Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 18

Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 18
Meðlagsgreiðendur! Meðlagsgreiðendur, vinsamlega gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0111-26-504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101 Akureyri | Skipverjar á Súl- unni EA eru komnir heim til Akureyrar í jólafrí að lokinni síldarvertíð. Síldveiðarnar hóf- ust hinn 1. október og var afl- inn um 3.600 tonn en Súlan landaði afla sínum í Neskaup- stað. Súlan kom til Akureyrar á laugardag og eftir að búið var að taka nótina í land við Togarabryggjuna var skipið fært á sinn stað við Torfunefs- bryggju. Á myndinni eru þeir Jón Zophaníasson og Helgi Ás- mundsson að ganga frá land- festum skipsins. Í byrjun næsta árs er svo ráðgert að skipið haldi til loðnuveiða. Morgunblaðið/Kristján Síldarvertíð lokið Jólafrí Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Við sem byggjum þessa sýslu sem er austan Gljúfurár erum einstaklega sam- taka í því að vera ósamtaka. Við höfum ekki enn áttað okkur á því að ganga saman á vit tækifæranna af einskærum ótta við að einhver gæti hugsanlega fengið meira en hinn. Þann 10. desember kjósa fjögur sveitarfélög í A-Hún. sér sameiginlega sveitarstjórn og nafn á það sveitarfélag. Þetta eru hreppar sem standa að rekstri Húnavallaskóla en utan við þessa samein- ingu standa Skagabyggð, Blönduósbær, Skagaströnd og Áshreppur. Það er í sjálfu sér engin goðgá að spyrja: Hvers vegna að sameinast og eða hvers vegna ekki? Þessi sameining er engin tímamót í framtíðars- infóníu A-Húnavatnssýslu. Eftir sem áður stöndum við ekki saman sem skyldi og áfram verða við lýði byggðasamlög um hitt og þetta. Sitt hvorum megin við okkur hafa sveitarfélögin borið gæfu til að koma auga á kosti sameiningar og tala einni röddu út á við.    Jafnvel í sveitarfélagi eins og Blöndu- ósbæ geta menn heldur ekki talað einni röddu. Fyrir leikmann sem lítið vit hefur á kvóta, hvað þá byggðarkvóta, er erfitt að skilja að menn geti ekki komið sér saman um úthlutun hans. Á Blönduósi er eitt fyr- irtæki sem gerir út alvörubát og á Blöndu- ósi er eitt fyrirtæki sem annast fisk- vinnslu. Því er einfalt að álykta sem svo: Getur fiskiskipið ekki veitt fyrir fisk- vinnslufyrirtækið? Þetta er víst ekki vera svona einfalt í raunveruleikanum og menn ná þeim einstæða árangri með byggða- kvótann undir höndum að fækka störfum á Blönduósi. Hér er eitthvað mikið að.    Verið getur að fréttaritari skilji ekki mál- ið og sé með hausinn fullan af koltrefjum. Ef svo er þá er bara að yppta öxlum og hrista höfuðið og segja að maðurinn sé vit- laus og syngja áfram Blessuð sértu sveitin mín, hver í sinni sveit. Hvað sem öðru líð- ur þá hafa Húnvetningar haft vit á því að þroska með sér ást á Blönduóslöggunni. Þessi vaska lögreglusveit, með trausta sýslumenn í gegnum tíðina sér við hlið, skilar inn í héraðið þónokkrum störfum. Það er alltaf ljós í tilverunni og berið virð- ingu fyrir sjálfum ykkur og umhverfinu, þá þurfið þið ekki að upplifa bláu ljósin hjá Blönduóslögreglunni. Úr bæjarlífinu BLÖNDUÓS EFTIR JÓN SIGURÐSSON FRÉTTARITARA í Ólafsvík sinn þátt í því. Sungu börnin nokkur jólalög ásamt fóstrum sínum við góðar undirtektir gesta, og var það greinilegt að börninn höfðu lagt á sig mikla vinnu til að læra lögin. Fjölmenni var á jólagleði í gamlapakkhúsinu í Ólafsvík síðastlið-inn sunnudag. Góð jólastemning skapaðist og áttu börnin úr leikskól- unum Kríabóli á Hellissandi og Krílakoti Morgunblaðið/Alfons Jólagleði í Pakkhúsinu Einar Kolbeinssonheyrði af mús-arhöfði sem fannst í hrásalati á dög- unum og orti af því til- efni: Við allan fögnuð alveg laus, yrði að ráða úr vöndu, myndi ég sjá músarhaus, í minni salatblöndu. Ekki lengur þarf hér þras, þeir sem hafna nauðum, aldrei borða innflutt gras, aðeins kjöt … af sauðum. Ekki verður upphefð séð, eða snilld hjá kokknum, hvar sumir átu salat með, sjálfum músarskrokknum. Talandi um spaug og spé, sprengir allan skalann, að ég fyrir augum sé, enhvern éta halann. Ekkert finn ég út úr því, – öllu þessu máli, er nokkur fjandans næring í, nagdýrum og káli? Mús í salati pebl@mbl.is Suðurland | Menntun og nýsköpun var til umræðu á fundi sem Samfylking- arfélag Rangárvalla- og Vestur-Skafta- fellssýslu stóð fyrir nýlega. Rætt var um stöðu héraðsins í atvinnu og skólamálum, nauðsyn aukinnar menntunar til að bæta afkomu fólks og til að dragast ekki aftur úr í þjóðfélagi, sem tekur örum breytingum. Nýleg könnun Byggðastofnunar telur meðal- laun í héraðinu 26% undir landsmeð- altali. Einnig var rætt um möguleika á uppbyggingu menntastofnana og nýjum atvinnutækifærum sem byggðust á menntun. Rætt var um uppbyggingu mennta- skóla á svæðinu og möguleika á há- skólanámi. Fræðasetur hafa margfeldis- áhrif í atvinnuuppbyggingu. Skynsamlegt er að byggja á sérstöðu og sérþekkingu í héraðinu, sem er m.a. landgræðsla, matvælaframleiðsla, hesta- mennska, ferðamennska, söguslóðir, ein- stæð náttúra o.fl. Alþjóðlegt fræðasetur á sviði land- græðslu og jarðvegsverndar í Gunnars- holti þykir spennandi og raunhæfur kostur, en þar hefur byggst upp mikil þekking á þessum sviðum. Fræðasetur í Njálufræðum mætti byggja upp í Odda. Fræðasetur spennandi kostur Vesturland | Stjórn Samtaka sveitarfé- laga á Vesturlandi leggur til að hugað verði að lagningu Sundabrautar úr vestri, svo óvissa í skipulagsmálum í Reykjavík tefji málið ekki. Í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér er lýst áhyggjum yfir því að þrátt fyrir að búið sé að tryggja fjármagn í lagningu Sundabrautar um Kleppsvík og Grafarvog hafi ekki verið ákveðið hvar brautin eigi að liggja. Svo virðist sem enn sé langt í land með að sú ákvörðun verði tekin. „Stjórnin vill af því tilefni leggja til við samgönguráðuneyti, borgarstjórn Reykjavíkur og Vegagerðina að sá möguleiki verði skoðaður að byrja á hin- um endanum og hefja hið fyrsta fram- kvæmdir við þverun Kollafjarðar og lagningu brautarinnar um Álfsnes og Geldinganes að Gufunesi. Lagning Sundabrautar er mikið hagsmunamál allra íbúa landsins og bætir aðgengi að höfuðborginni. Því er afar mikilvægt að framkvæmdir við lagningu hennar tefjist ekki.“ Byrjað verði á vestari endanum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.