Morgunblaðið - 13.12.2005, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu um 11,5 millj-
örðum króna. Þar af voru viðskipti
með hlutabréf fyrir þrjá milljarða. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 0,5% og er
hún 5.246 stig. Bréf Össurar hækk-
uðu mest, 2,6%, en bréf Straums
Burðaráss lækkuðu hins vegar
mest, eða um 0,6%.
Enn hækkar
úrvalsvísitalan
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HEILDARÚTLÁN Íbúðalánasjóðs í
nóvember námu um 5,9 milljörðum
króna, sem er um 48% aukning frá
því í fyrra. Sjóðurinn hefur lánað
samtals um 69 milljarða það sem af
er ári, sem er umfram heildarútlán
síðasta árs.
Í mánaðarskýrslu ÍLS segir að
samkvæmt endurskoðuðum áætl-
unum sé gert ráð fyrir að útlán á
þessu ári muni nema 72,6 millj-
örðum. Líklegt verði að teljast að út-
lánin verði umfram áætlanir.
Útlán Íbúðalánasjóðs
yfir áætlunum
● INGÓLFUR
Helgason, for-
stjóri KB banka á
Íslandi, keypti í
gær 400 þúsund
hluti í bankanum
á genginu 665.
Kaupverðið er
samkvæmt því
266 milljónir
króna.
Alls á Ingólfur nú ríflega 2,8 millj-
ónir hluta í bankanum en jafnframt á
hann kauprétt að 60 þúsund hlutum
til viðbótar auk þess sem hann á
sölurétt að 750 þúsund hlutum.
Keypti í KB banka
fyrir 266 milljónir
● LYFJAFYRIRTÆKIÐ Actavis hefur
sett á markað sykursýkilyfið Glimep-
iride en það er fyrsta sykursýkilyf fé-
lagsins, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá félaginu. Lyfið, sem er
blóðsykurslækkandi, verður mark-
aðsett undir merkjum Actavis í Dan-
mörku, Finnlandi og Eystrasaltsríkj-
unum. Þá mun Medis, dótturfélag
Actavis, selja það til annarra lyfjafyr-
irtækja í átta löndum. Lyfið er þróað
og framleitt í verksmiðju Actavis á
Möltu og mun það vera fyrsta lyfið
þaðan sem er sett á markað.
Actavis með nýtt
lyf á markað
! "# #
!"#$%
!
"
# $%
& $% '$
()'$ *+ $! $
*!$
"$% '$ & $%
,-
.&
./0)1 21'$
3
/) & $%
#/ )2$ 4
- $%
,
$
56-2
7! '8$
9: $
9- -/
;<!! $!/ ) ) $
= $$ ) $
! " #$
- % ><22)
. 1? ! .) $%
# %&
'(
4@>A
.B)
) -)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
-< $! 1
< ) -)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
C
DE
0
C
DE
0
0
0
C
DE
0
C
DE
0
0
C 0
DE
C DE
0
0
0
0
C DE
0
C 0
DE
0
0
0
0
0
0
#- % )
%! $
; ') B %! F
* .
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
= ) B +8
;# G !$ 2 %
)
0
0
0
0
0
0
0
0
0
0
FRANSKIR neytendur munu um
jólahátíðina snæða um 600 tonn af
gæsa- og andalifur (foie gras) og
2.400 tonn af niðursneiddum reykt-
um laxi, gangi áætlanir franska lúx-
usvörufyrirtækisins Labeyrie eftir.
Rétt ár er frá því Labeyrie komst í
eigu íslenskra aðila, SÍF Group, sem
keyptu það á 280 milljónir evra, á
þriðja tug milljarða króna.
„Hlutdeild okkar á markaðnum
hefur vaxið á undanförnum árum og
við ætlum okkur að auka hana enn
frekar í framtíðinni. Vöxtinn má að
hluta rekja til stöðugrar vöruþróun-
ar og nýjunga í vöruframboði,“ segir
Michel Laffon, markaðsstjóri Lab-
eyrie í Frakklandi, í samtali við
Morgunblaðið í París í gær.
Labeyrie er risi á markaði hátíða-
matvæla í Frakklandi og skerfur
SÍF Group í jólahaldi Frakka því
umtalsverður.
Í jólamánuðinum verða til um
60% af sölutekjum fyrirtækisins eða
um 150 milljónir evra, jafnvirði rúm-
lega 11 milljarða króna.
Hlutdeild Labeyrie í sölu gæsa-
og andalifur hefur vaxið úr 17% árið
1998 í 26% í fyrra en skerfur næsta
keppinautar í markaðinum er um
10%. Hlutdeild í sölu á niðursneidd-
um reyktum laxi hefur vaxið ár frá
ári og er 24% en næsta keppinautar
4%, sem er annað fyrirtæki í eigu
SÍF Group, SIF France, sem selur
laxinn undir merkinu Delpierre.
Að sögn Laffon verður heildar-
sala Labeyrie í ár um 800 tonn af fo-
ie gras og um 4.000 tonn af reyktum
laxi. Af fyrrnefndu vörunni fer 75%
sölunnar fram í desember en 60%
reykta laxins.
„Samkvæmt rannsóknum kaupir
hver Frakki foie gras að meðaltali
tæplega tvisvar á ári; um jól og við
sérstök tækifæri, eins og til dæmis
afmæli. Sömu rannsóknir sýna að
86% Frakka þekkir Labeyrie sem
gæðamerki og treystir fyrirtækinu.
Á það leggjum við áherslu, að efla
traust neytenda í garð fyrirtækisins
og tryggð við það,“ segir Laffon.
Nýjar brautir
Alls býður Labeyrie upp á um 30
vörunúmer af bæði unninni og
hrárri gæsa- og andalifur (foie
gras). Fyrirtækið fór inn á nýjar
brautir á þessu ári með því að hefja
framleiðslu á lúxus súkkulaðimolum
sem ætlaðir eru til að bera fram
með kaffi. Komu þeir á markað í
Frakklandi fyrir aðeins 10 dögum. Á
næsta ári áformar það framleiðslu
og sölu á lúxusrækju í samstarfi við
Lyons-rækjuverksmiðjur SÍF í
Englandi.
Hlutdeild Labeyrie eykst
Eftir Ágúst Ásgeirsson í Frakklandi
Morgunblaðið/Ásgeir Ásgeirsson
Hátíðamatvæli Labeyrie er risi á markaði hátíðamatvæla í Frakklandi.
VÍSITALA neysluverðs hækkaði um
0,36% á milli nóvember og desember.
Hækkunin var minni ef húsnæðisliður
vísitölunnar er ekki tekinn með, eða
0,22%. Þetta kemur fram í mælingu
Hagstofu Íslands. Hækkun vísitölu
neysluverðs nú er meiri en greining-
ardeildir bankanna höfðu spáð. Þær
höfðu gert ráð fyrir því að vísitalan
myndi standa í stað eða hækka 0,1%.
Verðbólgan síðastliðna tólf mánuði,
samkvæmt breytingum á vísitölu
neysluverðs, mælist nú 4,1%, en án
húsnæðis er verðbólgan hins vegar
0,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitala neysluverðs hækkað um 0,8%,
sem jafngildir 3,3% verðbólgu á ári,
en 1,0% án húsnæðisliðarins.
Hækkun á verði húsnæðis milli
nóvember og desember hafði mest
áhrif til hækkunar á vísitölu neyslu-
verðs nú. Eigið húsnæði í vísitölunni
hækkaði um 0,9% og eru vísitöluáhrif
þeirrar hækkunar 0,15%. Þar af voru
áhrif af hækkun markaðsverðs á hús-
næði 0,13% og áhrif af hækkun með-
alvaxta 0,02%. Verð á fötum og skóm
hækkaði um 2,1% en vísitöluáhrif
þeirrar hækkunar eru 0,11%.
Yfir verðbólgumarkmiði
Tólf mánaða verðbólga, 4,1%, er
enn yfir efri þolmörkum Seðlabanka
Íslands, eins og hún hefur verið frá
því í september. Þá mældist verðbólg-
an 4,8%. Hún mældist 4,6% í október
og 4,2% í nóvember. Verðbólgumark-
mið Seðlabankans miðast við 2,5%
verðbólgu með efri og neðri þolmörk-
um upp á 1,5%.
Í Morgunkorni Greiningar Íslands-
banka segir að íbúðaverð hafi hækkað
myndarlega en þó aðeins lítillega um-
fram spána. „Sennilegt er að kaup-
þrýstingur hafi hækkað íbúðaverð
síðustu vikurnar þar sem áhugasamir
flýta fyrirhuguðum kaupum sínum af
ótta við vaxtahækkun.“
Í hálf fimm fréttum greiningadeild-
ar Kaupþings banka segir að birting
verbólgutalnanna í gær hafi haft tölu-
verð áhrif á markaði. Ávöxtunarkrafa
verðtryggðra skuldabréfa hafi lækk-
að um 0-5 punkta (þ.e. 0-0,05 pró-
sentustig) í viðskiptum gærdagsins á
meðan krafa óverðtryggðra hafi
hækkað um 9-15 punkta (0,09-0,15
prósentustig). Þá hafi gengi krónunn-
ar styrkst töluvert í viðskiptum gær-
dagsins, eða sem nemi 0,5%.
Greiningardeild Landsbanka Ís-
lands segir í vefriti sínu, Vegvísi, að
greinilegt sé að nokkuð vanti upp á að
hagstætt gengi skili sér að fullu til
neytenda. „Frá því í janúar hefur
verð á innfluttum vörum hækkað að
jafnaði um 0,4% á meðan viðskipta-
vegið gengi erlendra gjaldmiðla hefur
lækkað (krónan hækkað) um 5,5%.“
Verðbólgan
meiri en spáð var
Morgunblaðið/Golli
STRAUMUR Burðarás Fjárfest-
ingabanki hefur undirritað 200
milljóna evra sambankalán til
þriggja ára, andvirði 15 milljarða
króna. Evrópskir bankar sýndu
lántökunni það mikinn áhuga að
upphæðin var hækkuð úr 100
milljónum evra í 200 milljónir
evra, sem er með stærri lánum
sem íslensk fjármálafyrirtæki
hafa tekið á þessum markaði.
BayernLB, Commerzbank og
Lloyds TSB leiddu lánið en alls
tóku 15 aðrir bankar í Evrópu
þátt. Að sögn Svanhildar Nönnu
Vigfúsdóttur, forstöðumanns fjár-
stýringar Straums Burðaráss, er
lánið ætlað til frekari vaxtar bank-
ans og uppgreiðslu skammtíma-
skulda. Miðað við hinn evrópska
sambankalánsmarkað sé árangur
Straums mjög góður og sýni mik-
inn styrkleika bankans og tæki-
færi til aukinna umsvifa.
Metinn á 121,6 milljarða
Greiningardeild Landsbankans
skilaði í gær nýju verðmati á
Straum Burðarás, þar sem fyrir-
tækið er metið á 121,6 milljarða
króna, er það hækkun um 5,7
milljarða frá síðasta mati. Af 121,6
milljörðum er endurmetið eigið fé
upp á 102,8 milljarða og fjárfest-
ingabankastarfsemin er metin á
18,8 milljarða króna.
Mikil eftirspurn
eftir 15 milljarða
láni Straums
● VIÐSKIPTAVINIR dönsku ferða-
skrifstofunnar Star Tour munu
næsta sumar fljúga með lággjalda-
flugfélaginu Sterling, sem eru í eigu
FL Group. Áfangastaðirnir eru meðal
annars Mallorca, Algarve og nokkrar
af grísku eyjunum.
Haft er eftir Niels Brix, upplýsinga-
fulltrúa Sterling, í Børsen, að félagið
muni verða með a.m.k. tvær flug-
vélar fastar í þessu verkefni út samn-
ingstímann, frá apríl til október á
næsta ári. Ekki er upplýst um fjár-
hæðir í samningnum en í Børsen
segir að um milljarða króna samning
sé að ræða. Ráðgert sé að fljúga
með um 220 þúsund farþega.
Sterling flýgur
fyrir Star Tour
5 %H
.I9
#(#!
!(#$
)$*#
)$*!
D
D
;.>
7J
($!
(+$!
$*+
)$*,
D
D
@@
K,J
,(+
",$
)$*+
$*+
D
D
K,J *$
5 -
+,
!(+"
$*+
)#*#
D
D
4@>J 7L ($-
(#,
!$(-
)$*
$*!
D
D