Morgunblaðið - 13.12.2005, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
GUNNAR Egilsson bílasmiður og breskir félagar
hans settu í gær heimsmet þegar þeir urðu fljót-
astir manna til að ná á suðurpól-
inn frá Patriot Hills á Suð-
urskautslandinu á landfarartæki.
Náðu þeir á pólinn á 70 klukku-
stundum en höfðu sett sér það
markmið að komast þangað á að-
eins 60 stundum. Fór Gunnar
leiðina á sérútbúinni jeppa-
bifreið, sex hjóla Ford Econoline,
sem hann útbjó sérstaklega til
fararinnar. Með Gunnari í för eru
fimm aðrir pólfarar sem þekkja
vel til Suðurskautslandsins. Þeir
höfðu þjálfað saman fyrir leið-
angurinn og fóru m.a. í tíu jökla
leiðangur hérlendis á síðasta ári
og í Grímsfjöll fyrir skemmstu til að undirbúa
leiðangurinn. Leiðin frá Patriot Hills að suð-
urpólnum er um 1.200 km.
Gunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að ferðin hefði gengið eins og í sögu og gaman
hefði verið að fá að gera þetta, smíða bílinn og
fylgja honum eftir alla leið. Það eina sem kom upp
á var að eitt dekkjanna affelgaðist og tók um tvo
tíma að koma dekkinu á aftur. Sagði hann veðrið
hafa verið mjög gott allan tímann og blankalogn
alla dagana. „Mesta frostið sem
við sáum var 12 gráður. Nú stend
ég við hliðina á fánaborginni á
suðurpólnum og frostið er 9 gráð-
ur. Hér vinna um 300 manns og
fólkið kemur út á inniskónum. Það
man ekki eftir öðru eins. En færð-
in hefur verið slæm allan tímann.“
Gunnar sagði að bíllinn hefði eytt
mun meiri olíu en ráðgert hafði
verið vegna þess að færðin var svo
slæm. „Mönnum fannst mjög
gaman að sjá bílinn koma hérna
að pólnum því yfirleitt er það
gönguskíðafólk sem leggur leið
sína hingað,“ bætti Gunnar við.
Síðan lagt var af stað á hádegi föstudaginn sl.
hafði Gunnar einungis sofið í tvo klukkutíma.
Sagði Gunnar að stefnt yrði að því að hvílast í um
fimm tíma og svo yrði heimferðin undirbúin. Jap-
aninn Shinji Kazama átti fyrra heimsmet en hann
fór leiðina á 24 dögum og náði hann þangað hinn 3.
janúar 1992 á sérútbúnu Yamaha mótorhjóli. Með
Kazama í för var snjóbíll með neyðarútbúnaði.
Slæm færð og meiri olíu-
eyðsla en reiknað var með
Gunnar Egilsson og Sverrir Hilmarsson gera við
dekk sem affelgaðist í leiðangri þeirra á Gríms-
fjall á Vatnajökli. Slíkt hið sama gerðist í ferð
Gunnars á suðurpólinn um helgina.
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
Gunnar Egilsson og breskir félagar hans settu heimsmet í ferð sinni á suðurpólinn
& $% B /
/O )
/
&'(
)'
(
'(
&*(
+'(,
!
" # $
% &
FREYR Jónsson, tæknifræðingur
og suðurskautsfari, segir að í för
sem þessari reyni mikið á bíla, sér-
staklega drifbúnaðinn. Bíll Gunn-
ars sé sérstakur því bætt hafi verið
við einni hásingu að aftan þannig að
bíllinn sé sex hjóla sem dreifi álag-
inu mjög vel. „Ég hef verið þarna
uppi á hásléttunni og eftir því sem
maður fjarlægist ströndina því erf-
iðari verður færðin. Nálægt strönd-
inni er verra veður og það lemur
snjóinn niður og þéttir hann og svo
eru þarna rifskaflar því þegar veðr-
ið er vont þá rífur það upp snjóinn á
köflum. En uppi á hásléttunni snjó-
ar lítið og þar er ekkert veður sem
lemur snjóinn niður og því er færð-
in verri þar,“ segir Freyr.
„Mér finnst þetta geysilegt afrek
hjá Gunnari vegna þess að hann er
eini Íslendingurinn og leiðangurinn
stendur og fellur með honum. Ef
það kemur eitthvað upp á, og á suð-
urskautinu gerast ólíklegustu hlut-
ir, þá eru þeir ekki með annan bíl
með sér. Gunnar þekkir bílinn mjög
vel og hefur unnið mikið í svona bíl-
um. Ef eitthvað kemur upp á þá
verður Gunnar að redda málunum.“
„Geysilegt
afrek“
ÞAÐ er ýmislegt hægt að gera í Árbæjarsafni
þótt nútímaþægindi séu þar ekki alltaf í fyr-
irrúmi. Yfir vetrarmánuðina koma skólakrakkar
í heimsókn og kynna sér lifnaðarhætti fyrri
tíma. Þessir krakkar virðast skemmta sér einkar
vel þar sem þau fá far með hestvagninum.
Morgunblaðið/RAX
Hestaferð í Árbæjarsafni
VÍSITALA neysluverðs hækkaði
meira milli nóvember og desember
en greiningardeildir viðskiptabank-
anna höfðu gert ráð fyrir og er verð-
bólgan því meiri en deildirnar spáðu.
Vísitalan hækkaði um 0,36% en
um 0,22% ef húsnæðisliður vísitöl-
unnar er ekki tekinn með.
Verðbólgan síðastliðna tólf mán-
uði mælist nú 4,1%, en var 4,2% í síð-
asta mánuði. Verðbólgan er því enn
yfir efri þolmörkum Seðlabanka Ís-
lands. Verðbólgan án húsnæðisliðar
neysluverðsvísitölunnar er nú 0,7%.
Þetta kemur fram í mælingu Hag-
stofu Íslands.
Í hálf fimm fréttum greiningar-
deildar Kaupþings banka í gær segir
að birting verðbólgutalnanna hafi
haft mikil áhrif á markaði. Ávöxtun-
arkrafa verðtryggðra skuldabréfa
hafi lækkað en óverðtryggðra hækk-
að og gengi krónunnar styrkst tölu-
vert, eða sem nemi 0,5%.
Greiningardeild Landsbanka Ís-
lands segir í vefriti sínu, Vegvísi, að
greinilegt sé að nokkuð vanti upp á
að hagstætt gengi skili sér að fullu til
neytenda. „Frá því í janúar hefur
verð á innfluttum vörum hækkað að
jafnaði um 0,4% á meðan viðskipta-
vegið gengi erlendra gjaldmiðla hef-
ur lækkað (krónan hækkað) um
5,5%,“ segir í Vegvísinum.
Verðbólgan meiri
en bankarnir spáðu
Verðbólgan | 16
ÞRJÚ til fjögur björg féllu á veginn
um Óshlíð við Bolungarvík um kl. 18
í gær og varð að loka veginum tíma-
bundið. Enginn var þar á ferð þegar
skriðan fór af stað sem hlýtur að telj-
ast mildi. Að sögn Geirs Sigurðsson-
ar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar
á Ísafirði, rann grjótið úr bakka fyrir
ofan veginn, þar sem hann liggur
undir Sporhamri, en kom ekki ofan
úr Traðarhyrnu. Hvert bjarg vó um
2–4 tonn og varð að fá hjólaskóflu til
að ryðja veginn.
Stórgrýti
féll á Ós-
hlíðarveg
MINNA virðist vera af þorski á
Íslandsmiðum nú en á sama tíma
í fyrra. Stofnvísitala þorsks hefur
minnkað frá haustmælingunni ár-
ið 2004 eftir að hafa aukizt jafnt
og þétt frá árinu 2001. Þetta er í
samræmi við spár þar sem ár-
gangurinn frá 2001, sem mældist
mjög lélegur, er að koma inn í
veiðina.
Lengdardreifing þorsksins gef-
ur til kynna að árgangurinn frá
2005 sé lélegur, en mælist þó
stærri en árgangurinn frá 2004,
samkvænt nýafstöðnum haustleið-
angri Hafrannsóknastofnunar.
Meðalþyngd 2–4 ára þorsks eft-
ir aldri hefur lækkað lítillega frá
árinu 2004, en aukizt hjá 5–10
ára þorski. Holdafar þorsks á
norðursvæði rýrnaði og er nú
svipað og mældist árið 1997.
Magn loðnu í þorskmögum jókst
frá árinu 2004, en var samt mjög
lítið miðað við fyrri ár. Fæðuat-
huganirnar sýna einnig að heild-
arfæðumagn í þorskmögum hefur
minnkað og er með því minnsta
síðan mælingar hófust. Mest var
af loðnu í þorskmögum út af
Vestfjörðum og fyrir norðan
land. | 15
Þorskurinn
rýr í roðinu
FJÓRÐA myndin um galdrastrák-
inn Harry Potter er mest sótta
mynd helgarinnar í íslenskum kvik-
myndahúsum þriðju vikuna í röð.
Hafa nú fleiri en 40.000 manns lagt
leið sína á Harry Potter og eldbik-
arinn hérlendis. Hæsta nýja myndin
á lista er spennugamanmyndin Ice
Harvest sem situr í þriðja sæti. | 48
Fleiri en
40.000 á Potter