Morgunblaðið - 13.12.2005, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í JÓLAÆVINTÝRI Hugleiks
byggt á sögu eftir Charles Dickens
sem sýnt er um þessar mundir í
Tjarnarbíói heimsækja draugar
hinn níska og kaldlynda Ebenezer
Scrooge og leiða hann í sannleika
um hvernig komið er fyrir honum.
Sjálfsagt er þetta ævintýri til í
ótal útgáfum; hér er farin sú leið að
útskýra draugana með drykk sem
Ebenezer er byrlað svo vinnufólkið
á heimili hans geti haldið jólin í friði,
en í drykknum eru ofskynjunar-
sveppir og fleira þvíumlíkt.
Þar sem Ebenezer vaknar úr
vímusvefninum breyttur maður,
fullur iðrunar og elskar alla í kring-
um sig, má lesa þann boðskap úr
sýningunni að vímuefni geti leitt til
góðs. Sá sem er vondur þurfi aðeins
réttu efnin fyrir heilann á sér, helst
ofskynjunarlyf, til að sjá allt í nýju
og betra ljósi.
Er þetta ekki vafasamur boð-
skapur fyrir börn, nú þegar fíkni-
efnin flæða yfir landið sem aldrei
fyrr?
Nei, ég er bara að grínast. Boð-
skapur verksins er auðvitað sá að
margur verði af aurum api og að það
sé ástin og kærleikurinn sem sé að-
alatriðið í lífinu.
En það sögðu hipparnir líka og
þeir voru á kafi í eiturlyfjum sem lét
þeim líða fjarskalega vel. Svo þótt
ég sé að gera að gamni mínu með
því að lesa vafasöm skilaboð úr leik-
ritinu, þá fylgir öllu gríni nokkur al-
vara. Persónulega fannst mér gör-
ótti drykkurinn sem Ebenezer fær
óþarfi í verkinu; það hefði alveg ver-
ið hægt að útskýra draugana á ein-
hvern annan hátt.
En svo það sé á hreinu þá
skemmti ég mér konunglega á sýn-
ingunni, sem var sl. laugardag.
Húmorinn var allsráðandi og draug-
arnir voru kostulegir. Tónlistin var
afar áberandi og er hún eftir þá
Snæbjörn Ragnarsson og Þorgeir
Tryggvason. Í lok sýningarinnar
buðu nokkrir leikarar áhorfendum
geisladiska með músíkinni til sölu,
og ég gat ekki betur séð en að það
væri slegist um þá.
Og ekki að undra, því tónlistin er
sérlega skemmtileg og minnir dálít-
ið á Bellmann, sem samdi m.a.
Gamla Nóa. Vissulega er flutning-
urinn viðvaningslegur, enda fæstir
leikaranna skólaðir söngvarar eða
hljóðfæraleikarar. En stefin eru fal-
leg og útsetningarnar litríkar og ég
trúi ekki öðru en að músíkin falli í
kramið hjá yngstu áheyrendunum.
Kannski hefði mátt sleppa sumu á
geisladiskinum eins og innskoti
falskrar fiðlu, sem var fyndið á sýn-
ingunni en virkar síður þegar maður
sér ekki fiðluleikarann. Og djöf-
ullegur hlátur lítilla púka verður
fremur kjánalegur þegar púkarnir
sjást ekki. Fleiri dæmi mætti telja
upp og því má álykta að geisladisk-
urinn standi ekki alveg á eigin fót-
um; hann sé fyrst og fremst minja-
gripur handa þeim er hafa séð
sýninguna. En sem slíkur er hann
fyrsta flokks.
Vímusvefninn væni
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Höfundar: Snæbjörn Ragnarsson og
Þorgeir Tryggvason.
2005.
Tónlistin úr Jólaævintýri Hugleiks
Jónas Sen
JÓLATÓNLEIKAR KaSa hópsins á
sunnudagskvöld fóru fram við frekar
dræma aðsókn eða 1⁄3 sætanýtingu.
Benti til það dæmigerðrar „aðstand-
endamætingar“; trúlega einkum
vegna piltanna í Drengjakór Reykja-
víkur. Enda mátti og gruna af klappi
milli verkþátta að hlustendur væru
fæstir ýkja tónleikasjóaðir. Annars
var synd að fleiri skyldu ekki koma,
því tónleikahaldið var talsvert metn-
aðarfullt og fjölbreytt, og hefðu
sennilega fleiri séð sér færi á virkum
vikudegi.
Strengjasveit Tónlistarskóla
Reykjavíkur hefur undir stjórn
Marks Reedman afrekað ýmislegt
eftirtektarvert um dagana. Að minni
reynslu frækilegast þegar ég heyrði
hana leika gott ef ekki var Diverti-
mentó Bartóks í útvarpi fyrir mörg-
um árum – og það svo glæsilega að ég
hélt fyrir afkynningu að þar gæti að-
eins farið erlend atvinnuhljómsveit á
heimsmælikvarða. Því miður hefur
mestöll spilamennska hennar farið
fram hjá mér síðan, en áðurtalin upp-
lifun hefur þó ávallt setið blýföst eftir
í endurminningunni sem ósvikið
snilldarbragð. En svo ku eins með
skólahljómsveitir sem skólakóra að
árgangar eru misjafnir, og m.a.s.
aldrei gulltryggt að náist að skipa
jafnt í raddir. Þannig voru nú aðeins
3 nemendur í I.–II. fiðlu og 1 í víólu,
en aftur heilir 3 í sellóum á móti ein-
um kontrabassa, og heildarhljóm-
urinn – þótt prýðilegur væri útaf fyrir
sig – reyndist varla nema skugginn af
fyrrnefndum hátindi.
Engu að síður var í mörgu ánægju-
legt að heyra STR (ásamt að vísu ei-
lítið loppnum ungnemablæstri á 2 óbó
og 2 horn) leika fallega samtaka und-
ir með öruggum flautuleik Áshildar
Haraldsdóttur í velþekktu Andante
Mozarts. Og sízt versnaði í C-dúr
Konserti Bachs fyrir 3 sembala og
strengi næst á eftir. Hann var á til-
urðartíma meðal verkefna á laug-
ardagstónleikum Bach-fjölskyld-
unnar og stúdentasveitar Collegium
Musicum í Kaffihúsi Zimmermanns í
Leipzig seint á 4. áratug 18. aldar.
Konsertinn er talinn umritun Bachs á
glötuðum konsert hans fyrir þrjár
fiðlur og upprifjanlegastur fyrir stef-
rænan samkeim miðþáttar við „Vem
kan segla förutan vind“ og (ögn fjær)
loka-Allegrósins við „Burtu með sorg
og sút“ Bellmans (Bacchi Tempel 17).
Lukkaðist allt ljómandi vel í hníf-
jafnri verkefnaskiptingu Bachs milli
hljómborða – auðvitað burtséð frá
þeirri bláköldu staðreynd að þrjár
voldugar nútímaslaghörpur hefðu
þurft a.m.k. helmingi stærri strengja-
sveit sér til mótvægis, alveg sama
hversu bráðflinka píanistatríóið gætti
hófs á benzíngjöfinni.
Tónleikaskráin hélt upptekinni
tízku síðustu missera og fjallaði að-
eins um flytjendur. En Nína Margrét
Grímsdóttir bar þó í bætiflákann
m.þ.a. kynna munnlega verk Bachs
og næsta atriði, 4. Lundúnatríó Ha-
ydns af 5, er Áshildur, Sif Tulinius og
Sigurður Bjarki léku í ljúfléttum
skemmtianda heimilistónlistar.
Að endingu sungu 37 ungir með-
limir Drengjakórs Reykjavíkur í
Wienersängerknabenslegum matr-
ósafötum sjö jólalög. Síðustu þrjú
með fulltingi 15 tenóra og bassa úr
Karlakór Reykjavíkur að brezkri
fornkórahefð og hljómuðu víða gletti-
lega vel, þó að stundum vantaði herzl-
umun frekari reynslu hjá hinum
yngstu. Hitt var augljóst, að með
auknu úthaldi ætti strákunum senn
að verða fátt til fyrirstöðu. Fyrir nú
utan hvað ungum piltum er ómet-
anlegt að kynnast fimbulgleði radd-
sönglistar af eigin raun í öguðu hóp-
efli. Enda löngu mál til komið að
afsanna þá hégilju að aðeins stálp-
aðar stelpur ráði við vandaðan ung-
mennakórsöng!
Morgunblaðið/RAXKaSa hópurinn á æfingu fyrir tónleikana í Salnum síðastliðinn sunnudag.
37 raddprúðir jólasveinar
TÓNLIST
Salurinn
Mozart: Andante í C K315. J.S. Bach: Þre-
faldur sembalkonsert í C BWV 1064. Ha-
ydn: London-tríó nr. 4. Ýmis jólalög. Ás-
hildur Haraldsdóttir flauta, Sif M. Tulinius
fiðla, Sigurður Bjarki Gunnarsson selló;
Miklós Dalmay, Peter Máté og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó ásamt
Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík
u. stj. Marks Reedman. Drengjakór
Reykjavíkur og félagar úr Karlakór Reykja-
víkur u. stj. Friðriks S. Karlssonar. Sunnu-
daginn 11. desember kl. 16.
Jólatónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Stóra svið
Salka Valka
Mi 28/12 kl. 20 Su 8/1 kl. 20
Woyzeck
Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21
Lau 7/1 kl. 20 Su 15/1 kl. 21
Kalli á þakinu
Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14
Su 15/1 kl. 14
Carmen
Fi 12/1 kl. 20 FORSÝNING miðav. 2.000- kr
Fö 13/1 kl. 20 FORSÝNING miðav. 2.000- kr
Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT
Nýja svið/Litla svið
Þrjár systur e. Tsjekhov
Nemendaleikhúsið
Aðeins sýnt í desember
Í kvöld kl. 20 Fö 16/12 kl. 20
Lau 17/12 kl. 20 Su 18/12 kl. 20
Manntafl
Mi 28/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING
Fö 30/12 kl. 20 AUKASÝNING
Síðustu sýningar!
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
Miðasala á netinu
Borgarleikhúsið hefur opnað miðasölu á
netinu
Einfalt og þægilegt á vefsíðunni
www.borgarleikhus.is
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup
Fös. 16.des. kl. 20 UPPSELT
Lau. 17.des. kl. 19 Örfá sæti
Lau. 17.des. kl. 22 AUKASÝNING
Mið. 28.des. kl. 20 Örfá sæti
Fim. 29.des. kl. 20 Örfá sæti
Fös. 30.des. kl. 20 Nokkur sæti
Lau. 7.jan. kl. 19 AUKASÝNING
Gjafakort í leikhúsið - góð jólagjöf!
Miðasalan opin virka
daga frá 13-17 og allan
sólarhringinn á netinu.
Snjór í
fjallinu!
bókasalur: Upplestur Í dag KL 12:15
Árni Þórarinsson
Tími nornarinnar
Blóðrauð rauðrófusúpa á veitingastofu
Á MORGUN
Yrsa Sigurðardóttir
Þriðja táknið
MEÐ FYRIRVARA UM FORFÖLL
laus sæti
laus sæti
laus sæti
örfá sæti laus
laus sæti
uppselt
15.12
16.12
17.12
27.12
28.12
29.12
fim.
fös.
lau.
þri.
mið.
fim.
Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar.
GJAFAKORT - TILVALIN JÓLAGJÖF
MIÐASALA: www.midi.is og í Iðnó s. 562 9700