Morgunblaðið - 13.12.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 49
KEFLAVÍKÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI
JUST LIKE HEAVEN kl. 8 - 10
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
B.i. 10 ára kl. 6 - 9
LITLI KJÚLLIN Ísl tal. kl. 6
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
kl. 8 B.i. 10 ára.
TWO FOR THE MONEY
kl. 8 B.i. 12 ára.
THE EXORCISM OF EMILY ROSE
kl. 10.15 B.i. 16 ára.
KING KONG Frumsýnd kl. 12 á miðnætti
KING KONG Frumsýnd í Lúxus VIP kl. 12 á miðnætti
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
kl. 4 - 5 - 7.10 - 8.10 - 10.20 B.i. 10 ára.
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN VIP kl. 8.10
JUST LIKE HEAVEN kl. 3.50 - 6 - 8.10 - 10.20
NOEL kl. 3.50 - 6 - 8.10
GREENSTREET HOOLIGANS kl. 10.30 B.i. 16 ára
LORD OF WAR kl. 10.30 B.i. 16 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4
KING KONG Frumsýnd kl. 12 á miðnætti
JUST LIKE HEAVEN kl. 6 - 8 - 10.10
HARRY POTTER OG ELDBIKARINN
kl. 5 B.i. 10 ára.
FRÁ ÓSKARÐSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON
FRUMSÝND Í KVÖLD KL. 12 Á MIÐNÆTTI
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4539-8618-0017-6940
4741-5200-0012-5404
4507-4500-0029-0459
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
10.12.2005
1
4 5 2 8 2
0 3 1 3 3
2 3 8 18
22
07.12.2005
6 23 30 37 39 45
8 359
GEISLAPLATAN með nýju útgáf-
unni af laginu „Hjálpum þeim“ er
komin í verslanir. Platan inniheld-
ur auk nýju útgáfunnar sem tekin
var upp af Þorvaldi Bjarna Þor-
valdssyni, ósungna karókí-útgáfu
og svo náttúrlega upprunalegu út-
gáfuna frá 1985. Geislaplatan
kostar aðeins 1.000 krónur og
rennur allur söluhagnaður, utan
virðisaukaskatts, óskiptur til söfn-
unarátaks Hjálparstarfs kirkj-
unnar vegna hamfaranna í Pak-
istan og til annarrar
neyðarhjálpar víða um heim.
Söfnunarsíminn 907 2002
Í fréttatilkynningu segir að það
sé einlæg von aðstandenda verk-
efnisins að með því nái ekki að-
eins að safnast drjúg fjárhæð til
handa hinum bágstöddu á jarð-
skjálftasvæðunum í Pakistan held-
ur muni það einnig vekja athygli
á söfnunarátaki því sem Hjálp-
arstarf kirkjunnar stendur nú fyr-
ir. Þá er vert að minna á söfn-
unarsíma Hjálparstarfs
kirkjunnar, sem er 907 2002. Plat-
an er fáanleg í öllum verslunum
Hagkaupa og völdum verslunum
Bónuss, 10-11 og TopShop um
land allt.
Morgunblaðið/Golli
Íslenskir tónlistarmenn koma bágstöddum til hjálpar.
Hjálpum þeim komin í verslanir
BANDARÍSKI leikstjórinn Quentin Tarantino heimsæk-
ir Ísland á ný í lok desember. Tarantino var gestur hér á
landi um miðjan nóvember í tilefni sýningar myndarinnar
Hostel og hreifst víst svo af landi og þjóð að hann hét því
að koma aftur sem fyrst – og sem oftast og í því sambandi
ræddi hann ýmsar samstarfshugmyndir við ráðamenn
kvikmyndahátíðarinnar Iceland Film Festival.
Úr varð að föstudaginn 30. desember verður boðið upp
á þriggja kvikmynda bíóveislu í Háskólabíói. Tarantino
mun sjálfur velja kvikmyndirnar og senda filmur hingað
til lands úr sínu einkasafni. Á heimili hans í Los Angeles
er að finna fullkominn bíósal og auk þess mikla geymslu
sem er sérhönnuð til að varðveita filmur. Á hann þar orðið
gríðarlegt safn af merkilegum kvikmyndum og fá Íslend-
ingar að sjá þrjár þeirra 30. desember.
Tarantino verður viðstaddur sýningarnar en hann mun
kynna myndirnar og svara spurningum áhorfenda eftir
þær. Fyrsta myndin er sýnd kl. 21 og svo koll af kolli. Með
kynningum og þreföldu „spurt og svarað“ er búist við að
dagskránni ljúki u.þ.b. kl. 3 um nóttina.
Reiknað er með að í þetta skiptið taki Tarantino með
sér nokkra góðvini til landsins og talið er líklegt að þekkt
andlit verði þar á meðal úr heimi kvikmynda og tónlist-
ar. Mun hópurinn allur dvelja hér fram yfir áramót og er
ætlunin að skemmta sér vel. Tarantino heldur héðan
rakleiðis til New York til að fylgja eftir frumsýningu á
hryllingsmyndinni Hostel í leikstjórn Elis Roth en
myndin verður frumsýnd samtímis hér á landi.
Kvikmyndir | Quentin Tarantino fagnar nýju ári á Íslandi
Sýnir úr einkasafni sínu
Morgunblaðið/Kristinn
Tarantino var í miklu stuði á Októberbíófest.
DISNEY-kvikmyndinni Ljónið,
nornin og skápurinn (The Chronic-
les of Narnia: The Lion, The Witch
and the Wardrobe) sem er byggð á
sögum C.S. Lewis tókst að slá nýj-
ustu kvikmyndina um Harry Potter
af toppi bandaríska vinsældalistans
en Harry Potter og eldbikarinn
hafa setið kirfilega á toppnum síð-
ustu þrjár vikurnar. Kvikmyndin
um töfralandið Narníu halaði inn
rúma 67 milljón dali í Bandaríkj-
unum en í Bretlandi náði hún auk
þess besta árangri sem Disney-
mynd hefur náð fyrr og síðar þar í
landi.
Kvikmyndin Syriana er í öðru
sæti þessa vikuna en myndin sem
er lýst sem pólitískri spennumynd,
gerist í Mið-Austurlöndum og stát-
ar af George Clooney í aðal-
hlutverki. Sú mynd rakaði inn heil-
um 12 milljón dölum sína þriðju
viku á listanum.
Myndin sem töfralandið Narnía
velti úr sessi, Harry Potter og eld-
bikarinn, fellur í þriðja sætið í
þessari viku en hún halaði inn
rúma 10 milljón dali í Bandaríkj-
unum sína fjórðu viku á lista. Hef-
ur myndin þá tekið inn tæpar 250
milljónir bandaríkjadala frá því að
hún kom út þar vestra.
Það er svo kvikmyndin um
kántrí-söngvarann og skuggasvein-
inn Johnny Cash sem vermir fjórða
sætið en myndin Walk the Line tók
inn tæpar sex milljónir Bandaríkja-
dala sína fjórðu viku á lista.
Narnía veltir Harry af toppnum
C.S. Lewis er höfundur ævintýr-
anna sem gerast í Narníu.
FÁAR íslenskar hljómsveitir hafa átt
jafn góðu gengi að fagna og Írafár og
þekkja langflestir Íslendingar Birg-
ittu Haukdal söngkonu. En Írafár er
miklu meira en ímynd Birgittu Hauk-
dal, hún er góð
hljómsveit. Á þess-
ari þriðju plötu Íra-
fárs er það orðið
ljóst að Vignir
Snær Vigfússon er
ákaflega flinkur lagasmiður. Hann
semur grípandi og góða tónlist, auk
þess sem hann er lunkinn gítarleik-
ari. „Aftur heim“ og „Að eilífu“ eru
stórfín lög, en það síðarnefnda skart-
ar fallegum píanóleik Andra Guð-
mundssonar. „Leiðin til himna“ er
grípandi, sætt, einlægt og kraftmikið
í senn. Lagið „Nýjan felustað“ er
skemmtilega kraftmikið, hávær gítar,
þéttur trommutaktur, sterkur söngur
– allt það sem gerir rokk frábært.
Rokkgirni Vignis og sætleiki Birgittu
renna saman í fullkomna blöndu af
þéttu og alvörugefnu poppi.
Það er auðvelt að heyra á plötunni
hvað gerir Írafár að vinsælli hljóm-
sveit, því auk lagasmíða Vignis og
Birgittu þá kunna nýi trommuleik-
arinn Arnar Þór Gíslason og Sig-
urður Samúelsson bassaleikari að
keyra upp kraftinn og halda vel utan
um sveitina. Írafár hefur það umfram
margar aðrar hljómsveitir í sveita-
ballabransanum að hún hefur sérlega
mikla orku sem hljómsveitarmeðlimir
kunna að láta flæða yfir allt sem þeir
taka sér fyrir hendur.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
kemur mikið við sögu á plötunni og
ekki leikur nokkur vafi á því að hann
er afskaplega fær á sínu sviði. Ekki
þykir mér alltaf nauðsynlegt að
hljómurinn á plötum sé flekklaus og
tær, eins og mér finnst hann vera á
þessari plötu. Þetta verður á stund-
um of fullkomið og of unnið fyrir
minn smekk. Þetta þarf ekki endilega
að vera neikvætt og kannski hljómar
Írafár betur svona, en ég hefði viljað
heyra færri eða einfaldari strengjaút-
setningar. Stundum þykja mér þær
hreinlega yfirþyrmandi og kæfa önn-
ur hljóðfæri. Þar sem tónninn er oft
mjög alvarlegur, bæði í útsetningum
og textum, verður útkoman á köflum
afar hástemmd og dramatísk.
Þróun sveitarinnar frá fyrri plötum
er ekki afgerandi mikil en tilrauna-
starfsemi er þó til staðar. Skemmti-
legt þótti mér að heyra Vigni spila á
mandólín og kazoo. Afraksturinn er
vel unnin poppplata þar sem feilnótur
eru ekki slegnar. Ágætir textar og
fínar lagasmíðar. Írafár stendur sig
vel og á eflaust eftir að njóta mikilla
vinsælda áfram, enda vel að því kom-
in. Það er gaman að hlusta á popp-
sveit sem kann sitt fag.
Enn af góðu poppi
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Írafárs, samnefndur hljóm-
sveitinni. Írafár er Birgitta Haukdal, Vign-
ir Snær Vigfússon, Andri Guðmundsson,
Arnar Þór Gíslason og Sigurður Sam-
úelsson. Lögin eru öll eftir Vigni Snæ en
textar eru eftir Birgittu, Vigni Snæ, Frið-
rik Sturluson og Ólaf Fannar Vigfússon.
Um hljóðritun sáu Vignir Snær, Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, Gunnar Þór Jónsson
og Hrannar Ingimarsson. Þorvaldur
Bjarni sá um útsetningu strengja. Vignir
Snær og Þorvaldur Bjarni útsettu og
stjórnuðu upptökum. Sena gefur út.
Írafár – Írafár
Helga Þórey Jónsdóttir