Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 55 MINNINGAR ✝ Björn VignirSæmundsson, framkvæmdastjóri Byggingarfélagsins Klakks í Vík, fædd- ist í Svínadal í Skaftártungu 18. mars 1945. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 14. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sæmund- ur Björnsson, f. 21.2. 1907, d. 2.4. 1999, bóndi í Svína- dal og síðar í Múla í Skaftár- tungu, og Jóhanna Guðmunds- dóttir, f. 22.7. 1918, d. 4.6. 2002, húsfreyja frá Steinsmýri. Systkini Björns eru: Andvana drengur, f. og d. 8.5. 1941, Þórhallur, f. 22.8. 1943, og Oddsteinn, f. 8.11. 1947, Guðmundur Emil, f. 30.4. 1952. Björn kvæntist hinn 15. apríl 1967 Kolbrúnu Matthíasdóttur, f. 8.11. 1948. Foreldrar hennar voru Matthías Einarsson, tré- smíðameistari í Vík, f. 24.5. 1904, d. 3.1. 1999, og Jónína Þórðar- dóttir, húsfreyja og starfsmaður á hóteli KS í Vík, f. 3.6. 1911, d. 24.7. 1999. Börn Björns og Kol- brúnar eru: 1) Matthías Jón Björnsson, f. 20.8. 1967, búsettur í Vík, maki Hafdís Þorvaldsdóttir, f. 2.12. 1968, börn þeirra Kolbrún Magga Matthíasdóttir, f. 9.6. 1984, sambýlismaður hennar Bjarki Már Fjeldsted, f. 2.1. 1984; Þorvaldur Björn Matthíasson, f. 26.2. 1991; Ingibjörg Matthías- dóttir, f. 9.12. 1994; Sæmundur Örn Matthíasson, f. 27.10. 2003. 2) Sæ- mundur Björnsson, f. 7.5. 1972, d. 27.7. 1994, maki Kristín Guðrún Ólafsdóttir, búsett í Reykjavík, f. 5.3. 1973. Barn þeirra Sædís Birna Sæmundsdóttir, f. 27.1. 1995. 3) Ingi Már Björnsson, f. 12.4. 1976, búsettur í Vík, maki Hjördís Rut Jónsdóttir, f. 14.3. 1977. Börn: Harpa Rún Jóhannsdóttir, f. 27.9. 1997; Birgitta Rós Ingadóttir, f. 17.8. 2002. Skólaganga Björns var við barnaskólann í Svínadal. Hann var á vertíð í Grindavík og við brúarvinnu sem unglingur. Fór svo að vinna í Vík árið 1963 í byggingarvinnu og múrverki. Hann hóf svo störf hjá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík árið 1964, fyrst við nýbyggingar á kaup- félagssmiðjum og á skrifstofu fyrirtækisins en síðar á trésmiðju Kaupfélags Skaftfellinga. Var um tíma að vinna sjálfstætt í múr- verki og bílasprautun. Þegar Byggingarfélagið Klakkur var stofnað 1975 hóf Björn að starfa þar og tók svo fljótlega við starfi framkvæmdastjóra þess. Árið 1993 kaupa þau hjón Björn og Kolbrún Byggingarfélagið Klakk og hafa rekið það síðan. Útför Björns verður gerð frá Víkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Elsku afi, okkur systkinin langar að minnast þín hér í örfáum orðum þótt allar góðu minningarnar sem við eigum um þig gætu örugglega fyllt heila bók. Það var svo sárt að sjá þig svona mikið veikan eins og þú varst orðinn síðustu vikurnar. Þótt við vissum að þér gæti ekki batnað héldum við samt alltaf í von- ina um að fá að hafa þig lengur hjá okkur en enginn veit hvenær ævin endar, við höfum reynt það svo oft á undanförnum árum þótt við séum ekki orðin eldri. Í minningum okkar eldri systk- inanna eru ferðirnar inn að Græna- lóni og Kirkjufellsvatni, veiðiferð- irnar í Tungufljótið og helgar- ferðirnar í sumarbústaðnum á árum áður eins og ævintýri. Þú hafðir svo gaman af því að veiða og gladdist svo með okkur þegar við veiddum eitthvað, hvort sem það voru smá- tittir eða eitthvað ætt. Sæmi er svo lítill að hann kemur sennilega ekki til með að muna mikið eftir þér en við hin pössum bara upp á að segja honum frá þér, hann talar um þig á hverjum degi og skoðar af þér myndir, stundum vill hann fá að hringja í þig og skilur ekkert í af hverju það er ekki hægt. Ein af dýrmætustu minningunum okkar er þegar við vorum öll saman í sum- arbústað uppi í Biskupstungum í vor að halda upp á sextugsafmælið þitt, það eru minningar sem koma til með að ylja okkur um hjartaræt- urnar um ókomin ár. Nú ertu kominn til himna, von- andi búinn að hitta Sæma frænda sem dó svo skyndilega í slysi fyrir ellefu árum og þú saknaðir svo sárt. Okkur þykir svo óendanlega vænt um ykkur og söknuðurinn sker okk- ur í hjartað en við erum líka glöð yf- ir að hafa átt ykkur að. Jæja, elsku afi, við biðjum Guð að varðveita þig fyrir okkur og líka að styrkja ömmu sem hefur misst svo mikið. Við vitum að tíminn læknar ekki öll sár, hann mildar þau og deyfir. Er norðurljósin sindra, ljá himnunum draumkenndann blæ, mun minning ykkar beggja tendra í hjarta mér þrá og bæn. Þið voruð mér báðir svo kærir, ég sakna ykkar beggja svo sárt. Við munum svo hittast um síðir, en kveðjumst í bili með ást. Guð varðveiti þig, elsku afi. Þín Kolbrún Magga, Þorvaldur Björn, Ingibjörg og Sæmundur. Elsku afi. Það er ekki svo auðvelt að skilja það þegar einhver deyr, sérstaklega ekki þegar að maður er bara þriggja ára afastelpa og afi er dáinn. Ég er þó svo heppin að Harpa stóra systir mín er dugleg að hjálpa mér við það að skilja þetta allt saman. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að fara til ömmu og afa á Rennibrautina eins og ég orðaði það til þess að dvelja um stund og helst til að gista. Ef það leið of lang- ur tími á milli þessara heimsókna hafði afi oft orð á því hvort að ég ætlaði ekki að fara að koma í heim- sókn. Þá var sko gott að sitja hjá honum afa í afastól og grandskoða í brjóstvasann hans, en þar voru ýmsar gersemar sem gaman var að dunda við að handfjatla og skoða. Afi sagði stundum ef ég var eitt- hvað að ærslast að ég væri óþægð- arskjáta og ef ég var spurð um nafn á tímabili sagði ég sposk Birgitta Rós óþægðarskjáta Ingadóttir. Við mamma og Harpa heimsótt- um þig þegar þú varst á spítalanum og sagði ég frá því á leikskólanum að hann afi væri lasinn og væri á spítala og síðan bætti ég við hróðug: Hann er alveg ofsalega stilltur. Ef ég var spurð hver ætti mig þá tiltók ég mömmu og pabba, Hörpu og líka ömmu og afa, ekki mátti nú gleyma þeim. Það er skrítið að koma á Renni- brautina og hitta engan afa og til- hugsunin um að nú sé amma bara alein er ekki góð. En ég ætla sko að vera dugleg við að passa ömmu og gefa henni knús, því ég elska hana svo mikið. Hún Halla mín kenndi mér lag á leikskólanum sem er í miklu uppáhaldi hjá mér og vil ég, elsku afi, tileinka þér það og syng fyrir þig með minni ljúfu rödd. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar guðs í paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf, og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf, og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð, og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlustið, englar guðs í paradís. (Davíð Stefánsson.) Guð geymi þig, elsku afi minn. Þín (óþægðarskjáta) Birgitta Rós Ingadóttir. Elsku afi Bjössi. Ég skal vera dugleg að hjálpa Birgittu að skilja að þú sért dáinn og fara með henni í kirkjugarðinn með kerti. Ég ætla að kenna henni þessa bæn og er hún til þín: Vertu, Guð faðir, faðir minn í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Guð geymi þig, elsku afi Bjössi. Þín Harpa Rún. Við áttum ljós, er lýsti skært og ljóma brá á okkar reit, og lífið var svo ljúft og vært. Lýsti náðarsólin heit. Minningin um mætan dreng mun um aldur lifa hér. Þó brugðið sé á sterkan streng stendur merkið eftir sér. Við þökkum allt sem okkur varst, ævinlega á höndum barst, aldrei neitt við neglur skarst, nautn og gleði öðrum varst. Guð blessi og gefi frið, Guð þig leið á æðri mið Guð þér lýsi ljós sitt við um lífsins björtu himnasvið. (Valgeir Helgason.) Hvíl í friði, kæri bróðir. Elsku Kolla, synir og fjölskyldur. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Emil og Guðrún. Fegurðin sem blasir við frá Svínadal í Skaftártungu, þegar horft er yfir Eldvatnið og hraunið mikla til austurs, er eitt af furðum veraldarinnar. Þessi sýn á heiminn varð mörgum ungum mönnum hvatning til að láta gott af sér leiða. Þannig urðu þeir Svínadalsbræður til að virkja hina óblíðu náttúru, fólkinu til farsældar. Þeir létu hvorki veður, vatn né vind standa í vegi fyrir framkvæmdavilja ung- menna nýrrar aldar. Það var eitt mesta gæfuspor mitt að lenda aðeins 13 ára í höndunum á Valmundi Björnssyni brúarsmiði frá Svínadal. Hann hafði meiri þekkingu á jökulvötnum en flestir aðrir. Ógleymanlegt var hvernig hann útskýrði að yfirborð vatnsins opinberaði hvar sandbleytu væri von í fljóti. Uppvöxturinn við Eld- vatnið og hraunið var honum það farteski sem ól upp fjölda ungra manna sem fengu nýja sýn á náttúr- una og vatnið og urðu ekki samir síðan. Nú er bróðursonur Valmundar, Björn Vignir Sæmundsson frá Svínadal, allur langt fyrir aldur fram. Hann hafði um langa tíð bar- ist við hinn banvæna sjúkdóm sem herjar á menn, hvort heldur unga sem aldna. Þrátt fyrir það stóð hann keikur við vinnu fram á síð- ustu stund. Björn var sá völundur á smíð sem einkennt hefur ættmenn hans alla, hvort heldur var á tré, járn eða vél- ar. Þeir tóku upp merkið af Bjarna frá Hólmi, byggðu túrbínur úr strandjárni, settu upp rafstöðvar víða um land og komu á sam- göngum á Suðurlandi með ein- stökum brúarframkvæmdum. Eftir að Björn kom til Víkur setti hann á fót byggingarfyrirtækið Klakk ásamt konu sinni, sem þau hafa síðan rekið með sonum sínum af mikilli reisn. Konu Björns, Kol- brúnu Matthíasdóttur, kynntist ég þegar í æsku. Hún er dóttir Jónínu Þórðardóttur frá Hryggjum í Mýr- dal og Matthíasar Einarssonar, hins færa trésmíðameistara af Þórisholt- sætt. Fjölskyldan er samhent, byggði upp öflugt fyrirtæki við erf- iðar aðstæður eins og allt atvinnulíf í Mýrdalnum býr við enn í dag. Með óvenjulegri natni, fórnfýsi og fram- kvæmdavilja tókst að skapa öflugt fyrirtæki á skaftfellskan mæli- kvarða. Fyrirtækið Klakkur stend- ur fyrir uppbyggingu og þjónustu við fólk, fyrirtæki og sveitarfélög um allt Suðurland með miklum ágætum. Björn er öllum mikill harmdauði. Vandvirkni og gæði í verkum hans eru umtöluð um héraðið endanna á milli. Hann lagði sig ávallt fram af lífi og sál um allt sem hann tók sér fyrir hendur. Þannig tók hann mér sem viðskiptavini með óvenjulega vinsamlegum hætti og reyndi eftir mætti að leysa þau vandamál sem við stóðum frammi fyrir af hugsjón frumkvöðulsins, sem vill leggja sig allan fram í þágu fólksins. Mér þótti sárt að vita hann þjást, en dáðist þeim mun meir að því hugrekki sem hann sýndi þegar hann steig upp hvað eftir annaðog hélt ótrauður áfram að sinna þeirri köllun sem hann helgaði sig allan. Björn var glæsimenni. Hann bar með sér einstakan þokka og öllum leið vel í návist hans. Hann var fag- maður í besta skilningi hinnar skaftfellsku hefðar. En Björn var líka andríkur og yfirvegaður maður, með næmt fegurðarskyn og ágætan húmor. Við Anna kveðjum Björn með miklum söknuði. Um leið biðjum við góðan Guð að blessa Kolbrúnu, hennar góðu syni og fjölskyldur þeirra. Veri Björn á Guðs vegum nú sem áður. Baldur Óskarsson. Mér er þungt í sinni er ég sest niður og minnist vinar míns og ná- granna, Björns Vignis Sæmunds- sonar, sem lést hinn 14. nóvember síðastliðinn, langt um aldur fram. Þegar ég hugsa til liðinna sam- verustunda kemur margt upp í hugann en einna hæst ber hversu traustur félagi Björn var, hvort heldur var í leik eða starfi. Betri nágranni held ég að hafi verið vandfundinn, óáreitinn og ávallt tilbúinn að aðstoða ef eitthvað bját- aði á. Ég minnist þess þegar ég var að byggja við húsið mitt og var að tengja saman þakið á nýja part- inum við þann gamla og lenti í aus- andi rigningu. Þá kom Björn með hamarinn sinn, eftir sinn langa vinnudag, og spurði hvort hann gæti nokkuð aðstoðað. Þar er Birni vel lýst. Annars var það með ólík- indum hvað honum lá í augum uppi öll vinnubrögð við byggingar og verklegar framkvæmdir og var hann þó ekki skólagenginn á því sviði. Enda fundu menn fljótt þeg- ar Björn og hans fjölskylda fóru að reka byggingarfyrirtækið Klakk hf. hér í Vík, hversu gott var að leita til Björns varðandi ráðleggingar, útvegun á efni og smíðar. Þá hefur fyrirtækið verið mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið í þessu litla bæj- arfélagi. Björn var sérlega skemmtilegur ferðafélagi og minnist ég margra fjalla- og veiðiferða sem við fórum saman í. Í þeim ferðum var Björn ávallt sá besti að leita til ef eitthvað bjátaði á eða óvænt kom upp á. Eftir 35 ára nágrenni er komið að leiðarlokum og sá tími virðist hafa liðið svo ótrúlega hratt þegar ég minnist þessa góða drengs. Við fjölskyldan á Ránarbraut 11 viljum votta Kolbrúnu, Matthíasi, Inga Má og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Birgir Hinriksson. BJÖRN VIGNIR SÆMUNDSSON ✝ Sigurlaug Mar-grét Eðvarðs- dóttir fæddist á Helgavatni í Vatns- dal 16. ágúst 1914. Hún lést 16. nóvem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Signý Böðvarsdóttir og Eðvarð Hallgríms- son á Helgavatni. Sigurlaug ólst upp í hópi systkina sinna sem voru fimm að tölu: Albert, f. 23. júní 1909, d. 4. júlí 1940, Stef- anía, f. 4. des. 1910, d. 30. ágúst 1985, Hallgrímur, f. 14. mars 1912, d. 18. nóv. 2000, og Að- alheiður, f. 26. ágúst 1920, d. 23. jan. 1987. Sigurlaug stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi í einn vetur. Annars vann hún á búi foreldra sinna þar til hún giftist Jóhannesi Hinrikssyni (f. 21. jan. 1904) árið 1937 en þau hófu búskap að Hólabaki í Þingi en fluttu eftir sex ár til Skaga- strandar og settust að í Háa- gerði. Árið 1947 keyptu þau jörðina Ásholt í Höfðakaupstað þar sem þau bjuggu þar til Jó- hannes lést 27. okt. 1973. Börn þeirra Sigurlaugar og Jóhann- esar eru: 1) Drengur, óskírður, f. 30. nóv. 1939, d. 1. des. sama ár. 2) Eð- varð, f. 2. nóv. 1941, kvæntur Mar- gréti Sigurgeirs- dóttur, f. 23. ágúst 1944, og eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. 3) Helga M., f. 17. nóv. 1943, gift Sveini S. Ingólfssyni, f. 14. ágúst 1941, og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn. 4) Hinrik, f. 15. des. 1952, kvæntur Svövu Svavars- dóttur, f. 14. sept. 1950, og eiga þau tvö börn og þrjú barnabörn. Fljótlega eftir lát Jóhannesar seldi Sigurlaug jörðina og flutti til Reykjavíkur þar sem hún gerðist ráðskona á heimili Helga Daníelssonar. Á sumrin vann hún á ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Um sjötugsaldur keypti Sigurlaug íbúð í Breið- holti í húsi sonar síns og tengda- dóttur þar sem hún bjó í átta ár. Árið 1993 flutti Sigurlaug á Dvalarheimilið Sæborg á Skaga- strönd þar sem hún bjó til dauða- dags. Sigurlaug verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma, þá er þinni vist á þessari jörð lokið og þú er komin til afa, sem lengi hafði verið ósk þín. Ævin var orðin löng og veikindi farin að hrjá þig. Sorg mín er þess vegna ekki eins mikil, heldur er það sökn- uður sem ég ber í hjarta mínu. Ég veit að þú munt fylgjast með mér og vernda líkt og afi hefur lengi gert. Ég á minningarnar og í hjarta ég geymi þig. Kveðja. Jóhannes Bjarni. Langamma. Lengi lifði gamla sú sem syrgjum við hér og nú, allir elskuðu voða heitt, en var hún orðin allt of þreytt. Heimabærinn Skagaströnd hélt alltaf tryggðarbönd. Jóhannes elskaði út í eitt og börnum sínum afar heitt. En farinn er hún nú til Guðs okkar trú. Vaki hún yfir oss dag og nótt þar til við verðum líka sótt. Una Hildardóttir. SIGURLAUG EÐVARÐSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.