Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FA L L E G H Ö N N U N
F R U M L E G H U G S U N
Bankastræti 14
Úr Verinu á morgun
Ekkert
svartnætti
BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs-
ing frá sjálfstætt starfandi barna- og
unglingageðlæknum:
„Yfirlýsing heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins sem birtist í
Morgunblaðinu 10. desember sem
svar við opnu bréfi sjálfstætt starf-
andi barna- og unglingageðlækna til
Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráð-
herra og birtist í sama blaði deginum
áður gefur tilefni til athugasemda og
leiðréttinga:
Yfirlýsing og upplýsingar ráðu-
neytisins eru þakkarverðar. Þær
staðfesta og taka af allan vafa um
réttmæti fullyrðinga barna- og ung-
lingageðlækna þess efnis að heil-
brigðisyfirvöld ákváðu með samn-
ingi sem þau gerðu 21. desember
2004 að skerða um fimmtung heil-
brigðisþjónustu sjálfstætt starfandi
barna- og unglingageðlækna við
börn og ungmenni með geðræn
vandamál. Ráðuneytið velur að gera
samninganefnd lækna ábyrga fyrir
þessari niðurstöðu. Það er ekki stór-
mannlegt.
Í yfirlýsingunni gætir alvarlegs
misskilnings ef það er þá ekki hrein
rangtúlkun: Þar er því haldið fram
að barna- og unglingageðlæknar
væni ráðherrann um ósannindi varð-
andi fullyrðingar hans um að lækn-
arnir hafi ekki nýtt umsamdar ein-
ingar undanfarin ár. Það er ekki
mergur málsins og í raun er það svo
að það eru börn og ungmenni sem
nýta sér þessar einingar en ekki
læknarnir. Að því leiðréttu er mik-
ilvægt að árétta að það hefur ekki
verið ágreiningur um nýtingu ein-
inganna. Barna- og unglingageð-
læknar hafa sagt ráðherra hafa farið
með rangt mál þegar hann, að eigin
frumkvæði, t. d fullyrti við frétta-
stofu Ríkisútvarpsins að heilbrigðis-
yfirvöld hafi sett sig í samband við
[barna]geðlækna og tryggt að þjón-
usta við börn og unglinga sem þurfi
geðlæknishjálp haldi áfram út árið.
Ráðherrann hafði þá áður á Alþingi
og í blöðum haft uppi svipaðar full-
yrðingar. Þar fór hann með rangt
mál.
Áður hefur verið fjallað um ástæð-
ur þess að einingar nýttust ekki að
fullu árið 2004 og hvers vegna það ár
var ekki vel til fallið til viðmiðunar og
ekki þörf á að endurtaka enn einu
sinni. Ráðuneytið velur hins vegar
enn á ný að beina kastljósinu frá að-
alatriðum og segir það vekja undrun
og áhyggjur að barna- og unglinga-
geðlæknar hafi þá ekki haft áhyggj-
ur af þessari þróun. Því er til að
svara að margir einstaklingar og fé-
lagasamtök lýstu áhyggjum sínum
um neikvæð áhrif kennaraverkfalls-
ins. Barna- og unglingageðlæknar
deildu þeim áhyggjum en gátu lítið
aðhafst á þeim tíma annað en að
sinna þeim sem leituðu aðstoðar m.a.
vegna afleiðinga verkfallsins. Verk-
fallið skýrir einnig að hluta aukna
ásókn eftir aðstoð í byrjun þessa árs.
Barna- og unglingageðlæknum
hefur alla tíð verið það ljóst að ráð-
herra semur ekki við lækna og að
samninganefnd HTR gerir ekki sér-
samninga við einstakar sérgreinar
meðan hún og samninganefnd lækna
eiga í viðræðum. Það er hins vegar
óneitanlega einkennileg staða ef
heilbrigðisráðherrann, æðsti yfir-
maður heilbrigðismála, hefur ekkert
hlutverk þegar vanda ber að höndum
og þörf á að leiðrétta augljós mistök.
Ofannefndur „misskilningur“
skýrir e.t.v. hvers vegna ekki hefur
verið mögulegt að halda uppi mál-
efnalegri umræðu við ráðuneytið
sem ítrekað hefur valið að ræða
vandann út frá óljósum tæknilegum
atriðum um útfærslu samningsins en
ekki út frá hlutverki þess og ábyrgð
á þjónustu við veika einstaklinga.
Barna- og unglingageðlæknar láta
því þessari opinberu umræðu lokið í
bili.“
Yfirlýsing sjálfstætt starfandi
barna- og unglingageðlækna
segir Guðmundur
Kristjánsson,
forstjóri Brims JÓLALEGU pósthúsi hefur verið komið upp á Miklu-
brautinni til móts við Kringluna. Þar er þó ekki ver-
ið að taka á móti jólabögglum né kortum heldur ver-
ið að auglýsa Póstinn á frumlegan máta í einu af
mest notuðu strætóskýlum borgarinnar. Jólapóst-
húsið er mjög svo lokkandi og hver veit nema að
farþegum Strætó eigi eftir að fjölga við uppátækið.
Einar Hermannsson, framkvæmdastjóri hjá AFA – J.
C. Decaux sem sér um strætisvagnaskýlin á höf-
uðborgarsvæðinu, segir að þetta sé skemmtilegt
verkefni og að von sé á öðru skýli í svipuðum dúr í
vikunni.
Morgunblaðið/Ómar
Lokkandi jólapósthús