Morgunblaðið - 06.12.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2005 29
MENNING
JPV ÚTGÁFA hefur gengið frá sölu
á erlendum útgáfurétti á glæpasög-
unni Tíma nornarinnar eftir Árna
Þórarinsson til Danmerkur, Svíþjóð-
ar, Noregs og Finnlands. Það er fyr-
irhugað að bókin komi út í þessum
löndum næsta haust. Þetta er önnur
bók Árna sem seld er utan en Nóttin
hefur þúsund augu var seld til Dan-
merkur og Þýskalands á sínum tíma.
Að sögn Jóhanns Páls Valdimars-
sonar hjá JPV útgáfu hafa útgef-
endur víða um heim verið með bókina
til skoðunar síðustu vikur og þegar
fréttin barst að Tími nornarinnar
hefði verið tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir helgi
brugðust menn skjótt við.
Það vekur, að sögn Jóhanns Páls,
athygli erlendra útgefenda að glæpa-
saga hefur einungis einu sinni verið
tilnefnd til Íslensku bókmenntaverð-
launanna áður en það var Kleifarvatn
eftir Arnald Indriðason í fyrra.
Verulegur áhugi á
norrænum glæpasögum
Fleiri samningar við erlenda útgef-
endur eru á viðræðustigi og frétta að
vænta af þeim á næstunni, segir Jó-
hann Páll. „Mér sýnist að við munum
ná saman við þýska útgefendur mjög
fljótt. Þýskir útgefendur og fleiri
voru með bókina til skoðunar áður en
tilnefningin kom til en þegar þeir
fréttu af henni komst alvöru gangur í
málið. Ég hef ekki trú á öðru en að við
munum lenda samningum í ensku-
mælandi heiminum líka.“
Jóhann Páll segir að það sé veru-
legur áhugi á glæpasögum frá Norð-
urlöndum um allan heim um þessar
mundir. „Sænskir krimmahöfundar
hafa t.d. slegið í gegn á heimsvísu á
undanförnum árum að ógleymdum
höfundi Lesið í snjóinn á sínum tíma.“
Hann segir ákaflega skemmtilegt
að geta flutt út íslenskar bókmenntir
með þessum hætti. „Það spillir ekki
gleðinni að Tími nornarinnar er að
mínu viti jafnframt fínar bókmenntir
en það hefur verið tilhneiging til að
greina á milli bókmennta og glæpa-
sögunnar.“
Tími nornarinnar hefur, að sögn
Jóhanns Páls, fallið í frjóa jörð hér
heima. Fyrsta prentun bókarinnar er
uppseld og önnur prentun nýkomin.
Efni bókarinnar er á stutta leið að
á Hólum í Hjaltadal ætla mennta-
skólanemar frá Akureyri að frum-
sýna Galdra-Loft og Einar blaðamað-
ur mætir á vettvang til efnisöflunar.
Hann hefur nú yfirgefið sínar fornu
veiðilendur, löggufréttir af höf-
uðborgarsvæðinu, og er fluttur til Ak-
ureyrar því auka skal útbreiðslu Síð-
degisblaðsins á uppgangstímum á
Norður- og Austurlandi.
Á leiðinni frá Hólum þarf Einar að
sinna nýrri frétt: Kona frá Akureyri
hefur fallið útbyrðis í flúðasiglingu,
einni af hinum vinsælu óvissuferðum
starfsmannafélaganna í landinu.
Skömmu síðar er hún látin. Þetta er
fyrsta en ekki síðasta dauðsfallið í
ískyggilegri atburðarás þessarar
nýju sakamálasögu um ævintýri Ein-
ars blaðamanns.
„Árni Þórarinsson tvinnar sögu-
legan arf Íslendinga og næma sýn á
þjóðlífið saman í margslungna fléttu
þar sem hver gátan rekur aðra,“ seg-
ir Jóhann Páll.
Bókmenntir | Tími nornarinnar seld til Norðurlandanna
Árni Þórarinsson, höfundur glæpasögunnar Tími nornarinnar.
Menn brugðust
skjótt við er bókin var
tilnefnd til verðlauna
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Á AÐVENTU og fram á næsta ár
prýða málverk Kristínar Gunnlaugs-
dóttur og leirverk Margrétar Jóns-
dóttur anddyri Hallgrímskirkju og á
umgjörðin vel við verk þeirra beggja.
Margrét Jónsdóttir er menntuð leir-
listarkona og hefur einnig lært
mósaíkgerð, hún vinnur einkum við
gerð nytjahluta á borð við leirtau og
mósaíkflísar á veggi og gólf. Í Hall-
grímskirkju sýnir hún spiladósir,
jólaplatta og sérkennilega og fallega
leirmuni sem hún nefnir Trú, Von og
Kærleik. Leirtau og leirmunir Mar-
grétar hafa yfir sér andblæ gamalla
leirmuna frá slóðum Miðjarðarhafs,
eins og mætti ímynda sér að hægt
væri að finna á litlum sjarmerandi
markaði í fjallaþorpi á Ítalíu. Jóla-
plattarnir eru í þessum anda, gam-
alhvítir, dálítið þykkir og brúnirnar
óreglulegar. Gerðarlegir en fínlegir í
senn. Spiladósirnar og hleðslu-
skúlptúrarnir eru skemmtileg
blanda af húmorísku ofhlæði og
elskulegum fígúrum, það er yfir
þeim viðkunnanleg lífsgleði. Málverk
Kristínar Gunnlaugsdóttur eru ekki
síður falleg en af öllu andlegri toga,
hér sýnir hún tvö verk, Land von-
arinnar og Engil vonarinnar. Lands-
lag í málverkum Kristínar er mið-
aldalandslag. Landslagsmálverk
sem slík urðu ekki til fyrr en á
sautjándu öld, allt fram að því var
landslag í málverkum fyrst og
fremst táknrænt, líkt og listin öll.
Landslag á miðöldum var bak-
grunnur, og aldrei eftir fyrirmynd
heldur ímyndað landslag. Málverk
fjórtándu aldar málarans Ambrogio
Lorenzetti eru ágætt dæmi um slíkt
landslag. Málverk Kristínar, Land
vonarinnar, er við fyrstu sýn afar
óraunverulegt líkt og tíðkaðist á mið-
öldum en minnir um leið á sérkenni-
legar klettamyndanir Sinaifjallsins í
Egyptalandi. Land vonarinnar er
þannig kannski ekki eins langt frá
raunveruleikanum og ætla mætti en
aðferð listakonunnar við málverkið
er auðvitað ekki raunsæi eins og
flestir vita sem þekkja myndir henn-
ar, landslagið tekur á sig ójarðneska
mynd eins og því er ætlað. Málverkið
Engil vonarinnar má síðan sjá á
veggnum andspænis, engillinn er
æðrulaus á svip eins og persónur á
málverkum Kristínar eru jafnan.
Þessar myndir eru ekki jafnlits-
terkar og áferðarfallegar og oft er
raunin hjá listakonunni og verða fyr-
ir vikið nálægari og áleitnari. Er von
í þessum hörmungaheimi, virðast
þær spyrja, og leggja svarið í huga
áhorfandans. Það fer ekki mikið fyrir
þessari litlu sýningu Kristínar og
Margrétar en hún er sannarlega
heimsóknar verð, listin er góð
stoppistöð á þessum árstíma.
Morgunblaðið/Sverrir
Málverk Kristínar Gunnlaugsdóttur, Land vonarinnar.
Lífsgleði og von
MYNDLIST
Hallgrímskirkja
Út febrúar 2006.
Kristín Gunnlaugsdóttir
Margrét Jónsdóttir
Ragna Sigurðardóttir