Morgunblaðið - 26.11.2005, Page 70
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÉG HEF EKKERT Á
MÓTI AFMÆLUM
ALLS
EKKERT MÉR
LEIÐIST BARA
AÐ ELDAST
HVAÐ
ERTU AÐ
TEIKNA?
SÓLINA EKKI HORFA SVONA STÍFTÁ HANA, ÞÚ SKEMMIR Í
ÞÉR AUGUN
MIKIÐ VAR ÞETTA
ÖMURLEGUR DAGUR AHHHH!
KÚRI-
MEÐFERÐ
MIKIÐ
ER FALLEGT
HJÁ ÞÉR
HVERNIG FERÐU AÐ
ÞVÍ AÐ HALDA ÞESSU
SVONA HREINU
ÞAÐ ER
ALLT
MANNINUM
MÍNUM AÐ
ÞAKKA
HVAÐ HEDURÐU
AÐ VIÐ VERÐUM
LENGI
STRANDAGLÓPAR
Á ÞESSARI EYJU?
MAÐUR ÆTTI
ALDREI AÐ
BIÐJA BLAUTAN
HUNDA AÐ
DILLA SÉR
ÞEIR VORU ALVEG
FRÁBÆRIR
VAR ÞETTA
JAFN FRÁBÆRT
OG ÞEGAR ÞÚ
VARST Í
MENNTÓ?
JÁ, JAFNVEL
ENNÞÁ
FRÁBÆRARA
HVERNIG
VORU
TÓNLEIKARNIR
?
Í MENNTÓ ÞÁ HAFÐI
ÉG EKKI EFNI Á ÖLLUM
ÞESSUM VARNINGI
ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA Á
HVERN MAÐUR REKST...
ÉG VERÐA AÐ KOMAST UNDAN
FYRIR
GEFÐU
HERRA
ERTU TIL Í AÐ BIÐJA
HANN EKKI ALVEG SVONA
INNILEGA AFSÖKUNAR
Dagbók
Í dag er laugardagur 26. nóvember, 330. dagur ársins 2005
Stundum gerist þaðað Víkverji ramb-
ar inn á bloggsíður hjá
unglingum og virðist
Víkverja ofnotkun
broskalla einkenna
skrifin hjá flestum
ungbloggurum. Iðu-
lega virðist Víkverja
að broskallar taki
jafnvel jafnmikið eða
meira pláss á síðunum
en textinn sjálfur í
netpistlum ungra
skríbenta.
Skyldi engan furða,
enda broskallinn hið
gagnlegasta áhald til
að gæta þess að réttur blær og
merking skili sér örugglega til les-
enda. Það er nefnilega ekki eins auð-
velt og margur myndi halda að
skrifa texta þannig að ekki fari á
milli mála hvenær verið er að grín-
ast, hneykslast eða skammast.
Sjálfur beitir Víkverji brosköllum
óspart þegar hann spjallar á netinu,
því þá er aðeins ein setning til um-
ráða í hvert sinn til að koma merk-
ingunni áleiðis. Samtöl Víkverja í
netheimum yrðu óneitanlega litlaus
eða vandræðaleg ef hann gæti ekki
undirstrikað á skýran hátt hvenær
hann er að gantast og hvenær hon-
um er alvara. Hjá kaldhæðnum og
meinfyndnum manni
eins og Víkverja skiptir
þetta öllu máli enda
himinn og haf á milli
setninga eins og „Þú ert
nú meira flónið ;-)“ og
„Þú ert nú meira flónið
:-P“. (Fyrir óþjálfaða er
rétt að taka fram að í
fyrra tilvikinu blikkar
broskarlinn auga í
glensi, en í hinu síðara
rekur hann út úr sér
tunguna til að undir-
strika alvöru málsins.)
Stundum öfundar
Víkverji ungu blogg-
arana af að mega nota
broskallana svona frjálslega. Það
væri aldeilis gaman að mega nota
broskalla í fréttum og viðtölum. Vík-
verji sér fyrir sér frétt þar sem haft
væri eftir Saddam Hussein „Þessi
réttarhöld eru farsi :-P“. Gerhard
Schröder myndi kannski segja: „Ég
kveð stjórnmálin með trega :-(“ og
Quentin Tarantino Íslandsvinur
segði kannski eitthvað á þessa leið:
„Mig hefur langað að heimsækja Ís-
land í 10 ár ;-D“.
En Víkverja grunar að ef hann til-
einkaði sér þennan ritstíl fengi hann
fljótlega í tölvupósti orðsendingu frá
yfirboðara sínum sem enda myndi
eitthvað á þessa leið: „>:-[“.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leiklist | Leikbrúðuland frumsýnir í dag kl. 14 Vetrarævintýrið um selinn
Snorra í Gerðubergi. Brúðuleikrit þetta er unnið upp úr sögu norska rithöf-
undarins Frithjof Sælen, sem kom fyrst út í íslenskri þýðingu árið 1950. Bók-
in, sem er fyrir börn á öllum aldri, hefur notið fádæma vinsælda. Sagan ger-
ist langt norður í Íshafinu og er um selinn Snorra, sem lendir í ýmsum
ævintýrum á ísbreiðunni.
Leikgerð er eftir Helgu Steffensen og Örn Árnason, brúður gerðu Helga
Steffensen og Erna Guðmarsdóttir og leikstjóri er Örn Árnason. Leikmynd
gerði Böðvar Jónsson og tónlist er eftir Vilhjálm Guðjónsson. Leikraddir
eiga Sigrún Edda Björnsdóttir, Pálmi Gestsson og Örn Árnason. Brúðurnar
hreyfa Helga Steffensen og Aldís Davíðsdóttir.
Sýningin er ferðasýning fyrir börn á öllum aldri.
Morgunblaðið/RAX
Vetrarævintýrið
um selinn Snorra
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því þú hefur séð mig.
Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“ (Jh.. 20.)