Morgunblaðið - 26.11.2005, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 63
KIRKJUSTARF
við kertaljós. Að samkomunni lok-
inni verður boðið upp á heitt
súkkulaði og smákökur sem seldar
verða til styrktar Hjálparstarfi
kirkjunnar. Einnig munu ferming-
arbörn selja friðarkerti Hjálp-
arstarfsins.
Aðventusamkomurnar hafa
löngum verið miklar hátíðarstundir
í safnaðarlífinu og mörgum til gleði
og uppbyggingar við upphaf und-
irbúnings jóla. Vona ég að svo verði
einnig í ár. Vil ég því nota þetta
tækifæri til að hvetja sóknarbúa og
aðra þá sem áhuga hafa til að fjöl-
menna við þessa athöfn og hefja
þannig jólaundirbúninginn með
góðri stund í húsi Drottins.
Sr. Gísli Jónasson.
Frú Vigdís
Finnbogadóttir
ræðumaður í
Seltjarnarneskirkju
Á FYRSTA sunnudegi í aðventu
fyllist Seltjarneskirkja ætíð af bæj-
arbúum á öllum aldri til að fagna
upphafi jólamánaðarins.Þegar
kirkjugestir hafa kveikt á jólakerti
sínu má sjá barnið endurspeglast í
augum hvers og eins, en aðventan
merkir, „koma, konungurinn kem-
ur“. Aðventan beinir sjónum okkar
kristinna manna að fæðingarhátíð
Jesúbarnsins.
Aðventukvöld í Seltjarnar-
neskirkju verður á sunnudag kl. 20
og verður vel vandað til dagskrár.
Jólahugvekju flytur Frú Vigdís
Finnbogadóttir fyrrverandi forseti
Íslands. Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju flytur Magnificat í D-dúr
eftir J. S. Bach ásamt strengjasveit.
Konsertmeistari er Zbigniew Du-
bik. Stjórnandi er Viera Manasek.
Barnakór Seltjarnarneskirkju
syngur jólalög undir stjórn Vieru
Manasek. Organisti er Pavel Mana-
sek. Eftir hátíðlega stund er gest-
um boðið inn í safnaðarheimili
kirkjunnar í kaffi og konfekt. Allir
velkomnir.
Starfsfólk og sóknarnefnd
Seltjarnarneskirkju.
Æðruleysismessa
í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði
ÆÐRULEYSISMESSA verður í
Fríkirkjunni í Hafnarfirði annað
kvöld kl. 20.
Æðruleysismessur eru haldnar
mánaðarlega í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði en þær hafa jafnan verið vel
sóttar. Í æðruleysismessum eru
sporin 12 lesin og flutt persónuleg
hugleiðing frá einstaklingi sem
unnið hefur með sporin 12. Prestar
Fríkirkjunnar hafa leitt helgihaldið
og hljómsveit kirkjunnar séð og
hressilega tónlist. Að lokinni messu
verður boðið upp á kaffi í safn-
aðarheiminu.
Aðventu fagnað í
Hafnarfjarðarkirkju
UPPHAFI aðventu verður vel fagn-
að í messu kl. 11.00 í Hafnarfjarð-
arkirkju á sunnudaginn kemur 27.
nóvember.
Sr. Gunnþór Þ. Ingason, sókn-
arprestur messar og Gunnlaugur
Sveinsson gjaldkeri sóknarnefndar
les ritningarorð. Kveikt verður á
spámannskerti aðventukrans og
vandað vel til tónlistarflutnings:
Antonía Hevesi leikur á orgel. Og
kirkjukórinn flytur auk sálma valin
kórverk. Unglingakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Helgu Lofts-
dóttur við undirleik Önnu Magn-
úsdóttur. Sigtryggur Óskar Hrafn-
kelsson nemandi í píanóleik við
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leik-
ur As-dúr impromtu eftir Fr. Schu-
bert, en langt komnir nemendur
Tónlistarskólans munu koma fram
á næstunni í Guðsþjónustum og
helgistundum í kirkjunni
Aðventan í
Laugarneskirkju
Í FYRSTU viku aðventu gerist
fernt mikilvægt í Laugarneskirkju:
Fyrst er aðventukvöld safnaðar-
ins á sunnudag kl. 20. Kór Laug-
arneskirkju syngur, undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar. Börn úr
Laugarnesskóla og Melaskóla
koma fram ásamt bjöllukór Tón-
stofu Valgerðar. Einsöng syngur
Þorvaldur Þorvaldsson, Benedikt
Brynleifsson leikur á slagverk og
Árni Scheving á víbrafón. Ferming-
arbörn flytja bænir og Björg Árna-
dóttir forstöðumaður Námsflokka
Reykjavíkur flytur ræðu kvöldsins.
Þriðjudagskvöldið 29. nóvember
er kvöldsöngur kl. 20 og í beinu
framhaldi kl. 20.30 mun heimspek-
ingurinn og mannvinurinn Gunnar
Hersveinn Sigursteinsson fjalla um
nýútkomna bók sína Gæfuspor.
Fimmtudaginn 1. desember kl.
14 mun presturinn og baráttu-
konan Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
ásamt Eddu Andrésdóttur rithöf-
undi og fréttakonu, kynna nýút-
komna metsölubók á jólafundi eldri
borgara. Ungt efnisfólk frá Tón-
skóla Sigursveins flytur tónlist.
Fimmtudagskvöldið 1. desember
kl. 20 mun söngkonan og trúkonan
Erna Blöndal halda tónleika sem
hún nefnir Sorgin og jólin. Þar flyt-
ur hún ýmsa sálma og lög sem orð-
ið hafa henni til styrktar við ást-
vinamissi. Eiginmaður hennar, Örn
Arnarson, leikur á gítar, Jón
Rafnsson leikur á bassa og Gunnar
Gunnarsson á píanó. Að tónleikum
loknum er boðið upp á kleinur og
kaffi í safnaðarheimilinu þar sem
Bjarni Karlsson sóknarprestur
fjallar um sorgina og stýrir um-
ræðum. Gefinn verður kostur á
þátttöku í nýjum sorgarhópi sem
kemur saman tvisvar fyrir jól og
tvisvar eftir jól.
Íslenski þjóðbúning-
urinn í Garðakirkju
FYRSTI sunnudagur í aðventu er
hinn formlegi upphafsdagur jóla-
undirbúnings og jólahalds á Ís-
landi. Hefðir jólahalds eru sterkar í
landinu. Nú hafa konur í kvenfélagi
Garðasóknar ákveðið að ítreka
hina íslensku hefð og ætla sér að
mæta í íslenskum þjóðbúningi til
guðsþjónustu í Garðakirkju á
sunnudag. „Það er gott að fá
ánægjulegt tilefni til að klæðast
hinum fallega íslenska þjóðbún-
ingi,“ sagði ein úr hópnum, sem
ætlar að mæta. Dagmar Sigurð-
ardóttir, formaður kvenfélagsins,
segir að þær kvenfélagskonur geri
sér vonir um að konur í sókninni
muni almennt nota þetta tækifæri
til þess að skarta íslenska bún-
ingnum. Lilja Hallgrímsdóttir
djákni mun predika, en konur ann-
ast ritningarlestra og tendra ljós á
aðventukertum. Rútubíll mun fara
um hverfið frá Vídalínskirkju kl.
13:30 og um Hleinar ca 13:40 og
þaðan til kirkjunnar.
Prestarnir.
Kópavogskirkja
- Aðventusamvera
HIN árlega aðventusamvera Kópa-
vogskirkju verður sunnudaginn 27.
nóvember kl. 17, fyrsta sunnudag í
jólaföstu. Að venju verður efnis-
skráin fjölbreytt og lögð verður
áhersla á helgi og nærandi sam-
veru. Kór Kópavoskirkju syngur
aðventu- og jólalög og leiðir al-
mennan söng undir stjórn Sigrúnar
Steingrímsdóttur organista.
Hertha W. Jónsdóttir flytur aðvent-
uræðu. Linda Brá Hafsteinsdóttir
les jólasögu og Guðrún S. Birg-
isdóttir leikur á flautu. Barnakór
úr Kársnesskóla syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Sr.
Ægir Fr. Sigurgeirsson annast
ritningarlestur, bæn og blessun.
Samverunni lýkur með almennum
söng og samleik á orgel og flautu.
Allir velkomnir.
Upphaf aðventu í
Hallgrímskirkju
Í DAG, laugardaginn 26. nóv. kl.
17, verður opnuð sýning í fork-
irkjunni á verkum Kristínar Gunn-
laugsdóttur og Margrétar Jóns-
dóttur og kl. 18 verður aðventan
hringd inn með klukkum Hall-
grímskirkju.
Á fyrsta sunnudegi í aðventu 27.
nóv. hefst dagskráin á Fræðslu-
morgni kl. 10, en þar ræðir dr. juris
Herdís Þorgeirsdóttir um „Frelsi
og ábyrgð fjölmiðla.“ Kl. 11 hefst
hátíðarmessa. Messan er tileinkuð
aðventuboðskapnum og söfnun
Hjálparstarfs kirkjunnar sem hefst
um allt land nú um helgina. Biskup
Íslands Karl Sigurbjörnsson pré-
dikar en með honum þjóna fyrir
altari prestar og djákni Hallgríms-
kirkju ásamt messuþjónum. Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Drengjakór Reykjavíkur í Hall-
grímskirkju, Barnakór Austurbæj-
arskóla og Hallgrímskirkju og
Unglingakór Hallgrímskirkju
syngja undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar. Organisti verður
Björn Steinar Sólbergsson.
Kl. 14 verður ensk messa í umsjá
sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar og sr.
Jóns Hagbarðs Knútssonar. Org-
anisti: Lára Bryndís Eggertsdóttir
og forsöngvari Jónína Guðrún
Kristinsdóttir.
Tónlistarhátíð á jólaföstu hefst
þriðjudaginn 29. nóv. n.k. kl. 20
með tónleikum Mótettukórs Hall-
grímskirkju, sem verða end-
urteknir 3. og 4. des. Tónlistarhá-
tíðin stendur til 11. des.
Margir kórar
í Neskirkju
Í MESSU sunnudagsins verður
óvenjulega mikið um að vera því
margir kórar og hljóðfæraleikarar
koma þar fram. Tónlistarfólkið er á
öllum aldri. Barna- og unglinga-
kórar Neskirkju syngja nokkur lög
undir stjórn organista kirkjunnar,
Steingríms Þórhallssonar og fé-
lagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Einnig koma fram
Hringur Gretarsson á trompet,
kvartett úr Ungfóníu og Dua Gio-
coso, sem er skipaður þverflautu
og hörpu. Sr. Örn Bárður Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari auk
sr. Kjartans Jónssonar og sr. Tos-
hiki Toma.
Eins og venjulega byrja börnin í
kirkjunni en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Eftir messu verður
boðið kaffi, kakó og piparkökur.
Fjórðu tónleikarnir á tónlist-
arhátíðinni Tónað inn í aðventu
verða í kirkjunni kl. 17. Þar spila
Duo Giocoso hópurinn, en hann
skipar þær Pamela de Sensi, þver-
flauta og Sophie Marie Schoojans,
harpa. Flutt verða verk eftir
franska meistara á borð við Ibert
og B. André.
Aðventukvöld
og hátíðamessa í
Langholtskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu held-
ur Langholtssöfnuður hátíðlegan
með messu kl. 11 og kvöldstund kl.
20. Báðar stundirnar eru ætlaðar
allri fjölskyldunni. Í messunni
syngur Gradualekór Langholts-
kirkju en um kvöldið flytja börn úr
Kórskólanum Lúsíuhelgileik og
Kór Langholtskirkju syngur að-
ventu- og jólalög. Herdís Egils-
dóttir les jólasögu og sr. Halldór
Reynisson flytur hugvekju. Boðið
er upp á kaffi og kleinur eftir
stundina.
Sænsk aðventu-
guðsþjónusta
í Dómkirkjunni
SUNNUDAGINN 27. nóvember,
fyrsta sunnudag í aðventu, kl. 11
stendur Svenska Föreningen sam-
kvæmt venju fyrir aðventuguðs-
þjónustu í Dómkirkjunni.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
leiðir guðsþjónustuna, en Made-
leine Ströje-Wilkens, sendiherra og
félagsmenn annast lestra. Maria
Cederborg, Marteinn H. Frið-
riksson, Guðmundur Hafsteinsson
og Lúsíukórinn annast tónlistina. Á
eftir býður sendiherrann og
Svenska Föreningen kirkjugestum
til aðventukaffis í sendiherrabú-
staðnum. Allir velkomnir.
1: a Advent
SÖNDAGEN den 27 november är
det 1:a advent och Svenska Fören-
ingen firar traditionsenligt detta
med en svensk gudstjänst i Dom-
kyrkan kl. 14.00.
Gudstjänsten leds av Sera Jakob
Agust Hjalmarsson. I övrigt med-
verkar Maria Cederborg som spel-
ar flöjt och leder föreningens
Luciakör och Guðmundur Haf-
steinsson på trumpet.
Ambassadör Madeleine Ströje-
Wilkens och andra medlemmar i fö-
reningen, läser bibeltexterna. Nat-
urligtvis sjunger vi även flera av
våra välbekanta, och kära, advents-
och julpsalmer.
Efter gudstjänsten inbjuder Am-
bassadör Madeleine Ströje-Wilkens
alla kyrkodeltagare till det sedv-
anliga adventskaffet på Residenset.
Alla varmt välkomna.
Fjölskylduguðs-
þjónusta í Fríkirkj-
unni í Reykjavík
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
kl. 140 á fyrsta sunnudegi í að-
ventu. Fermingarbörn munu taka
virkann þátt í guðsþjónustunni á
þessum upphafsdegi nýs kirkjuárs
m.a. með því að flytja ritning-
arlestra og bænir. Hjörtur Magni
Jóhannsson Fríkirkjuprestur pre-
dikar og þjónar fyrir altari. Tón-
listin er í höndum Önnu Sigríðar
Helgadóttur og Carls Möller auk
Fríkirkjukórsins. Barn verður bor-
ið til skírnar. Andabrauðið verður
á sínum stað að lokinni stundinni
en það er ómissandi þáttur í barna-
starfi safnaðarins að börnin sjái til
þess að fuglarnir við Tjörnina fái
sína líkamlegu næringu eftir að
þau hafa sjálf fengið sína andlegu
næringu í kirkjunni.