Morgunblaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 26
Kópasker | Leikskólinn Kríla-
kot á Kópaskeri er tuttugu ára
um þessar mundir. Af því til-
efni var haft opið hús og heitt
á könnunni í báðum deild-
unum, á Kópaskeri og í Lundi.
Í upphafi voru það foreldrar
barna á leikskólaaldri sem
stóðu fyrir rekstrinum en
seinna sveitarfélagið eins og
vera ber. 21 barn er í vistun á
Krílakoti. Elisabeth Hauge er
leikskólastjóri og Guðrún
Margrét Einarsdóttir deild-
arstjóri í Lundi.
Margir litu inn í heimsókn á
báðum stöðum, þannig skrif-
uðu 85 manns í gestabók á
Kópaskeri og bárust leikskól-
anum ýmsar góðar gjafir á
þessum tímamótum.
Þessir krakkar fengu sér
köku í tilefni dagsins, frá
vinstri Davíð Bjarmi, Röskva
Lilja, Erna Rún, Jón Alexand-
er, Ívar Smári og Bergþór
Logi.
Morgunblaðið/Kristbjörg Sigurðardóttir
Fagna afmæli Krílakots
Afmæliskaka
Akureyri | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Aðstandendum rækjuvefjarins bárust
þau gleðitíðindi í síðustu viku að vefurinn
væri í hópi þeirra 100 vefja sem eru í úr-
slitum í Evrópusamkeppninni Elearning
Awards, en þar er verðlaunað framúrskar-
andi námsefni á netinu. Þau verkefni hafa
verið valin úr hópi þeirra 800 vefverkefna
sem tilnefnd voru. Úrslitin verða kunn-
gjörðí París þann 8. desember nk. Krakk-
ar í Grunnskólanum á Hólmavík gerðu
vefinn undir leiðsögn kennara síns, Krist-
ínar S. Einarsdóttur. Rækjuvefurinn hef-
ur þegar unnið í samkeppni á vegum sjáv-
arútvegs- og menntamálaráðaneytanna
fyrr í haust.
Það var mikill handagangur í öskjunni
þegar fréttaritari leit við í félagsstarfi
eldri borgara í vikunni, sautján konur önn-
um kafnar við föndur. Eldri borgarar hitt-
ast vikulega í félagsheimilinu og föndra
undir leiðsögn þeirra Esterar Sigfúsdótt-
ur og Ingibjargar Sigurðardóttur. Það er
nokkrum tískusveiflum háð hvaða föndur
er vinsælast og svo var að sjá sem lampar
og seríur nytu mikilla vinsælda um þessar
mundir. Það var líka greinilegt að jóla-
stemmning var kominn í hópinn. Verið var
að setja saman jólatré úr herðatrjám, búa
til þrívíddarmyndir inn í jólakúlur, mála á
keramik og fleira.
Undanfarnar vikur hafa þau Ester Sig-
fúsdóttir bókavörður Héraðsbókasafns
Strandasýslu og Jón Jónsson unnið að
skráningu safnsins í landskerfi bókasafna.
Landskerfið er aðgengilegt á netinu á
slóðinni gegnir.is og þar er þegar hægt að
fletta upp þeim bókum sem til eru í safn-
inu og búið er að skrá inn. Skráning geng-
ur ágætlega þó erfitt sé að meta hve stór-
an hluta safnsins er búið að skrá. Búið er
að skrá fræðibækur, byggðasögurit, ljóð
og leikrit, ævisögur og íslenskar skáldsög-
ur. Einnig allar nýjar bækur sem hafa
borist með jólabókaflóðinu, entöluvert
komið af þeim í safnið og þegar farið að
lána þær út. Allar bækur sem fólk tekur að
láni eru skráðar í nýja kerfið jafnóðum og
útlán í gamla kerfinu heyra því sögunni til.
Úr
bæjarlífinu
HÓLMAVÍK
EFTIR KRISTÍNU EINARSDÓTTUR
Það var gríðarlegur fnykur semgaus upp þegar kassi sem í varbeinagrind af náhval var opnaður
við Hvalasafnið á Húsavík. Hvalurinn
sem er gjöf til safnsins frá vinabæ Húsa-
víkur á Grænlandi, Qeqertarsuaq eða
Godthaab, veiddist við Grænland í febr-
úar á þessu ári.
Ásbjörn Björgvinsson forstöðumaður
Hvalasafnsins sagði kassann með beina-
grindinni hafa komið til landsins í maí sl.
og það hefði tekið sinn tíma að fá hann
afgreiddan í gegnum kerfið. Síðan kom
hann norður og hefur beinagrindin ver-
ið látin kæsast þar til kassinn var opn-
aður.
Þorvaldur Björnsson, starfsmaður
Náttúrufræðistofnunar Íslands, var
mættur til Húsavíkur en hann hefur sett
upp allar þær tíu hvalabeinagrindur sem
prýða safnið í dag. Þeir félagar, Ásbjörn
og Þorvaldur, tóku strax til við að þrífa
beinagrindina en langan tíma tekur að
hreinsa hana áður en hægt verður að
setja hana upp í safninu.
Ásbjörn sem að vonum var ánægður
með þessa gjöf Grænlendinganna segir
náhval teljast til flækingshvala við Ís-
land en óhætt er að segja að sérstaða
hans sé hin langa og mikla tönn sem
karldýrið er með og getur orðið allt að
2,7 metrar að lengd. Beinagrind Hvala-
safnsins er um 6 metra löng og tönnin
reyndist vera 2,19 metrar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Náhvalstönn Ásbjörn Björgvinsson
nýtur aðstoðar Gunnars Bóassonar við
að mæla tönn náhvalsins en hún reynd-
ist vera 2,19 metrar að lengd.
Beinagrind af
náhval send frá
Grænlandi Nú líður að helgi.Það gefur PétriStefánssyni til-
efni til að yrkja:
Komin er helgi, hefst nú fjör,
hellum í glös og skálum.
Holdið er til og andinn ör,
allt er í góðum málum.
Friðrik Steingrímsson
sér fyrir afleiðingarnar:
Eftir helgar bras og baks
borið við svo getur
að á morgni mánudags
muni þunnur Pétur.
Kristján Bersi Ólafsson
hlustaði í útvarpi á nýja
fréttastöð og heyrði þar
sagt að með henni væri
gamli sveitasíminn end-
urvakinn á landsvísu.
Kristján orti:
Nú er ég aftur að komast í takt
við tímann
og tel það afrek fjölmiðlunga
snjallra
að endurvekja gamla
sveitasímann
á sjónvarpsstöð sem kitlar
hlustir allra.
Líður að
helgi
pebl@mbl.is
Arnkötludalur | Vegagerðin hefur kært
úrskurð Skipulagsstofnunar um umhverf-
ismat Arnkötludalsvegar og fer fram á að
ákveðnum framkvæmdaskilyrðum verði
aflétt, að því er kemur fram á vef Leiðar
ehf.
Meðal þeirra skilyrða sem sett voru
fram var að framkvæmdaaðili þurfi að
tryggja að á varptíma, það er frá maílokum
og fram undir ágústlok, standi ekki yfir
framkvæmdir á svæðinu á Hrófá í Von-
arholti í Arnkötludal og við Foss í Gauts-
dal. Einnig var sett skilyrði um að ekki
megi berast grugg í fiskgenga læki og ár á
tímabilinu 15. júní til 30. september. Úr-
skurðinn mátti kæra til umhverfisráðherra
til 14. október, en ekki bárust kærur frá
fleirum en Vegagerðinni, sem bendir á í
kæru sinni að skilyrði sem þessi séu mjög
íþyngjandi fyrir framkvæmdaaðila, ekki
síst í ljósi þess að aðalframkvæmdatíminn
er á sumrin.
Þá segir á vef Leiðar að félagið hafi feng-
ið upplýsingar hjá Vegagerðinni um að
frumdrög vegarins væru nú til skoðunar.
Að mati sérfræðinga Rannsóknastofnunar
Háskólans á Akureyri er arðsemi fyrirhug-
aðs vegar um Arnkötludal 14,5% en algeng
ávöxtunarkrafa við vegaframkvæmdir á
Íslandi er um 5-6%. Þetta kemur fram í
skýrslunni Samanburður vegtenginga á
Vestfjörðum sem stofnunin vann fyrir
sveitarfélögin í Barðastrandarsýslu.
Samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum hefur umhverfisráðherra tvo mán-
uði til að úrskurða í kærumálinu eða til 15.
desember næstkomandi.
Vegagerðin
kærir
úrskurð
Þingeyjarsýslur | Samstarfsnefnd um
sameiningu sveitarfélaganna Húsavíkur-
bæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðar-
hrepps og Raufarhafnarhrepps ákvað á
fundi sínum í vikunni að kjördagur yrði 21.
janúar 2006. Atkvæðagreiðsla utan kjör-
staða hefst á mánudag, 28. nóvember, átta
vikum fyrir kjördag.
Þetta eru þriðju sameiningarkosning-
arnar á svæðinu á fáum mánuðum, en tví-
vegis hefur sameining sjö sveitarfélaga í
þingeyjarsýslum verið felld.
Kristján Halldórsson, Öxarfjarðar-
hreppi, er formaður samstarfsnefndar.
Kjósa
í janúar
♦♦♦