆÐA um breytt rekstr- arform í heilbrigðisþjónustu þarf að byggjast á því að bornar séu saman réttar for- sendur mismunandi leiða. Opinberir aðilar; ríki og sveitarfélög hafa haft veg og vanda af heilbrigð- isþjónustu lands- manna síðustu ára- tugi. Þeir hafa notið undanþágu frá ýmiss konar skattheimtu. Stofnanir þeirra eru ekki skattskyldar nema ef þeir selja þjónustu eða vörur í samkeppni við fyr- irtæki. Ennfremur er heilbrigð- isþjónusta ekki virðisaukaskatts- skyld. Opinberir aðilar hafa jafnframt falið sjálfseignarstofnunum og sjóð- um í eigu góðgerðar-, líknar- og stéttarfélaga rekstur í heilbrigð- isþjónustu, m.a. öldrunarþjónustu. Þessir aðilar hafa oft verið nefndir þriðji geirinn þar sem einkenni hans líkist hálfopinberum stofn- unum. Þriðji geirinn nýtur sér- stakra skattfríðinda á þeim grunni að þeir inna af hendi verk til al- menningsheilla, sem ríki eða sveit- arfélög þyrftu ella að sinna. Í vaxandi mæli tekur einkageir- inn nú þátt í rekstri heilbrigð- isþjónustu hérlendis á grundvelli samningsgerðar við hið opinbera. Má þar nefna læknastofur, hjúkr- unarstofur, sjúkraþjálfunarstofur, rannsókna- og myndgreiningaþjón- ustu, hjúkrunarheimili, heilsu- gæslustöðvar o.s.frv. Þessi fyr- irtæki bera sömu skattalegar skyldur og almenn fé- lög. Breytingar á rekstrarformi mynda samkeppnisgrundvöll sem eykur valfrelsi neytenda, eykur að- hald í rekstri og opnar leiðir til nýsköpunar og notkunar hug- kvæmni við uppbygg- ingu heilbrigðisþjón- ustu. Dæmi um hjúkr- unarheimilisrekstur ríkisins (hins opinbera geira) er Sólvangur í Hafnarfirði og Ljósheimar á Sel- fossi. Húsnæðislegur aðbúnaður er þar með því lakasta sem þekkist hérlendis, og því miður virðist sem ríkið haldi fast við að nýbygging hjúkrunarrýmis á Selfossi, sem taka á við heimilismönnum frá Ljósheimum, verði bæði með tví- býlis- og einbýlisrýmum. Sveitarfé- lagið Reykjavíkurborg rekur hjúkr- unarheimilið Droplaugarstaði og vistheimilið Seljahlíð. Reykjavík- urborg hefur stutt við starfsemi þessara heimila með ýmsum stuðn- ingi umfram þau daggjöld sem rík- ið leggur til. Reksturinn er því kostnaðarsamari en daggjöldin segja til um. Við fjölgun hjúkr- unarrýma borgarinnar á Droplaug- arstöðum fyrir nokkrum vikum fylktu forsvarsmenn borgarinnar sér á bak við nýjar hugmyndir um aðbúnað og umönnun. Lágmarks- staðallinn skal vera einbýli á hjúkr- unarheimilum Reykjavíkurborgar. Þriðji geirinn rekur m.a. heimili eins og Hrafnistu, Sunnuhlíð, Skógarbæ og Eir. Sum þeirra eru sjálfseignarstofnanir í eigu sjóða, stéttarfélaga og jafnvel að hluta til sveitarfélaga. Í fæstum tilfellum er til opinber þjónustusamningur við ríkið sem sér heimilunum fyrir tekjum með daggjöldum eða föst- um fjárlögum. Áhuga stéttarfélaga og hagsmunasamtaka að vera aðili að stofnun sjóða um rekstur hjúkr- unarheimilis má rekja til þess að þeir hafa viljað stuðla að almanna- heill en ekki síst heill eigin fé- lagsmanna og tryggja þeim nauð- synlega hjúkrunarþjónustu þegar þörf krefði, enda langvarandi kreppuástand verið í aðgengi að slíkum rýmum, sérstaklega á höf- uðborgarsvæðinu. Þannig hafa stéttarfélög sjómanna, verkafólks, verslunarmanna og bandalag starfsmanna ríkis og bæja lagt til stofnfé og átt fulltrúa í stjórnum hjúkrunarheimila. Nýbyggingar á vegum sjálfseignastofnana hin síð- ari ár hafa miðast við einbýli eða aðstöðu fyrir hjón og öll sameig- inleg aðstaða farið batnandi. Sóltún er rekið af hlutafélaginu Öldungi hf., frá 2002 með þjónustu- samningi við ríkið að undangengnu útboði, svokallað einkaframkvæmd- arverkefni. Nákvæm kröfulýsing er um alla þætti starfseminnar og eft- irlit hins opinbera. Forgang sam- kvæmt þjónustusamningi við heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytið hafa sjúklingar með miklar hjúkr- unarþarfir 67 ára og eldri inniliggj- andi á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi. Fjölmargir hafa áhuga á því að tryggja sér eða sínum aðgang að nauðsynlegri hjúkrunarþjónustu þegar þörf krefur. Það er ekki hægt á Íslandi í dag. Stjórn- málamenn hafa ekki tryggt nægj- anlegt aðgengi. Öflug hagsmuna- félög s.s. stéttarfélög hafa beitt sér fyrir því í tímans rás fyrir hönd sinna félagsmanna og um leið reynt að stuðla að almannaheill en það dugir ekki til. Allur rekstur hefur jafnan verið greiddur af al- mennu skattfé. Jöfnuður á töluvert í land þegar íslensk öldrunarþjón- usta er annars vegar. Fjölgun einkaframkvæmdarverk- efna í heilbrigðisþjónustu hvetur hið opinbera, sjálfeignarstofnanir og einkaaðila til að taka til í eigin rekstri og tryggja jafnt aðgengi. Einkaframkvæmd í hjúkrun- arheimilisrekstri getur hraðað upp- byggingu hjúkrunarheimila, lagt niður biðlista og máð burtu ljótan blett sem passar ekki auðugri þjóð. Ekki þarf að biðla til hagsmuna- félaga varðandi stofnfé. Eldri borg- arar eiga það skilið að ráðamenn sjái þeim sem búa við margvíslega sjúkdómabyrði og eru háðir umönnun annarra allan sólarhring- inn fyrir aðgengi að þjónustu og að þeim séu tryggð sjálfsögð mann- réttindi. Rekstrarform heilbrigðisstofnana Anna Birna Jensdóttir fjallar um breytt rekstrarform í heil- brigðisþjónustu ’Sóltún er rekið afhlutafélaginu Öldungi hf., frá 2002 með þjón- ustusamningi við ríkið að undangengu útboði, svokallað einkafram- kvæmdarverkefni.‘ Anna Birna Jensdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Öldungs hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.