Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 19

Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 19
Mývatnssveit | Laufabrauðsgerð er ómissandi þáttur í undirbúningi jóla í Mývatnssveit. Ekki kunna allir jafnvel til þeirra verka. Það var því góð nýbreytni hjá handverkskonum í sveitinni þegar þær buðu aðstoð við brauðgerðina einn sunnudag. Þær fengu til þess aðstöðu í Hótel Reykjahlíð og komu nokkrir til að notfæra sér þjónustu þeirra. Meðal annarra rakst Kertasníkir þar inn og var umsvifalaust settur í að skera kökur. Það leyndi sér ekki að hann var ekki óvanur því verki og skar allra laglegustu kökur. Hann er hér við kökuskurð ásamt Þórdísi Jónsdóttur handverkskonu. Morgunblaðið/BFH Konurnar aðstoðuðu Kertasníki við laufabrauðsgerð Þannig líta svo kökurnar út skornar og steiktar. Jólin Falleg og vönduð plata á ljúfum nótum. Samúel Jón Samúelsson sá um útsetningar og upptökustjórn. Inniheldur m.a. lagið “We have all the time in the world” í flutningi Sollu og Páls Óskars Hjálmtýssonar. Útgáfa: sjsmusic Dreifing: 12 Tónar Útgáfutónleikar í Iðnó ásamt 10 manna hljómsveit, þriðjudaginn 13. desember kl. 21:00 Miðasala í Iðnó og á www.midi.is Fyrsta sólóplata Sólveigar Samúelsdóttur söngkonu komin í verslanir www.solla.is Akureyri | Austurland | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Aðventan gekk í garð með hefðbundnu sniði hér í bæ. Kvenfélagið bauð upp á opið hús í samkomuhúsinu þar sem handverks- fólk og aðrir buðu upp á ýmsan jólavarning í sölubásum sínum. Fólk rölti um og andaði að sér upphafi jólaundirbúningsins með kakóilminum í bland við nýbakaðar vöffl- urnar. Lionsmenn dunduðu við að setja upp jólatré í miðbænum sem kveikt var á þegar kvöldið færðist yfir en það var um það leyti sem búið var að draga í leikfanga- happdrætti Kvenfélagsins og tími kominn til að ljúka samveru í samkomuhúsinu.    Verslunarmenn eru býsna margir í Grundarfirði og bera sig flestir nokkuð vel. Ef vel er að gáð reynast vera um 13 sérverslanir á staðnum. Þær reyna að vekja athygli á tilveru sinni meðal bæj- arbúa með ýmsum uppákomum og tekst það yfirleitt vel. Við upphaf aðventu var boðið upp á sérstaka kvöldopnun á fimmtudegi og gátu þeir sem versluðu þessa kvöldstund lent í sérstökum lukku- potti sem dregið var úr eftir að búðum hafði verið lokað á veitingastaðnum Kaffi 59 og aðalvinningurinn var að sjálfsögðu glæsilegt jólahlaðborð fyrir tvo á þeim sama stað.    Pólitíkin sem í bæjarfélagi sem þessu læt- ur lítið kræla á sér nema fjórða hvert ár, ber þess merki að nú styttist óðum í sveit- arstjórnarkosningar. Í vikublaðinu Þey eru menn byrjaðir að skrifast örlítið á en að þessu sinni snúast skrifin aðalega um ópólitískt framboð. Út úr þeim má lesa að sumir telji að pólitísk framboð séu frá- hrindandi fyrir þá sem vilji leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Hræðslan við pólitíkina geri það að verkum að hæfileik- ar nýtist ekki og samfélagið líði fyrir. Ljóst þykir að í litlu samfélagi getur ná- vígið oft reynst erfitt þeim sem eru í ábyrgðarstöðum og standa fyrir ákvörð- unartöku sem varðar íbúana. Talsmenn hins ópólitíska framboðs telja að betur takist að virkja hinn almenna íbúa komi flokkspólitík hvergi nærri. Úr bæjarlífinu GRUNDARFJÖRÐUR EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON FRÉTTARITARA Öflugt starf er unniðá vegum For-eldrafélags Flúða- skóla í Hrunamanna- hreppi, það stendur meðal annars fyrir fræðslu og opnum húsum. Foreldrafélagið hefur fært Flúðaskóla tvö fót- boltaspil að gjöf. Spilin eru á gangi skólans og geta nemendur notað þau á skólatíma og á opnum húsum. Myndin var tekin þegar fulltrúar kennara og sveitarstjórnar kepptu. Anna Ásmunds- dóttir og Árni Þór Hilm- arsson kennarar eru vinstra megin en Ísólfur Gylfi Pálmason sveit- arstjóri og Sigurður Ingi Jóhannsson oddviti hægra megin borðs. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Unnu forystumennina í fótboltaspili Kristján BersiÓlafsson horfði áJón Baldvin Hannibalsson í Silfri Eg- ils: Í Jóni Baldvini býr mikill kraftur til bjargræðisverka, og því væri gott ef hann gengi aftur og gerðist leiðtogi á ný. Hjálmar Freysteinsson yrkir: Varla málin verið gætu verri en lýsir þetta tal, að eygja sína einu glætu í endurbornum Hannibal. Þá Hreiðar Karlsson á Húsavík: Eg má ekki segja neitt mis- jafnt um drenginn og muna það skal. Ætli hann sé betri afturgeng- inn en original? Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum yrkir: Aldrei Solla frelsar frón frekar slök á flugi. Betur ýmsir ætla Jón afturgenginn dugi. Af Jóni Baldvini Hannibalssyni pebl@mbl.is Blönduós | Stofnað hefur verið byggða- samlag um sorpeyð- ingu fyrir Skagafjörð og Austur-Húna- vatnssýslu. Byggða- samlagið leitar að heppilegustu lausn á sorpförgun fyrir svæðið og hefur verið hugað að sorpurðunarstöðum og brennslustöð. Reiknað er með að um- hverfismat verði gert í byrjun nýs árs. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að undirbúningi og rannsóknum til að finna heppilega framtíðarlausn á sorpeyðingu á svæðinu. Sveitarfélögin hafa urðað sorp hvert á sínum stað við misjafnlega góðar aðstæður og vænta þess að með stofnun byggðasamlagsins verði til farvegur til að finna heppilega lausn á þessum mála- flokki. Á undirbúningstímanum hefur meðal annars verið gerð rannsókn á allmörgum stöðum sem til greina gætu komið sem urðunarstaðir og jafnframt kannaðir möguleikar á að reisa brennslustöð fyrir úrgang með orkunýtingu í huga. Tillaga að matsáætlun fyrir hugsanlegar lausnir hefur verið send Skipulagsstofnun og er reiknað með að formlegt umhverfismat verði gert í ársbyrjun 2006. Ekki hefur farið fram endanlegt mat á lausnum en gert ráð fyrir að það verði gert í tengslum við umhverfismatið. Öll sveitarfélög í Skagafirði og A-Hún. taka þátt Hinn 5. desember síðastliðinn komu sveitarstjórnarmenn úr Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu saman til fundar á Blönduósi þar sem undirritaður var stofnsamningur um byggðasamlag um sorpförgun á Norðurlandi vestra. Byggða- samlagið hefur ekki hlotið nafn en nýrri stjórn var falið að finna því nafn. Aðilar að samningnum eru öll sveitarfélög í Skaga- firði og Austur-Húnavatnssýslu. Tilgang- ur samlagsins er að annast móttöku og förgun úrgangs fyrir aðildarsveitarfélögin og fyrirtæki. Á stofnfundinum var fyrsta stjórn kjör- in en í henni eiga sæti Bjarni Maronsson og Gunnar Bragi Sveinsson, sveitarstjórn- armenn frá Sveitarfélaginu Skagafirði, og Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri á Skaga- strönd. Leita að urð- unarstað fyr- ir Norður- land vestra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.