Morgunblaðið - 26.11.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 11
FRÉTTIR
ADELINE Keil er franskur ljós-
myndari sem er stödd hérlendis til
að vinna að verkefni sínu um þróun
kvenlíkamans. Verkefni hennar hef-
ur vakið ómælda athygli þar sem um
er að ræða ljósmyndir sem teknar
eru af nöktum kvenlíkömum í sund-
laugum Reykjavíkur. Fyrir stuttu
birtist grein um verkefni Adeline í
DV þar sem auglýsing hennar úr
Vesturbæjarlauginni er birt. Vakin
er athygli á því í greininni að list-
formið sé óvanalegt fyrir listamenn á
Íslandi og er greinin myndskreytt
með myndum úr safni þeirra DV-
manna.
Í samtali við Morgunblaðið segist
Adeline vera ósátt við að auglýsing
hennar hafi verið birt í DV án henn-
ar samþykkis.
„Verkefnið mitt miðar að því að
fylgjast með þróun mannslíkamans
frá unglinsárum og fram á efri ár.
Ég hafði þegar fundið nokkrar kon-
ur á aldrinum 15 til 25 ára en vantaði
fyrirsætur á aldrinum 30–99 ára og
ákvað því að hengja upp auglýsingu í
Vesturbæjarlauginni. Þetta getur
verið viðkvæmt málefni, í Frakk-
landi eru konur til dæmis mjög
ósáttar við eigin líkama en ég heill-
aðist af sundmenningunni sem þið
hafið hér á Íslandi. Hér hittast konur
á öllum aldri, af öllum stærðum og
gerðum saman í sundi og það þykir
ekkert tiltökumál. Það virðist ekki
vera almenn feimni og óánægja hjá
konum vegna líkama síns. En vegna
viðkvæmninnar og nálgunarinnar
við fyrirsæturnar þá var það með
ráði gert að birta ekki auglýsingar á
síðum dagblaðanna. Greinin í DV
hefur frekar valdið mér vandræðum
en annað, þar sem hún kom ekki til-
gangi verkefnisins rétt til skila og
myndirnar sem með henni birtust
eiga ekkert sameiginlegt með mín-
um myndum,“ segir Adeline. Hún
segist hafa fengið óskemmtileg sím-
töl í kjölfar greinarinnar og að engin
hafi fengist til að sitja fyrir vegna
misskilnings um að hér væru óeðli-
legar eða klámfengnar myndir á
ferð.
Mikilvægt að
fyrirsæturnar séu sáttar
„Í rauninni er tilgangurinn að
sýna eðlilega þróun kvenlíkamans og
eru ljósmyndirnar teknar í venju-
legu umhverfi, þær eru ekki upp-
stilltar heldur lýsa andrúmsloftinu
þegar konur hittast á leið ofan í laug-
ina. Ætlun mín er að koma til Íslands
aftur í janúar og hitta fyrirsæturnar
til þess að sýna þeim afraksturinn og
fá samþykki þeirra til að sýna mynd-
irnar á ljósmyndasýningu í Frakk-
landi í apríl. Það er mjög mikilvægt
fyrir mig að fyrirsæturnar séu sátt-
ar. Engar myndir verða sýndar
nema með þeirra samþykki.“
Adeline er á þrítugsaldri en hefur
þegar unnið til nokkurra verðlauna.
Hún fékk meðal annars hæstu ein-
kunn í ljósmyndun þegar hún út-
skrifaðist úr virta listaháskólanum
„École Nationale Supérieure de la
Photographie d’Arles“ og vann evr-
ópsk ljósmyndaverðlaun árið 2004
fyrir myndaþátt um daglegt líf á
Balkanskaga. Verkefnið sem hún
vinnur hér á landi er styrkt af lista-
safninu „ L’Ardi – Photographie en
Basse-Normandie“ þar sem sýningin
verður sett upp næsta vor. Adeline
er sjálfstæður ljósmyndari en hefur
meðal annars unnið verkefni á veg-
um virtra dagblaða eins og Le
Monde og Courrier International.
Kannar grundvöll fyrir
kæru á hendur DV
Í samtali við fréttastjóra DV, Ósk-
ar Þorvaldsson, fengust þau svör að
engu hefði verið logið í greininni, að
um væri að ræða nektarmyndir og
að ekki hefði náðst í Adeline í tæka
tíð til að fá myndir frá henni. Því
hefðu verið notaðar myndir úr þeirra
eigin ljósmyndasafni.
Adeline segir að mestu skipti fyrir
hana að einbeita sér að verkefninu
þá daga sem hún eigi eftir á Íslandi
og enn eigi hún eftir að finna nokkr-
ar fyrirsætur. „Ég geri þó ráð fyrir
því að tala við lögfræðing minn þeg-
ar ég kem aftur til Frakklands til að
athuga hvort það sé grundvöllur fyr-
ir því að kæra DV. Mér finnst ekki
rétt að greinin sé unnin upp úr aug-
lýsingu minni sem var birt án míns
samþykkis og hefur umfjöllunin
skaðað ímynd mína sem faglegs ljós-
myndara á Íslandi þar sem óbeint
var gefið í skyn að myndirnar sem
fylgdu greininni væru eftir mig. Hún
hefur haft neikvæð áhrif á verkefnið
en ég undirbjó mig í tæpt ár áður en
ég kom hingað til þess að koma í veg
fyrir misskilning. Ég bjóst hins veg-
ar ekki við svona útreið. “
Áhugasömum er bent á heimasíðu
Adeline þar sem sjá má verk hennar
og feril: www.adelinekeil.com.
Franskur ljósmyndari myndar íslenskar konur
Kvenlíkaminn í sinni
eðlilegustu mynd
Eftir Söru Kolka
Sara@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Franski ljósmyndarinn Adeline
Keil myndar íslenskar konur.
TILVIKUM þar sem ungir ökumenn
eiga aðild að umferðarslysum hefur
fækkað mjög mikið á undanförnum
árum samkvæmt athugun Umferðar-
stofu. Ungum ökumönnum í slysum
hefur fækkað um 12% frá 1999–2004
á meðan heildarfjöldi ökumanna sem
eiga aðild að slysum hefur aukist um
8,3%.
Meðal annars er um að ræða 17–18
ára stráka en hlutdeild þeirra í slys-
um hefur lækkað um 26,8% frá 1999–
2004 með tilliti til heildarfjölgunar
ökumanna og kynjamunar. Hlutur
kvenna á sama aldri helst hins vegar
óbreyttur. Svipaða þróun má sjá þeg-
ar ökumenn sem fengið hafa refsi-
punkta í ökuferilsskrá eru greindir
eftir aldri og kyni. Heildarfækkun til-
vika 17–18 ára ökumanna 2000–2004
nemur rúmum 25%, þar af eru karlar
29,3% og konur 11,4%. Þessar upp-
lýsingar voru kynntar á málþingi
Umferðarstofu, Ungir ökumenn,
þann 23. nóvember sl. Þar kom fram
að þótt ökumenn í aldursflokknum
17–18 ára hefðu bætt sig verulega í
umferðinni teljist þeir enn í áhættu-
hópi. Eru þeir í 2 til 2,5 sinnum meiri
hættu en ökumenn á miðjum aldri.
Kannanir hafa sýnt að áróður og aug-
lýsingar Umferðarstofu og trygg-
ingafélaga sem beint er að ungum
ökumönnum hafa vakið þá til um-
hugsunar um ábyrgð sína í umferð-
inni og eflt vitund þeirra um hættur.
Einnig kom fram að eldri ökumenn
eru í áhættuhópi, einkum eldri kon-
ur. Í máli Sigurðar Helgasonar, verk-
efnisstjóra hjá Umferðarstofu, komu
fram vangaveltur um hvort ekki
þyrfti að taka tillit til viðhorfa öku-
nema og andlegs þroska við ákvörð-
un um hvort þeir væru hæfir til að
öðlast ökuréttindi.
Ungir ökumenn að taka sig á
ATHUGIÐ!
BREYTTUR OPNUNARTÍMI
LAUGARDAGUR 11-18
SUNNUDAGUR 14-18
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 • Í I
NÝJA
R VÖ
RUR
Laugavegi 42 • sími 551 8448
Gullsmiðja
Hansínu Jens
Skart smíðað af Hansínu
og Jens Guðjónssyni
N
æ
st
LEYNDARMÁL
AFHJÚPAÐ!
Hér varpa einstakar frásagnir Kanadamanna
og Íslendinga nýju ljósi á björgunar- og
hermálasögu Íslands með lýsingu á einum
örlagaríkasta atburði stríðsins hér á landi.
Fjallað er um aðferðir sem gera konum
kleift að grennast og gjörbreyta líkamlegu
ásigkomulagi sínu. Pamela útskýrir hvernig
jafnvægið milli æfinga og næringar
skiptir mestu. Á öllum aldri.
EIN ALLRA STÆRSTA BJÖRGUN ÍSLANDSSÖGUNNAR
Sími 562 2600
KONU
BÓKIN
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar
hafa verið metsölubækur í áraraðir.
Lítil hersveit undir stjórn Einars Sigurðssonar
bjargaði hátt í tvö sjóliðum eftir að kanadíski tundur-
spillirinn Skeena, strandaði við Viðey 25. október 1944.
METSÖLU-LÍFSSTÍLSBÓK SNIÐIN AÐ ÞÖRFUM KVENNA
Dr. Pamela Peeke lagaði aðferðirnar
í Líkami fyrir lífið algjörlega að konum.
Jarrahúsgögnin
frá Suður-Afríku
eru safngripir.
Borð í öllum
stærðum, stólar
og margt fleira.
Sérsmíði og pantanir.
EINSTÖK
HÚSGÖGN
MEÐ HEILLANDI
SÖGU