Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 26.11.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 29 MINNSTAÐUR LANDIÐ Landsveit | „Ég er að gera mér þetta til dundurs. Hef verið að því í fimm ár og gengur rólega enda geri ég ekki meira en peningarnir hrökkva til á hverju ári,“ segir Sveinn Sigur- jónsson á Galtalæk II í Landsveit en hann og fjölskylda hans eru að útbúa nýtt stöðuvatn í svokölluðum Lónum í nágrenni Galtalækjar. Í framtíðinni á þetta að verða veiðivatn og útivist- arparadís, með gróðri og fuglalífi. Sveinn segir að í Lónum hafi verið tjarnir í upphafi síðustu aldar sem hurfu 1912 þegar sprunga myndaðist í jarðskjálftum. Hann segir að botn sprungunnar hafi þést á þremur ár- um og eftir það hafi önnur kvísl Galtalækjar runnið þar um, þó þann- ig að í þurrum árum hafi farvegurinn þornað upp. „Við erum að end- urheimta þessar tjarnir,“ segir Sveinn. Veiðivatn og útivistarparadís Vatnið sem hann er að útbúa verð- ur 7,5 til 8 hektarar að stærð. Hann og fjölskyldan hefur mokað upp 13 þúsund rúmmetrum af lausu efni og hann telur að eftir sé að moka upp um 5 þúsund rúmmetrum til viðbótar til að ná öllu vatninu niður fyrir einn metra að dýpt sem hann telur nauð- synlegt til að það botnfrjósi ekki í hörðum vetrum. Í haust óku þau 600 rúmmetrum af hrauni í varnargarða. Úti á vatninu verða fimm eyjar og í vatninu verða víkur og vogar. „Við gerum eyjarnar til að fá fjölbreyttara fuglalíf og gera þetta fallegra. Jafn- framt er unnið að því að klæða það skógi. Ég er viss um að svæðið verð- ur fallegt, þegar það nær að gróa upp,“ segir Sveinn. Litlum hluta af Galtalæknum verð- ur veitt í vatnið þegar búið verður að gera það nógu djúpt. „Það þarf að hleypa vatninu á hægt og rólega, þannig að slím myndist og botninn þéttist. Ætli það taki ekki þrjú til fimm ár. Þá verður meira vatni veitt inn og síðan aftur út í lækinn.“ Hugmyndin með þessari fram- kvæmd er að gera veiðivatn og úti- vistaraðstöðu enda er ætlun Sveins að hafa tekjur af aðstöðunni í fram- tíðinni. Hann vonast til að hægt verði að sleppa stórum seiðum og að þau nái að vaxa þannig að ekki þurfi að sleppa silungi í veiðanlegri stærð. Það dragi mikið úr kostnaði. Þá von- ast hann til að náttúruleg framleiðsla á seiðum í vatninu muni smám saman taka við af sleppingum. Loks má nefna að hugmyndin er að vera með báta við vatnið. Skapar það útivist- armöguleika fyrir gesti í ferðaþjón- ustunni sem fjölskyldan er að koma upp á Galtalæk. Hitastig Ytri-Rangár hækkar Vatnið í Galtalæk og Ytri-Rangá er kalt. Vonast Sveinn til að þegar lækurinn fer að renna í gegn um vatnið muni hitastig hans hækka úr um 10 gráðum og upp í 14 og jafnvel að hitastig Ytri-Rangár hækki um eina gráðu. Það segir að hann muni hafa góð áhrif á lífríkið í læknum og ánni, auka möguleika á náttúrulegu klaki og sérstaklega auka veiðanleika fisksins. Hann vísar í reynsluna af sleppit- jörninni Tangavatni sem hann útbjó á sínum tíma og Galtalækur rennur úr. Með tilkomu hennar hækkaði hitastig lækjarins úr 7 gráðum í 10 gráður að meðaltali. Þrjóskast við að ljúka verkinu Sveinn vann við fiskeldisstöð í mörg ár en hefur orðið að hætta vinnu vegna veikinda sem leiddu til örorku. „Ég var byrjaður á þessu verkefni og er að þrjóskast við að ljúka því. Það kvelur mann að horfa á eitthvað sem maður er byrjaður á en getur kannski ekki lokið,“ segir Sveinn þegar hann er spurður að því hvað drífi hann áfram við þessar framkvæmdir. Hann segir að vissu- lega taki allt lengri tíma en hjá full- frískum mönnum, það taki hann kannski tvö til þrjú ár að vinna verk sem aðrir ljúki á ári. „Ef ég lýk fram- kvæmdum á næsta ári verður svæðið tilbúið á svipuðum tíma og búið verð- ur að laga mesta sandfokið við Galta- læk. Með landgræðsluskógum og fyrirhuguðum Hekluskógum hverfur mesta fokið í lækinn og þetta allt mun gjörbreyta svæðinu,“ segir Sveinn. Hann segist líta svo á að hann sé að hjálpa náttúrunni en ekki grípa fram fyrir hendurnar á henni. Vissu- lega felist í framkvæmdinni töluverð- ar breytingar á landi en að hluta til sé verið að endurheimta landgæði sem áður voru. Svo geti nýir jarðskjálftar tæmt vatnið á einni nóttu en náttúr- an jafni sig aftur. „Ég sé ekkert ljótt við þetta, ekki frekar en við land- græðslu og skógrækt sem eru tæki til að aðstoða náttúruna við að vinna sitt verk,“ segir Sveinn Sigurjónsson. Nýtt átta hektara veiðivatn í landi Galtalækjar gæti hækkað hitastig Galtalækjar og Ytri-Rangár Er að hjálpa náttúrunni við að vinna sitt verk Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Lónin Sveinn Sigurjónsson við framkvæmdasvæðið hjá Galtalæk. Jarðframkvæmdum gæti lokið á næsta ári. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is NÝTT MEISTARAVERK- LEXUS IS 250 The pursuit of perfection Nýr Lexus IS 250 er lúxusbíll sem vekur aðdáun vandlátra sérfræð- inga og bílunnenda um allan heim. Nýr Lexus IS 250 er algjört eðaltæki, einstök listasmíði þar sem háþróuð tækni, þægindi og öryggi eru í öndvegi. Hann bíður þeirra sem gera kröfur um framúrskarandi gæði. Verð frá 3.800.000 kr. Nýbýlavegur 6 • 200 Kópavogur • 570 5400 • www.lexus.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 30 32 3 11 /2 00 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.