Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Páll Þórir Ólafs-son fæddist í Reykjavík 6. nóvem- ber 1920. Hann and- aðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðríður Pálsdótt- ir, f. á Miðnesi í Gullbringusýslu 17. nóv. 1883, d. 15. des. 1947, og Ólafur Ólafsson skipstjóri, f. í Mýrdal í V. Skaftafellssýslu 27. okt. 1874, d. 7. okt. 1941. Systkini hans voru Sigurður, f. 31. ágúst 1904, d. 25. feb. 1973, Páll Þórir eldri, f. 17. okt. 1905, d. 14. maí 1911, Margrét, f. 7. sept. 1909, d. 15. júlí 1968, Þórunn Ragnhildur, f. 22. nóv. 1913, d. 24. mars 1993, og Óskar Kristinn, f. 31. maí 1924. Páll kvæntist 13. desember 1941 Guðrúnu Ólafíu Þorsteinsdóttur frá Hafnarfirði, f. 25. júlí 1923, d. 24. nóv. 1974. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Sæmundsson, f. 16. ágúst 1884, d. 9. okt. 1960, og El- ínborg Jónsdóttir, f. 16. des. 1881, d. 5. júlí 1970. Þau bjuggu á Lang- eyrarvegi 14 í Hafnarfirði. Þor- steinn stundaði lengi sjó á eigin báti frá Hafnarfirði. Börn Páls Þóris og Guðrúnar eru: 1) Ólafur, f. 5. maí 1941. Sonur hans og Guðnýjar Hákonardóttur er a) Hákon, dóttir hans og Guð- nýjar Svönu Harðardóttur er Ingi- björg Ósk, sonur hennar er Róbert Snær Harðarson. Hákon er kvænt- ur Sunnevu Gissurardóttur, börn þeirra eru Guðrún Björk og Gissur Þór. Sonur Ólafs og Sigríðar Auð- ar Þórðardóttur er b) Páll Þórir, kvæntur Sigþrúði Sigurþórsdótt- ur, sonur þeirra er Heimir. Dóttir Ólafs og Fideliu Unoro er c) Guð- rún Sóley. Dóttir Ólafs og Guðríð- ar Ebbu er d) Sigurrós. 2) Guðríð- Páll Þórir. Dóttir hans og Sigur- borgar Unnar Björnsdóttur er Anita Sif. Páll er kvæntur Lilju Sigurborg Sigmarsdóttur, börn þeirra eru Atli Christian og Anja Erla. b) Sonja Hafdís, maki Jason William Steele, dóttir þeirra er Amelía April Steele. 6) Margrét, f. 23. feb. 1960. Dóttir hennar og Stefáns V. Stefánssonar er Eyrún Margét, dóttir hennar og Bjarka Hallvarðssonar er Birta Líf. Mar- grét er gift Jónasi Bjarnasyni. Börn þeirra eru Jórunn Pála, Bjarni Rúnar og Bergrós Fríða. Páll og Guðrún hófu sinn búskap í húsum foreldra hennar í Hafn- arfirði. Síðar fluttu þau til Reykja- víkur og bjuggu þar allan sinn bú- skap. Eftir fráfall hennar bjó Páll í Reykjavík, að undanskildum nokkrum árum í Mosfellsbæ. Þar var hann virkur þátttakandi í starfi Lions hreyfingarinnar. Síð- ustu árin dvaldi Páll á Hrafnistu í Hafnarfirði. Páll tók barnaskóla- próf frá Miðbæjarskólanum við Tjörnina. Hann byrjaði ungur að aldri að vinna fyrir sér með sendi- ferðum fyrir verslanir, t.d. Pétur Kristjánsson, Jafet og fleiri. Var í vegavinnu á sumrin við Þingvalla- veg, ásamt byggingarvinnu við ýmsar byggingar, þar með talið Háskóla Íslands. Páll var í mörg ár til sjós, m.a. á skakbátum frá Hafn- arfirði. Hann var kyndari á togar- anum Jökli sem sigldi með fisk til Bretlands á stríðsárunum og stundaði síldveiðar við Norður- land á sumrin. Einnig háseti á togaranum Júní frá Hafnarfirði sem stundaði veiðar á Halamiðun- um. Páll starfaði á smurstöð Esso í Tryggvagötu. Hann rak smurstöð- ina Klöpp við Skúlagötu í sam- starfi við félaga sína í mörg ár þar til hann hætti störfum. Páll og Guðrún kona hans stunduðu mikið laxveiði og ferðuðust mikið saman meðan hennar naut við. Einnig stundaði hann hestamennsku og fjallaferðir. Um tíma átti hann hraðbát. Seinni árin greip hann í golfíþróttina. Útför Páls verður gerð frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. ur, f. 17. nóv. 1942, gift Viktori Sveini Guðbjörnssyni. Börn þeirra eru: a) Guðrún Ólafía, gift Einari Ólafi Svavarssyni, dætur þeirra eru Guðríður Olga og Gunnhildur. b) Páll Þórir, maki Guðrún Róshildur Kristins- dóttir, börn þeirra eru Sigurður Straumfjörð, Guð- mundur Kristinn og Guðbjörn Jón. c) Viktor Sveinn, maki Berglind Sig- urðardóttir, börn þeirra eru Katr- ín Birna og Elías Örn. d) Sigríður Fjóla, gift Elvari Eylert Einars- syni, dætur þeirra eru Ásdís Ósk og Viktoría Eik. 3) Elínborg Stein- unn, f. 23. júlí 1947. Sonur hennar og Rúnars Þorkels Jóhannssonar er Páll Þórir, kvæntur Mekkínu Árnadóttur, börn þeirra eru Árni Jón og Elínborg Steinunn. Elín- borg er gift Guðmundi Einarssyni, börn þeirra eru: a) Ólafur Þór, kvæntur Lilju Margréti Berg- mann, synir þeirra eru Viktor Freyr, Elvar Snær og Jason Leó. b) Þorsteinn Sæþór, börn hans og Gunnhildar Steinarsdóttur eru Guðmundur, Eygló og Guðrún Ólafía. c) Kristjana Fjóla, maki Orri Hermannsson, börn þeirra eru Dagný Lilja og Alexander. 4) Sigurður Straumfjörð, f. 26. okt. 1951, kvæntur Kristínu Andreu Jóhannesdóttur. Börn þeirra eru: a) Jóhannes Páll, dóttir hans og Ingunnar Ágústu Guðmundsdótt- ur er Anna Kristín. Sonur hans og Hafrúnar Óskar Sigurhansdóttur er Almar Freyr. b) Guðrún Ólafía gift Geir Gunnari Geirssyni, börn þeirra eru Geir Gunnar og Andrea Hjördís. 5) Páll Þórir, f. 8. okt. 1954, kvæntur Önnu Snæbjörtu Agnarsdóttur. Börn þeirra eru: a) Með nokkrum orðum langar okk- ur að minnast Páls Þóris Ólafssonar, því nú er komið að kveðjustund. Dagurinn í dag er brúðkaupsdag- urinn hans og mömmu árið 1941. Það er nú 31 ár síðan hann missti mömmu. Hann stóð sig frábærlega þennan tíma. Studdi okkur með ráð- um og dáð í lífi og starfi. Pabbi mundi tímana tvenna og tók þátt í að byggja upp það sam- félag sem við þekkjum í dag. Í æsku hans renndi fólk sér á skautum á tjörninni og fór á skíði á tunnustöf- um í Öskjuhlíðinni. Hann fór ófáar ferðir með ömmu með þvott í hjól- börum frá Brávallagötunni inn í Laugar. Æskuslóðir hans voru Vesturbær- inn í Reykjavík. Hann var frá góðu heimili en ævi hans mótaðist af þeim tíma sem hann lifði á. Hann byrjaði snemma að vinna fyrir sér og var vinnusamur alla ævi. Á stríðsárun- um var hann kolakyndari á togurum sem sigldu með fisk til Bretlands. Hann vildi lítið ræða þessar ferðir, líklega lífsreynslan öðrum þræði óskemmtileg. Hann var áhugasamur um bíla og átti marga um ævina. Hann hugsaði vel um þá og þeir voru alltaf nýbón- aðir. Hann var sparsamur og nýtinn á alla hluti og það mátti aldrei henda neinu því það gat komið að góðum notum seinna. Það var honum ánægjuefni hvern- ig fjölskyldan stækkaði og barna- börnin urðu fleiri. Hann lét sig öll barnabörnin varða á þeirra lífsleið, barnabörn pabba eru við andlát hans 20 að tölu á aldrinum 8 til 45 ára. Barnabarnabörnin eru orðin 32 og eitt barnabarnabarnabarn. Af- komendurnir eru því orðnir 59. Hann vildi hafa snyrtilegt á heim- ilinu og þau mamma hjálpuðust að við að halda heimilinu í góðu standi. Pabbi ryksugaði og þurrkaði af og flautaði listavel allan tímann meðan á því stóð. Við söknum flautumelódí- unnar, sem enginn annar gat leikið eftir. Sama var þau ár sem hann bjó einn, alltaf var hreint og snyrtilegt. Ásamt Sigurði Straumfjörð bróð- ur sínum, sem var prentari, voru þeir með þeim fyrstu til að byggja sumarbústað í landi prentara í Mið- dal. Mörg sumur vorum við börnin allt sumarið með mömmu í bústaðn- um og pabbi kom um helgar. Þótt bústaðurinn yrði gamall var honum alltaf vel við haldið og garðurinn vel hirtur og fallegur. Þau mamma fóru í margar sigl- ingar til útlanda, en það var ekki mjög algengt á þeim tíma. Lax- og silungsveiðar voru líka þeirra líf og yndi. Áhugamál pabba voru marg- vísleg fyrir utan sameiginleg áhuga- mál hans og mömmu. Á yngri árum stundaði hann íþróttir. Síðar á æv- inni voru það sund og gönguferðir, hestamennska og seinni árin byrjaði hann að spila golf með ágætum ár- angri. Mamma var hans lífsförunautur og helsti vinur. Eftir lát hennar helgaði hann sig fjölskyldunni og segja má að fjölskyldan hafi verið hans nánustu vinir. Hann var hlýr við sitt fólk og góður heim að sækja. Börnin hændust að honum og þótti vænt um hann. Nú syrgja þau afa sinn. Meðal hans helstu kosta var hvað hann var hjálplegur og ósérhlífinn. Alltaf var hann boðinn og búinn að rétta okkur börnum eða tengda- börnum hjálparhönd hvort sem ver- ið var að mála hús, slá grasið, smíða sumarbústað eða bóna bíl. Heilsan var góð mestalla ævi. Hann fékk þó lungnakrabbamein ár- ið 1980 og var einn af þeim heppnu á þeim tíma, hluti annars lungans var numinn á brott og með hjálp góðra lækna hlaut hann bata. Þegar geng- ið var til verka eftir þetta var ekki hægt að sjá, að hann væri þolminni en þeir sem yngri voru. Síðustu árin þjáðist hann af Alz- heimer. Til að byrja með lýsti það sér sem gleymska á það sem hafði gerst nýlega. Sjúkdómurinn ágerð- ist og þetta voru stundum erfiðir tímar fyrir hann og okkur. Sjúk- dómurinn tók á sig ýmsar myndir og hafði áhrif á athafnir daglegs lífs. Stundum þurftum við að taka erf- iðar ákvarðanir sem við töldum hon- um fyrir bestu. Alltaf var hann já- kvæður fyrir breytingum og gremju sýndi hann okkur aldrei, yfirleitt var þó stutt í brosið sem veitti okkur styrk. Þannig þekktum við pabba best. Um tíma hafði hann dagvist í Fríðuhúsi á Laugarási, og við systk- inin og tengdabörn skiptumst á að sitja hjá honum á kvöldin til að stytta honum stundir og ekki síst lagði Öryggismiðstöð Íslands sitt af mörkum til að aðstoða okkur um nætur sem gátu oft verið erfiðar. Að endingu gat hann ekki lengur búið einn. Loks fékk hann inni á Hrafn- istu í Hafnarfirði þar sem hann dvaldi síðustu árin við ómetanlega umönnun starfsfólks. Þessi ár reyndum við að aðstoða eftir mætti og kom það sér þá vel að börnin sex gátu skipt því með sér að líta við á Hrafnistu. Fyrir rúmum mánuði héldum við upp á 85 ára afmæli hans og var sá dagur honum góður, e.t.v. einn af síðustu góðu dögunum hans. Hann var á fótum og sjálfbjarga með margar daglegar athafnir þar til tveimur dögum fyrir andlátið að hann missti meðvitund. Síðustu mánuðina hafði hann haft óskil- greinda verki víða um líkamann. Við varðveitum í hjarta okkar minningarnar um pabba. Við vitum að nú hefur hann fengið betri vist og kærkomna hvíld. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Megi góður Guð fylgja pabba og mömmu á þær slóðir sem þeim var ætlað. Börn og tengdabörn. Elsku afi, okkur þykir mjög erfitt að kveðja þig, en á sömu stundu gleðjumst við yfir því að þú og amma séuð loks sameinuð á ný eftir langa fjarveru hvort frá öðru. Við viljum þakka þér fyrir allar þær yndislegu stundir sem við höf- um átt með þér og kemur margt upp í hugann þegar við horfum til baka og rifjum upp þessar stundir. Til dæmis allar þær ferðir í Laugardal- inn þar sem þú þuldir upp öll nöfnin á fjöllunum, bæjunum og kirkjunum á leiðinni í hverri einustu ferð, þang- að til allir voru komnir með þetta á hreint og það hvernig í hvert skipti sem við komum í heimsókn til þín þá mátti treysta á að til var skafís í frystinum og gamli góði perubrjóst- sykurinn var ætíð á sínum stað, í brjóstvasanum hjá þér. Það var allt- af líf og fjör í kringum þig og aldrei sá maður þig öðruvísi en með bros á vör og sól í hjarta. Þú skapaðir ávallt ákveðna stemningu sem gerði það að verkum að það var gott að vera í návist þinni. Elsku besti afi, við munum aldrei gleyma þér og mun minning þín lifa í hjörtum okkar allra. Guð geymi þig. Ástar- og saknaðarkveðjur, Páll, Ólafur, Þorsteinn og Fjóla. Elsku afi minn. Ég man svo vel seinasta skiptið sem þú komst í heimsókn og fórst með okkur systk- inin í sund. Það var sko gaman! Og auðvitað var stoppað í bakaríinu á leiðinni heim og bakkelsi keypt til að hafa með kaffinu. Í Stapaselinu varstu þekktur sem „Afi snúður“ af krökkunum því að allir vissu að þeg- ar afi á græna bílnum renndi í hlað myndu vínarbrauð og snúðar vera á boðstólum. Þú varst alltaf svo kátur, afi minn, og vissir þínu viti. Eitt skiptið þegar við komum að heimsækja þig í Jök- ulgrunninn var Popp Tíví stillt á og Robbie Williams í botni. Og þú sagð- ir eitthvað á þessa vegu: „Þetta er bara rosa skemmtileg stöð“! Þá var mér og Bjarna skemmt. Alltaf gastu komið manni á óvart. Eitt af því seinasta sem þú sagðir mér var að gleyma aldrei að dansa, og því skal ég aldrei gleyma. Afi, þú varst algjör snillingur og þú mátt vera stoltur af þínum 85 glæstu árum. Það á sko eftir að vera tómlegt án þín, enginn vafi á því. En ég veit að þú ert kominn á góðan stað núna. Til hennar ömmu. Hafðu það gott, afi minn, það var mikill heiður af því að fá að kynnast þér. Megi Guð geyma þig. Koss og knús, Jórunn Pála. Elsku afi. Núna ert þú farinn frá okkur og rifjast upp ótrúlega marg- ar minningar um þig, allar jafnfal- legar og skemmtilegar. Það voru ekki svo fáar ferðirnar sem farnar voru á Laugarvatn í bústaðinn. Á leiðinni spurðirðu okkur barnabörn- in um hvern bóndabæ, hverja á og fjöll og var mikil keppni um að svara, ég man sérstaklega eftir Tannastöðum, ég gat það alltaf enda brosi ég yfirleitt þegar ég keyri þar fram hjá og hugsa til þín. Það var heldur ekki leiðinlegt hjá okkur þeg- ar við hittumst öll fjölskyldan, börn og barnabörn í bústaðnum 17. júní. Tjaldað hér og þar í garðinum og farið í skrúðgöngu og beint niður á flöt, hástökk, pokahlaup og fullt af leikjum, og varst þú í því að hvetja alla áfram, síðan endaði þetta allt saman yfirleitt á grilluðum lamba- kótelettum í bústaðnum, alveg ynd- islegt. Ekki svo ófáar ferðirnar uppá Gullkistu hvort sem var á snjósleða eða keyrandi, allar sögurnar um að labba afturábak alla leið og þá fengi maður að óska sér, ég held að ég trúi þessu enn þann dag í dag. Þú komst til okkar til Danmerkur, það var alltaf svo gaman að fá þig þang- að, alltaf brosandi og hress. Þú varst sá fyrsti sem komst upp á spítala til mín þegar Geir Gunnar kom í heim- inn, í grænu jakkafötunum og six- pensarinn á höfðinu, tókst Geir Gunnar í fang þér og taldir tærnar og fingurna, sagðir svo að þetta yrði hraustur strákur. Þú keyrðir til mín uppá Vallá í heilt ár í hverri viku og gafst mér blóm, drakkst tvo kaffi- bolla og mola, síðan heim. Þetta eru mér minnisverðar stundir, þér fannst svo sniðugt að ég þurrkaði alla blómvendi og setti þá svo alla í körfu eða uppá skáp, ég er með blómvendina enn. Elsku afi, ég á eftir að sakna þín mikið, en einhvern veginn er ég svo viss um að þér líði vel, ég setti mynd af þér í rammann hjá ömmu og þeg- ar ég horfi á ykkur get ég ekki ann- að en brosað í gegnum tárin, því þar var þitt hjarta og til hennar ertu kominn. Elsku besti afi minn, takk fyrir allt. Ég elska þig og guð geymi þig Guðrún Ólafía Sigurðardóttir. Elsku afi. Þá hefur þú kvatt þetta líf og annað tekið við. Á svona stund- um rifjast upp ótal minningar sem við áttum saman, það væri hægt að skrifa heilu bækurnar um það og verða þær minningar ávallt í hjarta mér. Gleymi aldrei þeim ferðum sem ég fór með þér í sumarbústað- inn í Miðdal á Laugarvatni, þetta voru margar ferðir og brölluðum við mikið saman þar, þá sérstaklega að klippa trén og rölta svo niður að á að veiða silung og ekki má gleyma því að skreppa á Ketilvelli til systranna að fá egg hjá þeim. Svo þegar þú komst norður til Jóns og Fríðu heit- innar og varst þar yfir svolítinn tíma til að aðstoða þau og ég var þar í sveit nokkur sumur, gott að hafa þig þar á þeim tíma. Ekki er hægt að gleyma þegar þú skutlaðir mér í strætó og ég fékk að bíða í bílnum hjá þér á meðan ég beið eftir vagn- inum í miklum kulda eða rigningu, þegar við bjuggum hjá þér á Soga- veginum. Það voru góðir tímar og þú kenndir mér líka að tippa 1x2, ég gerði tóma vitleysu í fyrstu, en alltaf gast þú reddað mér fyrir horn og við náðum að laga þetta og gera rétt. Eftir að við fluttum í Breiðholtið keyptir þú hesta og hesthús í Víðidal og þar vorum við að bralla mikið saman á hestbaki og þess háttar sem tengist því. Það sem er sérstakt í huga mér er að þegar ég var að fá bílpróf eða á 16. ári þá sagðir þú við mig að þú værir orðinn þreyttur á að keyra og lést mig aka fyrir þig, þetta væri góður undirbúningur fyr- ir bílprófið, hehe, þú lést mig aka upp í hesthús og svo austur fyrir fjall og tala nú ekki um stoppin á Selfossi þar sem við fengum okkur pylsu með öllu nema steiktum og appelsín í gleri og stundum lakkr- ísrör með, þetta voru alveg æðisleg- ir tímar. Fyrir stuttu áttir þú svo 85 ára afmæli þar sem við hjónin og börnin kíktum til þín, það var gleði- stund. Okkur fannst svo gaman að sjá hvað þú montaðir þig af því við starfsfólk og aðra vistmenn hvað þú værir ríkur af börnum. En nú hefur þú fengið það, sem þú nefndir nokkrum sinnum við mig, að hitta ömmu aftur, ég sá alltaf hvað þú saknaðir hennar og þú sagð- ir mér hvað hún hafi verið góð kona, blessunin og væntanlega hefur hún tekið vel á móti þér. Við vonum að þér líði betur á nýjum stað. Elsku afi, hvíldu í friði og við munum alltaf sakna þín og elska. Páll Þórir, Lilja og börn. Elsku besti afi minn, þú ert farinn frá okkur eftir baráttu við leiðinleg- an sjúkdóm sem er búinn að vera að hrjá þig í nokkur ár. Þú sem varst einn sá hraustasti maður og miðað við aldur þá varst þú með skrokk á við ungling, En „eitt sinn verða allir menn að deyja“ eins og sagt er. Þú fórst eftir góða kveðjustund með þínum ástvinum og ég er svo glöð með það að hafa getað kysst þig og sagt þér nokkur falleg orð og að við elskum þig öll og ég veit að þú heyrðir en þú gast bara ekki svarað okkur. Það er alltaf sárt að missa ástvin eins og þig en þú ert kominn í góðar hendur og loksins fékkstu að hitta hana elskulegu ömmu okkar heitnu sem þú ert búinn að vera frá í rúm 30 ár og það hlýtur að hafa ver- ið gleðistund fyrir þig, elsku afi minn, að fá að sjá „hina“ fjölskyldu þína eftir svona langan tíma. Minningarnar sem við eigum sam- an eru nú ekki fáar þar sem ég ólst upp með þér part af mínu lífi í Starrahólunum og voru það yndis- legir tímar og þú sagðir mér svo margar sögur af þér og fyrri störf- PÁLL ÞÓRIR ÓLAFSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.