Morgunblaðið - 13.12.2005, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Auglýsendur!
Tímarit Morgunblaðsins er mest lesna tímaritið í áskrift á
Íslandi. Því er dreift í 60 þúsund eintökum með
sunnudagsblaði Morgunblaðsins til lesenda um land allt.
Nýjasta fjölmiðlakönnun Gallup staðfestir vinsældir Tímarits
Morgunblaðsins, en lestur þess eykst þriðju mælinguna í röð
og er nú 42%.
Allar nánari upplýsingar veita Sigrún Sigurðardóttir í síma
569 1378 eða sigruns@mbl.is, og Bylgja Björk Sigþórsdóttir
í síma 569 1142 eða bylgjabjork@mbl.is
ÝMIS fyrirtæki sem sinna ferðaþjónustu og
afþreyingu milli Þjósár og Ytri-Rangár gáfu á
síðasta sumri út bæklinginn „Á rúntinum í
Rangárþingi“ til að kynna þjónustu sína og
hugmyndin er að halda slíku samstarfi áfram.
Nú hefur verið stofnað formlegt félag, South-
Iceland, og er í undirbúningi að endurvekja
vefsíðuna south.is þar sem settar verða fram
margháttaðar upplýsingar um hvaðeina sem
kemur ferðamanninum að gagni. Er stefnt að
því að endurnýjuð síðan komist í gagnið fyrir
jólin.
Formaður stjórnar hins nýja félags er Jór-
unn Eggertsdóttir sem hefur m.a. langa
reynslu af rekstri ferðaþjónustu á hálendinu,
framkvæmdastjóri er Ásta Berghildur Ólafs-
dóttir, sem ásamt manni sínum, Gísla Sveins-
syni, rekur hestamiðstöðina Hestheima, og
meðstjórnandi er Friðrik Pálsson, aðaleigandi
Hótels Rangár og Hálendismiðstöðvarinnar
Hrauneyja.
Margt í boði á svæðinu
„Það er mikið um að vera á þessu svæði en í
bæklingnum frá í sumar er greint frá 17 að-
ilum sem reka ýmsa þjónustu, gistingu, veit-
ingasölu, gallerí, hestaleigu og þjónustu við
hestamenn og þannig mætti áfram telja,“ seg-
ir Jórunn Eggertsdóttir og bætir við að í
ferðaþjónustu séu í raun allir á sama báti þótt
menn séu einnig í samkeppni en tilgang sam-
starfsins segir hún vera þann að vekja athygli
ferðamanna á fjölbreyttri þjónustu í þessum
landshluta. „Ferðaþjónusta er annað og miklu
meira en bara gisting og veitingasala því þar
fyrir utan snýst hún um að bjóða ferðalöngum
eða benda þeim á hvað sé skoðunarvert á við-
komandi svæði og það kemur öllum til góða,“
segir Ásta Berghildur. Hún segist vonast til
að fleiri aðilar komi við sögu, bæði gangi í fé-
lagið og leggi fram upplýsingar og efni til að
hafa á vefsíðunni en Jórunn verður ritstjóri
hennar.
Fjöldi ferðamanna fer um Suðurland á
hverju ári og nægir þar að nefna þau 200–300
þúsund sem leggja leið sína að Gullfossi og
Geysi og tugþúsundir fara t.d. inn í Land-
mannalaugar og víða um Suðurland. Þá segja
þau ferðir fara vaxandi yfir haust- og vetr-
artímann og ekki síst sé ánægjuleg sú þróun
að ferðum Íslendinga um eigið land virðist
fara sífellt fjölgandi. Á því sviði megi t.d.
greina aukningu í ferðum starfsmannahópa
og félaga sem verji t.d. helgi að vetrarlagi til
ferðalags.
Friðrik Pálsson segir að samstarfið í ferða-
þjónustunni sé miklu meira virði en sam-
keppnin og ferðamálin komi mikið til umræðu
við undirbúning vaxtarsamnings sem nú
stendur yfir fyrir Suðurland, svipað og gert
hefur verið á Vestfjörðum og Norðurlandi.
Hvað er að sjá?
Þremenningarnir segja að algengasta
spurning ferðamanns á nýjum slóðum sé sú
hvað sé helst að skoða. Svör við slíkum spurn-
ingum þurfi ferðaþjónustufólk á gististöð-
unum að hafa og verði menn að hugsa í stóru
samhengi. Benda á áhugaverðar slóðir hvort
sem er í náttúru eða einhverri starfsemi. Þá
megi ekki hugsa um aðra aðila í greininni sem
samkeppnisaðila heldur samstarfsaðila.
Ferðamaðurinn fær að vita hvaða möguleikar
séu fyrir hendi og fer síðan um eins og honum
þóknast, gistir hjá einum í dag, öðrum á
morgun og borðar hjá einum í dag og öðrum á
morgun.
„Þessi samstarfsvísir okkar verður síðan
kannski vísir að markaðsskrifstofu fyrir Suð-
urland, þá þarf ekki að byrja á núlli,“ segja
þær Jórunn og Ásta Berghildur að lokum.
Sameina markaðssetningu
ferðaþjónustu á Suðurlandi
Morgunblaðið/jt
Jórunn Eggertsdóttir (t.v.) og Ásta Berghildur
Ólafsdóttir hafa báðar langa reynslu af störfum
og rekstri í ferðaþjónustunni.
Eftir Jóhannes Tómasson
joto@mbl.is
Síðasti skila-
dagur jólapakka
til Evrópu
SÍÐASTI öruggi skiladagur jóla-
pakka sem senda á til Evrópu er í
dag, að því er segir í tilkynningu Ís-
landspósts. Þar segir að póstsetja
þurfi jólakort til Evrópu í síðasta
lagi fimmtudaginn 15. desember
svo þau komist örugglega til skila
fyrir jólin. Síðasti öruggi skiladag-
ur á jólakortum og jólapökkum inn-
anlands er miðvikudagurinn 21.
desember.
Móttökustaðir fyrir jólapóstinn
eru öll pósthús á landinu og einnig
er Íslandspóstur með jólapósthús í
Kringlunni, Smáralind, Mjóddinni,
Firði í Hafnarfirði, Garðatorgi í
Garðabæ, Eiðistorgi og Glerártorgi
á Akureyri í desember. Jólapóst-
húsin eru opin á afgreiðslutíma
verslana. Einnig er Íslandspóstur
með póstafgreiðslu í Nóatúnsversl-
unum á höfuðborgarsvæðinu, Hag-
kaup við Garðatorg og á Eiðistorgi
og Nettó í Mjódd, opið alla daga frá
morgni til kvölds.
60.000 í sekt,
153.000 í
málskostnað
RÚMLEGA tvítugur piltur hefur í
Héraðsdómi Reykjaness verið
dæmdur til að greiða 60.000 kr. í
sekt fyrir að aka of hratt um Reykja-
nesbraut. Þar með eru fjárútlát hans
vegna hraðakstursins þó ekki upp-
talin því hann þarf einnig að greiða
153.000 krónur til verjanda síns.
Bíllinn sem pilturinn ók var mæld-
ur á 143 kílómetra hraða við afleggj-
arann að Vogum í apríl.
Þegar tekið hefur verið tillit til
vikmarka í mælingunni taldist hann
hafa ekið á 138 kílómetra hraða en
hámarkshraði á þessum stað er 70
km/klst. Hjá lögreglu og fyrir dómi
sagði pilturinn að hann teldi að hann
hefði enn verið á vegarkafla þar sem
hámarkshraði er 90 km/klst. Þá
sagði hann lögreglumanni sem
ræddi við hann á staðnum að mæl-
ingin væri ógild þar sem þeir gætu
ekki framvísað skírteinum um að
þeir hefðu leyfi til að stunda hraða-
mælingar.
Í niðurstöðum dómsins segir að
lögreglumennirnir hafi oft áður
mælt hraða á þessum stað og gjör-
þekktu því aðstæður og að viðhlít-
andi sönnun hefði fengist fyrir hrað-
akstrinum. Auk sektarinnar var
pilturinn sviptur ökuréttindum í tvo
mánuði.
Gunnar Aðalsteinsson kvað upp
dóminn. Ásgeir Eiríksson, fulltrúi
sýslumannsins í Keflavík, sótti og
Ásbjörn Jónsson hdl. var til varnar.
Ekki
forstjóri
Gamla bíós
Í KAFLA úr bók minni Thors-
ararnir, sem Morgunblaðið
birti á sunnudaginn, er að finna
þá missögn að Bjarni Jónsson
hafi verið forstjóri Gamla bíós.
Hið rétta er, eins og gamlir
Reykvíkingar muna, að hann
var ásamt Guðmundi Jenssyni
stjórnandi Nýja bíós. Þetta
voru lengi tvö helstu kvik-
myndahús borgarinnar og mik-
il samkeppni þeirra á milli.
Beðist er velvirðingar á þessari
missögn sem verður leiðrétt í
næstu prentun bókarinnar.
Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur.
SMÁSAGNAKEPPNI Neistans,
styrktarfélags hjartveikra barna, er
nú í fullum gangi en fresturinn til
að skila inn sögu rennur út á Þor-
láksmessu. Keppnin er ætluð öllum
börnum á grunnskólaaldri og miðað
er við að sögurnar séu á milli þrjú
og fjögur hundruð orð eða um það
bil ein A4 blaðsíða. Vinningssög-
urnar verða birtar í riti Neistans og
jafnframt er möguleiki á að fleiri
sögur verði gefnar út í bók. Enn-
fremur fá þrír bestu höfundarnir af-
henta veglega Harry Potter-bikara
í beinni útsendingu í morgunsjón-
varpi Stöðvar 2 hinn 6. janúar næst-
komandi.
Margrét M. Ragnars, formaður
Neistans, segir verðlaunin vera gjöf
frá Sambíóunum en aðeins voru
framleiddir fimm þúsund slíkir
Harry Potter-bikarar.
Neistinn fékk fjóra og afhenti
Viðari Mána Gunnarssyni fyrsta
bikarinn fyrir þann galdur að kunna
að fara í erfiðar hjartaaðgerðir, en
hann hefur farið í mjög erfiðar að-
gerðir í London og hérlendis. „Í
kjölfarið ákváðum við að halda smá-
sagnakeppni því eins og allir vita
fóru börn að lesa á nýjan leik með
komu Harrys Potter – nú ætlum við
að fá þau til að skrifa einnig,“ segir
Margrét en verkefnið gengur undir
nafninu Hreint hjarta. „Það fæðast
ekki allir með heilt hjarta en á hinn
bóginn fæðast allir með hreint
hjarta. Verkefnið á því að vekja
ungu höfundana til umhugsunar en
markmiðið er að skrifað sé eitthvað
gott og jákvætt.“
Í dómnefndinni sitja Guðrún Pét-
ursdóttir, Guðrún Helgadóttir, Ás-
laug Jónsdóttir, Þórarinn Eldjárn
og Kristjón Guðjónsson.
Skilafrestur í smásagnakeppni fram á Þorláksmessu
Vinningar afhentir
í beinni útsendingu
ELDAR loguðu enn glatt í gær, eftir sprengingu í olíubirgðastöð norður af
London. Pétur Arnarson, flugstjóri hjá Icelandair, flaug um miðjan dag í
gær yfir svæðið og tók myndir af því sem hann líkti helst við eldgos í rén-
un. „Þetta er ótrúlegt eldhaf og virðist ekkert vera að minnka,“ sagði hann
síðdegis í gær. „Það er mikill svartur mökkur. Þetta er rosalegt umhverfis-
slys.“ Ekki hafa orðið verulegar truflanir á flugi vegna reykjarmakkarins.
Ljósmynd/Pétur Arnarson
Lítil truflun á fluginu