Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 41 DAGBÓK Nátttröll, dagtröll og niðurtölumenn ÞAÐ fer rosalega í taugarnar á mér allt þetta tal um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Það eru alls konar nátttröll, dagtröll og niðurtölumenn sem ætla að ríða þessu borgar- skipulagi alveg að fullu í gegnum kosningarnar. Svo er verið að tala um að Hollendingar séu einhverjir sér- fræðingar og allt í lagi að tala við þá um þessar tillögur um flugvöll. En hvar er þjóðarrembingurinn? Hollendingar, þrautalendingar, snertilendingar eða bara millilend- ingar og hvar er þjóðarstoltið? Höf- um við ekki vit á þessu sjálf? Mitt mat er það að við eigum hérna mjög hæfa menn til þess að meta þetta, t.d. kom Hrafn Gunnlaugsson með mjög góða hugmynd um flugvöll á Lönguskerj- um en því miður eru þær ekki sam- kvæmt strangasta raunveruleika. Hugmyndir Arngríms Jóhannssonar tel ég að séu mjög athyglisverðar og ætti fólk að skoða þær. Hver ætli hafi meira vit á flugmálum hérlendis en hann? Hann hefur sýnt það og sannað með því að byggja upp stórveldi í flugi og ef hann veit ekki um þetta, þá hver? Niðurtölumenn ættu að hlusta á hans tillögur. Við eigum að passa okkur á því að missa ekki allt úr borg- inni eins og flugvöllinn sem er gull- kista. Eins þarf að fara varlega í hafn- armálunum og koma í veg fyrir að hafnirnar endi uppi í Hvalfirði. Hvers konar pólitík er þetta að verða? Rausari. Alvarleg mistök hjá Skjá 1 ÉG ER einstaklega ósátt við frammi- stöðu fjölmiðlanna þessar vikurnar. Ég á ekki til orð. Það hefur bara ekk- ert verið hægt að fylgjast með Miss World því aldrei er dagskráin auglýst rétt. Hvers á ég, vinnandi konan, að gjalda? Nú þarf ég að stilla mynd- bandstækið mitt svo ég nái uppá- haldsþáttunum mínum og aldrei eru Miss World-kynningarnar teknar upp því alltaf er öllu frestað og ég tek bara upp Ástarfleyið og svoleiðis rusl. Á sunnudaginn, viku fyrir keppni, var ekki einu sinni skráð í dagskrána að þátturinn ætti að vera, þrátt fyrir heilsíðuauglýsingu við hliðina. Hverju átti ég að trúa? Þetta er varla réttlæt- anlegt. Og svo í gær, laugardag. Stóri dag- urinn. Í dagskránni stendur að það sé þáttur milli 13 og 15 en bein útsend- ing frá 21–23. Ég og mamma tékk- uðum báðar. Svo klukkan sjö mæti ég í veislu og geng beint inn í stofu með kveikt á fréttum og sé Unni krýnda! Þá var hún krýnd fyrr um daginn en auglýst að keppnin væri eftir tvo tíma. Ég missti af allri spennunni og þurfti að horfa á keppnina tekna upp vitandi að Unnur Birna myndi vinna. Þetta eru mjög alvarleg mistök, ófyr- irgefanleg jafnvel og svona á ekki að vera liðið! Elísabet Ólafsdóttir rithöfundur. Hundur í óskilum ÞESSI hundur fannst ólar- og merkingarlaus í Staðahverfi í Grafarvogi, hann er í góðum höndum á Barðastöðum 51. Þeir sem kannast við hann eða þekkja vinsamlegast láti vita í síma 555 4937 eða 862 9251. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Bókin Í dag – hugleiðingar 366 Íslend-inga um lífið, tilveruna og trúa erkomin út hjá Skálholtsútgáfunni. Íbókina skrifa 366 Íslendingar úr ólík- um áttum og er hverjum þeirra tileinkaður einn dagur á almanaksárinu. Aldrei hafa svo margir Íslendingar áður tekið höndum saman við að skrifa eina bók. Ritstjórar bókarinnar eru þau Halla Jóns- dóttir, Halldór Reynisson, Hreinn S. Há- konarson og Edda Möller, og hafði Morg- unblaðið samband við þá síðastnefndu vegna málsins. Hvernig vaknaði hugmyndin að bókinni Í dag? „Í vinnu útgáfuráðs Skálholtsútgáfunnar. Við höfðum áður gefið út bækurnar Hönd í hönd, Bænir kvenna og Bænir karla með 50 höfundum í hvert skipti, það vantaði svona hugleiðingabók fyrir hvern dag ársins og við ákváðum að reyna að fá til þess 366 höfunda. Og það tókst!“ Um hvað er fjallað þar? „Bókin fjallar um lífið, tilveruna og trúna á mjög víðan og opin hátt. Höfundar taka dæmi úr hversdagslegu lífi sínu sem geta verið öðrum til fyrirmyndar og vakið þá til umhugsunar og eftirbreytni. Það er ótrúlegt hvað allt þetta fólk hefur frá miklu að segja í stuttu máli. Allt er hér sett fram á látlausan hátt og gjarnan með bros á vor, sögur um litla sigra, vonbrigði og lífsreynslu sem geta reynst drjúg hjálp fyrir þann sem veltir fyrir sér tilgangi lífs- ins.“ Hvað var haft í huga þegar leitað var til 366 einstaklinga til að skrifa í bókina? „Við höfðum það í huga að bókin sýndi þver- skurð í hugsun Íslendinga þegar komið er að því að fjalla um lífið og tilveruna þar sem trúarlegir tónar eru meðal annars slegnir. Við gáfum enga nákvæma forskrift og höfundum var í sjálfsvald sett hvernig efnistök væru. Það tókst afar vel og við viljum að aðrir njóti þess með þessum 366 Íslendingum.“ Eru hugleiðingarnar mjög ólíkar? „Þær eru jafn ólíkar og höfundarnir eru margir. En fyrst og fremst eru þær allar gott innlegg í daginn, þarfar áminningar og orð til íhugunar í amstri dagsins. Þetta er bók sem er ólík öðrum bókum því þú lest hana á hverjum degi og getur í leiðinni skráð afmælisdaga þeirra sem þykir vænt um.“ Fyrir hvern er bók af þessu tagi? „Þessi bók er fyrir alla, alla daga ársins! And- legt dagatal fyrir nútímafólk sem upplifir í dag- legu amstri að lífið er bæði flókið og yndislegt.“ Bækur | 366 Íslendingar skrifa um lífið, tilveruna og trúna í bókinni Í dag Andlegt dagatal fyrir nútímafólk  Edda Möller er fædd árið 1959 í Reykjavík. Stundaði nám í Menntaskólanum við Sund og við Háskóla Ís- lands, lauk BA-prófi í þýsku og sagnfræði ár- ið 1984. Dvaldi eitt ár sem skiptinemi í Sviss á menntaskólaárum. Hefur verið fram- kvæmdastjóri og út- gáfustjóri Skálholts- útgáfunnar – útgáfufélags þjóðkirkjunnar í 20 ár, jafnframt því unnið fyrir Prestafélag Ís- lands. Gift Einari Eyjólfssyni, fríkirkjupresti í Hafnarfirði, börn þeirra Einar Andri, há- skólanemi og handboltaþjálfari, og Inga Rakel menntaskólanemi. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Í kvöld, 13. des-ember, heldur Eyvindur P. Ei- ríksson rithöfundur upp á sjötugs- afmæli sitt á Thorvaldsen í Austurstræti með opnu húsi og upp- lestrum með meiru. Vinir og vanda- menn velkomnir að samfagna frá kl. 20 og fram eftir kvöldinu. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 13. desem-ber, er sextug frú Kristín Guð- mundsdóttir, kaupmaður. Hún og eig- inmaður hennar, Sigurður Ingvarsson, taka á móti gestum eftir kl. 18 í dag, á heimili dóttur þeirra á Ósbraut 1 í Garði. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 13. desem-ber, er sextugur Ásgeir S. Ás- geirsson, stýrimaður, Lækjargötu 32, Hafnarfirði. Ásgeir ætlar að eyða deg- inum í faðmi fjölskyldunnar. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Meðlagsgreiðendur! Meðlagsgreiðendur, vinsamlega gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað. INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is Banki 0111-26-504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101 VIÐ SELJUM ATVINNUHÚSNÆÐI FYRIR FYRIRTÆKI OG FJÁRFESTA I I I I I I VELDU EIGNAMIÐLUN eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Marimekko flytur um áramót úr IÐU húsinu að Laugarvegi 7. 30-40% afsláttur af öllum fatnaði til jóla. Vönduð jólagjöf á góðu verði. STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla                       Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.